Morgunblaðið - 30.12.1986, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986
35
Álfadrottning’ og álfakóngur fara í fararbroddi á álfagleði Fljótshlí-
ðinga.
Alfadans í
Fljótshlíðinni
Ungmennafélagið Þórsmörk í
Fljótshlið var stofnað 10. nóv-
ember 1917, og verður því 70 ára
á næsta ári. Félagið hefur frá
upphafi starfað að ýmsum menn-
ingarmálum i sveitinni svo sem
íþróttum, málfundum, skógrækt,
hópferðum, skemmtunum o.fl.
I upphafi afmælisársins mun fé-
lagið standa fyrir álfadansi og
brennu við félagsheimilið Goðaland,
eða nánar tiltekið laugardagskvöld-
ið 3. janúar.
Álfadansinn hefur verið árviss
liður í starfsemi félagsins flest árin
frá stofnun þess. Á seinni árum
hafa þátttakendur á stundum orðið
allt að 60 og hefur áhorfendur drif-
ið víða að. Síðastliðið ár er talið að
þeir hafi verið allt að 400, sem
verður að teljast gott í sveitarfé-
lagi, sem telur einungis rúmlega
230 íbúa.
í tilefni afmælisins hefur einnig
verið ákveðið að setja upp leikrit
og hefjast æfingar nú fljótlega eft-
ir áramótin. Árið 1952 afhenti
Guðjón Jónsson bóndi í Tungu 7
ha. lands undir sveitarskóg. Hefur
ungmennafélagið plantað í reitinn
flest árin 3.000 plöntum, einkum
stafafuru og sitkagreni auk annarra
tegunda. Er þarna vaxinn upp tölu-
verður skógur og hektaramir 7 nú
orðnir u.þ.b. 14, þar sem skógrækt-
in á Tumastöðum hefur látið land
til viðbótar. Hæstu trén eru orðin
6—7 metra há og hafa tré í þeim
stærðarflokki verið höggin og seld
sem jólatré og prýða þau nú þorp
og bæi á suðvesturhominu, ljósum
skrýdd.
Á síðastliðnum vetri gekkst fé-
lagið fyrir leiklistamámskeiði og
nutu 13 þátttakendur leiðbeiningar
Ingunnar Jensdóttur í framsögn og
sviðsframkomu.
Einnig gekkst félagið fyrir dans-
námskeiði síðastliðinn vetur og var
leiðbeinandi Sigríður Sæland.
Hinn árvissi áramótaálfadans í Fljótshlíðinni verður nk. laugardags-
kvöld, 3. janúar með brennu, álfadansi, söng og dansleik. Meðfylgj-
andi mynd var tekin um síðustu áramót.
Almennur borgarafundur á Húsavík:
Flestir á móti
áfengisútsölu
Húsavík.
ALMENNUR borgarafundur var
haldinn á Húsavík síðastliðinn
sunnudag, að frumkvæði áfeng-
isvarnarnefndar, til að ræða um
opnun áfengisútsölu í bænum.
Fundurinn var fjölsóttur, en
frummælendur voru: Gunnar
Rafn Jónsson læknir, Óm Jó-
hannsson bæjarfulltrúi og
Hörður Harðarson nemi í Gagn-
fræðaskóla Húsavíkur.
Samkvæmt framsöguræðu Harð-
ar virðast nemendur Gagnfræða-
skólans vera andvígir opnun
áfengisútsölu og einnig kom fram
hjá honum að í skólanum reykja
aðeins fimm nemendur.
Á fundinum tóku yfir 20 manns
til máls og mæltu flestir á móti
opnun útsölunnar, enginn með, en
nokkrir vildu vera hlutlausir. Fram
kom tillaga þar sem skorað er á
bæjarstjóm Húsavíkur að endur-
skoða afstöðu sína og að samþykkja
að afturkalla atkvæðagreiðslu sem
ákveðin er 3. janúar næstkomandi.
Fundarmenn gagnrýndu bæjar-
stjórnina fyrir að ákveða sérstakan
kjördag 3. janúar fyrir þessar kosn-
ingar, en láta ekki kosninguna fara
fram um leið og væntanlegar al-
þingiskosningar í vor. En áætlað
er að þessi aukakosning kosti ekki
undir 100 þúsund krónum og töldu
menn að þessu fé væri betur varið
til annarra hluta.
FJARMALARAÐSTAFANIR UM
ÁRAMÓT
Einingabréf III eru handhafabréf alltaf
laus til útborgunar og gáfu á siðastliðnum
4 mánuðum 32°7o ávöxtun.
Með kaupum á hlutabréfum
Hlutabréfasjóðsins hf. fyrir áramót
lækkar þú tekjuskatt þinn á næsta ári.
Opið til kl.12 gamlársdag
Kaupþing hf. óskar landsmönnum
gleðilegrar hátíðar og
farsældar á komandi ári.
Fréttaritari.