Morgunblaðið - 22.01.1987, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987
13
Morgunblaðið/Júlíus
Forsvarsmenn Máls og menningar með auglýsingn frá 1. ári félags-
ins, talið frá vinstri: Þorleifur Einarsson, stjórnarformaður, Arni
Einarsson, framkvæmdastjóri, Silja Aðalsteinsdóttir, ritstjóri Tíma-
rits Máls og menningar, Halldór Guðmundsson, útgáfustjóri og Anna
Einarsdóttir, stjórnarmaður.
Mál og menning
50 ára í sumar
FROIMSKUNAMSKEIÐ
ALLIAIMCE FRANCAISE
— 13 vikna vornámskeið hefst mánudaginn 26. janúar.
— Kennt verður á öllum stigum ásamt bókmenntaklúbbi,
barnaflokki og unglingaflokki.
Innritun fer fram í bókasafni Alliance Francaise, Laufásvegi 12, alla
virka daga frá kl. 14 til 19, og hefst fimmtudaginn 15. janúar.
Allar nánari upplýsingar fást í síma 23870 á sama tíma.
Veittur er 10% staðgreiðsluafsláttur og 15% staðgreiðsluafsláttur
fyrir námsmenn.
ATH. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA (Eurocard og Visa)
Bókmenntafélagið Mál og menn-
ing verður 50 ára á þessu ári.
Forlagið var stofnað sumarið
1937 að frumkvæði Kristins E.
Andréssonar, sem fékk til liðs
við sig fjölmarga rithöfunda og
bókmenntaáhugamenn.
I upphafi var félagið eins konar
bókaklúbbur með skyldukaupum,
og var markmið þess að koma góð-
um bókum á framfæri á viðráðan-
legu verði fyrir almenning.
Boðsbréf um stofnun þess var sent
út í júlí, og voru viðtökur miklu
betri en frumkvöðlarnir höfðu búist
við. Áður en ár var liðið voru félag-
ar orðnir á fimmta þúsund.
Fyrstu tvær bækur félagsins
voru III. hefti ársritsins Rauðir
pennar og bókin Vatnajökull eftir
Niels Nielsen, í þýðingu Pálma
Hannessonar. Fyrsta metsölubók
forlagsins var fyrri hluti Móðurinn-
ar eftir Maxím Gorkí, sem kom út
vorið 1938. Um líkt leyti kom út
fyrsta hefti Tímarits Máls og menn-
ingar.
Nú eru um 3.000 áskrifendur að
Tímariti Máls og menningar, auk
þess sem íslenski kiljuklúbburinn,
sem forlagið stofnaði í fyrra, hefur
um 5.500 félaga. Almenn útgáfu-
starfsemi félagsins hefur farið
vaxandi á undanförnum árum, og
í fyrra gaf Mál og menning út um
60 titla. Forlagið seldi um 200.000
bækur á árinu, þar af 66.000 kiljur.
I tilefni af afmælisárinu stendur
til að gefa út eina bók í hveijum
mánuði. Verður sú bók boðin á sér-
stökum kjörum fyrsta mánuðinn
eftir útkomu. Ný ljóðabók eftir Stef-
án Hörð Grímsson, Tengsl, er fyrsta
bókin í afmælisröðinni. Bók febrú-
armánaðar verður svo endurútgáfa
Hundrað ára einsemdar eftir Gabrí-
el García Marquez.
Á árinu mun forlagið einnig gefa
út tvær „stórbækur". Onnur þeirra
verður ritsafn Astrid Lindgren, en
hún verður 80 ára á þessu ári. í
bókinni verður ein skáldsaga, auk
leikrita, smásagna og kafla úr bók-
um eftir Astrid. Síðan verður gefin
út „stórbók“ með skáldverkum
íslenskra kvenna og að sögn Silju
Aðalsteinsdóttur verða það líklega
verk skrifuð fyrir 1960.
Nú þegar hefur forlagið gefið út
leikritið Dagur vonar eftir Birgi
Sigurðsson og var sú útgáfa tileink-
uð 90 ára afmæli Leikfélags
Reykjavíkur. Fyrir lok janúarmán-
aðar er fjórði pakkinn í Islenska
kiljuklúbbnum væntanlegur og fer
þar fremst fyrsta bindi Kvikmynda-
handbókarinnar eftir Leslie Halliw-
ell. Flaggskip afmælisins verður svo
fyrsta bókin í stórri ritröð um Nátt-
úru Islands, sem Guðmundur
Ólafsson, náttúrufræðingur, hefur
unnið að undanförnu.
V^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiöill!
flItiQQNittMfifetfe
BILUNN
FYRIB
Töffog flottur lítill bíll—fæst
meiraaðsegja með
TURBOvél!
Snöggur og lipur í
umferðinni.
Nógpláss—meiraaðsegja
fyrirmig!
Ótrúlega sparneytinn.
Skutlan kostar nú frá aðeins
266þúsund krónum.
Skutlan er flutt inn af Bíla-
borg h/f. Það tryggir 1. flokks
þjónustu, sem er rómuð af öll-
um sem til þekkja.
BILABORG HF
Smiðshöfða 23sími 6812 99
gengisskr. 141.87