Morgunblaðið - 27.02.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
13
Klámblöð eru í augnhæð í bókaverslunum en Andrés Önd þar sem börnin ná ekki til, var niðurstaða
fundar kvenna gegn klámi.
Konur gegn klámi:
Klámblöð höfð í augnhæð
barna í bókaverslunum
Á FUNDI kvenna gegn klámi
nú í vikunni voru bornar saman
niðurstöður könnunar á því
hvaða klámrit væru á boðstólum
í bókaverslunum í Reykjavík.
Niðurstaðan var sú að í fimm af
sex bókaverslunum í miðbæ
Reykjavíkur væru liggjandi
frammi frá átta og allt að tutt-
ugu tegundir klámrita. Ein
verslun í miðbænum, Bókaversl-
un Snæbjarnar, verslar ekki með
slíkan varning. Sú verslun end-
ursendir klámritin sem hún fær
óumbeðið sent reglulega frá Inn-
kaupasambandi bóksala, að sögn
starfsstúlku bókaverslunar Snæ-
bjarnar.
Konurnar sögðu að viðbrögðin
við athugun þeirra hefði fengið ólík-
ar undirtektir í bókaverslununum,
allt frá því að vera mjög fjandsam-
legar, en í öðrum tilfellum hefði
verslunarfólk, konur við afgreiðslu-
störf, fagnað því að loksins væri
gaumur gefinn að þessum málum.
Þær sögðu að þeim finndist niður-
lægjandi að þurfa að afgreiða þessi
blöð. „Við konumar eram búnar að
beijast gegn þessu í mörg ár og
ekkert hefur gengið. Fyrir tíu áram
síðan vora það dönsku blöðin sem
gáfu aur í kassann, en núna era
það klámblöðin og aldrei hefur ve-
rið meira úrval af þeim,“ sagði ein
þeirra. Einnig kom fram í samtölum
við starfsfólk að böm og unglingar
sæktu mjög í að skoða umrædd rit.
Á fundinum kom fram að erfítt
hafði reynst að ná tali af verslunar-
stjóram bókaverslanana. „Þeir
gufuðu upp um leið og þeir vissu
erindi okkar. Við ætluðum að fara
fram á að þessi vamingur, sem
ólöglegt er að versla með væri fjar-
lægður, því annars sæjum við okkur
ekki fært annað en að kæra viðkom-
andi verslun, ofbeldið og viðbjóður-
inn er of yfirgengilegur til að það
sé hægt að láta þetta viðgangast
öllu lengur," sagði ein fundar-
kvenna. Aðrar bentu á að staðsetn-
ing klámritanna í sumum
verslunum væri einnig sláandi, þau
væra jafnvel höfð í augnhæð ungra
bama á meðan Andrés Önd væri
hafður þar sem yngstu bömin næðu
ekki til.
Aðspurðar um hvert næsta skref-
ið væri sögðu konumar að ástandið
væri engu betra annars staðar á
landinu. Því yrði á næstunni leitað
liðsinnis hjá kvenfélögum og öðram
kvennasamtökum í landinu. Vitnað
var í erlendar kannanir sem sýndu
að í þeim löndum þar sem kláminu
hefur verið sleppt lausu hefur það
haft í för með sér ofbeldi í auknum
mæli gagnvart konum og bömum.
Síðdegiskaffi
fyrir eldri
borgara í
Laugarneskirkju
SÍÐDEGISKAFFI fyrir eldri
borgara verður í safnaðarheimili
Laugarneskirkju laugardaginn
28. febrúar kl. 14.30.
Þór Halldórsson yfirlæknir kem- t
ur og ræðir um spuminguna
Hvemig eldumst við? Einnig koma
tónlistarmennimir Jónas Ingimund-
arson og Ólafur Magnússon frá
Mosfelli og flytja nokkur sönglög.
Þá verður vorferð safnaðarins
til Danmerkur kynnt, en hún verður
farin vikuna 22.-29. maí og dvalið
í sumarhúsum í Karlslunde. Frestur
til skráningar í ferðina er til 8.
mars.
Málfreyju-
deild stofn-
uð í Garðabæ
STOFNFUNDUR málfreyju-
deildar í Garðabæ var haldinn
14. janúar sl. Deildin hlaut nafn-
ið Gerður.
Stofnfélagar vora tuttugu og
þrír. Fundarstaður verður Kirkju-
hvoll, safnaðarheimili. Fundirnir
verða 1. og 3. miðvikudag hvers
mánaðar og hefjast kl. 21.00. Fund-
irnir era öllum opnir.
Forseti hinnar nýstofnuðu deildar
var kjörin Guðfinna Snæbjöms-
dóttir félagsmálafulltrúi.
TOYOTA LAND CRUISER II, beinskiptur 5 gíra,
vökva- og veltistýri, 2.4 lítra bensinvél'eða dísil
turbo, brelð dekk, driflokur. . .
TOYOTA LAND CRUISER STW. „torfærutröllið"
með 100% læsingu á drifum, 4 lítra, 6 strokka
dísil turbo, 5 gira beinskiptur...
Hl ACE 4x4, 8 manna með „de luxe" innrétt-
ingu, vökvastýri, 5 gíra beinskiptur, 2.4 lítra dísil-
vél ... sjón er sögu ríkari!
TOYOTA
EGILSSTAÐIR • EGILSSTAÐIR • EGILSSTAÐIR
Mð errnn á leiðinm til þínmeð
Toyotatröllin!
Um helgina verða Toyota Land Cruiser og Hi Ace 4X4 áþreifanlegii'
hjá Bílasölunni Ásinn, reiðuhúnir til skoðunai' og reynsluaksturs.
Við rennum í hlað kl. 10.00 á laugardag og dveljum í Ásnum til kl. 17.00.
Á sunnudag bvrjum við aftur í sólskinskapi kl. 13.00 en leggjum í hann
kl. 17.00.
Við vonunist lil að sjá ykkur í góðu bílaskapi!
TOYOTA
AUK hf. 109 4/SlA