Morgunblaðið - 30.12.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986
31
Filippseyjar:
• ✓
Brenndu mynd-
ir af forsetanum
AP/Símamynd
Járnbrautarsamgöngur í Frakklandi hafa dregist saman um 75 prósent vegna verkfalls járnbrautar-
starfsmanna, sem er það víðtækasta siðan 1968. Mynd þessi var tekin af kyrrstæðum lestum á járn-
brautarstöð Heilags Lasarusar í Paris.
Verkföll í Frakklandi:
Mitterrand hvetur
Chirac til aðgerða
París, Reuter, AP.
FRANCOIS Mitterrand, forseti Frakklands, hvatti frönsku stjórnina
í gær til þess að grípa í taumana og binda enda á verkfall járn-
brautarstarfsmanna, sem nú hefur staðið yfir í tólf daga. Heimildar-
menn i forsetahöllinni i París sögðu að Mitterrand, sem var í jólafríi
í Egyptalandi, hefði rætt við Jacques Chirac forsætisráðherra og
sagt honum að stjórnin gæti ekki leitt svo alvarlegt mál hjá sér.
Chirac hefur til þessa útilokað sem minnst til að ná fram því mark-
ir verðleikum en ekki starfsaldri
eins og alsiða hefur verið.
Manilu, AP.
STJÓRNARANDSTÆÐING-
AR á Filippseyjum brenndu
myndir af Corazon Aquino,
forseta landsins, á sunnudag
og hvöttu landslýð til að fella
tillögu stjórnarinnar um nýja
stjórnarskrá í kosningum þann
2. febrúar.
Um 800 stuðningsmenn Marc-
osar, fyrrum forseta Filippseyja,
komu saman í Manilu og brenndu
eintök af vikuritinu Time en það
blað útnefndi Corazon Aquino
„konu ársins" í síðustu viku.
Stjórnarandstæðingar óku um
borgina og hvöttu almenning til
að fella stjómarskrártillögu stjóm-
arinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu
sem boðað hefur verið til 2. febrú-
ar næstkomandi.
Fylgismenn Corazon Aquino
telja að nýja stjórnarskráin verði
samþykkt þrátt fyrir andstöðu
stuðningsmanna Marcosar og
stærsta verkalýðsfélags Filipps-
eyja.
Vikuritið Time útnefndi Coraz-
on Aquino „konu ársins" en mynd
af henni prýddi eina forsíðu blaðs-
ins og er þetta í þriðja skipti í
sögu þess sem mynd af konu er á
forsíðunni. Það gerðist fyrst árið
1936 þegar mynd af Wallis Simp-
son skreytti forsíðuna og síðan
árið 1952 þegar Elísbetu Breta-
drottningu hlotnaðist sá heiður.
Japan:
Sex far-
ast í lest-
arslysi
Tókýó, AP.
SEX lestarvagnar fuku í hvass-
viðri ofan af brú í suðvesturhluta
Japans á sunnudag og féllu síðan
40 metra niður á hús og verk-
smiðju með þeim afleiðingum,
að sex manns biðu bana og sex
aðrir slösuðust alvarlega.
Slys þetta hefði geta orðið enn al-
varlegra, því að rétt áður höfðu
þeir 180 farþegar, sem með lestinni
voru, farið úr henni. Snúa átti lest-
inni við, þegar hún var komin yfír
brúna og áttu farþegamir að stíga
upp í hana aftur, þegar hún sneri
til baka. Hefðu þeir farið með lest-
inni á leiðarenda, má telja víst, að
slys þetta hefði orðið miklu mann-
skæðara.
að stjómin grípi inn í launadeiluna
milli verkfallsmanna og yfírvalda
járnbrautarlesta (SNCF). Hann hef-
ur látið lítið að sér kveða í verk-
fallinu og látið ráðherrum sínum
og yfírmönnum SNCF það eftir að
ijalla um þetta mál. í gær ákvað
forsætisráðherrann aftur á móti að
fresta ferðalagi, sem hann ætlaði
að fara í yfír áramótin.
Chirac hefur verið gagnrýndur
fyrir aðgerðarleysi í verkfallinu og
dagblaðið Liberation spurði: „Er
stjómin í verkfalli?"
Þetta er fyrsta alvarlega launa-
deilan, sem upp hefur komið síðan
Chirac komst til valda í mars. Þar
áður var stjórn sósíalista við stjóm-
völinn undir forystu Laurents
Fabius og var þá lítið um verkföll.
Verðbólga í Frakklandi er nú 2,1
prósent og vill Chirac hækka laun
miði stjómarinnar að blása lífi í
efnahaginn og auka atvinnu. Ef
jámbrautarstarfsmenn fá umtals-
verða launahækkun gæti farið svo
að verkamenn um land allt setji
fram ámóta kröfur.
Eftir áramót hefjast viðræður um
kaup og kjör við opinbera starfs-
menn og heyrast þegar óánægju-
raddir meðal starfsmanna við
raforku- og gasfyrirtæki.
Lestarferðir hafa verið fáar síðan
verkfallið hófst og fólk, sem ætlaði
í ferðalög yfír jól og áramót, á í
mestu vandræðum. Stjóm jám-
brautarlesta neitar að ræða við
verkfallsmenn nema þeir snúi aftur
til vinnu. Jámbrautarstarfsmenn
segjast hafa dregist aftur úr undan-
farin ár og einnig eru þeir andvígir
ráðagerðum um að greiða laun eft-
Garmisch Partenkirchen:
Slökkviliðinu tókst
ekki að koma í veg
fyrir sprenginguna
- þrátt fyrir viðvaranir
Garmisch Partenkirchen, Vestur-Þýskalandi. AP. Reuter.
SLÖKKVILIÐSMÖNNUM tókst ekki að ná í tíma til Riessersee-
hótelsins i Garmisch Partenkirchen og koma í veg fyrir sprenging-
una, sem þar varð um helgina, þrátt fyrir viðvaranir starfsfólks
15-20 mínútum fyrr. Sjö létu lífið í sprengingunni og tólf slösuðust
alvarlega.
Jólabörn
AP/Símamynd
Börn þessi fæddust öll á jólunum i Lions Gate-
sjúkrahúsinu í Vancouver i Kanada og þótti
starfsfólkinu við hæfi að skrýða þau í anda há-
tíðarinnar.
Sovétríkin:
Þúsundir pólitískra
fanga munu fá frelsi
Björgunarmenn fundu lík sex
gesta og eins starfsmanns hótelsins
eftir sjö tíma leit í rústunum. Tólf
manns urðu að dveljast áfram á
sjúkrahúsi, eftir að gert hafði verið
að sárum þeirra þar á sunnudag.
Fjórtán fengu að fara heim eftir
læknismeðferð.
Talsmaður lögreglunnar í Bæj-
aralandi, Max Kögl, sagði, að
rannsóknarmenn teldu, að spreng-
ingin hefði orðið af völdum bilaðrar
leiðslu frá sex tonna gasgeymi f
einni álmu byggingarinnar. Hann
sagði, að geymirinn hefði verið
skoðaður viku áður, en leiðslan hins
vegar ekki verið athuguð um leið.
Forráðamenn hótelsins sögðu, að
nokkrir gestanna hefðu látið vita
um gaslykt 15-20 mínútum áður
en sprengingin varð og hefði hótel-
stjómin þegar gert borgaryfirvöld-
um aðvart.
Yfír 300 gestir voru bókaðir á
hótelinu, en flestir þeirra vom utan-
dyra við skíðaiðkanir, þegar ósköpin
dundu yfír.
— að sög-n Sunday Times
London, AP.
MIKHAIL GORBACHEV, leiðtogi Sovétríkjanna hyggst veita þúsund-
um pólitískra fanga sakaruppgjöf á næsta ári, að sögn breska
blaðsins Sunday Times. í blaðinu segir að vænta megi stefnubreyting-
ar sovéskra stjórnvalda gagnvart andófsmönnum.
Fréttaritari blaðsins í Moskvu
sendi þessa frétt frá sér og kvaðst
hafa traustar heimildir fyrir henni.
Sagði hann að sérstök nefnd skipuð
fulltrúum kommúnistaflokksins og
leyniþjónustunnar, KGB, ynni nú
að undirbúningi þessa. Ennfremur
sagði að Sovétstjómin hygðist nú
hrinda f framkvæmd „endurbóta-
herferð“, sem væri hin umfangs-
mesta frá dögum Nikita Kmschevs.
Hingað til hafa sérfræðingar í
málefnum Sovétríkjanna sagt að
örar og afdráttarlausar stjómkerf-
isbreytingar séu óhugsandi þar
eystra þar eð miðstýringin kæfí all-
ar slíkar tilraunir í fæðingu. Hins
vegar segir fréttaritari Sunday Ti-
mes að sovéska leyniþjónustan
muni hlíta fyrirmælum Gorbachevs
auk þess sem efnahagsástandið sé
það bágborið að breytingar séu
óhj ák væmilegar.
Fréttaritarinn kvaðst einnig hafa
óyggjandi heimildir fyrir því að sak-
amppgjöfion myndi einnig ná til
manna sem hlotið hafa famgelsis-
dóma vegna auðgunarbrota og
spillingar. Þykir þetta fréttnæmt
ekki síst í ljósi þess að Gorbachev
hefur hafíð mikla herferð gegn
hvers konar spillingu innan stjóm-
kerfisins.