Morgunblaðið - 27.02.1987, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
Sýning Sissú
Myndlist
Valtýr Pétursson
í vinnustofu sinni á Hverfís-
götu 57a hefur Sigþrúður
Pálsdóttir (Sissú) opnað sýningu
á verkum sínum. Þar eru til sýn-
is olíumálverk og teikningar og
stöku verk gerð með lakki á tré-
grunn. Þar sem Sigþrúður er
bundin við hjólastól verður mað-
ur aldeilis hlessa yfír afköstum
og dugnaði hennar við mynd-
gerð. Margur sá, sem heilli er
tii heilsu, er langt frá því að
vera eins umsvifamikill við að
framleiða listaverk, en það eitt
þarfnast mikillar vinnu og oft á
tíðum erfíðis, og eiginlega er
tæpast hægt að gera sér í hugar-
lund, að hreyfíhamlaðir geti
stundað það handverk, sem þarf
til þess að koma saman mál-
verki, en ef ástríða og vilji eru
fyrir hendi virðist greinilega ekk-
ert því til fyrirstöðu, að fólk nái
ásetningi sínum á því sviði. Þetta
kemur skýrt fram á sýningu Sig-
þrúðar Pálsdóttur við Hverfis-,
götuna.
Það er stundum talað um, að
þetta eða hitt sé kvenlegt í list-
um, og það kemur raunar fyrir,
að menn vilji skipa hlutunum í
flokka eftir kynferði. Að mínu
mati er það vægast sagt var-
hugavert í meira lagi. Það, sem
oft er talið karlmannlegt ein-
kenni í list, verður augljóst i
verkum kvenna og það kvenlega
kemur fram í verkum karla.
Sissú er langt frá því að vera
viðkvæm í verkum sínum, og
ekki er ofmælt, að verk hennar
beri því vitni, litameðferðin er
svo sterk, að nóg er um á stund-
um. Hún er afar karlmannleg í
teikningu sinni og notar breiða
línu með tærum og hressilegum
litum. Efnisval hennar á heldur
ekkert skylt við bróderingar. Þar
eru alls konar furðuverur í önd-
vegi og oft á tíðum ekki af minni
gerðinni. Það er viss ofsi í þess-
um verkum og hráleiki, sem
fellur að því sem hefur verið að
gerast í hinu svokallaða nýja
málverki, og sum verka Sig-
þrúðar virðast sveija sig í ætt
við ýmislegt, sem sézt hjá Þjóð-
veijum. Sigþrúður hefur stundað
nám í Kaupmannahöfn, Perugia
og New York. Hún hefur einnig
haldið einar 9 sýningar á verkum
sínum, aðallega hér í borg og í
New York og eina í Grímsnes-
inu. Af þessu má sjá, að hún
hefur ekki slegið slöku við, en
heldur á brattann með óbilandi
kjarki og dugnaði.
Ekki get ég með sanni sagt,
að allt, sem hún sýnir að sinni
við Hverfísgötu, falli mér jafnvel
í geð. Teikningar hennar fannst
mér um margt hafa meira gildi
í mínum augum en sum málverk-
in, sem mér fannst í einstaka
tilfellum allágeng og fráhrind-
andi, en styrkur þeirra er ótví-
ræður.
Þama er á ferð manneskja,
sem fyrst og fremst framkvæmir
þær hugdettur, sem ásækja
hana, og tjáning hennar virðist
með þeim hætti, að persónuleiki
hennar fær að öllum jafnaði að
njóta sín. En það fer ekki fram-
hjá neinum, er þessa sýningu
skoðar með einhverri eftirtekt,
að hún er i heild nokkuð mis-
jöfn, eins og reyndar ætíð verður
hjá leitandi fólki, sem leggur út
á listabrautina. Það má vel óska
Sissú til hamingju með framtak-
ið við Hverfísgötuna, og maður
verður vissulega forvitinn að sjá,
hvert framhaldið verður.
Fréttabréf
um málefni
aldraðra
Félagsmálastofnun Reykjavík-
urborgar hefur nú sent frá sér
fjögur fréttabréf til aldraðra
Reykvíkinga, en byijað var að
senda út siik bréf á sl. ári. Frétta-
bréf um málefni aldraðra eru send
öllum íbúum Reykjavíkurborgar,
67 ára og eldri.
í fréttabréfí þessu er fjallað um
réttindi aldraðra og ýmis hlunnindi
sem veitast öldruðum Reykvíkingum
en í ljós hefur komið að fjölmargir
aldraðir vita ekki um ýmiskonar rétt-
indi sem þeir hafa.
Ennfremur er sagt frá því að höf-
uðstöðvar félags- og tómstundastarfs
aldraðra hafa nú flust frá Norðurbrún
1 yfír í nýja félags- og þjónustumið-
stöð í Hvassaleiti 66-581 VR-húsinu.
Helena Halldórsdóttir sem hefur
verið yfirmaður félagsstarfsins lætur
nú af þeim störfum en sinnir áfram
störfum sem forstöðumaður í Norður-
brún 1, en Anna Þrúður Þorkelsdóttir
hefur nýlega verið ráðin sem yfírmað-
ur félagsstarfs aldraðra hjá Félags-
málastofnun Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg rekur nú opið fé-
lagsstarf fyrir aldraða á átta stöðum
í borginni. Níunda félagsmiðstöðin í
Bólstaðarhlíð 41-46 er tilbúin undir
tréverk og verður væntanlega tekin
í notkun í haust og fyrir skömmu
hófust byggingaframkvæmdir við
tíundu félags- og þjónustumiðstöð
aldraðra á homi Vesturgötu og
Garðastrætis.
Það er ellimáladeild Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar sem
hefur staðið að útgáfu fréttabréfsins
og er hún til húsa í Tjamargötu 11.
Deildarfulltrúi deildarinnar er
Anna S. Gunnarsdóttir en deildar-
stjóri er Þórir S. Guðbergsson.
#L
SVERRIR KRISTJÁNSSON
HÚS VERSLUNARINNAR 6. HÆO
LÖGM. HAFSTEINN BALDVINSSON HRL
FASTEIGN ER FRAMTÍÐ
FURUGRUND
5 HERBERGJA Á 2. HÆÐ OG EINSTAKLINGSÍBÚÐ
Til sölu ca 120 fm 5 herb. íb. á 2 hæð í fjórb. Stór stofa. Suður-
svalir. Stórt þvherb. og búr innaf eldhúsi. í kj. fylgir elnstaklingsíb.
og gott herb. og geymsla. Vönduð og falleg eign.
VANTAR - SÉRHÆÐ - RAÐHÚS
Ca 125-150 fm helst með bílsk. miðsvæðis.
VANTAR EINBÝLISHÚS MIÐSVÆÐIS
Stórt og gott hús 200-350 fm.
Einbýli á frábærum
stað i Grafarvogi
Vorum að fá í sölu fallegt einbhús á einni hæð á frábær-
um stað í Grafarvogi. Húsið er 3-4 svefnherb., stofa,
eldh., fjölskherb., anddyri, bað og þvottah. Góður bílsk.
fylgir. Húsið skilast fokh. að innan með gleri í gluggum
og járni á þaki. Allar uppl. og teikn. á skrifst. okkar.
SKEIFAJN ^ 685556
FASTEJGrNA/vUÐLjUrS fýífYI wUv/wwV/
FASTFIGrNAfyUÐLjUM
SKEIFUNNI 11A
MAGNUS HILMARSSON JON G SANDHOLT
I 3 LINUR
LOGMENN JON MAGNUSSON HDL
PETUR MAGNUSSON LOGFR
tslenska meðferðastöðin:
Byggð upp fyrir skand-
inavíska áfengis- og
eitur lyfjaneytendur
SSfe' «
ÍSLENSKA meðferðastöðin hóf
rekstur sinn um síðustu mánað-
armót að Skipholti 27, þar sem
áður var Hótel Staður. For-
svarsmenn nýju meðferðastöðv-
arinnar eru um 20 manna
hópur, sem áður starfaði hjá
Líknarfélaginu Voninni að
Bárugötu 11. Skúli Thoroddsen
Sturla eini
umsækjandinn
Umsóknarfrestur um emb-
ætti fræðslustjóra I Norður-
landskjördæmi eystra hefur
verið framlengdur til 1. apríl
næstkomandi.
Þegar umsóknarfresturinn rann
út 15. febrúar síðastliðinn hafði
ein umsókn borist, frá Sturlu
Kristjánssyni, fyrrverandi fræðslu-
stjóra.
Sendiherra
Islands
í Sviss
afhendir
trúnaðarbréf
HINN 23. febrúar sl. afhenti
Páll Ásgeir Tryggvason, sendi-
herra, hr. Pierre Aubert, forseta
Sambandsráðs Sviss, trúnaðar-
bréf sitt sem sendiherra íslands
í Sviss.
er framkvæmdastjóri, Bryiýólf-
ur Hauksson er yfirlæknir og
Bjarni Steingrímsson er ráð-
gjafi.
Hin nýja meðferðastöð hefur
yfír að ráða um 40 sjúkrarúmum.
Á neðri hæð hússins fer fram hin
svokallaða afvötnun og á efri
hæðinni eftirmeðferð. Nýja stöðin
er byggð upp fyrir Skandinava og
fara fyrirlestrar fram á skandin-
avísku. Forsvarsmenn stöðvarinn-
ar eru nú á ferð um Svíþjóð í
markaðsöflun. Leiðbeinendur eru
þó allir íslenskir, en starfíð verður.
í svipuðu formi og starf Vonarinn- ,
ar hefur verið til þessa, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins.
Eins og kunnugt er hefur staðið
nokkur styrr út af Líknarfélaginu
Voninni þegar sett var á stofn |
svipuð meðferðastöð í Danmörku ;
á vegum tveggja stjórnarmanna |
Vonarinnar. I kjölfar þess sögðu |
allir starfsmenn Vonarinnar hér á |
landi upp störfum sínum og hafa,
nú stofnað íslensku meðferðastöð-1
ina.
Þrír bræöur fluttu
ínn og dreifðu hassi
MÖNNUNUM, sem setið hafa i
haldi vegna sölu og dreifingar
á fíkniefnum, hefur nú verið
sleppt úr haldi og er málið
upplýst að fullu.
Að sögn Þórðar Þórðarsonar,
deildarlögfræðings hjá lögregl-
unni, er um að ræða innflutning
og dreifíngu á hassi. Einn mann-
anna fór til Danmerkur sjö sinnum
á tímabilinu frá apríl f fyrra til
janúar í ár til kaupa á efninu.
Yfirleitt fór maðurinn einn, en
einu sinni fór bróðir hans með
honum og kunningi hans öðru
sinni. Þriðji bróðirinn sá síðan um
dreifíngu hassins hér á landi. Á
ferðum sfnum notuðu mennimir
röng nöfn og sviku út gjaldeyri
til kaupanna. Hagnaður mann-
anna af sölunni var að hluta
notaður til frekari innkaupa. Alls
fluttu mennimir inn um 6 kíló af
hassi, en af því magni lagði lög-
reglan hald á 800 grömm í
desember síðastliðnum og um 500
grömm í janúar. Söluverðmæti
þeirra 4,7 kflóa sem komust í
umferð mun í dag vera um 4-4,5
milljónir.
FTmm menn hafa setið í gæslu-
varðhaldi hér á landi vegna máls
þessa og einn var handtekinn af
lögreglunni í Danmörku. Hafði sá
séð um útvegun hassins þar í
landi. Fjöldi fólks hefur verið yfír-
heyrður vegna málsins.