Morgunblaðið - 22.01.1987, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987
|t
NÚ ÁRIÐ ER LIÐIÐ
í ALDANNA SKAUT
eftirJónas
Pétursson
Hver sá, sem ber í brjósti sér
kenndir, sem sífellt nema andar-
drátt og hreyfingar umhverfisins,
samfélagsumsvif, áhrif hverskonar
stjómunar og afskipta kjörinna full-
trúa, auk almættisins er náttúruöfl-
um ræður — hlýtur á slíkum
tímamótum að laða upp á víddir
hugans íjölmarga atburði, ljós og
skugga liðins árs. Af því hlýzt einn-
ig að leiða getum að næstu framtíð,
í tilefni hins ótvíræða samhengis
sögu og spár. Gera sér til dæmis
ljóst það er í Sólarljóðum segir:
Sætar syndir verða að sárum bót-
um; koma mein eftir munuð.
Atburðir koma fram úr fylgsnum
minnis. Kjarnorkuverið í Sovétríkj-
um er skyndilega tók til að stjóma
sér sjálft, með afleiðingum sem ólík-
lega eru enn séðar, nema þeim að
vekja hroll, m.a. með ýmsum þeim
er hreiðrað hafa um sig í glæfra-
heimi hátækni og þeirri fávísi að
ætla að bera sigurorð af því al-
mætti er veröldinni stjórnar,
einnnig okkar örsmæð.
Fundurinn í okkar Höfða, sem
fékk þessa þjóð til að standa á önd-
inni einn sunnudag, flestir við
skjáinn. Endalokin öllum kunn,
líklega farið að fymast yfir 12.
október. En enginn viti borinn mað-
ur dæmir fundinn einskis verðan,
hvorki fyrir íslendinga né heims-
málin. Furðanlega þó tekinn að falla
í gleymsku.
En einn atburður er mér sárastur
í huga. Morðið á Olof Palme. Einn
mestur missir eins manns í allri
veröld. Lengi hafði verið að mótast
mér í hug stærð persónunnar, yfír-
burða vitsmunir, mannkærleikur,
einbeitni og kjarkur. Enginn hans
jafningi var á Norðurlöndum. Eg
held að hann hafi borið yfir alla
stjórnmálamenn heims um þær
mundir er hinn hörmulegi atburður
skeði. Aldrei fremur en hina síðustu
tíma er allri heimsbyggð þörf slíkra
andans jöfra, sem helga sig stjóm-
málum. En skuggi giæpaveraldar
grúfir dimmast yfír ofurmennum á
stjómmálasviðum.
En skíma er líka til í heimsvið-
burðum. Ferill hinnar litlu konu á
Filippseyjum er merkilegur og vitn-
ar um frábæra hæfileika „mennskr-
ar“ konu að leiða þjóð, sem virðist
meira eða minna villt í öfgum múg-
sefjunar. Takist þetta er það líkast
yfimáttúrlegum fyrirbæmm.
Töfrahæfileikar mikilla vitsmuna.
Minnisstætt er mál Andrev Sak-
aroffs. Stærsti heili nútímans allt í
einu leystur úr fangabúðum. Spum-
ing er hveiju þetta má valda. Víst
er að ef hann fær að tala þá talar
hann svo að allur heimur hlustar.
Mætti þetta valda þáttskilum í við-
horfum til þess „ógnar“ jafnvægis
er hrjáir í allri veröld — þess ógnar
jafnvægis er einmitt Andrev Sakar-
off skóp. Með uppfinningu á vetnis-
sprengjunni. Slíkt vísindaundur
varð til, að talið er, í hans stóra
heila. En undir er hjarta, ókalið
enn? — Líklegt er að andsvar kunni
að leynast enn í bijósti hans.
Mér er engin launung á að mér
létti við að sjá og heyra fyrir jólin
fréttir sjónvarps er lögreglumenn
voru að hreinsa út úr myndbanda-
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn í kvöld
kl. 20.30 að Sogavegi 69. Gengið inn að
norðanverðu. Allir velkomnir.
★ Námskeiðið getur hjálpað þér að:
★ Öðlast HUGREKKI
og meira SJÁLFSTRAUST.
★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sann-
færingarkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér
VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU.
★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu
komin undir því, hvernig þér tekst að um-
gangast aðra.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI
— heima og á vinnustað.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum
og draga úr kvíða.
Fjárfesting í menntun
gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 82411
O
STJÓRIMUINIARSKÓLIIVINI
% Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin"
leigum, þessum „menningar“-stofn-
unum fijálshyggjunnar, og gera
upptækt eitthvað af andstyggð
gróðabrallsins, sem nú er stórvirk-
ast í mannskemmdum. Eða kann
þessi aðgerð e.t.v. að hljóta sömu
örlög og okrið?
Er bjart til allra átta?
Oddvitar stjórnarflokkanna hafa
verið hressir í áramótahugleiðing-
um. Nær samfelld sigurganga frá
vordögum 1983 og þá ætti að vera
jöfnum dæmum átt við ríkistjórn
og íslenzka þjóð. Ekki finn ég þess-
ar kenndir í mínu sinni og bragð í
munni er galli blandið. E.t.v. er það
vegna þess að mér er líkt farið og
kettinum, sem sýnt var í spegil, en
kattargreyið sætti sig ekki fyllilega
við og reyndi að gæta á bak við
spegilinn! En afrekaskráin er stór
og falleg. Verðbólgan kveðin niður
— að vísu er ekki haft hæst um
það, en sögulegu sættirnar um kaup
og kjör því stærri rós, og gerðist
tvisvar á árinu. Og skuldimar við
útlönd ekki hækkað — síðasta ár.
Meira að segja lækkað við visst
mat! Aldrei meiri þjóðartekjur,
6—8% aukning og svo síðasta rósin:
Aldrei hærri kaupmáttur. Enn er
eitt talið: Genginu haldið stöðugu!
Og að lokum er réttlættur halli fjár-
laga í 2 ár með hinum sögulegu
sættum!
En hvemig stendur á því að mér
dettur svo oft í hug þetta fátæktar-
ráð fortíðar að pissa í skóinn! Alveg
sérstaklega þegar gætt er að vinnu-
málasamningunum og fögnuðinum
við þá. Öllum er ljóst að verðmæta-
sköpun framleiðslunnar er hin
mesta í sögunni, sjávaraflinn og
viðskiptakjörin valda því sameigin-
lega. Og svo spratt af því fögur
rós, jafnvægi viðskiptánna við út-
lönd! En nöldurskjóðum verður
hugsað til hvenær á að greiða skuld-
imar við útlönd, þegar 6—8
hundraðs hluta aukning veldur að-
eins jafnvægi, og úr því búin til
skrautfjöður fyrir stjómina!
Halli á ríkissjóði þessi 2 ár virð-
ist ekki rökrétt við annað ástand.
A örfáum dögum, nú um og eft-
ir áramótin, hefur veður skipast í
lofti, en er alls ekki dæmaiaust,
hvorki fyrr né síðar. Má vera að
áramótaánægja forsætis- og fjár-
málaráðherra hefði varla verið svo
áberandi nokkmm klukkustundum
síðar.
Nú, um þrettándann, má telja
uppreisnarástand í þjóðfélaginu.
Ýmislegt kemur til en tæplega
meginástæða hin góða stjórn. End-
urtekin áherzla á tvö atriði: Hvenær
á að greiða niður crlendar skuldir,
sem eru á flestra vömm, ef ekki í
árgæzku sem 1986; mesta tekjuári
sögunnar! Hvenær á ríkissjóður að
vera í jafnvægi öðmm ámm frem-
ur? En meginatriði alls þessa er að
verðlagi gjaldeyrisins verður að
haga svo að allur sá arður er mynd-
ast í þjóðfélaginu, umfram búsýzl-
una í heild, falli í hlut undirstöðu
verðmætanna; þeirra er fmmfram-
leiðsluna stunda. Hin síðustu ár
hefir innflutningsverzlun og þjón-
usta margvísleg hirt allan arðinn
og annast að verðhækkanahjólið
snúist með duldum krafti.
Hvað sagði for-
sætisráðherrann!
Forsætisráðherra sagði á gaml-
árskvöld: „Staðan er nú þessi:
Verðbólga er minni en verið hefir
í 15 ár og fer minnkandi. Meðal-
kaupmáttur er meiri en hann hefir
verið nokkm sinni í sögu þessarar
þjóðar. Þrátt fyrir það verður um-
talsverður afgangur af vömskiptum
og viðskiptahalli lítill, minni en ver-
ið hefir í mörg ár. Þetta er svo
m.a. af því að sparnaður hefír auk-
ist verulega og er nú meiri en verið
hefur á annan áratug.“ Afram er
haldið hugleiðingum, sumt vill illa
Jónas Pétursson
„Það er tæpast til frá-
sagnar þótt einbúa setji
hljóðan við fréttir, jafn-
vel auglýsingar um
„ávöxtun“ svonefndra
skuldabréf a, jaf nvel
allt að 14% umfram
verðbólgu.“
ganga upp og segir: „Mér er ljóst
að allt krefst það fjármagns og
ekki er vinsælt að tala um hækkun
skatta... Hitt er þó Ijóst að við
Islendingar þurfum að gera upp hug
okkar um það til hvers við ætlumst
af ríkisvaldi og ríkissjóði. Eins og
nú er ástatt fær ríkissjóður ekki
sinnt nema að hluta þeim fjölmörgu
félagslegu verkefnum, sem Alþingi
hefir ákveðið. Tekjur hrökkva
hvergi nærri fyrir gjöldum, svo
einfalt er það“ (leturbr. mín).
Síðan segir: „Tekist hefir að koma
hér á fót velferðarkerfi, sem rekið
er með miklu minna fjármagni en
t.d. á flestum hinna Norðurland-
anna. Það er til fyrirmyndar. Þetta
kerfí er hinsvegar lent í þeim fjár-
hagsnauðum að ekki verður lengur
svo fram haldið. Bæði verkefni og
tekjur verður að taka til endurskoð-
unar.“
Þetta sagði forsætisráðherra
m.a. á gamlárskvöld! Margir hafa
reynt það að ætla að gera ýmislegt
— á morgun. Borga af skuldunum
við útlönd, rétta fjárlagahallann,
finna tekjur til að standa undir vel-
ferðarþjóðfélaginu, sem er til fyrir-
myndar, þær vantar — svo einfalt
er það! Já, á morgun.
Og svo falla dómar
Hæstaréttardómur féll nýlega,
allathygliverður. Vaxta-„frelsið“ er
að bera árangur. Ekki var unnt að
sakfella fyrir okur. Forsætisráð-
herra brá — og fleirum — taldi sök
á stjórn Seðlabanka. Eitt kvöld um
áramótin birtist á skjánum seðla-
bankastjóri, Jóhannes Nordal, og
fréttamaður — og Nordal allvalds-
mannslegur í skýringum á háttum
þar.
I huga minn hvarflaði það er
segir í fyrztu Mósebók: „Þá sagði
Jahve við Kain: Hvar er Abel bróð-
ir þinn? En hann mælti: Það veit
ég ekki; á ég að gæta bróður míns?“
Hvers vegna rifjaðist þetta upp?
Þetta svar Kains er furðu algengt
með ýmsum orðum að vísu — en
hugarfarið lifír frá kyni til kyns.
Kjarni okurmála! Og kjarni svo-
nefndrar frjálshyggju er nú ríður
húsum í Sjálfstæðisflokknum með
þeim afleiðingum að flæma í burtu
þá breiðu undirstöðu fólks, er hing-
að til hefir lagt til atkvæðastyrkinn!
Fólks, með jafnaðar- og frelsis-
hugsun sjálfsbjargar — systra og
bræðra — mótað af kristinni sið-
fræði í íslenzku þjóðfélagi, tólks,
sem á hugsjónir og enn man Kjör-
orð: Gjör rétt! þol ei órétt!
Eg hefi átt í þeli mínu þá hug-
mynd að ef „lög“ þrýtur til dóma
komi kristin réttlætiskennd; í mót-
sögn við Kains-eðlið og verði þá —
og raunar ætíð — með í grunni
dóma. Um réttlætiskennd íslenzkr-
ar þjóðarsálar hefi ég ekki efast —
og er mér rík í minni biblíusagan
er Kristur rak víxlarana út úr must-
erinu með þeim orðum að ekki
skyldi gera hús föður síns að mang-
arabúð! Ég held að ástandið, sem
virtist komið upp fyrir jólin að allt
í einu værum við stödd án verndar
siðalaga réttlætiskenndar og sam-
úðar, — með óátöldu — frelsi fyrir
bófa og ræningja, færi okkur þó
sanninn um að það virðist vanta í
okkar tryggingar kviðdóm, úr-
skurðaraðila, hóp þjóðarsálarinnar,
sem er gædd kristilegri siðfræði
og réttlætiskennd, sem kalla má til.
Það er tæpast til frásagnar þótt
einbúa setji hljóðan við fréttir, jafn-
vel auglýsingar um „ávöxtun“
svonefndra skuldabréfa, jafnvel allt
að 14% umfram verðbólgu, ogdæm-
ið skýrt með t.d. 1.000 kr. sem
orðið hafi að 1.310 kr. sl. ár —
þessi eins stafs verðbólga þá varla
nema í munni sjálfumglaðra stjóm-
málamanna. En nú spyr ég þig, sem
kannt að líta á þetta: Hvað er ok-
ur? Og hver borgar þessar 310 kr.
í dæminu er ég neíndi? Ekki brask-
ararnir ekki fijálshyggjupostularn-
ir. Heldur þú með meiri verðbólgu!
Ekki nóg með það. Með skertu siða-
mati og deyfðri réttlætiskennd.
Eftir er enn mál málanna: Sjálf-
stæðismál íslendinga, ævarandi.
Nú verndun byggðanna, stjórnskip-
unarbreyting með fjórðunga og
fylkjasvæðum og algjöru valdi eigin
mála og arðsöflun. Stöndum vörð
um allar Grímseyjar allra svæða,
allra tíma. Hittum ætíð jafningja
hvar sem við búum, án yfirlætis,
án beiningasvips. Það er markmið
byggðah rey fi ngar.
Höfundur er fyrrverandi alþingis-
maður.
Viðbrögð formanna stjórnarflokkanna:
Taka stj órnmála-
ályktun SUF ekki
allt of hátíðlega
ÞEIR Þorsteinn Pálsson for-
maður Sjálfstæðisflokksins og
Steingrímur Hermannsson
formaður Framsóknarflokks-
ins virðast ekki kippa sér mikið
upp við stjórnmálaályktun
stjórnar Sambands ungra fram-
sóknarmanna, þar sem m.a. er
sagt að Framsóknarflokkurinn
eigi að taka áframhaldandi
stjórnarþátttöku til alvarlegrar
endurskoðunar.
Þorsteinn Pálsson sagði m.a. í
samtali við Morgunblaðið um þetta
mál: „Ég nenni nú ekki að vera að
skattyrðast við Samband ungra
Framsóknarmanna. Ég ætla fyrst
að sjá hvort að flokksforysta Fram-
sóknarflokksins tekur þá svo
alvarlega að stjórnarsamstarfið
verði tekið til alvarlegrar endur-
skoðunar."
Steingrímur Hermannsson sagði
aðspurður um afstöðu til ályktunar
SUF: „Hún kemur nú heldur seint
fram þessi ályktun. Það eru ekki
nema fáeinir mánuðir eftir af þessu
stjórnarsamstarfi, og ætli ég reyni
nú ekki að halda þessu saman eins
og ég best get, þó að svona um-
mæli eins og hjá Þorsteini geri mér
svolítið erfitt fyrir.“
I