Morgunblaðið - 27.02.1987, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.02.1987, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987 1130 fundur hreppsnefndar Borgarneshrepps; Fjárhagsáætlun samþykkt og félags- málafulltrúi ráðinn Borgarnesi. FJÁRHAGSÁÆTLUN sveitar- sjóðs Borgarneshrepps fyrir árið 1987 var samþykkt á 1130. fundi hreppsnefndarinnar. Niður- stöðutölur fjárhagsáætlunarinn- ar eru 84,6 milljónir króna. Af helstu framkvæmdum má nefna byggingu leiguibúða, en til þeirra voru veittar 7,7 miiyónir, tíl holræsa og gatnagerðar voru veittar rúmar 2 milljónir, til und- irbúnings á gerð fþróttagrasvall- ar í fjörunni við íþróttahúsið var veitt 1 milljón króna. 3ja mánaða. Nokkrar umræður urðu um launakjör félagsmálastjór- ans og voru lagðar fram tvær bókanir vegna þeirra, þar sem fram kom að launin þóttu of há, miðað við aðra starfsmenn Borgames- hrepps. Einnig komu fram hug- myndir um að kannað yrði hvort að ekki væri hægt að sameina starf æskulýðsfulltrúa og félagsmálafull- trúa og gera úr því eitt heilt starf. í fréttabréfí Borgameshrepps frá því í desember 1986 er vikið að starfssviði félagsmálastjóra og seg- Morgunblaðið/Theodór Frá 1130. fundi hreppsnefndar Borgarneshrepps. Á honum var fjár- hagsáætlun fyrir 1987 samþykkt og félagsmálafulltrúi ráðinn í hálft starf. Samþykkt var að útsvarsálagn- ing yrði óbreytt frá því í fyrra eða 10,4% og að aðstöðugjöld yrðu óbreytt. Akveðið var að fullnýta heimild til álagningar fasteigna- gjalda. Nokkuð var deilt um hækkun fasteignagjalda og stöðu sveitarsjóðs. Ræddi Gísli Kjartans- son, fulltrúi sjálfstæðismanna, um möguleika á að sveitarsjóður færi út í útgáfu skuldabréfa, frekar en að auka skuldir sveitarsjóðs með lánum. Eyjólfur Torfí Geirsson odd- viti, fulltrúi Alþýðuflokksins, ræddi slæma stöðu sveitarsjóðs og vildi hann meina að þar ætti núverandi ríkisstjóm stóran hlut að máli. „Vegna stefnu núverandi ríkis- stjómar hefur íjármagn sogast til Reykjavíkur undanfarin ár,“ sagði Eyjólfur meðal annars. Þá sam- þykkti hreppsnefndin að ráða félagsmálafulltrúa í hálft starf til ir þar meðal annars: „Starf félags- málafulltrúa er mjög fjölþætt og felst í því að styðja og leiðbeina þeim sem á einhvem hátt mega sín minna í hinu flókna samfélagi nútímans. Hér nægir að nefna mál- efni aldraðra og fatlaðra, vemd bama og ungmenna og framfærslu- vandamál. Atkvæðagreiðslan um ráðningu félagsmálastjórans fór þannig að fulltrúar meirihlutans, 2 frá Al- þýðuflokki, 1 frá lista óháðra kjósenda og fulltrúi Alþýðubanda- lagsins samþykktu ráðninguna auk fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem skipar minnihluta hreppsnefndar. Á móti ráðningunni voru 2 fulltrúar Framsóknarflokksins, en þeir skipa minnihluta hreppsnefndar Borgar- neshrepps. - TKÞ Morgunblaðið/Ámi Sœberg Tan Jock Kim og Gilbert Yokpeck Khoo í nýja eldhúsinu Shanghai flytur og stækkar um helming VEITINGAHÚSIÐ Shanghai hefur flutt úr kjallara Lauga- vegs 28 upp á jarðhæð, þar sem veitingahúsið Askur var um nokkurra ára skeið. Veitinga- húsið rúmaði 35 matargesti í kjallaranum, en er nú orðið helmingi stærra. Kínverska veitingahúsið var opnað fyrir um það bil þremur árum síðan. Eigendur em þeir Joachim Fischer frá Suður-Þýska- landi, Kári Tran frá Víetnam og Gilbert Yokpeck Khoo frá Malas- íu, en allir eru þeir nú orðnir íslenskir ríkisborgarar. Matseðlinum hefur verið breytt nokkuð. Réttum hefur verið §ölg- ar, þó sérstaklega hádegisverða- réttum, en þá er jafnframt hægt að panta mat af kvöldseðli ef þess er óskað. Þeir eru þó nokkru dýr- ari en hádegisverðarréttimir. Þá er opið allan daginn, frá 11.00 til 22.00 alla daga nema fostudaga og laugardaga til 23.00. Hægt er að fá kaffí, te og kökur um miðj- an dag sem ekki var hægt áður þar sem Shanghai lokaði um miðj- an dag. Því hefur staðurinn nú hlotið nafnið Shanghai - kínverska veitinga- og tehúsið. Sjö réttum hefur verið komið fyrir á matseðl- inum, sérstaklega ætlaðir grænmetisætum. Þá hefur lítilli verslun verið komið fyrir við út- ganginn þar sem hægt er að kaupa austurlenskar matvörur svo sem krydd, te, sósur, núðlur, olíu, kókosfeiti og fleira. Umhverfi á Shanghai er að vonum allt í kínverskum stíl Brids Arnór Ragnarsson Hreyfill — Bæjarleiðir Sveit Jóns Sigtryggssonar hefír trygga forystu í aðalsveitakeppni bflstjóranna, hefír hlotið 214 stig. Staða næstu sveita: SigurðurÓlafsson 200 Jón Sigurðsson 191 Anton Guðjónsson 178 Gísli Sigurtryggvason 168 Lokaumferðin verður spiluð á mánudagskvöld kl. 19.30 í Hreyfíls- húsinu, 3. hæð. Bridsdeild Rangæinga- félagsins Eftir 8 umferðir í sveitakeppninni er staða efstu sveita þessi: Sigurleifur Guðjónsson 189 Gunnar Helgason 182 Lilja Halldórsdóttir 147 Ingólfur Jónsson 134 Gunnar Guðmundsson 115 Síðasta umferðin verður spiluð 4. aprfl í Ármúla 40. Bridsdeild Húnvetn- ingafélagsins Nú er lokið 16 umferðum af 17 í aðalsveitakeppninni, en spilaðir eru 16 spila leikir. Staðan: Guðni Skúlason 307 V aldimar Jóhannsson 307 HermannJónsson 277 Kári Siguijónsson 270 Eggert Einarsson 267 Cyrus Hjartarson 266 Lovísa Eyþórsdóttir 262 Síðustu leikimir verða spilaðir miðvikudagskvöld kl. 19.30 í Fé- lagsheimili Húnvetningafélagsins í Skeifunni. Frá Hjónaklúbbnum Nú er tveimur umferðum af átta lokið í sveitakeppninni, en spilað er eftir Monrad-kerfi og er staða efstu sveita þannig: Sveit: V algerðar Eiríksdóttur 41 Drafnar Guðmundsdóttur 40 Katrínar Þórarinsdóttur 39 Steinunnar Snorradóttur 36 Guðrúnar Reynisdóttur 36 Dóru Friðleifsdóttur 36 Svövu Ásgeirsdóttur 35 Ólafar Jónsdóttur 34 Sauðárkrókur: Ráðstefna um lands- byggðina og unga fólkið Sauðárkriki LAUGARDAGINN 21. febrúar ráðstefna undir kjörorðinu sl. var haldin hér á Sauðárkróki Landsbyggðin og unga fólkið. Hluti ráðstefnugesta. Morgunbiaðia/Kári Það var Samband ungra sjálf- stæðismanna og félög ungra sjálfstæðismanna í Norður- landskjördæmi vestra sem höfðu veg og vanda af þessari ráðstefnu, sem heppnaðist i alla staði með ágætum. Eyjólfur Konráð Jónsson al- þingismaður flutti í upphafí ávarp en síðan tóku við ijórir frummæ- lendur, sem allir fjölluðu í ítarlegu máli um mismunandi málaflokka. Sturla Böðvarsson sveitarstjóri I Stykkishólmi hafði framsögu um Landsbyggðina og skipulag stjóm- sýslu en Vilhjálmur Egilsson formaður SUS og 2. maður á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu flutti erindi er hann nefndi Byggðastefna unga fólks- ins. Landbúnaðurinn og lands- byggðin var yfírskrift erindis & i, ^ -trlýc - ’jpi Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður flutti ávarp. Pálma Jónssonar alþingismanns og Ómar Haukson útgerðarmaður á Siglufírði ræddi um Sjávarútveg- inn og landsbyggðina. Miklar umræður urðu á ráð- stefnunni um málefni dreifbýlisins og kom fram talsverður uggur um framtíðina. Þó voru allir sammála um að snúa yrði vöm í sókn og ekki yrði öðrum stjómmálaflokki betur til þess trúað en Sjálfstæðis- flokknum. Þótt öll framsöguerind- in væru athyglisverð og vel undirbúin er óhætt að segja að ræða Vilhjálms Egilíssonar hafí vakið mesta athygli. í henni kom fram mikill sóknarhugur fyrir hönd landsbyggðarinnar og ýmsar nýjar hugmyndir til eflingar at- vinnu- og mannlífí í kjördæminu. - Kári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.