Morgunblaðið - 27.02.1987, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
Vorumarkaðurinnhl.
Eiöistorgi 11 - simi 622200
Symphony
Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun
þessa vinsæla fjölnotaforrits.
Að loknu námskeiði eru þátttakendiu- færir
um að nota allar helstu aðgerðir í hug-
búnaðinum.
Dagskrá:
* Almennt um samofinn hugbúnað.
* Fjölnotakerfið Symphony.
* Töflureiknir.
* Ritvinnsla.
* Gagnagrunnur.
* Notkun glugga.
* Samtenging þátta forritsins.
* Vmsar æfingar.
* Umræður og fyrirspurnir.
TÍMI: 2.-5. MARS KL. 9—13.
INNRITUN í SÍMUM 687590 OG
686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28.
ar restina með því að skulda
innréttingar, hreinlætistæki, gólf-
efni og málningu hjá viðkomandi
söluaðilum. Inn í þetta fléttast síðan
ófullnægjandi lánafyrirgreiðsla
banka og Húsnæðisstofnunar,
þannig að verið er að marggreiða
vexti af peningum sem notaðir eru
til húsbygginarinnar.
Bankínn greiðir kaup
Til gamans má segja frá því að
þessi kunningi minn fylgdist að
sjálfsögðu með húsbyggingunni
þótt hans væri í raun og veru ekki
bein þörf og af því að grunnt var
á íslendingseðlinu í honum þá
fannst honum rétt að taka til hend-
inni og hreinsa til á byggingarsvæð-
inu og tíndi hann saman spýtur,
naglhreinsaði og raðaði auk ann-
arra smáviðvika. Bankinn komst
að þessu og kallaði hann á sinn
fund og ávítaði hann fyrir samn-
ingsbrot. Bankinn sagði: „Við
höfum gert samning. Við lánum þér
fé og þú ætlar að selja peninga.
Þess vegna skilar þú þínum vinnu-
stundum við húsið til okkar og við
greiðum þér kaup eins og öðrum
sem vinna við húsið."
Framboð og eftir-
spurn á fé
í Lúxemborg er framboð á pen-
ingum umfram eftirspum á lána-
markaði og þess vegna ekki saman
að jafna við okkar aðstæður í dag,
en þó hillir undir svipað ástand hér
þar sem t.d. kaupleigufyrirtæki eru
farin að fjármagna hvers kyns
tækjakaup og lausafjárkaup og þar
með létta af bönkunum eftirspum
eftir peningum. Með framhaldi á
þessari þróun sem þegar er orðin
má búast við að bankamir ekki
bara geti, heldur verði að snúa sér
meira að fjármögnun bygginga og
fasteignaviðskipta.
Niðurlag
Veitum fé Bygginarsjóðs ríkisins
inn í bankakerfíð. í aukinni sam-
keppni bankanna verður þjónustan
við viðskiptavini þeirra betri. Eftir-
lit bankanna með þeim peningum
sem þeir lána og þar með fram-
gangi byggingar og tryggar greiðsl-
ur beint til verktaka á réttum tíma
lækka byggingakostnað. Skattsvik
í byggingariðnaði hverfa. Fjár-
magnskostnaður vegna vanskila
hverfur. Hlutverk banka er að leigja
peninga. Hlutverk okkar hinna er
að selja efni, vörur og þjónustu
gegn staðgreiðslu.
Höfundvr er fasteignaaali.
Lagmetissamningur undirntaður
SAMKVÆMT samkomulagi
því, sem náðst hefur miili Sölu-
stofnunar lagmetis og Sovét-
manna um kaup hinna síðar-
nefndu á lagmeti munu
Sovétmenn kaupa 112.500 kassa
og nema verðhækkanir um 16,5
til 20% í dollurum frá síðustu
samningum. Verðmæti vörunnar
er um 200 miljjónir króna og er
þetta stærsti lagmetissamningur
sem gerður hefur verið við Sov-
étmenn.
Lagmetistegundimar sem Sovét-
menn kaupa eru hinar sömu og á
síðasta ári, gaffalbitar, matjesflök,
lifur og reykt síldarflök. Sjö fyrir-
tæki framleiða vörumar, K. Jóns-
son & Co hf., Akureyri, Sigló hf.,
Siglufirði, Norðursljaman hf.,
Hafnarfírði, Lifrarsamlag Vest-
mannaeyja, Pólstjaman hf, Dalvík,
Niðursuðuverksmiðjan Ora hf.,
Kópavogi og Hik sf., Húsavik.
Leggjum Húsnæðisstofnun niður
Theodór S. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sölustofnunar lagmetis, undirritaði samninginn við
Sovétmenn og sést hér á miðri mynd. Af hálfu Sovétmenna undirrituðu þeir Alexei E. Russov og
Viacheslav Kungurtsev.
Lcggjum Húsnæð-
isstofnun niður
Lausnin felst í því að leggja
Húsnæðisstofnun niður í núverandi
mynd. Kaupendur eiga að leita hver
til síns banka um fyrirgreiðslu
vegna fasteignakaupa. Bankinn
tekur þá umsóknina til meðferðar
einstaklingsbundið, veitir ráðgjöf
og aðstoðar viðkomandi við að taka
ákvörðun um fasteignakaup. Þegar
málið er í höfn er haft samband
við Byggingasjóð ríkisins sem fjár-
magnar lánveitingu bankans.
Niðurstaðan er að kaupandi fær
betri þjónustu þar sem bankinn er
í samkeppni við aðra banka um við-
skiptavini. Seljandi fær tryggar
greiðslur og jafnvel fyrr. Það stuðl-
ar að lækkun fasteignaverðs.
Húsnæðisstofnun á síðan að þjóna
þeim sem einhverra hluta vegna
eiga ekki aðgang að bönkum og í
gegnum Byggingasjóð verkamanna
eða með öðrum félagslegum hætti.
Húsbyggjandasag-a
frá Lúxemborg-
Kunningi minn keypti sér lóð í
Lúxemborg, en þar hefur hann búið
um árabil. Hann fór til síns banka
og kvaðst hafa áhuga á að byggja
sér einbýlishús. Bankinn tók sér tvo
daga í að svara og var tíminn notað-
ur til að kanna launaveltu mannsins
og aðrar efnahagslegar aðstæður.
Svarið kom og bankinn vildi lána
95% byggingarkostnaðar í 40 ár á
vöxtum sem hann bauð þessum
manni, enda gert með tilliti til mats
bankans á endurgreiðsluöryggi
mannsins sem skuldara byggt á
reynslu af fyrri viðskiptum við
hann. Hér var um einstaklings-
bundna athugun að ræða en ekki
byggt á stöðluðum reglum.
Manninum var sagt að hann
gæti farið og valið sér verktaka til
að byggja húsið og um leið að verk-
takinn ætti að skila tilboðum sínum
og síðar reikningum beint til bank-
ans sem síðan hafði í þjónustu sinni
sérfræðinga sem yfírfóru alla reikn-
inga og mátu verkið. Verktakinn
fékk tryggar greiðslur og í sam-
ræmi við framkvæmdahraða þannig
að hann gat gert upp við efnissala
og undirverktaka án þess að lenda
í vaxtakostnaði við þá t.d. vegna
vanskila.
Afleiðing vanskila
Hér á landi er byggingarkostnað-
ur einmitt óþarflega hár vegna
lög eru sett sem varða húsnæðis-
mál og íbúðamarkað. Þó eru fast-
eignasalar í nánastri snertingu við
markaðinn og kunnugastir þörfum
kaupenda og seljenda.
Miðstýring
og skömmtun
Lögin einkennast ennþá af gam-
alli hugsun um miðstýringu, höft
og úthlutanir. Þegar úthlutað er og
eftirspum er meiri en framboð er
úthlutun í raun og veru skömmtun.
Skömmtun verðmætra réttinda
kallar á nýja markaðsmyndun sem
skv. blaðafréttum er orðin stað-
reynd þar sem lánsloforð Húsnæðis-
stofnunar eru orðin verslunarvara.
Lánin of há
Upphæð lánanna og kröfur um
veðhæfni keyptrar eignar valda því
að þeir sem eru að kaupa íbúð í
fyrsta sinn freistast til að kaupa
3ja eða 4ra herb. íbúð í stað 2ja
herb. áður. Eftirspum eftir 3ja og
4ra herb. íbúðum stóreykst þar sem
nýir kaupendur bætast í hóp þeirra
sem eiga 2ja herb. íbúð fyrir og
þess vegna hækka 3ja og 4ra her-
bergja íbúðir umfram aðrar. 2ja
herb. íbúðir sitja að vísu eftir, en
samt er um meðalverðshækkun að
ræða.
Forgangshópar
og aðrir
Seinni hækkunin verður af skorti
á peningum til að sinna öllum láns-
umsóknum strax. Umsækjendum
er skipt upp í forgangshóp og aðra.
í forgangshópi era aðallega þeir
sem era að kaupa sína fyrstu íbúð
og biðtími eftir að lán greiðist út
er helmingi skemmri en þeirra sem
eiga íbúð fyrir. Afleiðingin er stór
hópur kaupenda með lánsloforð á
hendinni, en lítið framboð á íbúðum.
Þeir sem eiga íbúð fyrir vilja ekki
selja fyrr en útborgun lána til þeirra
nálgast. Mikil tímabundin eftir-
spum umfram framboð veldur
verðhækkun.
Húsnæðislána-
kerfið er ónýtt
Húsnæðislánakerfið er ónýtt. Ef
beðið verður eftir því að Húsnæðis-
stofnun anni eftirspum eftir lánum
verður veraleg hækkun á verði
íbúða og þar með eykst hraði verð-
bólgunnar. Tilgangur nýju laganna,
að auðvelda fólki íbúðakaup, er
brostinn. Staðlaðar úthlutunarregl-
ur era ekki lausn heldur fjötur.
Qármagnskostnaðar sem verður til
af vanskilum milli hinna ýmsu aðila
sem leita þarf til vegna húsbygging-
ar, enda er verið að margfjármagna
sama hlutinn. Efnissalar, iðnaðar-
menn, arkitektar, verkfræðingar og
undirverktakar lána byggingar-
meistara, sem síðan lánar kaupand-
anum. Kaupandi tekur . síðan við
íbúðinni hálfsmíðaðri og fjármagn-
eftir Magnús
Axelsson
Það er nú komið í ljós að mikið
vantar á að nægt fé sé fyrir hendi
til að greiða út lán Húsnæðisstofn-
unar, enda hafa umsóknir orðið
mun fleiri en ráð var fyrir gert.
Auglýsingar birtast þó stöðugt í
Morgunblaðinu frá Húsnæðisstofn-
un um að lánsloforð sé trygg ávísun
á peninga. Samt hefur þessi um-
ræða dregið úr trausti meðal fólks,
enda era vanefndir stofnunarinnar
frá fyrri tíma enn ferskar í minni
almennings.
Ekki talað við
fasteignasala
Þegar lögin um lánveitingar Hús-
næðisstofnunar ríkisins vora samin
var ekki haft samráð við fasteigna-
sala frekar en fyrri daginn þegar
Magnús Axelsson
„Lausnin felst í því að
leggja Húsnæðisstofn-
un niður í núverandi
mynd. Kaupendur eiga
að leita hver til síns
banka um fyrirgreiðslu
vegna fasteignakaupa.
Bankinn tekur þá um-
sóknina til meðferðar
einstaklingsbundið,
veitir ráðgjöf og að-
stoðar viðkomandi í að
taka ákvörðun um fast-
eignakaup. Þegar
málið er í höfn er haft
samband við Bygginga-
sjóð ríkisins sem
fjármagnar lánveitingu
bankans.“
Electrolux
Ryksugu-
tilboð
D-720
1100 WÖTT.
D-720
ELECTRONIK
Z-165
750 WÖTT.
Aðeins
1 .500 kr. út
og eftirstöðvar til allt
að 6 mánaða.