Morgunblaðið - 31.12.1986, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986
t
Maðurinn minn og faðir okkar,
EiNAR E. HAFBERG,
Ásvailagötu 44,
lést í Landspítalanum 29. desember.
Guðbjörg Kristjánsdóttir,
Guðlaug Einarsdóttir,
Lára Hanna Einarsdóttir.
t
Faðir minn,
JÓN HELGASON,
áður til heimilis að
Hverfisgötu 21B, Hafnarfirði,
andaðist á Sólvangi þriðjudaginn 30. desember.
Fyrir hönd vandamanna,
Magnús Jónsson.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
KRISTJÁN HANSSON,
Öldugötu 10,
Hafnarfirði,
andaðist á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði að morgni 30. desember.
Hulda Jóhannsdóttir
og börn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar, sonur og tengdasonur,
STEFÁN HARALDSSON,
járnsmiður,
Skeljagranda 1,
varð bráðkvaddur 26. desember.
Guðrún Sigurðardóttir,
Þóra Stefánsdóttir,
Haraldur Arnar Stefánsson,
Haraldur Sigurðsson,
Þóra Steingrimsdóttir,
Sigurður Þorgrfmsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA LUISE MATTHÍASSON,
verður jarðsungin frá Innri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 3. janúar
kl. 14.00.
Anna Lísa Ásgeirsdóttir, Walter Gunnlaugsson,
Guðný V. Ásgeirsdóttir, Sverrir Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐRÚN EINARSDÓTTIR,
Brimhólabraut 31,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsett frá Landakirkju laugardaginn 3. janúar kl. 14.00.
Jóhannes Gi'slason,
Erna M. Jóhannesdóttir, Hjálmar Þ. Jóhannesson.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG SKAFTADÓTTIR HRAUNDAL,
Drápuhlíð 30,
sem andaðist í Landspítalanum 24. desember verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. janúar kl. 15.00.
Jarðsett verður að Lágafelli.
Helga Hraundal, Hinrik H. Friðbertsson
og barnabörn.
t
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
SNORRA GUNNLAUGSSONAR
bónda,
Esjubergi, Kjalarnesi,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 5. janúar kl. 13.30. Jarð-
sett verður að Mosfelli.
Sigríður Gi'sladóttir,
Árni Snorrason, Kolbrún Guðmundsdóttir,
Oddný Snorradóttir, Ólafur Friðriksson,
Gísli Snorrason, Anna Steinarsdóttir
og barnabörn.
Minning:
-------C?
Lárus Eiðsson
Fæddur 29. ágúst 1918
Dáinn 16. desember 1986
Á laugardag var gerð frá
Keflavíkurkirkju að viðstöddu miklu
ijölmenni útför Lárusar Eiðssonar,
húsgagnasmíðameistara.
Lárus var fæddur vestur á Skóg-
arströnd þann 29. ágúst 1918.
Foreldrar hans voru hjónin Sigurrós
Jóhannesdóttir og Eiður Sigurðs-
son, sem lést þegar Lárus var aðeins
ellefu ára. Lárus sleit sínum fyrstu
skóm í Stykkishólmi, en þaðan flutti
ijölskyldan til Hafnarfjarðar. Hann
nam húsgagnasmíði, fyrst í
Reykjavík, en lauk sveinsprófi frá
Iðnskólanum á Akranesi 1939. Árið
1943 fluttist hann til Keflavíkur og
kvæntist á sama ári móðursystur
minni, Guðrúnu Árnadóttur úr Veg-
húsum. Þau eignuðust þrjú böm,
Rut, Bjarnhildi Helgu og Guðmund,
sem öll eiga heima í Keflavík,
barnaböm þeirra hjóna eru sjö orð-
in og eitt langafabarn er í heiminn
komið.
Láms vann lengst af við húsa-
og húsgagnasmíði, ýmist upp á eig-
in spýtur eða í samvinnu við aðra.
Seinni árin var hann verkstjóri á
Keflavíkurflugvelli.
Barnungum Vegahúsmanni þótti
á sínum tíma góður liðsauki í hóp-
inn kominn þar sem var Láms,
maðurinn hennar Gunnu frænku.
Það fylgdi þessum granna, dökk-
hærða og snöfurlega manni frísk-
legur andblær, hann var léttur í
máli, hann vitnaði í Öm Amarson
og önnur eftirlætisskáld sín, hann
hafði smíðað glæsilegustu mubblu
sem fýrir augun hafði borið, nann
kunni vel að skemmta sér og var
ekki eins bundinn nauðhyggju lífs-
baráttunnar og margir aðrir úr
næsta nágrenni. Og það sem mikils
var um vert á þeim ámm, hann
kunni að tala við strákpatta þannig,
að þeim sama fannst hann vera
orðinn fullgildur aðili í tilvemnni.
Allar götur síðan höfum við
bræður vitað það með svo mörgum
öðmm, að gott var þau Guðrúnu
og Láms heim að sækja. Hann
kunni margt að segja af veiðiskap
og útilífi, sem hann kunni manna
best að njóta, og það löngu áður
én náttúra landsins varð að opin-
berri allsheijartísku. Láms hafði sig
ekki mikið í frammi út á við eins
og það heitir, en hann fylgdist vel
með mönnum og málefnum og hafði
jafnan á hraðbergi kankvísar og
Minning:
Þorkell Helga-
son vörubílstjóri
Hann afi okkar, Þorkell Helga-
son, (f. 10.12. 1900), lést í Sankti
Jósefsspítala, Hafnarfirði, þann 20.
desember 1986. Seinustu æviárin
var hann vistmaður á Dvalarheimili
aldraðra sjómanna í Hafnarfirði.
19. apríl 1924 giftist hann ömmu
okkar, Ástríði Ingibjörgu Bjöms-
dóttur, og bjuggu þau megnið af
sínum búskap að Litlu-Gmnd v/
Sogamýri, Fæst okkar kynntust
henni ömmu því hún dó 1951. Þeim
varð 9 bamá auðið, sem öll em á lífi.
Hann afi var langa hríð vömbíl-
stjóri og á sínum tíma einn af
stofnendum vömbílastöðvarinnar
Þróttar. En hugur hans hneigðist
ávallt til búskapar og um tíma var
hann með búskap að Hvassa-
hrauni, Vatnsleysu. Þaðan eigum
við krakkarnir margar minningar
og stigum okkar fyrstu skref í sveit
og fjaran með öllu sínu lífi var ekki
langt undan. Við krakkamir kynnt-
umst honum afa ekki náið, til þess
var hann of dulur. En frá honum
t
Eiginmaður minn, tengdasonur, faðir, tengdafaðir og afi,
SVANUR RÖGNVALDSSON,
Ferjubakka 8,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. janúar kl. 13.30.
Frfður Gústafsdóttir,
Gústaf Gestsson,
Steinunn Svansdóttir, Gunnar Björnsson,
Sjöfn Svansdóttir, Örn Óskarsson,
Gústaf Bjarni Svansson,
Rúnar Guðjón Svansson,
Jóhanna Svansdóttir
og barnabörn.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð
eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir
ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist
undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
launháðskar athugasemdir sem
komu vel að kjarna máls. Það var
líka gleðilegt til þess að vita hve
farsæl sambúð þeirra hjóna var,
hvemig húsið að Vallartúni 3 bar
vitni bæði frábærum og hugkvæm-
um hagleiksmanni og traustum
fjölskylduföður, sem var börnum
sínum og bamabömum ráðhollur
og hjálpsamur sem og fjölmörgum
öðmm. Og í framgöngu hans allri
fundum við það öryggi og þá festu,
sem er einkenni góðra starfsmanna.
Hann var drengur góður og
gæfumaður og það er bjart yfir
minningu hans.
Ámi Bergmann
stafaði trausti og hlýju, þannig að
okkur leið vel í návist hans. Svo
fengum við líka að kfkja ofan í tó-
bakspontuná hans og ef við vomm
stillt fengum við nokkur korn í nef-
ið. Svo tók hann okkur kannski á
hnéð og sagði sögur, sögur sem
oftar en ekki tengdust lífsbaráttu
íslenskrar alþýðu hér áður fyrr. Afi
segir okkur ekki fleiri sögur, en við
geymum hann í minningunni. Hvíli
hann í friði. Guð blessi Þorkel afa
okkar.
Hvað boðar nýárs blessuð sól?
Hún boðar náttúrunnar jól,
hún flytur líf og líknarráð,
hún Ijómar heit af Drottins náð.
Sem Guðs son forðum gekk um kring,
hún gengur ársins fagra hring
og leggur smyrsl á lifsins sár
og læknar mein og þerrar tár.
(M.J.)
Barnabörn
Blómabúöin
Hótel Sögu
sími 12013
Blóm og
skreytingar
gjafavörur
heimsendingar-
þjónusta