Morgunblaðið - 22.01.1987, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987
39
Niðurstaða könnunar Verðlagsstofnunar:
Mjög mikil verðsamkeppni
ríkir á bifreiðamarkaðnum
VERÐBREYTINGAR Á FÓLKSBIFREIÐUM Á ÁRINU 1986.
Smásöluverð án ryðvamar (þús. kr.)
Tegund Sala 1986, fjöldi bífreiða Verð fyrir tollalækkun, febrúar VERÐ EFTIR TOLLALÆKKUN mars-apríl nóvember-desember Verðbreytingar i %
BMW 316 31 746 518 587 13%
CHEVROLET MONZA 265 548 414 451 9%
DAIHATSU CHARADE 615 389 280 314 12%
F1AT UNO 332 229 265 16%
FORD SIERRA 132 499 350 453" 29%
HONDA CIVIC 151 490 348 376 8%
LADA LUX 410 260 182 203 11%
MAZDA 323 591 442 317 338 7%
SAAB 900 161 798 576 625 8%
SKODA 590 218 152 164 8%
SUBARU 1800 um 700 700 521 581 12%
TOYOTA COROLLA 614 419 309 359 16%
VOLKSWAGEN GOLF 285 568 391 464 19%
VOLVO 244 214 758 550 619 13%
11 Verö frá 1. október 1986
VERÐLAGSSTOFNUN
gerði nýlega ítarlega könn-
un á verðbreytingum á
fólksbifreiðum á árinu
1986. Athugaðar voru
breytingar á verði og verð-
myndun á 14 bifreiðateg-
undum sem voru
dæmigerðar fyrir verð-
lagningu bifreiða hjá 13
bif reiðaumboðum.
I frétt frá Verðlagsstofnun um
könnunina segir:
„Eins og kunnugt er voru tollar
á bifreiðum lækkaðir allmikið 1.
mars á síðasta ári. Voru bifreið-
aumboð hvött til að hafa óbreytta
álagningu í prósentum eftir tolla-
lækkunina, sem í raun hafði þau
áhrif að upphæð álagningarinnar
lækkaði. Af þeim sökum beindist
athygli Verðlagsstofnunar m.a.
að þætti álagningar í bifreiðaverð-
inu.
Helstu niðurstöður könnunar-
innar voru þessar:
— Ekkert gefur vísbendingu
um að álagning hafi hækkað al-
mennt á árinu. Dæmi eru um
hækkun álagningar þar sem hún
var lág áður en jafnframt eru
dæmi um álagningarlækkun.
— Mjög mikil verðsamkeppni
ríkir á bifreiðamarkaðnum. Um-
boðin hafa m.a. þurft að hafa
hliðsjón af verðinu á þeim bílum
sem keppinautar þeirra hafa til
sölu er þeir ákveða eigið verð.
Eru dæmi um að umboð hafa
ekki getað hleypt erlendri verð-
hækkun út í verðlagið nema að
hluta til vegna samkeppni. Um-
boðsmenn hafa vegna samkeppni
haldið niðri kostnaði með ýmiss
konar hagræðingu t.d. innkaupum
á miklu magi, markvissri lækkun
flutningskostnaðar o.fl.
— Ekkert samráð er á milli
bifreiðaumboða um verðlagningu.
Mismunandi verðmyndun, þ.m.t.
álagning, verðákvarðanir o.fl.
sýnir að hvert umboð hagar verð-
lagningunni eftir eigin rekstri og
markaðsáðstæðum.
— Öll gögn sem Verðlagsstofn-
un hefur athugað benda til þess
að íslenskir innflytjendur bifreiða
sæki mjög hart að hinum erlendu
seljendum til að ná sem lægstu
verði og sem bestum kjörum.
Bifreiðaverð hækkaði mismikið
á árinu 1986 og réði þróun geng-
is einstakra gjaldmiðla og erlend-
ar verðhækkanir mestu þar um.
Hér verða sem dæmi gefnar
skýrningar á verðhækkun þeirra
bifreiða sem mest hækkuðu í
veðri:
- BMW 316 hækkaði um 13%
frá 4. mars til 22. desember. Á
þeim tíma var gengisbreyting,
ásamt erlendri verðhækkun alls
12%.
- FIAT UNO hækkaði í verði
um 16%. Erlend verðhækkun frá
verksmiðju ásamt breytingu á
gengi svissneska frankans, en það
er sá gjaldmiðill sem Fiat-bifreið-
irnar eru greiddar með, voru tæp
17%.
- FORD SIERRA hækkaði í
verði um 29% á tímabilinu 18.
niars til 1. október. Bifreiðirnar
sem seldar voru í upphafi voru
keyptar af umframbirgðum í
Danmörku og voru á eins konar
tilboðsverði. Bifreiðirnar sem
seldar voru síðar á árinu voru
í innkaupum 27% dýrari í
dönskum krónum en þær fyrr-
nefndu. Gengi dönsku krónunn-
ar hækkaði á tímabilinu um
6,5%. Samtals námu því erlenda
verðhækkunin og gengisbreyt-
ingin tæpum 35%.
- TOYOTA COROLLA hækk-
aði í verði um 16% frá 17. mars
til 25. nóvember. Á sama tíma
hækkuðu erlenda verðið og geng-
ið á japanska jeninu samtals um
rúm 15%.
— VOLVO 244 kostaði tæp-
lega 13% meira í lok nóvember
en í byrjun apríl. Á sama tíma
hækkaði verðið frá hinum erlenda
framleiðanda um tæp 10% og
gengi sænsku krónunnar um rúm
3%. Innkaupsverðið hækkaði
þannig um rúmlega 13%.
- VOLKSWAGEN GOLF
hækkaði úr 391 þús. kr. í 464 kr.
frá 7. apríl til 24. nóvember eða
um 19%. Gengi vestur-þýska
marksins hækkaði á þessum tíma
um 14,2% en erlend hækkun var
rúm 5%. Heildarhækkun á inn-
kaupsverði var því um 20%.
Það skal tekið sérstaklega fram
að í samanburði Verðlagsstofnun-
ar á verðhækkun bifreiða var
nýrri árgangur á markaðnum á
seinni hluta ársins en á fyrri hlut-
anum.
Loks skal á það bent að á
síðustu vikum hefur orðið mikil
röskun á gengi enistakra gjald-
miðla þannig að bifreiðaverð er
nú annað en það verð sem fram
kemur í þessari könnun Verðlags-
stofnunar."
Þetta er auglýsing frá
S Mæörabúöinni
Stórkostleg
útsala
afsláttur
Mikið úrval af barnafatnaði á 0—10 ára. Peysur
frá kr. 395. Jogging frá kr. 470. Buxur frá kr. 490.
Bankastræti 4, sími 12505