Morgunblaðið - 27.02.1987, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
Brazilía:
Efnahag-
urinn
erfiður
Brasilá, AP.
RÍKISSTJÓRN Brazilíu tók á
miðvikudag í sínar hendur
stjóm fimm bankastofnana,
er skulda samtals um 2 millj-
arða dollara. Jafnframt var
tilkynnt að skammtímalán frá
erlendum bönkum yrðu aðeins
greidd ef bankamir héldu
áfram að lána Brazilíumönn-
um. Fjármálaráðherra lands-
ins og seðlabankastjóri lögðu
í gær af stað í ferð til 6 landa
til þess að skýra þá ákvörðun
ríkisstjómar Brazilíu, að
greiða ekki vexti af erlendum
lánum, sem nú nema 108
milljörðum dollara.
Italía:
Fylgifiskar
verkfalls
Rómaborg, AP.
VERÐHÆKKANIR á mat-
vöru og skortur á eldsneyti
setja sinn svip á daglegt líf á
Ítalíu þessa daganna. Oku-
menn flutningabíla hafa verið
í verkfalli að undanfömu til
að mótmæla hraðatakmörkun-
um og háum sektum. Um 80%
af öllum vamingi er fluttur
með bifreiðum á Italíu og hafa
fregnir borist um allt að 50%
hækkun verðlags á matvörum
á nokkrum stöðum. Verkfalls-
menn hafa gripið til ýmissa
aðgerða til að tefja umferð og
einnig hafa óánægðir borgarar
gripið til sinna ráða gegn öku-
mönnunum.
Pretoría:
Allir kynþættir
í sömu kvik-
myndahús
Pretoría, AP, Reuter.
BORGARRÁÐ Pretoríuborgar
í Suður-Afríku, sem talið hefur
verið mjög íhaldssamt, sam-
þykkti á miðvikudagskvöld að
kvikmyndahús þar, skyldu op-
in fólki af öllum kynþáttum.
Kvikmyndahús eingöngu ætl-
uð hvítu fólki eru þá aðeins
starfrækt í tveimur smábæum
í Suður-Afríku. Sagt er að
þeir aðilar er dreifa erlendum
myndum til kvikmyndahús-
anna hafi knúið á um breyting-
ar þar sem þeir hafi orðið fyrir
þrýstingi, aðallega frá banda-
rískum aðilum, sem hafí neitað
að láta þá fá myndir ef kyn-
þáttaaðskilnaði yrði haldið til
streitu.
Olía við Falk-
landseyjar?
London, AP.
BRESKA ríkisstjómin hefur
samþykkt að bandarísk flug-
vél, er flytur vísindamenn, fái
að lenda á flugvelli sem nýíega
var gerður á Falklandseyjum.
Tekið var fram að ekki væri
um herflugvél að ræða.
Vísindamennimir starfa fyrir
rannsóknarstofnun sem er í
tengslum við háskólann í Tex-
as í Bandaríkjunum og ætla
þeir að rannsaka jarðlög á
hafsbotni suður af Falklands-
eyjum, þar sem líklegt er talið
að finna megi olíu. Argentínu-
menn, sem gera eins og
kunnugt er tilkall til eyjanna,
hafa þegar látið í ljósi óánægju
með ákvörðun bresku stjómar-
innar.
Reuter
Ofursti í sovézka hernum sprangar um við mynni jarðgangna, sem
liggja inn í jarðbyrgi á tilraunasvæði Sovétmanna í Mið-Asíu. Sovét-
menn hófu í gær að nýju tilraunir með kjarnorkuvopna á þessum
stað eftir 19 mánaða hlé.
Andófsmaður handtekinn í Ungveijalandi:
Neitaði að gegna
herþjónustu sam-
visku sinnar vegna
Búdapest, Reuter.
LÖGREGLUMENN handtóku Zsolt Kesztehlyi, þekktan ungverskan
andófsmann, á miðvikudag fyrir að neita að gegna herþjónustu. Kes-
ztehlyi hafði verið tilkynnt um að honum bæri að gefa fram til
herþjónustu þann sama dag en hann neitaði og kvaðst ekki geta það
samvisku sinnar vegna þar eð
skoðanir hans. Er þetta í fyrsta
Ungveijalandi af þessum sökum.
Zsolt Kesthelyi er 23 ára gamall
og hefur verið ritstjóri óleyfílegs
tímarits, sem gefíð er út í Búdapest.
Honum bar að gefa sig fram til her-
þjónustu í bænum Kiskunfelegyhaza
í suðurhluta landsins á miðvikudag
en hafði áður lýst því yfír að hann
myndi ekki hlýða þessu boði þar eð
það gengi þvert á samvisku hans.
Sagði hann að frelsi manna til að
gera það sem samviska þeim byði
væri tryggt í stjórnarskrá Ungverja-
lands en það ákvæði væri í raun
hundsað. „Fari ég í herinn neyðist
ég til að gera það sem mér er sagt,"
sagði Kesthelyi í viðtali við Reuter-
fréttastofuna og vitnaði í því
sambandi til þess að sovéskir her-
menn hefðu fengið skipun um að
ráðast inn í Tékkóslóvakíu árið 1968.
Kesthelyi hafði ritað stjórnvöldum
bréf þar sem hann skýrði sjónarmið
sín og kvaðst reiðubúinn til að taka
út sína refsingu. „Ég tel að með þessu
leggi ég mitt af mörkum til að skapa
þjóðfélag þar sem ábyrgð og sam-
viska einstaklingsins ræður meira en
blind trú. Hið sama hefur ráðið bar-
kt fæn ekki í saman við pólitískar
skipti sem maður er handtekinn í
áttu minni fyrir skoðana- og tjáning-
arfrelsi," sagði í bréfí hans.
Þeir sem neita að gegna herþjón-
ustu í Ungveijalandi eru yfírleitt
dæmdir til þriggja ára fangelsisvist-
ar. Andófsmenn í Ungveijalandi telja
að 120 manns sitji nú innan fangelsis-
múra fyrir að neita að gegna her-
þjónustu af trúarlegum ástæðum.
í nágrannaríkinu Tékkóslóvakíu
skýrði talsmaður „Jazz-deildarinnar“,
en svo nefnast óformleg samtök fólks
sem berst fyrir auknu fijálsræði í
menningarmálum, frá því á miðviku-
dag að sjö helstu leiðtogar samtak-
anna yrðu dregnir fyrir rétt þann 10.
næsta mánaðar. Samtökin hafa gefíð
út ýmis konar menningæ-eftii og er
fólkið sakað um að hafa stundað
óleyfíleg viðskipti. Hámarksrefsing
við þess háttar brotum er átta ár.
Vasil Bilak, einn helsti hugmynda-
fræðingur tékkneska kommúnista-
flokksins, sagði nýlega að opinberri
stefnu yrði ekki breytt þrátt fyrir
aukið umburðarlyndi stjómvalda í
Sovétríkjunum.
Sovétmenn byija aftnr til-
raunir með kjamorkuvopn
Bretar seeria að tilraunabannið hafi verið áróðrusbrasfð
Moskvu, London. APP*^
SOVÉTMENN sprengdu kjarn-
orkusprengju neðanjarðar í
gærmorgun og bundu þarmeð
endi á einhliða bann við kjarn-
orkutilraunum, sem gekk í gildi
25. júlí 1985, þegar 40 ár voru
liðin frá því kjarnorkusprengju
var varpað á borgina Hiroshima
í Japan.
TASS-fréttastofan sovézka sagði
í tilkynningu að sprengjan hefði
verið sprengd á tilraunasvæði við
Semipalatinsk nærri Kazakstan og
að hún hefði verið undir 20 kíló-
tonnum, en það var stærð sprengj-
unnar, sem varpað var á Hiroshima.
Embættismenn í Moskvu sögðu
að Sovétmenn hefðu neyðst til að
hefja lq'amorkutilraunir að nýju
vegna þess að Bandaríkjamenn
hefðu þverskallast við tilboði þeirra
um bann við tilraunasprengingum.
Bandaríkjamenn hafa sagst standa
Rússum langt að baki í kjamorkutil-
raunum.
Tilraunasprenging Rússa mæld-
ist illa fyrir á Vesturlöndum. Brezka
stjómin sendi frTa sér tilkynningu
þar sem sagði að sprengingin sann-
aði að tilraunabann Sovétmanna
hefði verið hreint áróðursbragð.
Helzti stjómarandstöðuflokkur
Vestur-Þýzkalands, Jafnaðar-
mannaflokkurinn, lýsti andúð sinni
og Horst Ehmke, sérfræðingur
flokksins í afvopnunarmálum, sagði
að hún hefði verið með öllu óþörf
í vamarlegu tilliti séð.
Sýningum hætt á
uppáhaldi Svía
Shamir er andvígur
alþjóðlegri ráðstefnu
Tel Aviv. AP.
YITZHAK Shamir, forsætisráð-
herra ísraels, sagði í gær, að
Shimon Peres, utanríkisráðherra,
hefði ekkert umboð til að semja
um þátttöku ísraela í alþjóðlegri
ráðstefnu rnn Miðausturlönd. Per-
es er nú í Egyptalandi til viðræðna
við þarlenda ráðamenn.
Peres kom til Kairó á miðvikudag
og hefur það komið fram í viðræðum
hans við Hosni Mubarak, Egypta-
landsforseta, að hann er hlynntur
alþjóðlegri ráðstefnu um ástandið í
Miðausturlöndum. Mikill ágreiningur
er þó um hveijir skuli vera fulltrúar
Palestínumanna á slíkum fundi.
Shamir, sem í fyrradag kom heim
frá níu daga heimsókn í Bandaríkjun-
um, sagði við komuna, að hann væri
andvígur ráðstefnu af þessu tagi.
„Utanríkisráðherrann hefur heldur
ekkert umboð til að semja um þátt-
töku okkar vegna þess, að um hana
er mikill ágreiningur innan stjómar-
innar," sagði Shamir. Hann vill beinar
viðræður við Egypta og Jórdaníu-
menn og telur, að fyrirhuguð ráð-
stefna sé aðeins til að auðvelda
Sovétmönnum afskipti af málefnum
Miðausturlanda.
myndina sjálfa" og Inger Johans-
son, sænskur starfsmaður dreifíng-
arfyrirtækisins, taldi, að Svíar, sem
oft væru sakaðir um skrifræði og
ofskipulagningu, „fyndu sjálfa sig“
í myndinni. Fjallar hún um menn á
geðsjúkrahúsi, sem gera uppreisn
gegn þeim reglum, sem þar eiga
að ríkja.
• n . iteuier
Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, og Hosni Mubarak, Egypta-
landsforseti, sátu í gær á rökstólum í Kairó. Sem fyrr var það
umræðuefnið hvort unnt er að koma á friði i Miðausturlöndum.
Stokkhólmi. AP.
Á miðvikudagskvöld lauk sýn-
ingum á bandarísku kvikmynd-
inni „Gaukshreiðrinu" í
kvikmyndahúsi einu í Stokk-
hólmi og hefur myndin þá verið
sýnd þar stanslaust í 573 vikur,
11 ár, og mun það vera heims-
met.
Myndin, sem er með Jack Nichol-
son í aðalhlutverki, var fyrst sýnd
26. febrúar árið 1976 og síðan hafa
tvær milljónir Svía séð hana eða
fjórðungur þjóðarinnar. Milos
Forman, höfundur myndarinnar,
sagði í fyrra, að vinsældir hennar
í Svíþjóð „segðu meira um Svía en
ERLENT