Morgunblaðið - 30.12.1986, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986 61
Morgunblaöið/Einar Falur
KR Reykjavíkurmeistari
KR-INGAR urAu Reykjavíkurmeistarar í meistaraflokki karla f innanhússknattspyrnu um helgina. KR
vann Þrótt f úrslitaleik 13:4 og höfðu Vesturbæingarnfr mikla yfirburði eins og tölurnar gefa til kynna.
Á myndinnl eru í fremri röð frá vinstri: Sævar Leifsson, Rúnar Kristinsson, Sæbjörn Guðmundsson,
Guðmundur Magnússon, Sigursteinn Gfslason og Guðjón Ingason aðstoðarmaður. Aftari röð frá
vinstri: Guðmundur Pétursson, þjálfari, Gunnar Skúlason, Willum Þór Þórsson, Loftur Ólafsson,
Heimir Guðjónsson og Gfsli Jón Magnússon, þjálfari. Valur varð Reykjavíkurmeistari í meistaraflokki
kvenna, unnu KR í úrslitaleik 6:1.
Góðjólhjá Chelsea
Chelsea fékk fullt hús út úr jóla-
leikjunum og mjakaði sér af
botninum. Niegel Spackman skor-
aði fyrsta markið og Kerry Dixon
kom Chelsea í 2:0 fyrir hlé. Það
var hans fyrsta mark í 11 leikjum.
Colin Pates, fyrirliði, geröi þriðja
markið á 76. mínútu og Dixon var
aftur á ferðinni skömmu síðar.
Paul Elliott skoraði eina mark Villa
tveimur mínútum fyrir leikslok.
Stórsigur Chelsea þrátt fyrir að
varnarmaðurinn Joe McLaughlin
hefði þurft að yfirgefa völlinn í fyrri
hálfleik vegna meiðsla.
Ekkert gengur upp hjá New-
castle og á laugardaginn tapaði
liðið 1:0 fyrir Watford. John Barnes
skoraði eina mark leiksins.
Derby krækti sér í 6 stig í 2.
deildinni og er nú á toppnum í
fyrsta skipti í vetur. í skosku úr-
valsdeildinni slapp Celtic með
skrekkinn gegn Ciydebank og náði
1:1 jafntefli. Celtic hefur fimm
stiga forskot á Rangers, sem er í
2. sæti.
Enska
knatt-
spyrnan
Úrslit
1. deild:
Arsenal — Southampton 1:0
Charlton — Manch. City 5:0
Chelsea — Aston Villa 4:1
Coventry —Tottenham 4:3
Everton — Leicester 5:1
Manch. Utd. — Norwich 0:1
Nott. For — Luton 2:2
Oxford — Q.P.R. 0:1
Sheff. Wed. — Liverpool 0:1
Watford — Newcastle 1:0
West Ham — Wimbledon 2:3
2. deild:
Brighton — Reading 1:1
Derby — Barnsley 3:2
Huddersfield — Blackburn 5:2
Hull — Blackburn 0:0
Ipswich — Crystal Palace 3:0
Oldham — Leeds 0:1
Stoke — Sheff. United 5:2
Sunderland — Grimsby 0:1
West Brom. — Plymouth 0:0
Staðan:
Arsenal 22 13 6 3 36:11 45
Evórton 22 12 5 5 43:20 41
Liverpool 22 11 5 6 40:23 38
Nott. Forest 22 11 4 7 45:31 37
Norwich City 22 10 7 5 31:31 37
Tottenham 22 10 5 7 35:27 35
Coventry City 21 9 6 6 24:22 33
Luton Town 22 9 6 7 24:23 33
Watford 22 9 5 8 38:28 32
Sheff. Wed. 22 8 8 6 36:31 32
Wimbledon 22 10 2 10 30:28 32
West Ham 22 8 7 7 33:39 31
QPR 22 7 6 9 23:27 27
Oxford 22 6 8 8 25:36 26
Manch. United 22 6 7 9 26:26 25
Southampton 21 7 3 11 35:42 24
Charlton Athleti 22 6 5 11 24:32 23
Aston Villa 22 6 5 11 30:47 23
Manch. City 22 5 7 10 22:33 22
Chelsea 22 5 7 10 25:41 22
Newcastle 22 5 6 11 23:36 21
Leicester City 22 5 6 11 24:38 21
2. deild:
Derby 22 13 4 5 33:20 43
Portsmouth 21 12 6 3 28:15 42
Oldham 21 12 5 4 35:20 41
Ipswich 22 10 7 5 38:25 37
Plymouth 22 9 8 5 32:28 35
Leeds 22 10 4 8 29:28 34
Stoke 22 10 3 9 36:25 33
West Brom. 22 9 5 8 29:23 32
Sheff. United 22 8 7 7 31:30 31
Crystal Palace 22 10 1 11 31:37 31
Grimsby 22 7 9 6 22:24 30
Millwall 20 8 4 8 25:20 28
Brimíngham 21 7 7 7 29:29 28
Sunderland 22 6 9 7 26:28 27
Shrewsbury 21 8 3 10 20:26 27
Brighton 22 6 7 9 23:27 25
Hull 21 7 4 10 21:36 25
Reading 21 6 6 9 31:36 24
Huddersfield 20 6 3 11 26:36 21
Bradford 21 5 4 12 29:41 19
Blackburn 20 4 5 11 17:27 17
Barnsley 21 3 7 11 17:27 16
Marka-
hæstir
1. deild:
Clive Allen, Tottenham 28
lan Rush, Liverpool 22
John Aldridge, Oxford 20
Tony Cottee, West Ham 18
Colin Clarke, Southampton 17
Skotland
Úrslit:
Aberdeen — Hamilton 0:0
Clydebank — Celtic 1; 1
Dundee —Hibernian 2:0
Hearts — Falkirk 4:0
Motherwell — St. Mirren 1:2
Rangers — Dundee United 2:0
Staðan:
Celtic 26 17 7 2 51:16 41
Rangers 25 16 4 5 45:14 36
Dundee United 26 15 6 5 42:21 36
Hearts 26 14 7 5 43:22 35
Aberdeen 26 12 10 4 37:18 34
Dundee 25 11 5 9 39:32 27
St. Mirren 26 8 9 9 26:29 25
Motherwell 26 5 9 12 25:40 19
Falkirk 25 6 6 13 21:40 18
Hibernian 26 4 7 15 19:46 15
Clydebank 26 4 6 16 20:52 14
Hamilton 25 1 6 18 17:55 8
Enska knattspyrnan:
Everton gefur ekkert eftir
en Arsenal er enn efst
ÞEGAR enska 1. deildin í knatt-
spyrnu er rúmlega hálfnuð hefur
Arsenal fjögurra stiga forskot á
Everton, sem er f 2. sæti. Leik-
menn Everton voru f miklum ham
í jólaleikjunum, skoruðu 9 mörk
í tveimur leikjum og léku á alls
oddi. Nottingham Forest náði
aðeins jafntefli heima gegn Luton
á sunnudaginn og er f 4. sæti,
en Luton er komið í 8. sæti. Charl-
ton vann Manchester City stórt,
fyrsti sigur liðsins í 10 leikjum. I
2. deild skaust Derby á toppinn
og Celtic er með gott forskot f
skosku úrvalsdeildinni.
Arsenal hefur leikið 14 leiki án
taps eftir 1:0 sigur gegn Sout-
hampton á laugardaginn. Charlie
Nicholas lék að nýju með Arsenal,
en það var Niall Quinn, sem skor-
aði eina mark leiksins á 73. mínútu
af stuttu færi eftir að Steve Will-
iams hafði skotið í stöng. Vörn
gestanna var sterk og Eric Nixon
i markinu bjargaði oft vel, en hann
sá ekki við Quinn.
Everton á góðri
siglingu
Rúmlega 39 þúsund áhorfendur
fylgdust með leik Everton og Leic-
ester og þeir fengu að sjá stórgóð-
an leik heimamanna. Howard
Kendall, framkvæmdastjóri Ever-
ton, hefur loks getað stillt upp sínu
sterkasta liði að undanförnu og
árangurinn hefur ekki látið á sér
standa. Adrian Heath skoraði
tvívegis á sunnudaginn fyrir Ever-
ton, Paul Wilkinson og Kevin
Sheedy skoruðu sitthvort og John
O’Neill gerði sjálfsmark. Mark
Leicester skoraði Steve Moran
þegar 10 mínútur voru til leiksloka.
Liverpool gerði góða ferð til
Sheffield og vann Sheffield Wedn-
esday 1:0. lan Rush skoraði á 64.
mínútu og var það hans 22. mark
á tímabilinu.
Bowyer hetja Forest
Luton komst tvisvar yfir gegn
Forest, en heimamenn náðu að
jafna á síðustu mínútu. lan Bowyer
• Clive Allen hefur skorað 28 mörk fyrir Spurs á tfmabilinu og er markahæstur í 1. deild. Hann skoraði
tvö gegn Coventry, en þau nægðu ekki til sigurs.
skoraði jöfnunarmarkið þegar
venjulegur leiktími var úti, en Nigel
Clough skoraði fyrra mark heima-
manna. Brian Stein kom Luton á
bragðið á 10. mínútu og Mike
Newell kom Luton aftur yfir þegar
fjórar mínútur voru til leiksloka.
QPR átti í erfiðleikum gegn Ox-
ford, en Robbie James skoraði eina
mark leiksins á 59. mínútu. Gary
Briggs hjá heimamönnum var vikið
af velli í leiknum.
Enn meiðist Robson
Bryan Robson, fyrirliði Man-
chester United, meiddist í leiknum
gegn Norwich og verður líklega frá
í mánuð. Hann fór af velli snemma
í fyrri hálfleik tognaður á lærvöðva.
Robson varfrá hálft síðasta keppn-
istímabil vegna meiðsla og hefur
lítið verið með í haust og vetur.
United tapaöi leiknum 1:0 og skor-
aði Kevin Drinkell markið 10
mínútum fyrir leikslok.
Coventry vann Tottenham í sjö
marka leik þar sem liðin skiptust
á að hafa forystuna. Clive Allen
skoraði fyrst Spurs á 38. mínútu,
Keith Houchen jafnaöi, en Allen
skoraði aftur fyrir hlé. Dave Benn-
ett skoraði síðan tvö mörk fyrir
Coventry, en Nico Claesen, sem
kom inná sem varamaður, jafnaði.
Cyrille Regis skoraði síðan sigur-
mark heimamanna með skallá'
örfáum sekúndum fyrir leikslok.
Charlton vann stórt
Charlton tókst loks að sigra og
þá munaöi ekki um það. Fimm
sinnum máttu leikmenn City hirða
knöttinn úr netinu hjá sér. Colin
Walsh skoraði eina markið í fyrri
hálfleik og hann bætti öðru við
eftir hlé. Hin mörkin skoruðu Jim
Melrose, Peter Shirtliff og George
Shipley. Við sigurinn færðist Charl-
ton af botninum upp um fimm
sæti, en City er eina liðið, sem
ekki hefur sigrað á útivelli á tíma-
bilinu.
West Ham tapaöi einnig eftir
að hafa náð forystunni tvívegis.
Tony Cottee skoraði sitt 18. mark
á tímabilinu og kom West Ham
yfir á 3. mínútu, en John Fashanu
jafnaði skömmu síðar. Paul Hilton
skoraði síðan fyrir heimamenn,
Andy Sayer jafnaði og Carlton
Fairweather skoraði sigurmarkið á
64. mínútu.