Morgunblaðið - 30.12.1986, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986
AP/Símamynd
Afganskir flóttamenn mótmæla
Mörg þúsund afganskir flóttamenn söfnuðust
saman í Islamabad í Pakistan á laugardag til
að minnast þess að þá voru sjö ár liðin frá því
Sovétmenn réðust inn í föðurland þeirra. A
myndinni sést hvar eldur hefur verið lagður í
brúðu, sem gerð var af Mikhail Gorbachev, leið-
toga Sovétríkjanna. Talið er að um 115 þúsund
sovéskir hermenn séu nú í Afganistan.
Kína:
Stjórnvöld boða
lýðræðislegar kosn-
ingar á næsta ári
Peking, AP.
EMBÆTTISMENN í Peking sögðu í gær að kosið yrði til bæjar- og
sveitarstjórna í Peking og nágrannabyggðum á næsta ári. Hétu þeir
ennfremur að kosið yrði með lýðræðislegum hætti.
Tilkynning embættismannanna
kom í kjölfar mótmæla námsmanna
í níu kínverskum borgum undan-
farnar vikur. Á föstudagskvöld
komu 4000 námsmenn saman í
Nanjing og kröfðust aukins lýðræð-
is og frelsis. Sama dag samþykktu
ráðamenn í Peking reglugerð þar
sem bann er lagt við opinberum
mótmælum. Þá var í tilkynningu
stjórnvalda varað við „vestrænni
hugmyndafræði". Borgarstjórn
Shanghai hefur einnig samþykkt
sams konar reglugerð.
Shanghai og kröfðust endurbóta.
Ennfremur var tilkynnt í Peking
í gær að kosið yrði til bæjar- og
sveitarstjóma á fyrri hluta næsta
árs. Síðast var kosið árið 1984. I
tilkynningunni sagði að fyrirkomu-
lag þeirra yrði með lýðræðislegum
hætti. Haft var eftir ónefndum
embættismanni að stjómvöld hygð-
ust gangast fyrir opinskáum
umræðum fyrir kosningarnar og
tryggja þar með aukna þátttöku
almennings.
Dagblað alþýðunnar sagði í for-
ystugrein í gær að „borgaralegar
hugmyndir“ spilltu æskuiýð lands-
ins. Undanfarna viku hafa mótmæli
námsmanna verið fordæmd með
öllu í kínverskum fjölmiðlum og
hófst herferð þessi eftir að þúsund-
ir námsmanna flykktust út á götur
Bretland:
Þingmað-
ur lét lífið
Kazakhstan:
Sérleg stjórnarnefnd til að
vinna gegn glæpastarfsemi
Moskvu. AP.
SÉRLEG stjórnarnefnd var sett
á laggirnar í Sovétlýðveldinu
Kazakhstan á laugardag, og
verður verksvið hennar að beij-
ast gegn klíkuskap, mútustarf-
semi, óreglu og hvers konar
þjóðfélagslegri óáran í lýðveld-
inu. Fyrr í þessum mánuði kom
FIMMTÍU sovéskir útflytj-
endur sneru á sunnudag aftur
til Sovétríkjanna eftir að hafa
dvalið nokkur ár I Banda-
ríkjunum. Við brottförina á
Kennedy-flugvelli í New
York kvaðst fólkið hafa verið
óhamingjusamt í Banda-
ríkjunum og bíða þess með
eftirvæntingu að hitta frænd-
fólk í Sovétríkjunum á nýjan
leik þrátt fyrir að óvissan
biði þess.
Blaðamenn tóku viðtöl við
nokkra áður en þeir stigu um
borð í Aeroflot-farþegavélina, sem
átti að flytja þá heim. Þeir sögð-
ust ekki vita hvort gamlir vinir
og nágrannar tækju sig í sátt eft-
ir að hafa dvalið vestantjalds um
árabil og einnig væri óvíst um
atvinnu.
Sovéskir embættismenn sögðu
að ekki hefðu áður jafnmargir
útflytjendur snúið aftur til Sov-
étríkjanna í einu. Aeroflot-flugfé-
lagið flýgur vikulega frá New
York til Moskvu en nú brá svo
við að flugið tafðist um fimm
til mikilla óeirða í höfuðborg lýð-
veldisins, Alma Ata.
Dimmukhamed Kunaev, sem er
Kazakhstani og á sæti í stjóm-
málaráði Sovétríkjanna, veitti
kommúnistaflokki lýðveldisins for-
ystu um 22 ára skeið, og gengu
klukkustundir vegna þess að út-
vega þurfti stærri farkost.
sögur um spillingu og óstjórn undir
forystu hans fjöllunum hærra.
Þegar Rússinn Gennady Kolbin
var skipaður flokksleiðtogi í
Kazakhstan um miðjan þennan
mánuð - í stað Kunaevs, efndu stúd-
entar til mótmælaaðgerða á götum
Alma Ata og kveiktu í bílum og
verslunarhúsnæði. Logaði borgin í
óeirðum 17. og 18. desember.
Sovéska fréttastofan Tass sagði
frá því fyrir helgina, að skipuð hefði
verið sérleg stjómarnefnd á vegum
miðstjómar kommúnistaflokksins í
Kazakhstan, og væri nefndinni ætl-
að það hlutverk að beijast á móti
glæpastarfsemi, drykkjuskap, eit-
urlyfjaneyslu og ólöglegri tekjuöfl-
un í lýðveldinu.
Tass sagði, að Kolbin hefði
ávarpað nefndina og hvatt nefndar-
menn til að berjast gegn „neikvæð-
um fyrirbærum" - og var þar
greinilega átt við arfinn frá stjóm-
artíð Kunaevs.
Að sögn fréttastofunnar lögðu
nefndarmennirnir áherslu á nauð-
syn þess að uppræta klíkuskap,
ættapot, mútustarfsemi og mis-
beitingu valds.
Tass sagði enn fremur, að brýn-
asta verkefni nefndarinnar fyrst í
stað yrði að sjá til þess, að röð og
regla ríkti í Kazakhstan. Ekki var
þess getið, hvort upp úr hefði soðið
frá því í óeirðunum í Alma Ata.
Los Angeles, Reuter. AP.
BREZKA leikkonan Elsa Lan-
chester, sem lengi hefur verið
búsett í Bandaríkjunum, lézt
á sjúkrahúsi í Los Angeles á
jóladag.Banamein hennar var
lungnabólga. Hún var 84 ára.
Elsa Lanchester lék í yfir 40
kvikmyndum, þeirri fyrstu árið
1930 (Dagdraumar) og hinni
síðustu árið 1978 (Morð). Urðu
margar þeirra meðal vinsælustu
mynda hvers tíma. Meðal þeirra
í bílslysi
Truro, Englandi, AP.
DAVID Charles Penhaligon, einn
helsti leiðtogi Frjálslynda flokks-
ins á Bretlandi, lést í bílslysi á
mánudagskvöldið. Hann var 42
ára að aldri.
Penhaligon var á ferð í Corn-
wall-héraði þegar bifreið hans rann
til í hálku og skall framan á vörubif-
reið. Vörubifreiðin rakst þá á
áætlunarbíl og kom upp eldur í
honum. Að sögn lögreglumanna var
hálkan með ólíkindum þetta kvöld.
David Charles Penhaligon var
helsti talsmaður Fijálslynda flokks-
ins í efnahagsmálum. Hann gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum innan
flokksins og sat í fjölmörgum
nefndum. Hann lætur eftir sig konu
og tvö börn.
er Brúður Frankenstein (1935),
Mary Poppins (1952) og Vesaling-
arnir (1952). Einnig á hún að
baki glæsilegan feril í ieikhúsi.
Elsa Lanchester er jafnframt
metsöluhöfundur því bækur henn-
ar tvær, Charles Laughton og ég
(1938) og Elsa Lanchester — sjálf-
sævisaga (1983) urðu met-
sölubækur. Hún giftist bandaríska
leikaranum Charles Laughton árið
1929 en hann lézt 1962.
Bandaríkin:
Fólkmeð kynsjúkdóma höfð-
ar mál á hendur smitberunum
Minnesota, Bandaríkjunum. AP.
FÓLK, sem orðið hefur fyrir því að smitast af kynsjúkdómum
og hingað til hefur látið nægja að leita læknis í kyrrþey, snýr
sér nú í vaxandi mæli til dómstólanna í því skyni að leita réttar
síns og draga smitberana til ábyrgðar.
„Þessum málum hefur fjölgað
umtalsvert," segir Stepher Befort,
lagaprófessor í Minnesota, en
hann hefur nokkrum sinnum verið
kvaddur ti! sem meðdómandi.
„Fyrir aðeins þremur til ijórum
árum voru mál sem þessi nær
óþekkt fyrirbæri."
Flest málanna eru enn til með-
ferðar og í fáeinum tilvikum hefur
tekist samkomulag milli aðila án
málaferla. En lögfræðingar telja,
að dómssátt gæti hins vegar.skap-
að fordæmi og leitt til fjölgunar
málssókna.
Málaferli af þessu tagi munu
eiga eftir að koma við trygginga-
félög, sem lenda í þvf að greiða
skaðabætur.
Þannig komst Stewart Perry,
lögfræðingur í Minneapolis, að
samkomulagi fyrir hönd kvenkyns
skjólstæðings síns, sem smitast
hafði af herpes, um að trygging-
arfélag fyrrverandi elskhuga
konunnar greiddi henni 25.000
dollara í skaðabætur. Síðan þetta
samkomulag náðist segist hann
hafa fengið fjöldann allan af upp-
hringingum frá herpes-sjúkling-
um og tekið að sér á annan tug
sams konar mála.
Einn af þeim, sem eru að leita
réttar síns fyrir dómstólunum, er
fráskilin kona, sölustjóri að at-
vinnu. Hún fer fram á að fá
greiddar 100.000 dollara í bætur
frá manninum, sem hún telur að
hafi smitað hana af herpes fyrir
tveimur árum.
Konan, sem ekki vildi láta nafns
síns getið, sagði, að líf sitt hefði
gjörbreyst eftir að hún smitaðist.
Kvaðst hún ekki hafa lifað kynlífi
frá því að fyrstu merki sjúk-
dómsins komu fram. Henni bæri
skylda til að vara hugsanlegan
elskhuga við, hvemig ástatt væri
fyrir henni, og hún gæti ekki
hugsað til þess að taka þá áhættu
að láta hafna sér.
Bandaríkin:
Fimmtíu sovésk-
ir útflytjendur
snúa heim aftur
New York, AP.
Elsa Lanchester látin