Morgunblaðið - 27.02.1987, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1987
Háskólabíó sýnir
Heppinn hrakfallabálk
Talið frá vinstri Óskar Gislason kvikmyndagerðarmaður, Signrður Björgúlfsson arkitekt, Katrin Hall
dansari, Thor Vilhjálmsson rithöfundur, Rut Magnússon söngkona og kórstjóri, Hróbjartur Hróbjarts-
son arkitekt og Gunnar Órn Gunnarsson myndlistarmaður.
Menningarverðlaun D V afhent
Að opna munninn, en
ekki loka augunum
eftir Hilmar
Þ. Hilmarsson
Þann 30. janúar sl. gagnrýndi
Steingrímur Hermannsson þing-
menn Reyknesinga fyrir slælega
frammistöðu þeirra í að bjarga út-
gerð á Suðumesjum úr þeim mikla
vanda sem hún nú er í. Þessi tíma-
bæru og réttmætu ummæli forsæt-
isráðherra hafa valdið mikilli reiði
nokkurra þingmanna kjördæmisins,
svo og einstakra annarra stjóm-
málamanna.
„Sannleikanum verður
hver sárreiðastur"
Það sannast hér enn sem fyrr
að sannleikanum verður hver sár-
reiðastur. Tveir Suðumesjamenn,
þeir Karl Steinar Guðnason og Ólaf-
ur Bjömsson, rituðu fljótlega
greinar sem bera þess merki að
þeir misstu stjóm á skapi sínu. í
reiði sinni skortir þá ekki stóryrði
og fullyrðingar. Báðir þessir menn
falla þó í þá gryfju og opna munn-
inn um of, en loka augunum.
Ólafi er óglatt
Ólafí er óglatt. Eða svo segir
hann sjálfur. Ætla mætti af skrifum
hans að hann hefði öðrum fremur
efni á að gagnrýna. Ólafur veður
fram og aftur í grein sinni. Hann
byijar á yfírlýsingu um ógleði sína
en endar á tilvitnunum í Heilaga
Ritningu. Undir lok greinarinnar
kemst hann þó loks niður á jörðina
og hefur frásögn af afrekum sínum
í útgerð. Hann segir m.a.: „Um
áramótin 1981-1982 áttum við 94%
í fyrirtæki okkar. Um síðustu ára-
mót var eign okkar í fyrirtækinu
komin niður í 10-15%. Við ákváðum
því að selja allt áður en við þyrftum
að standa frammi fyrir því að svíkja
okkar viðskiptamenn endanlega um
fé.“
Ekki er þetta glæsileg lýsing á
eigin frammistöðu. Hætt er við að
ógleði yrði algeng á Islandi ef þetta
væri dæmigerð frammistaða út-
gerðarmanna í rekstri fyrirtækja
sinna. Ólafur vitnar í biblíutexta í
grein sinni. Hann segir: „Mér dettur
í hug setning úr biblíunni sem hljóð-
aði eitthvað á þessa leið: „Allt þetta
skal ég gefa þér. ..“ Þetta hefur
hann að segja um orð forsætisráð-
herra. Ekki veit ég hversu biblíu-
fróður maður ðlafur er en
eftirfarandi setningu mætti hann í
ógleði sinni læra og festa sér vel í
minni: „Drag fyrst bjálkann út úr
auga þínu, og þá muntu sjá vel til
að draga úr flísina úr auga bróður
þíns.“ Afrek Ólafs í útgerð eru lítil.
Því lýsir hann best sjálfur.
Karls Steinars
þáttur Guðnasonar
Grein Karls Steinars Guðnasonar
er vægast sagt brosleg. í skrifum
sínum tekst honum með engu að
leyna minnimáttarkennd sinni fyrir
forsætisráðherra. Grein Karls er
full af mótsögnum. í sama orðinu
býsnast hann yfír miklum og litlum
styrk Framsóknarflokksins.
Karl segir meðal annars:
„Framsóknarflokkurinn hefur
setið í ríkisstjóm frá árinu 1971 —
alls 16 ár. Þeir tóku við góðu búi
viðreisnaráranna." Varla hefði Karl
Steinar getað verið klaufalegri í
skrifum sínum. Sjálfur hlýtur hann
að vita að viðreisnaráratugurinn
endaði með algerum ósköpum.
Efnahagslegu öngþveiti. Afleiðing-
amar urðu einn sá mesti fólksflótti
sem orðið hefur frá íslandi fyrr og
síðar. Erlendar skuldir stóijukust á
skömmum tíma. Fiskiskipafloti ís-
lendinga var nánast ónýtur í lok
„viðreisnar". Auk þessa hafði við-
reisnarstjómin sýnt fádæma rolu-
skap í landhelgismálinu. Karl
Steinar veit mætavel að viðreisnar-
stjómin skilaði einhveiju því mesta
þrotabúi sem skapast hefur í
íslenskum efnahagsmálum í ára-
tugi.
Karl Steinar veit líka að Al-
þýðuflokkurínn beið mikið afhroð
eftir „viðreisn" sína. Kjósendur sáu
til þess að flokkurinn var sendur í
langt frí. Alþýðuflokkurinn er enn
í fríi og kjósendur hafa kunnað því
vel. Nú er fríið hins vegar orðið svo
iangt að elstu menn innan Alþýðu-
flokksins minnast þess ekki að hafa
þurft að bera neina ábyrgð á efna-
hagsmálum íslendinga varðandi
iðjuleysi. Til þess þurfa kjósendur
að gefa honum langt frí. Ég tel
líklegt að þetta frí fáist og pólitísk-
ir sigrar flokksins muni takmarkast
við skoðanakannanir.
Karl Steinar
gripinn ótta
Það er skiljanlegt að Karl Steinar
Hilmar Þ. Hilmarsson
sé gripinn ótta þegar störf hans em
rædd opinberlega. Ég vænti þess
þó að í komandi kosningum muni
hann hafa betri stjóm á hugsunum
sínum og orðavali en Morgunblaðs-
grein hans frá 5. febrúar ber vott
um. Hver veit nema hann gæti orð-
ið að nokkm gagni fyrir Suður-
nesjamenn ef hann tæki sig vel á.
Betra er seint en aldrei
Skrif að því tagi sem Ólafur
Bjömsson og Karl Steinar hafa í
frammi koma engum að gagni. Þau
þjóna engum tilgangi, en spilla að-
eins fyrir lausn þeirra vandamála
sem nú þarf að leysa í útgerð Suður-
nesjamanna. Ég skora á_ þessa
menn að taka til starfa. í þessu
máli þurfa allir Suðumesjamenn að
taka höndum saman og snúa vöm
í sókn.
Höfundur er háskólanemi.
sinnar Bombay. Ram Das dreymir
um að komast til London og þar
sem hann er nokkuð slunginn ná-
ungi tekst honum loks að komast
til London, en þar er ekkert gull
að hafa frekar en í Bombay. Ram
Das hittir af tilviljun stúlku í Lon-
don sem hann heiilast mjög af og
til að ganga í augun á henni segist
hann vera læknir, en það verður
örlagaríkt, því með hennar hjálp
endar hann sem vinsæll læknir með
aðsetur í frægri læknagötu í Lon-
don. En það gerist ýmislegt skop-
legt áður en til uppgjörs kemur.
MENNINGARVERÐLAUN DV
voru afhent í níunda skiptið i
gær. Að þessu sinni hlutu verð-
launin Thor Vilhjálmsson rithöf-
Bíóhúsið sýnir mynd
Romans Polanski
BÍOHÚSIÐ hefur hafið sýningar
á mynd Roman Polanski, Sjóræn-
ingjamir (Pirates). Með aðal-
hlutverk í myndinni fara Walter
Matthau, Cris Campion, Damien
Thomas, Charlotte Lewis og Olu
Jacobs.
Sjóræningjamir er ævintýra-
mynd þar sem Red skipstjóri, sem
leikinn er af Walter Matthau, verð-
ur viðskila við menn sína og er lengi
á reki ásamt helsta lærisveini
sínum, Froskinum. Eru þeir matar-
og vatnslausir á fleka sínum og
Red, sem talinn er grimmastur allra
foringja sjóræningja, er jafnvel að
hugsa um að leggja félaga sinn sér
til munns þegar spænskt skip bjarg-
ar þeim. Red leggur strax á ráðin
um að ná skipinu á sitt vald með
öllum þeim gersemum sem í því
eru, segir í frétt frá kvikmyndahús-
inu.
Fundur um frumheim-
ildir í sögukennslu
SAMTÖK kennara og annars
áhugafólks um sögukennslu
' halda fund laugardaginn 28.
febrúar í Kennslumiðstöðinni að
Lausravegi 166. Fundurinn hefst
kl. 14.00.
Fundarefni er frumheimildir og
heimildaritgerðir í sögukennslu á
grunn- og framhaldsskólastigi.
Framsögumenn verða Erling Ól-
afsson kennari við Réttarholtsskóla
og Ragnheiður Mósesdóttir kennari
við Fjölbrautaskólann Breiðholti.
Að loknum framsöguerindum
verða umræður.
Fundurinn er öllum opinn.
HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Heppinn
hrakfallabálkur sem Ronald
Neame hefur leikstýrt. Með aðal-
hlutverk í myndinni fer indverski
leikarinn Victor Beneeijee, sem
lék indverskan lækni í myndinni
Ferðin til Indlands. Auk hans
leika m.a. Warren Mitchell, Ger-
aldine McEwan og Trevor
Howard.
í frétt frá kvikmyndahúsinu seg-
ir að Ram Das sé hraustur og vel
gefínn ungur maður en lepur dauð-
ann úr skel á götum heimaborgar
undur, fyrir skáldsögu sina
Grámosinn glóir, Rut L. Magnús-
son söngkona og kórstjóri, fyrir
þátt sinn I stofnun og rekstri
Sinfóníuhljómsveitar æskunnar
(SÆ), íslenski dansflokkurinn
fyrir sýninguna „Stöðugir ferða-
langar“, Gunnar Örn myndlistar-
maður, fyrir þijár myndlistar-
sýningar á árinu 1986,
Hróbjartur Hróbjartsson og Sig-
urður Björgúlfsson arkitektar,
fyrir byggingarnar við Seljahlíð,
vistheimili og eignaríbúðir aldr-
aðra og Óskar Gíslason kvik-
myndagerðarmaður, fyrir
framlag sitt til íslenskrar kvik-
myndagerðar.
DV skipaði þriggja manna dóm-
nefnd gagnrýnenda og annarra
sérfræðinga fyrir hveija listgrein
og tilnefndu hún listafólk til verð-
launa.
Verðlaunagripina hannaði Stefán
B. Stefánsson gullsmiður, en þeir
eru í formi frístandandi skúlptúra.
Skólahlj óms veit
Kópavogs:
Leiðrétting-
í VIÐTALI við Björn Guðjónsson,
stjómanda Skólahljómsveitar
Kópavogs, í síðasta sunnudags-
blaði Morgunblaðsins féll niður
hluti úr eftirfarandi málsgrein:
„Aðalhvatamenn að stofiiun
Skólahljómsveitar Kópavogs voru
þeir Gylfi Þ. Gíslason, þáverandi
menntamálaráðherra, og Hjálm-
ar heitinn Ólafsson, þáverandi
bæjarstjóri í Kópavogi“... osvfrv.
Hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
GENGIS-
SKRANING
Nr. 39 - 26. febrúar 1987
Kr. Kr. ToU-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
DoIIari 39,230 39,350 39,230
St.pund 60,304 60,489 60,552
Kao.dollari 29,457 29,548 29,295
Dönskkr. 5,7043 5,7218 5,7840
Norsk kr. 5,6087 5,6258 5,6393
Sænskkr. 6,0695 6,0880 6,0911
Fi.mark 8,6610 8,6875 8,7236
Fr.franki 6,4667 6,4864 6,5547
Belg.franki 1,0395 1,0427 1,0566
Sv.franki 25,5487 25,6268 26,1185
Holl. gyllini 19,0576 19,1159 19,4303
V-þ.mark 21,5271 21,5930 21,9223
ítlira 0,03027 0,03036 0,03076
Austurr. sch. 3,0602 3,0695 3,1141
Port.escudo 0,2772 0,2781 0,2820
Sp.peseti 0,3059 0,3069 0,3086
Jap.yen 0,25615 0,25693 0,25972
Irsktpund 57,256 57,431 58,080
SDR (Sérst.) 49,5685 49,7201 50,2120
ECU, Evrópum. 44,4437 44,5796 45,1263