Morgunblaðið - 31.12.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986
Árið 1986 annað mesta aflaár sögunnar:
Verðmæti sjávarfengs
meira en nokkru sinni
VERÐMÆTI sjávarfengs lands-
manna hefur aldrei verið meira
en á árinu sem nú er að ljúka.
Talið er að verðmæti útfluttra
sjávarafurða verði um 36 millj-
arðar króna, sem er 34% meira
en árið 1985, þegar verðmætið
var tæplega 26 milljarðar kr. I
dollurum reiknað jókst verð-
mæti útflutnings um tæp 40%
en um 22% ef miðað er við SDR
(sérstök dráttarréttindi). Ljóst
er að verðmæti sjávarfengs
landsmanna er meira en árið
1981, sem áður skilaði hvað
mestu raunvirði. Fiskifélag Is-
lands telur að árið verði eitt
hagstæðasta ár sögunnar fyrir
sjávarútveginn.
Fiskifélag íslands áætlar að
heildarafli landsmanna verði 1.662
þúsund tonn á árinu. Samkvæmt
því yrði árið næstbesta aflaár sög-
unnar, næst á eftir árinu 1985
þegar heildaraflinn var 10 þúsund
tonnum meiri, eða 1.672 þúsund
Sj ómannaverk-
fall annað kvöld
VERKFALL sjómanna á fiskiskipum skellur á á miðnætti annað
kvöld. Árangurslaus samningafundur var í gær og þá ákveðið að
boða til nýs fundar föstudaginn 2. janúar og reyna til þrautar að
ná saman samningum. Fundi yfirnefndar Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins, sem vera átti seinnipartinn í gær, var frestað til klukkan 11 í
dag, en deiluaðilar bíða eftir ákvörðun fiskverðs.
ur en þau sem fiskuðu fyrir sölu
erlendis, ættu að vera í höfn frá
því klukkan fjögur á gamlársdag
til miðnættis á nýársdag. Skipin
myndu því ekki leggja úr höfn eftir
áramótin, fyrr en deilan væri leyst.
Kostnaðarhlutdeildin er það sem
deilum veldur í þessum samningum.
Sjómenn vilja að það hlutfall sem
gengur beint til útgerðarinnar af
brúttóaflaverðmæti verði lækkað,
en útgerðarmenn vilja að það verði
óbreytt.
„Við munum reyna til þrautar
um helgina. Ef ekki næst saman
þá, munum við ekki mæta á samn-
ingafund aftur fyrr en þau skip eru
komin í land, sem við teljum að séu
að btjóta gegn verkfallinu. Þá mun
því færast full harka í málið,“ sagði
Hólmgeir Jónsson hjá Sjómanna-
sambandi íslands.
Hólmgeir sagði að það væru um
það ákvæði í samningum sjómanna
við útgerðarmenn, að öll skip, önn-
tonn. Árið 1984 var heildaraflinn
1.527 þúsund tonn.
Afli helstu fisktegunda fór vax-
andi ef loðnan er undanskilin.
Heildarbotnfískaflinn verður um
634 þúsund tonn og er það 53
þúsund tonnum eða rúmlega 9%
meiri afli en í fyrra. Þar af var
þorskaflinn 358 þúsund tonn og
hefur aukist um 35 þúsund tonn
eða nærri 11% frá fyrra ári. Um
52 þúsund tonn veiddust af humri,
rækju og hörpudiski og er það 8
þúsund tonnum, eða 18% meira en
í fyrra. 67 þúsund tonn af sfld feng-
ust, 18 þúsund tonnum eða 36%
meira en árið 1985. Þá fengust
898 þúsund tonn af loðnu, 95 þús-
und tonnum minna en árið 1985
og er samdrátturinn 9,5% frá fyrra
ári. Er þessi samdráttur í loðnu-
afla rakinn til eindæma stirðrar
tíðar á haustvertíð.
Sé litið á verðmæti aflans upp
úr sjó koma enn hagstæðari tölur
í ljós. Talið er að verðmæti aflans
verði rúmlega 18 milljarðar króna,
sem er 41% meira en árið 1985.
Reiknað í dollurum fæst hlutfalls-
lega sama aukning en ef reikað er
í SDR er aukningin rúm 23% á
milli ára. Fiskifélag íslands segir
að til þessarar verðmætaaukningar
liggi margar ástæður. Aflasam-
setningin sé hagstæðari þar sem
meira hafí verið veitt af verðmæt-
ari tegundum en árið áður. Þá
hafi almennt verið hátt verð á
mörkuðum sem komi fram í hærra
verði hráefnis. Einnig hafí auknar
sölur á erlenda ferskfískmarkaði
áhrif til hækkunar á hráefnisverði.
Póstur og sími;
Dregið verður úr muninum á
langlínu- og staðarsamtölum
SAMGÖNGURÁÐHERRA, Matt-
hías Bjarnason, hefur ákveðið
að gerðar verði breytingar á
uppbyggingu gjaldskrár fyrir
símaþjónustu og falið Pósti og
síma að gera tillögur þar um.
Meðal annars verður dregið úr
þeim mun sem er á verði
langlínusamtala og staðarsam-
tala.
Meðal annars verður lagður niður
gjaldflokkur 1 fyrir sjálfvirk símtöl
og verður hann sameinaður gjald-
flokki 0. Hefur þetta í för með sér
að símtöl sem verið hafa í gjald-
flokki 1 lækka í verði, vegna þess
að 6 mínútur verða í hveiju skrefi
samkvæmt dagtaxta í stað 1
mínútu. Sem dæmi um þetta má
nefna að samtöl innan Árnessýslu
verða öll í gjaldflokki 0, en áður
var gjaldflokkur 1 í gildi þegar
hringt var á milli símstöðvasvæð-
anna 11, sem eru Selfoss, Ara-
tunga, Brautahr., Eyrarbakki,
Flúðir, Hamar, Hveragerði, Laug-
arvatn, Minniborg, Stokkseyri og
Þorlákshöfn. Sem annað dæmi má
nefna samtöl á milli símnotenda við
stöðvamar á Akureyri, Grenivík og
Hrafnagili. Á að framkvæma þessa
breytingu eins fljótt og kostur er,
eftir því sem tæknibreytingar leyfa.
Reyndar hafa slíkar breytingar ver-
ið gerðar á einstaka stöðum á
landinu.
Þann 1. janúar hækkar gjaldskrá
fyrir símaþjónustu almennt um
10%. Þannig hækkar til dæmis af-
notagjald fyrir síma úr 530 krónum
í 585 kr. og verð fyrir umframskref
úr 1,20 kr. í 1,32 kr. Stofngjald
síma hækkar nokkuð meira eða úr
3.500 krónum í 5.000 kr. Gjald
fyrir 10 orða símskeyti hækkar úr
43,90 í 48,60 kr. og gjald fyrir
hverja mínútu í farsímaþjónustu
hækkar úr 6 kr. í 6,60 kr. Gjöld
þessi eru öll án söluskatts.
Þá er gerð sú breyting á nætur-
og helgidagagataxta sjálfvirkra
símatala að afsláttur er lækkaður
úr 50 í 33%. Afsláttur þessi hefur
gilt frá klukkan 19 til 8 frá mánu-
degi til föstudags og frá klukkan
19 á föstudögum til næsta mánu-
dag. Er þetta gert vegna þess mikla
álags sem orðið er á símkerfínu á
þessum tíma. Jafnframt er stefnt
að því að veita viðbótarafslátt á
Ianglínusamtölum frá klukkan 23
til 8 frá mánudegi til föstudags og
um helgar, en sú breyting kemur
til framkvæmda þegar breyting á
uppbyggingu gjaldskrár símans
samkvæmt ákvörðun ráðherra kem-
ur til framkvæmda.
Stj órnarskrárnef nd:
Brandugian vid húsið á Logafold 141.
Morgunblaðið/Ester Sigurðardóttir
Átti von á öllu
öðru en að fá
uglu á gluggann
- sagði Ester Sigurðardóttir sem fékk
óvenjulega heimsókn á sunnudaginn
„ÉG átti von á öllu öðru en að fá uglu á gluggann hjá mér,“
sagði Ester Sigurðardóttir, sem býr á Logafold 141 í Grafarvogi
í Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið en brandugla flaug á
stofugluggann á heimili Esterar um miðjan dag á sunnudaginn.
Ester býr ásamt fjölskyldu sinni
á jarðhæð í tveggja hæða húsi við
Logafold. Hún sagðist hafa setið
í stofunni við lestur en dóttir henn-
ar horfði á sjónvarp. „Allt í einu
kvað við heilmikill dynkur á
glugganum og okkur dauðbrá báð-
um,“ sagði Ester. „Ég leit upp og
sá fuglinum bregða fyrir við
gluggann. Þegar ég fór að svipast
eftir honum úti sá ég hann sitja á
stillansi við húsið og þar sat uglan
hátt í tvo klukkutíma. Hún hefur
sennilega verið dösuð eftir brot-
lendinguna."
Brandugla er eina uglan sem
vitað er með vissu að verpir nú á
íslandi. í bók Hjálmars R. Bárðar-
sonar, Fuglar íslands, segir að
íslenskar branduglur séu sennilega
að mestu leyti farfuglar og er því
líklegt að uglan sem flaug á
gluggann á Logafoldinni hafi lent
í einhveijum erfiðleikum í haust
og orðið eftir hér á landi.
Magnús Torfi Olafsson kem-
ur í staðinn fyrir Jón Baldvin
JÓN Baldvin Hannibalsson hefur sagt sig úr stjórnarskrárnefnd og
þingflokkur Alþýðuflokksins hefur tilnefnt Magnús Torfa Ólafsson,
blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar sem sinn fulltrúa í nefndina í Jóns
Baldvins stað.
Jón Baldvin ritaði forsætisráð-
herra bréf í nóvembermánuði og
baðst lausnar frá störfum í stjórnar-
skrámefnd frá og með 1. desember
sl. og tilkynnti um leið að þingflokk-
ur Alþýðuflokksins hefði tilnefnt
Magnús Torfa Ólafsson blaðafull-
trúa, sem fulltrúa sinn í nefndina, í
hans stað.
Magnús Torfí var í gær spurður
hvort hann væri genginn í Alþýðu-
flokkinn: „Nei, ég hef tekið að mér
fyrir þingflokk Alþýðuflokksins að
vera fulltrúi í stjómarskrámefnd."
Aðspurður hvort hann hygðist ganga
í Alþýðuflokkinn svaraði Magnús
Torfí: „Ég er ekki genginn í flokk-
inn. Við Jón Baldvin Hannibalsson
erum fomkunningjar og höfum
stundum áður verið samheijar. Ég
tók fúslega boði að taka við starfí
í stjómarskrámefnd, þar sem Jón
Baldvin hverfur frá.“
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins var spurður
hvers vegna Magnús Torfí hefði ver-
ið tilnefndur sem fulltrúi þingflokks
Alþýðuflokksins í stjómarskrár-
nefnd: „í fyrsta lagi vegna þess að
hann er að mati okkar þingflokks
prýðilega til þess hæfur. Af viðræð-
um við hann, var ljóst að hann hafði
mikinn áhuga á þessu málefni, að
Ijúka þessu mikla verki; endurskoð-
un stjómarskrárinnar. I annan stað
veldur því annríki formanns Al-
þýðuflokksins, ég tala nú ekki um í
þeirri kosningabaráttu sem fyrir
höndum er, þannig að sá maður sem
vill reka á eftir störfum þessarar
nefndar þarf að hafa góðan tíma
sjálfur, en nefndin hefur að mínu
mati verið allt of starfslítil hingað
til, seinustu tvö árin, fundir stijálir
og stopulir og verkstjóm bág,“ sagði
Jón Baldvin.
Jón Baldvin var spurður hvort það
fælist ekki í þessari tilnefningu að
þingflokkur Alþýðuflokksins liti á
Magnús Torfa sem sinn liðsmann:
„Em ekki allir kratar nú til dags?“
spurði flokksformaðurinn á móti.
Meinatæknadeilan:
Boðnir tveir launaflokkar
STARFSMANNAFÉLAG Reykjavíkurborgar, sem fer með samnings-
urnboð fyrir meinatækna á Borgarspítalanum, gerði f gser bráðabirgða-
samkomulag við borgaryfirvöld um lausn i kjaramálum meinatækna.
Samkomulagið felur í sér tveggja launaflokka hækkun gegn því að
meinatæknar á Borgarspítalanum dragi uppsagnir sfnar til baka. Sam-
komulagið er háð samþykki meinatækna, en fundi þeirra um málið
var ólokið er Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Meinatæknar á Borgarspítalanum
höfðu áður boðist til að fresta upp-
sögnum sfnum um tvo mánuði gegn
því að fá áðumefnda hækkun, en
því höfðu borgaryfirvöld hafnað.
Hins vegar höfðu meinatæknar áður
hafnað því að falla alfarið frá upp-
sögnum sínum gegn tveggja launa-
flokka hækkun.