Morgunblaðið - 22.01.1987, Page 4

Morgunblaðið - 22.01.1987, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987 Starfsmannanefnd Borgarspítalans: Ahyggjufull vegna rétt- arstöðu starfsfólksins NEFND sú, er heilbrigðisráð- herra skipaði 5. janúar sl. til að gera tillögur um rekstrarfyrir- komulag Borgarspítalans ef ríkið tæki við rekstrinum, hefur enn ekki komið saman þar sem for- svarsmenn Borgarspítalans vildu fá rýmri tíma til að athyga aðra möguieika í stöðunni en nefndin átti að kanna. Fulltrúar læknaráðs, fram- kvæmdastjómar og starfsmannafé- Eins og fram kemur í vetrardag- skrá Kammersveitar Reykjavíkur, var ætlunin að næstu tónleikar hennar yrðu á sunnudaginn kemur 25. janúar n.k. Af óviðráðanlegum lags Borgarspítalans hugðust fara fram á viðræður við fulltrúa Reykjavíkurborgar um áframhald- andi rekstur spítalans, en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, hefur ekki verið farið fram á formlegar viðræður ennþá. Friðrik Sophusson, formaður nefndarinnar, sagðist hafa ákveðið í samráði við heilbrigðisráðherra að geyma öll nefndarstörf þangað til vitað væri hvað út úr viðræðunum ástæðum hefur orðið að fresta þess- um tónleikum til fimmtudagsins 12. febrúar kl. 20.30. Tónleikastaður verður kynntur í fjölmiðlum síðar. kæmi og á meðan forráðamenn spítalans telja sig standa í viðræðum við Reykjavíkurborg. Sigrún Knútsdóttir, formaður starfsmannafélags Borgarspítalans, sagði í samtali við Morgunblaðið að uppi væru hugmyndir um að borgin stofnaði sjálfseignarstofnun um Borgarspítalann, en ef ríkið yfirtæki rekstur Borgarspítalans, yrði að tryggja rétt starfsfólksins. Sigrún sagði að starfsmannanefnd Borg- arspítalans, sem skipuð var fyrir áramótin, héldi reglulega fundi og er þessa dagana verið að ræða rétt- indamál starfsfólksins, lífeyrissjóðs- mál sérstaklega, yfirtaki ríkið spítalann og þar með núverandi skyldur borgarinnar við starfsfólkið. „Starfsmannaráð hefur ítrekað farið fram á við starfsmannafélagið að það veiti starfsfólki upplýsingar um réttindi þess við flutning frá borg yfir til ríkis og mun lögfræðingur félagsins nú vera að kanna réttar- stöðu starfsfólksins," sagði Sigrún. Kammersveit Reykjavíkur: Tónleikum frestað VEÐUR Líkmenn við útförina í gær voru fjögur bamaböm Kjartans og tveir tengdasynir. Til vinstri á myndinni em Þórarinn Kjart- ansson, Kjartan Kjartansson, Kjartan Ingvarsson og Björgvin Bjarnason. Til hægri em Páll Ingvarsson, Ami Ingvarsson, Kjartan Guðmundsson og Guðmundur Björnsson. Kjartan J. Jóhanns- sonjarðsettur KJARTAN J. Jóhannsson, Kjartan lést 7. janúar síðastlið- læknir og fyrrverandi alþingis- inn. Hann var fæddur í Reykjavík maður, var borinn til grafar í 19. apríl 1907. Eftirlifandi kona Fossvogskirkjugarði í gær. Ut- hans er Jóna Ingvarsdóttir og förin var gerð frá Dómkirkj- eignuðust þau fimm börn. Fjögur unni i Reykjavík. Séra Þórir þeirra eru á lífi. Stephensen jarðsöng. VEÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi f gær: Við strönd Grænlands vestur af íslandi er 985 millibara djúp lægð á hreyfingu norðaustur. Yfir Bretlands- eyjum er 1040 millibara hæð. SPÁ: Suðvestlæg átt verður ríkjandi á landinu og hiti víðast 4 til 6 stig nema á norövesturlandi en þar verður hitinn á bilinu 1 til 3 stig. Súld verður um sunnanvert landið, slydduél norðvestanlands en þurrt á norðaustur- og austurlandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Sunnan- og suðvestanátt og hlýtt í veðri. Þurrt sums staðar norðaustanlands en súld eða rigning í öðrum landshlutum. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað * -Uálk Hálfskýjað 'ájjlk. Skýjað j \ Alskyjað s, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius V Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Nlistur —|- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að fsl. tíma hitl veSur Akureyri 2 alskýjaó Reykjavík 3 úrk.(gr. Bergen 1 lágþokubl. Helsinki -4 skýjað Jan Mayen -3 léttskýjaö Kaupmannah. -3 rigning Narssarssuaq -9 snjóél Nuuk -13 snjókoma Osló -7 þoka Stokkhólmur -6 þokumóða Þórshöfn 6 alskýjað Algarve 13 heiðskfrt Amsterdam 0 frostúði Aþena 1B skýjað Barcelona 7 þokumóða Berlín -8 súld Chicago -8 alskýjað Glasgow 9 rlgning Feneyjar 4 þokumóða Frankfurt -5 kornsnjór Hamborg -4 frostúði Las Palmas 19 rykmistur London 5 súld Los Angeles 7 heiðskirt Lúxemborg -6 hrimþoka Madríd 6 skýjað Malaga 13 skýjað Mallorca 12 alskýjað Miami 22 léttskýjað Montreal -13 snjókoma NewYork 0 alskýjað París -3 hrímþoka Róm 11 léttskýjað V(n -8 þokumóða Washington 2 alskýjað Winnipeg -12 snjókoma Björn J. Blöndal rithöfundur látinn BJÖRN J. Blöndal, rithöfundur og bóndi lést í Borgarspítalanum 14. janúar síðastliðinn eftir erfiða sjúkdómslegu. Björn var á áttugasta og sjöunda aldursári. Björn fæddist í Stafholtsey í Borgarfirði 9. september 1902, ólst þar upp og hóf búskap í Laugar- holti í Bæjarsveit í Borgarfirði árið 1931. Árið áður hafði hann gengið að eiga Jórunni Sveinbjarnardóttur, ættaðri úr Skorradal og lifir hún mann sinn. Samhliða búskapnum, ritaði Björn margar bækur sem flestar fjöliuðu um veiðiskap, nátt- úruna og þjóðlegan fróðleik. Síðasta bók hans kom út fyrir síðustu jól og fjallaði um Grímsá í Borgar- firði. Átti Björn mjög tryggan og stóran aðdáendahóp vegna skrifa sinna, en hann var brautryðjandi hér á landi í bókaskrifum um stang- veiðar. Sem fyrr segir, lifir Jórunn Blöndal mann sinn, en þau eiga tvo uppkomna syni Jón og Sveinbjörn Blöndal, sem báðir búa á Laugar- holti og reka þar búskap. Útförin verður á laugardaginn frá Bæjar- kirkju í Bæjarsveit. Karl Þorsteins ræð- ismaður látinn KARL Þorsteins, ræðismaður Portúgals, lést á heimili sínu í Reykjavík i gær, miðvikudaginn 21. janúar, á 86. aldursári. Karl Þorsteins fæddist 18. ágúst 1901 í Bakkagerði í Borgarfirði eystra. Foreldrar hans voru Eiríkur Sigfússon verslunarmaður þar og kona hans Maren Sigurðardóttir frá Gautlöndum. Kjörforeldrar hans voru Þorsteinn Jónsson kaupmaður og útgerðarmaður á Seyðisfirði, síðar í Reykjavík, og kona hans Ragna Johansen. Karl tók sér ætt- amafnið Þorsteins með leyfisbréfí 20. júní 1921. Hann varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1921 og stundaði síðan verslunarstörf til ársins 1928 og dvaldist um skeið í Argentínu, Brasilíu og víðar. Hann rak fiskútflutningsverslun í Reykjavík á ámnum 1928 til 1933 er hann stofnaði umboðs- og heild- verslunina Eddu h.f. og var hann framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá upphafi. Karl Þorsteins var ræðismaður Portúgals á íslandi frá 1930 og var hann sæmdur ítölskum og portú- Karl Þorsteins gölskum heiðursmerkjum. Hann tók virkan þátt í ýmsum félagsstörfum og var um skeið formaður Félags íslenskra stórkaupmanna. Eftirlifandi kona Karls er Jó- hanna Sigurhansdóttir Þorsteins og em börn þeirra fjögur uppkomin, Þór, Hildur, Ragna og Karl Jóhann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.