Morgunblaðið - 27.02.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
39
Á áhorfendabekkjum i Tripólíbfói?
gesta kannaðist vel við þau lög sem
sungin voru af miklum ágætum af
söngflokknum BEES, en í honum
eru þau Björgvin Halldórsson,
Eiríkur Hauksson, Eyjólfur Kristj-
ánsson og Sigríður Beinteinsdóttir.
Þau Eyjólfur og Sigga vöktu þó
sérstaka lukku, einkum þó Sigga
og heyrðist hvíslað á nærliggjandi
borðum að þetta væri sannarlega
mikil rödd, „smýgur í gegnum
merg og bein" sagði einn borð-
herrann. Hljómsveitin Fuglar
spilaði af miklum móð undir stjóm
Gunnar Þórðarsonar, í Fuglum eru
þeir Bjöm Thoroddsen, Eyþór
Gunnarsson, Gunnlaugur Briem,
Haraldur Þórsteinsson, Rúnar Ge-
orgsson, Stefán S. Stefánsson auk
Gunnars, og þurfa þeir síður en svo
ar á heimsmælikvarða. Auk þeirra
kom fram fjöldi dansara frá Dans-
skóla Auðar Haralds, Dansstúdíói
Sóleyjar og Kramhúsinu.
Söguþráðurinn í „Allt vitlaust"
er sagður með dönsunum að mestu
leyti en kynningar tengja atriðin
saman. Kynningamar voru orðnar
hálf þreytandi undir lokin, það var
ffekar leiðinleg „dósarödd" sem
Jón Axel Ólafsson brá fyrir sig,
of vélræn og laus við það eðlilega
stuð sem ríkti á sviðinu og í saln-
um. Undirtektir gesta voru góðar,
margir riíjuðu upp gamla daga og
sungu með fullum hálsi.
í heild má segja að þetta hafi
verið hin ágætasta kvöldskemmtun
og full ástæða til að óska Grínlandi
til hamingju með frumburðinn.
Sigga Beinteins í stuði.
Allt vitlaust í
Broadway
Skemmtanir
Tatum
og sonur
Fastir lesendur þessara dálka
minnast þess án efa þegar leik-
konan Tatum O’Neal og tennis-
stjaman John McEnroe létu pússa
sig saman í fyrra eftir að hafa átt
í stormasömu sambandi um all-
nokkurt skeið. Margir spáðu því að
hjónaband þetta myndi ekki reynast
langlíft, enda bæði annálaðir skap-
hundar. Það viðist þó ætla að ganga
betur en á horfðist og hér má sjá
leikkonuna ásamt níu mánaða
gömlum syni þeirra hjóna, Kevin.
Það er ekki annað að sjá en mæðginin séu býsna hýr.
Valgerður Jónsdóttir
ÞAÐ er ekki beinlínis hægt að
segja að allt hafi orðið vitlaust
í' Broadway s.l. föstudagskvöld
er frumsýning var á villtri músík
frá „briRjántinárunum*1 1955 til
1962, en mikil stemning var þó
í salnum, menn stóðu upp frá
borðum og dilluðu sér í takt við
tónlistina. Sögðu sumir að ein-
ungis herslumun vantaði á að
menn gengju enn lengra og
legðu borðin að fótum sér, eins
og tíðkast á miklum stuðstöðum.
Skemmtunin hófst klukkan 22,
að loknu borðhaldi, en matseðillinn
samanstóð af reyktum laxi í for-
rétt, aðalrétturinn var svínakjöt
með tilheyrandi meðlæti og í eftir-
rétt vatnsdeigsbolla með ijóma.
Húsfyllir var í Broadway, og menn
rétt búnir að kyngja síðasta bitan-
um af vatnsdeigsbollunni er
skemmtunin hófst. Það er Grínland
sem stendur að þessari skemmtun,
en í leiksmiðjunni Grínlandi eru
þeir Bjöm Bjömsson leikmynda-
hönnuður, Egill Eðvarðsson leik-
stjóri og tónlistarmaðurinn Gunnar
Þórðarson. Eflaust er mönnum það
kærkomin tilbreyting að fá að upp-
lifa gömlu rokkstemninguna á
þessari sýningu, í því fábreytilega
skemmtanalífi sem vertshús borg-
arinnar bjóða upp á. Stór hluti
Einar Falur
Nanetta Nelms dansaði af
mikilli snilld.
að skammast sín fyrir frammistöð-
una.
Þessi sýning sem ber heitið „Allt
vitlaust" er fyrsta stóra verkefnið
sem Grínland stendur að og er
óhætt að segja að vel og myndar-
lega sé ýtt úr vör. Það var alþjóð-
legt yfirbragð á þessari skemmtun,
leikmyndin lífleg og skemmtileg,
og sömu sögu má segja um búning-
ana. Það mæðir mikið á dönsurun-
um sem stóðu sig mjög vel, einkum
þó þær Ástrós Gunnarsdóttir og
Nanette Nelms, en þær eru jafn-
framt höfundar dansanna, dansar-
við einn vin sinn fyrir skömmu.
við þurfum að fá tíma til þess. Brúð-
kaupið mun fara fram þegar rétti
tíminn er kominn — líklegast áður
en árið er úti. Þá og ekki fyrr
munum við ganga að altarinu, enda
ættum við að vera í æfingu."
Kunningjar Julios játa að þeir
hafi verið mjög undrandi í fyrstu, .
en benda sfðan á að þeir hefðu átt
að geta séð hvert stefndi. „Julio
hefur fjasað um það í mörg ár að
hann skorti allt fjölskyldulíf. Lengi
vel varð frami hans þó að ganga
fyrir, en nú hefur hann klifið tind-
inn og sér að líf án fjölskyldu sinnar
er einskis virði."
Julio og Isabel giftust árið 1971,
en eftir því sem hann eyddi meiri
tíma í söngferil sinn fjarlægðust
þau hvort annað. Svo fór að þau
skildu og hjónabandið var ógilt f>
janúar 1979.
Söngvarinn spænski, Julio Igles-
ias, hyggst kvænast á ný —
og það fyrrverandi eiginkonu sinni,
Isabel! Hjónaband þeirra rann út í
sandinn fyrir átta árum, en nú virð-
ist sem allt sé að smella saman
aftur. Hefur enda löngum verið
haft eftir söngvaranum að hann
sakni fjölskyldulífsins mjög og birt-
ist reyndar um það ítarleg greinar-
gerð hér á síðunni skömmu fyrir
sfðustu jól.
Nú þegar hefur Julio keypt hús
á Ibiza þar sem hann getur eytt
frítíma sínum með Isabel og bömum
þeirra þremur. „Lffið á þessum
þeytingi án fjölskyldu minnar er
orðið of þrúgandi fyrir mig. Þess-
vegna ákvað ég að kvænast fyrrver-
andi eiginkonu minni á ný; svo við
gætum orðið ein fjölskylda á ný“,
'i hinn 43 ára gamli söngvari
Svo gerðist það síðastliðið sumar
að Isabel og Julio hittust aftur og
eyddu nokkrum dögum saman
ásamt bömunum. Julio hafði ekki
verið jafnsæll í mörg ár og það fékk
hann til þess að kveikja á perunni.
Seint á árinu bauð hann henni út
að borða og skýrði henni frá því
að honum fyndist að þau ættu að
taka saman á ný. „Ég held að við
séum bæði tilbúin til þess að gift-
ast aftur og gefa hvort öðru annað
tækifæri ... Við munum reyna að
vera sem allra mest saman og flöl-
skyldulífið mun ganga fyrir. fþetta
sinn munum við giftast og vera
gift hvort öðru það sem eftir er.“
Gömul mynd af Julio og Isabel, ungum og ástföngnum.
Hér eru Isabel og Julio ásamt syni þeirra, Enrique, en
myndin var tekin árið 1984.
„Það er vitaskuld ekki auðvelt að
byija aftur eftir átta ára hlé, en
við ætlum að reyna.“
Þessi mál gerast þó ekki í einni
svipan. „Isabel er sammála mér um
að við ættum að giftast aftur, en
Julio Iglesias kvænist á ný
Gamla konan varð fyrir valinu!
1