Morgunblaðið - 27.02.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
Morgunblaðið/Matthías Jóhannsson
Heppni við hrikalegar aðstæður
ÞAÐ er næsta ótrúlegt að þrír menn skyldu skriða lítið meiddir út úr þessu bílflaki eftir að hafa
oltið með þvi 60-70 metra niður snarbratta hlíð. Þessa mynd tók Matthías Jóhannsson fréttaritari
Morgunblaðsins á Siglufirði í Selgili, rétt utan við Siglufjörð, af flaki Broncojeppans sem valt þar
út af veginum og sagt var frá i Morgunblaðinu á miðvikudag. Eins og sjá má mátti ekki miklu muna
að bíllinn ylti áfram ofan í sjó en hann stöðvaðist í tæka tið í lækjarfarvegi.
r
w *.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær sð ísl. tíma
hiti veður
Akureyri -3 skýjað
Reykjavík 4 rigning
Bergen 2 skýjað
Helsinki -10 skýjað
Jan Mayen -19 skýjað
Kaupmannah. 0 léttskýjað
Narasarssuaq -5 renningur
Nuuk -19 léttskýjað
Osló -4 alskýjað
Stokkhólmur -5 léttskýjað
Þórshöfn S alskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Amsterdam 3 mistur
Aþena 8 skýjað
Barcelona 14 léttskýjað
Berlín 1 léttskýjað
Chicago 0 alskýjað
Glasgow 3 mistur
Feneyjar 6 hálfskýjað
Frankfurt 2 mistur
Hamborg 2 skýjað
Las Palmas 20 heiðskírt
London 6 mistur
LosAngeles 8 hálfskýjað
Lúxemborg 0 þokumóða
Madrfd 13 þokumóða
Malaga 20 helðskírt
Mallorca 16 skýjað
Miami 23 skýjað
Montreal -13 léttskýjað
NewYork -2 léttskýjað
Parfs 6 alskýjað
Róm 10 þokumóða
Vín 3 léttskýjað
Washington -2 skýjað
Winnipeg 0 snjókoma
Betra að minnka
af köstin en að loka
- segir Stefán Sigfússon framkvæmda-
sljóri Fóðurs og fræs í Gunnarsholti
„ÞAÐ ER rangt að Ieggja þessa
framleiðslu niður, enda kemur
að því að við þurfum á henni að
halda. Skynsamlegra er að reka
verksmiðjurnar með minni af-
köstum og losna þannig við
birgðirnar," sagði Stefán H.
Sigfússon, framkvæmdastjóri
graskögglaverksmiðjunnar Fóð-
ur og fræ i Gunnarsholti, þegar
leitað var eftir áliti hans á lokun
graskögglaverksmiðja ríkisins.
Stefán sagði einnig: „Það er við-
urkennt að gott getur verið að eiga
einhveijar fóðurbirgðir ef illa árar.
Eg tel að leysa megi þessi mál með
því að leyfa verksmiðjunum að eiga
Va til xh af ársframleiðslunni í birgð-
um við upphaf framleiðslutímabils-
ins og veita þeim síðan kvóta til
framleiðslunnar þannig að birgðim-
ar verði ekki meiri en til dæmis
4.000 tonn, miðað við stærri verk-
smiðjumar. Þannig er hægt að ná
framleiðslunni niður, jafnframt því
sem þetta verkaði söluhvetjandi
fyrir verksmiðurnar.
Miðað við reynsluna frá því í
sumar held ég að við ættum að
geta rekið verksmiðjumar með hálf-
um afköstum og tel að það sé miklu
betra en að láta minnstu verksmiðj-
una framleiða með fullum afköst-
um, þó hún hafi ágætan markað.
Hún er einfaldlega of lítil til að
geta veri hagkvæm rekstrareining."
Um ástæður birgðavanda verk-
smiðjanna sagði Stefán að salan
hefði minnkað vegna þess að verð
framleiðslunnar hefði verið haft of
hátt á tímabili. Samdráttur í bú-
vöruframleiðslunni hefði orðið til
þess að menn ættu meira gróffóður
á hvem grip, auk þess sem mönnum
hefði verið gert kleift að köggla úr
heyjum sínum heima. Þá væri stöð-
ug samkeppni frá innfluttu kjam-
fóðri.
Við venjulegar aðstæður starfa
5 menn allt árið hjá Fóðri og fræi
í Gunnarsholti, auk framkvæmda-
stjórans, sem er í hálfu starfi.
Stefán sagði að nú væru aðeins 3
starfsmenn í verksmiðjunni og væri
ekki hægt að komast af með færri
þó ekki yrði framleitt þar í sumar
og þyrfti því ekki að koma til upp-
sagna. Hins vegar yrði ekki hægt
að ráða sumarfólk, en 10 menn,
mest skólapiltar frá Hellu og ná-
grenni, treystu á þessa sumarvinnu.
Framhalds-
skóli á Húsavík
Húsavík.
í BÍGERÐ er að stofna fram-
haldsskóla á Húsavík með námi
til stúdentsprófs. Drög af samn-
ingi um stofnun slíks skóla eru
nú til umfjöllunnar hjá heima-
mönnum og frekari viðræður eru
framundan við menntamálaráðu-
neytið, sem tekið hefur málaleit-
aninni vinsamlega.
Húsavíkurbær hefur nýlega fest
kaup á húsi, sem væntanlega verð-
ur nýtt sem heimavist fyrir
aðkomunemendur fyrirhugaðs
skóla. Við Gagnfræðaskóla
Húsavíkur hefur verið boðið upp á
eins árs framhaldsnám eftir grunn-
skóla auk tveggja ára náms á
viðskiptabraut, iðnbraut og vél-
stjórabraut. Einnig hefur síðustu
tvö árin farið fram réttindanám til
skipstjóma 80 og 200 tonna skipa.
Að sögn Siguijóns Jóhannessonar,
skólastjóra, hefur námið gefíð góða
raun.
Fréttaritari
Úthaf srækjuveiði
bönnuð í
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið hvernig staðið skuli að
veiðistöðvun smábáta um páska.
Ennfremur bann við netaveiði á
sama tímabili. Loks hefur verið
ákveðið að stöðva úthafsrækju-
veiðar í 30 daga á árinu.
Ráðuneytið hefur ákveðið stöðv-
un úthafsrækjuveiða á eftirtöldum
tímabilum að báðum dögum með-
30 daga
töldum:
1. 12. til 21. apríl.
2. 26. júlí til 4. ágúst.
3. 22. til 31. desember.
Þá verða bátum minni en 10
brúttólestir ekki heimilar veiðar
aðrar en grásleppuveiðar frá klukk-
an 20 14. apríl til klukkan 10 21.
apríl. Allar þorsknetaveiðar verða
bannaðar á sama tímabili.
220.000 ldúkl-
ingar til
ÍSFUGL, alifuglasláturhúsið í
Mosfellssveit, er byijað að fram-
leiða kjúklinga fyrir útflutning
til Noregs. Fyrir liggur 15 tonna
pöntun, sem send verður ein-
hvern næstu daga, en búist er
við að þangað fari um 200 tonn
.á næstu mánuðum. Samsvarar
það 220 þúsund kjúklingum af
þeirri stærð sem Norðmenn
kaupa.
Alfreð Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri ísfugls, sagði að
Norðmenn vildu fá kjúklingana
minni en hér tíðkaðist, eða 750 gr
til 1 kg að þyngd, og yrði því að
slátra þeim 1—1 V2 viku yngri en
þeim kjúklingum sem færu á innan-
Noregs
landsmarkaðinn. Þá þyrfti að
stærðarflokka þá eftir þeirra óskum
og hefði ísfugl keypt sérhannað
flokkunarband til að auðvelda það.
Alfreð sagði að ef af þessum
útflutningi yrði, sem hann bjóst
reyndar fastlega við, myndi slátur-
húsið vera eingöngu í því verkefni
að slátra kjúklingum fyrir Noregs-
markaðinn næstu 4—5 mánuði. Á
meðan gengi á kjúklingabirgðir fyr-
irtækisins, auk þess sem önnur
sláturhús framleiddu fyrir innan-
landsmarkaðinn. Sagði Alfreð að
þó nokkuð mikið umstang væri í
kring um útflutninginn vildu menn
leggja það á sig til að leysa birgða-
vandann í greininni.