Morgunblaðið - 27.02.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
í SEÐLABANKA íslands er nú
unnið að því að lækkun bindi-
skyldu banka og innlánsstofnana
við Seðlabankann úr 18% í 13%
taki gildi nú á mánudag, þann
2. mars. Jafnframt er unnið að
samningu reglugerðar, sem
heimilar Seðlabanka að setja
ákveðnar reglur um lausafjár-
stöðu banka og sparisjóða. Búist
er við formlegri tilkynningu frá
Seðiabankanum um þessi efni í
dag.
Viðræður
væntanlega
áskriðá
mánudag
„FUNDURINN við samninga-
nefnd ríkisins i gær var bæði
stuttur og snubbóttur og ætlum
við að hittast aftur á mánudaginn
og þá er ætlunin að fara að ræða
saman af einhverri alvöru,"
sagði Einar Ólafsson, formaður
Starfsmannafélags ríkisins, í
samtali við Morgunblaðið i gær-
Matthías Bjamason viðskipta-
ráðherra sagði f samtali við
Morgunblaðið að unnið hefði verið
að þessum málum að undanfomu
og nú næstu daga myndi lækkun
bindiskyldunnar við Seðlabankann
taka gildi. Hann sagði að þetta mál
hefði verið nokkuð þungt í vöfum,
en kvaðst fagna því að lækkun
bindiskyldunnar væri nú að verða
að raunveruleika.
Fundur stjómenda Seðlabankans
og banka og innlánsstofnana um
þessi efni verður haldinn í dag og
verður þar gengið endanlega frá
reglum um bindiskylduna og regl-
um um lausafjárstöðu banka og
sparisjóða.
Stmamynd/Reuter
Utanríkisráðherra, Matthías Á. Mathiesen, hélt fund með sendiherrum íslands í Evrópubandalags-
ríkjunum i Brussel i gær. Á myndinni eru f.v.: Haraldur Kröyer, sendiherra í Frakklandi, Hannes
Hafstein, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Þórhallur Asgeirsson, ráðuneytisstjóri viðskipta-
ráðuneytisins, Matthías Á. Mathiesen, utanrikisráðherra, Einar Benediktsson, sendiherra i Belgíu,
Ólafur Egilsson, sendiherra í Bretlandi, Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður utanrikisráðherra, Páll
Ásgeir Tryggvason, sendiherra í Vestur-Þýskalandi, og Birgir Möller fyrsti sendiráðsritari í Dan-
mörku.
Utanríkisráðherra á fundi með DeClerq:
Bað um að afgreiðslu á kvóta
á saltfisk héðan yrði hraðað
Bindiskyldan
lækkar úr 18
í 13% 1. mars
MATTHÍAS Á. Mathiesen utanríkisráðherra átti i gærmorgun fund
með Willy DeClerq í Brussel, en DeClerq fer með utanríkis- og við-
skiptamál framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins.
kvöldi.
„Það er heil Almannagjá sem ber
í milli aðila, en við verðum að fá
einhvem samjöfnuð við annan
launamarkað í þjóðfélaginu. Við
getum ekki liðið það að menn komi
í stórum stíl og taki störf af því
fólki, sem hefur verið í félaginu í
fjölda ára, og það fái jafnframt 20
til 30% hærri laun þó það komi út
úr háskóla," sagði Einar.
Félagsmenn í Starfsmannafélagi
ríkisins eru um 5.000 talsins. Einar
sagði að félagið þyrfti ekkert frekar
að bíða eftir því að Starfsmannafé-
lag Reykjavíkurborgar semdi til að
geta sett fram kröfur sínar. „Félög-
in sitja nokkum veginn við sama
borð en sigla þó ekki alveg á sama
báti.“
„Við ræddum samskipti íslands
og Evrópubandalagsins," sagði ut-
anríkisráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann sagði
að sérstaklega hefði verið rætt um
þróunina í samskiptum EFTA-ríkj-
anna og Evrópubandalagsins, en
Matthías sagði að Willy DeClerq
væri mikill áhugamaður um að þar
yrði unnið markvisst að málum, út
frá Lúxemborgarsamþykktinni sem
gerð var 1984.
„Við vikum síðan að þeim vanda-
málum sem við eigum við að glíma,
og ég kom á framfæri við hann
gagnrýni okkar íslendinga á þann
skatt sem fyrirhugað er að leggja
á lýsi og feiti og við gerðum honum
grein fyrir því hvaða þýðingu slík
skattlagning hefði fyrir útflutning
okkar til Evrópubandalagsins. Við
ræddum ennfremur tolla á saltfiski
og hvöttum til þess að Evrópu-
bandalagið, eins fljótt og auðið
væri, afgreiddi kvótamál um salt-
fisksútflutning frá íslandi, þannig
að það mál væri ekki látið dragast.
Síðan ræddum við almennt um
hvemig við gætum unnið nánar að
þessum málum og gert er ráð fyrir
því að sú skrifstofa sem hér hefur
verið opnuð verði í nánu samstarfí
við þá,“ sagði utanríkisráðherra.
Síðar í gær átti utanríkisráðherra
fund með sendiherrum íslands í
ríkjum Evrópubandalagsins, sem
var fyrsti fundur sendiherranna á
skrifstofu íslands hjá Evrópubanda-
laginu í Brussel. Utanríkisráðherra
sagði að umræður á þeim fundi
hefðu snúist um með hvaða hætti
sendiherramir geta hagað sam-
starfí sínu og að sendiherramir,
hver á sínum stað, geti með öllum
ráðum komið á framfæri þeim at-
hugasemdum sem íslendingar
hefðu varðandi eigin vandamál, svo
og samskipti íslendinga við Evrópu-
bandalagið.
Síðdegis í gær var svo haldinn
fundur með stjómarmönnum út-
flutningsráðs og ýmsum af þeim
sem eru í forsvari fyrir íslensk fyrir-
tæki í Evrópu, þar sem málefni
þeirra vom rædd og með hvaða
hætti Evrópubandalagsskrifstofan
og viðskiptafulltrúar þeir, sem
ráðnir verða á vegum útflutnings-
ráðsins, geti orðið að liði. Sendiherr-
amir vom einnig á þeim fundi, að
sögn utanríkisráðherra, í þeim til-
gangi að það samstarf geti tekist
sem leitað hefur verið eftir.
Sjá bls. 7: Grundvöllur loðnu-
veiða brostinn, ef
lýsisskattur EBE
kemst á.
MorgunDiaoio/Ami særerg
Húsið við Lækjargötu 4, sem byggt var árið 1852 og hugsanlega verður flutt í Árbæjarsafn.
Lækjargata 4 flutt í Árbæjarsafn?
BORGARRÁÐ hefur samþykkt stefnumörkun
borgarminjavarðar varðandi varðveislu hússins
nr. 4 við Lækjargötu, en lóðinni hefur verið
úthlutað undir nýbyggingu. Borgarminjavörður
telur að varðveita beri húsið og flytja það i
Árbæjarsafn.
Ragnheiður H. Þórarinsdóttir borgarminjavörður
segir í bréfí til borgarráðs að Lækjargata 4 eigi sér
merka sögu, nátengda sögu Reykjavíkur. Húsið var
byggt árið 1852, tvílyft grindarhús með lágu risi
og var múrað með múrsteini í grindina. Byggt var
ofan á suðurskúrinn árið 1884 og norðurskúrinn
1890 og náði húsið þá núverandi stærð með 15
herbergjum og tveimur eldhúsum. Húsið var með
fyrstu tvílyftu húsunum í Reykjavík og svalimar
með elstu svölum í borginni.
Húsið tengist einnig verslunarsögu Reykjavíkur.
Þar bjuggu um árabil hjónin Ingibjörg og Þorlákur
0. Johnson og þar var Verslunarmannafélag
Reylqavíkur stofnað árið 1891. Meðal þeirra sem
bjuggu í húsinu vom Helgi G. Thordersen biskup
og ritari hans Jón Ámason þjóðsagnasafnari. Um
tíma bjó Benedikt Gröndal í húsinu.
Felag bokagerðarmanna:
Fallið frá boðuð-
um aðgerðum gegn
skrifstofu Alþingis
FÉLAG bókagerðarmanna er
fallið frá boðuðum aðgerðum
gegn skrifstofu Alþingis og rikis-
prentsmiðjunni Gutenberg vegna
deilu er upphófst þegar Alþingi
tók tölvutæknina í sína þjónustu
haustið 1985. Félag bókagerðar-
manna taldi að þarna væri verið
að fara inn á starfssvið félags-
manna.
Sátt þessi náðist fyrir Félags-
dómi í gærmorgun og var hún gerð
með vísan til 7. greinar nýgerðs
kjarasamnings Félags bókagerðar-
manna og prentiðnaðarins þar sem
ákvæði em um að aðilar muni vinna
könnun á útbreiðslu tölvuvinnslu
utan prentsmiðja.
Stefnandi í málinu var Vinnuveit-
endasamband íslands fyrir hönd
Félags íslenska prentiðnaðarins
vegna ríkisprentsmiðjunnar Guten-
berg. Stefndi í málinu var Félag
bókagerðarmanna. Félag bókagerð-
armanna boðaði bann á vinnslu í
Gutenberg-prentsmiðjunni sem var
frestað þegar mál þetta hófst í des-
ember árið 1985.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
fræðingi VSÍ, fóm fulltrúar frá
Félagsdómi tvívegis í vettvangsleið-
angra til að kynna sér tölvuvæðingu
í prentiðnaði svo sem í Alþingi,
Gutenberg, á Morgunblaðið og í
Odda.
Bláfjallaf ólkvangur:
Reykjavíkur-
borg greiðir
3,2 milljónir
REYKJAVÍKURBORG leggur
3,2 miiyónir króna til fram-
kvæmda í Bláfjallafólkvangi á
þessu ári.
Að sögn Júlíusar Hafstein for-
manns íþrótta- og tómstundaráðs,
verður þjónustumiðstöðin endur-
bætt og þakleki stöðvaður. Gengið
verður frá í kjallara hússins og bif-
reiðastæði skipulögð á lóðinni. Þá
verður vegurinn að skíðasvæðinu
betmmbættur.