Morgunblaðið - 22.01.1987, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 22.01.1987, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987 Morgunblaöið/Jón Gunnlaugsson • Knattspyrnumaður Akraness 1986, Heimir Guðmundsson, er hér með hin veglegu verðlaun sem Al- freð V. Gunnarsson, gullsmiður, hefur gefið að þessu tilefni. Hann stendur hér við hlið Heimis ásamt dóttur sinni. Heimir knattspyrnu- Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson • JÓn Páll Haraldsson skorar hér fyrir Grindavík í leiknum gegn Tinda- stól á laugardaginn. 1. deild íkörfu: maður Akraness Akranes. í LOK síðasta árs var Heimir Guðmundsson bakvörðurinn efnilegi úr ÍA útnefndur knatt- spyrnumaður Akraness 1986 og kom sú útnefning fáum Skagamönnum á óvart. Alfreð V. Gunnarsson, gullsmið- ur á Akranesi, og kona hans, Lára Árnadótir, tilkynntu stórn knatt- spyrnufélags ÍA síðastliðið haust þa ákvörðun sína að gefa nýjann verðlaunagrip með sæmdarheitinu „Knattspyrnumaður Akraness". Þegar útnefningin fór fram var þessi veglegi bikar ekki tilbúinn til afhendingar og var því kærkomið tækifæri að hafhenda Heimi grip- inn á Stórmóti íþróttafréttamanna á Akranesi um síðustu helgi. J.G. Skíði: Einar Ólafsson gerir það gott EINAR Ólafsson skíðagöngumað- ur frá ísafirði náði sjöunda sæti í 30 km ski'ðagöngu á móti i Svíþjóð á laugardaginn. Hann keppti í boðgöngu á sunnudaginn og náði þar 3. besta tíma allra keppenda. í 30 km göngunni sigraði lands- liðsmaðurinn, Jan Ottoson, á 1.26,47 klukkustundum. Larry Po- romaa varð annar á 1.27,19 og Thomas Wassberg þriðji á 1.27,42. Einar Ólafsson varð sjöundi og gekk á 1.30,45. 63 keppendur voru með í þessari göngu. Hann keppti svo í 4 X 10 km boðgöngu á sunnudaginn með liði sínu Ostersund. Þar gekk Einar fyrsta sprett og náði þriðja besta tima allra keppenda. Hann gekk 10 km á 28,22 mín. Besta braut- artíma hafði Tony Mogren 27,53 mín. Mikael Edmundsson varð annar á 28,1 mín. Létt hjá Grindavík Grinúavík. GRINDVÍKINGAR tóku á móti Tindastóli frá Sauðárkróki síðast- liðinn laugardag í 1. deild íslands- mótsins í körfuknattleik í Grindavík. Grindvikingar höfðu mikla yfirburði og sigruðu auð- veldlega 93—53. Grindvíkingar tóku strax forustu og eftir þriggja mínútna leik var staðan orðin 11—4. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 22—16 fyr- ir UMFG en þá náði Tindastóll góðum leikkafla og komst yfir 24—23 með tveim þriggjastiga körfum frá Eyjólfi Sverrissyni. Grindvíkingar tóku þá við sér og skoruðu tíu stig í röð 33—24 og eftir það skildu leiðir. I hálfleik var staðan 45—32 fyrir UMFG. í síðari hálfleik léku Grindvíking- ar á als oddi og eftir sex mínútur var staðan 58—33 og þeir búnir að gera út um leikinn. Það sem eftir lifði leiksins var einungis formsatriði en Grindvíkingar bættu við forskotið jafnt og þétt. í leiks- lok skildu 40 stig félögin. Greinilegt er að lið UMFG er í stórstígum framförum og er til alls líklegt í baráttunni um efsta sætið í deildinni. Mestu munar um að allir leikmennirnir skora í leiknum úr ólíklegustu færum og vörnin er góð. Stigaskorunin hjá UMFG lítur þannig út: Rúnar Árnason 15 stig, Dagbjartur Willardsson 13, Stein- þór Helgason 11, Hjálmar Hall- grímsson, Guðmundur Bragason og Sveinbjörn Sigurðsson 10 hver, Eyjólfur Guðlaugsson 8, Guðlaug- ur Jónsson og Sveinbjörn Bjarna- son 6 hvor og Jón Páll Haraldsson 4 stig. Hjá Tindastóli eru þrír menn mest afgerandi við stigaskorunina, þeir Björn Sigtryggsson 19 stig, Eyjólfur Sverrisson 14 og Sverrir Sverrisson 9 stig en aðrir miklu minna. Kr.Ben. 1X2 l •O iö c 3 CT) o 5 > Q Tíminn c #c ■> s 5* Dagur ■o ‘5. c5 I «> s cc Bylgjan Sunday Mirror Sunday People News of the World Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Coventry — West Ham 2 X 1 2 X 1 1 1 1 1 X 1 7 3 2 Luton — Leicester 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0 Man. (Jtd. — Arsenai 2 1 1 1 1 1 1 2 X X X X 6 4 2 Norwich — Chelsea 1 1 X 1 1 1 X 1 — — — — 6 2 0 Oxford — Watford X X 2 X X X X 1 X 2 X X 1 9 2 QPR — Southampton 1 1 1 2 1 1 1 X 2 1 1 1 9 1 2 Sheffield Wed. - Chalton X 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 1 0 Tottenham — Aston Villa 1 1 1 1 i 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0 Wimbledon — Man. City X 1 X X X 2 2 X — — — — 1 5 2 Birmingham — Stoke 1 1 2 1 X 1 2 1 X X X X 5 5 2 Grimsby — Ipswich X 2 X X 2 X X X 2 X X 2 0 8 4 Oldham — Derby X 2 1 2 1 2 1 1 2 X X 1 5 3 4 Handknattleikur: Yfirburðasigur Þórs; ÞÓR sigraði Fylki næsta auðveld- lega i 2. deildinni í handknattleik á Akureyri á laugardaginn. Loka- tölur urðu 21:12 fyrir heimamenn eftir að staðan í leikhléi var 12:5. Þórsarar tóku forystu strax í upphafi og Ijóst var að Fylkismenn ættu aldrei möguleika. Liðið er það slakasta sem heimsótt hefur Akur- eyri í langan tíma. Þór lék ágæt- lega í fyrri hálfleiknum en í þeim síðari fóru leikmenn liðsins niður á sama lága planið og Fylkismenn léku á. Hjá Þór lék Hermann Karlsson markvörður mjög vel, svo og Sigur- páll Árni Áðalsteinsson sem i Fylki skoraði stórglæsileg mörk úr vinstra horninu að vanda. Sigurður Pálsson og Kristinn Hreinsson voru einnig góðir. Ekki er ástæða til að hrósa neinum Fylkismanni. MÖRK ÞÓRS: Sigurður Pálsson 6/2, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 6/2, Kristinn Hreinsson 3, Ingólfur Samúelsson 2, Baldvin Heiðarsson 2, Gunnar Gunnarsson 1 og Jó- hann Samúelsson 1. MÖRK FYLKIS: Einar Einarsson 5, Magnús Sigurðsson 3, Jón Leví Hilmarsson 2, Jón Oddur Daví- ðsson 1 og Elís Þór Sigurðsson 1. Góðir dómarar voru Aðalsteinn Sigurgeirsson og Stefán Arnalds- son. Innanhússknattspyrna: Skagastúlkur náðu 3. sæti Akranesi. FYRSTU deildar lið ÍA í meistara- flokki kvenna i' knattspyrnu varð í þriðja sæti á innanhússmóti i' Köln í Þýskalandi í siðustu viku. Skagastúlkurnar unnu dönsku meistarana Hei frá Kaupmanna- höfn, 2:1, í úrslitaleik um þriðja sætið. Liðunum var skipt í riðla og léku Skagastúlkurnar þar þrjá leiki. Fyrsta leiknum gegn þýsku meist- urunum töpuðu þær stórt, 0:8. Síðan léku þær gegn hollensku meisturunum og unnu 6:0. Síðan gegn þýsku liði og unnu það 2:0. Þetta var í fyrsta sinn sem íslenskt kvennalið tekur þátt í knattspyrnumóti innanhúss er- lendis. Leikið var með nokkuð öðrum hætti en hér á landi. Því liðin léku með markvörð og eins voru mörkin stærri en í mótum hér heima.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.