Morgunblaðið - 12.03.1987, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.03.1987, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 59. tbl. 75. árg.___________________________________FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Bandaríkjaþing: Fjárstuðningi við skæruliða frestað Brasilískir hermenn berja niður verkföll Hermenn með skriðdreka sér til fulltingis brutu í gær á bak aftur boðað verkfall starfsmanna í tíu ríkisreknum olíuhreinsunarstöðvum í Brasilíu og var myndin tekin við eina þeirra nærri Rio de Janeiro. Starfsmennimir höfðu boðað verkfall í gærmorgun til að leggja áherslu á kröfur sínar um 70 prósent hækkun launa. Talsmenn stjómarinnar sögðu að hermenn hefðu tekið olíuhreinsunarstöðvamar á sitt vald að beiðni forráðamanna ríkisolíufélagsins Petro- bras til að tiyggja öryggi þeirra sem ekki vildu taka þátt í verkföllunum. Hermenn vom einnig við hafn- ir víða í landinu en 40.000 hafnarverkamenn hafa verið í verkfalli frá 28. febrúar þar sem ekki hefur verið gengið að kröfum þeirra um 186 prósenta launahækkun. ' Washington, AP, Reuter. FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi að fresta 40 milljóna dala hemaðaraðstoð Bandaríkjastjórnar við kontra-skæru- iiða í Niearagua um sex mánuði. Þá er stjóminni einnig gert að gera grein fyrir fyrri greiðslum til skæruliða. Búist er við að Ronald Reag- an forseti muni beita neitunarvaldi gegn samþykkt þessari og verður þeirri ákvörðun forsetans tæpast hnekkt. Jim Wright, forseti fulltrúadeildar- innar, sagði að atkvæðagreiðslan sýndi og sannaði að Bandaríkjastjóm yrði að leita nýrra leiða til að tryggja í senn áhrif sín og frið í ríkjum Mið- Ameríku. George Shultz utanríkis- ráðherra sagði fyrr í gær að Nicaragua yrði „sovésk herstöð" ef stuðningi við kontra-skæruliða yrði hætt. Persaflóastríðið: Bardagar í norður- Þingmenn demókrata og repúblik- ana kváðust búast við að forsetinn beitti neitunarvaldi gegn samþykkt fulltrúadeildarinnar og að tæpast næðist tilskilinn meirihluti til að hnekkja þeirri ákvörðun. Þingmenn Demókrataflokksins sögðu að beiðni forsetans um 105 milljóna dala hem- aðaraðstoð á næsta fjárlagaári myndi hins vegar verða hafnað. „Með þess- ari atkvæðagreiðslu hyggjumst við sýna forsetanum að hann hefur ekki þann stuðning sem hann þarf til að knýja fram þá aðstoð," sagði Tom Foley, einn helsti leiðtogi demókrata í fiilltrúadeildinni. Repúblikanar sögðust efast um að áframhaldandi hemaðaraðstoð hlyti samþykki þingsins. héruðum Meðaldrægar Evrópuflaugar: Reuter Nikósíu, Kýpur, AP, Reuter. ÍRAKAR kváðust í gær hafa fellt hundruð íranskra hermanna á norðurvígstöðvunum. Er þetta í fyrsta skipti sem írakar staðfesta að barist sé á þessu svæði en íran- ir tilkynntu í síðustu viku að þeir hefðu hafið stórsókn þar. Átökin áttu sér stað í Haj Omran- héraði í írak en kúrdar byggja þetta landsvæði. írakar kváðust hafa hrundið sókn írana í átt að Ko-fjalli og hefðu íranir lagt á flótta eftir að hundruð hermanna þeirra hefðu fallið. Þá hefðu og flórar íranskar herþotur verið skotnar niður. ír- anska ríkissjónvarpið sýndi hins vegar myndir í gær sem sagðar vom frá norðurvígstöðvunum. Gat þar að líta hermenn í óða önn við að grafa skotgrafir í snjó og fimbulkulda. IRNA, hin opinbera fréttastofa írana, skýrði _frá því í gær að 3.000 hermenn frá írak hefðu verið felldir í bardögum í fjalllendinu í norðri frá því sóknin hófst í síðustu viku. Sagði í tilkynningu fréttastofunnar að Ir- anir hefðu náð 50 ferkílómetra svæði á sitt vald. NATO-ríki samþykkja hug- myndir Bandaríkjastjórnar Drög að samkomulagi um eftirlit lögd fram í vikunni Washington, AP. fái að skoða verksmiðjur Sovét- manna þar sem SS-20 flaugamar eru smíðaðar. FIMM ríki Atlantshafsbandalagsins hafa lýst sig reiðubúin til að heim- ila sovéskum sérfræðingum að fylgjast með því að ákvæði hugsanlegs samnings um útrýmingu meðaldrægra kjamorkuflauga í Evrópu verði virt. Bandarískir embættismenn sögðust í gær búast við að drög að samkomulagi um eftirlit verði lagt fyrir sovésku samningamennina í Genf síðar í þessarí viku. Onafngreindir bandarískir emb- ættismenn sögðu að ríkisstjómir Bretlands, Vestur-Þýskalands, Belgíu, Hollands og Ítalíu hefðu enn ekki gefíð formlegt samþykki en þeir kváðu það aðeins formsatriði. Fulltrúar þessara ríkja áttu fund á mánudag ásamt embættismönnum í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Kenneth Adelman, forstöðumaður Afvopnunarstofnunar Banda- ríkjanna, sagði að enginn ágreining- ur væri um samkomulagsdrögin. Samkvæmt drögunum sem Bandaríkjamenn hyggjast leggja fram munu bandarískir eftirlitsmenn fara til Sovétríkjanna og ganga úr skugga um að allar 243 SS-20 flaug- ar Sovétmanna vestan Úralfjalla verði teknar niður. Á sama hátt munu sovéskir sendimenn fýlgjast með því þegar bandarískar Pershing 2-flaugar í Vestur-Þýskalandi og stýriflaugar í Hollandi, Belgíu, Bret- landi og Italíu verða fjarlægðar. Þá er einnig búist við að Bandaríkja- stjóm krefíist þess að embættismenn Max Kampelman, helsti samn- ingamaður Bandaríkjastjómar, sagði í sjónvarpsviðtali, sem Upplýs- ingastoftiun Bandaríkjanna sendi út, að stefna bæri að samkomulagi um Evrópuflaugamar á þessu ári. Svíþjóð: Frumvarp um aukin útgjöld til vamarmála Kohl sver emhættiseið Helmut Kohl var í gær endurkjörinn í sambands- þinginu í Bonn til að gegna embætti kanslara Vestur-Þýskalands næstu fjögur ár og sór hann embættiseið frammi fyrir Philipp Jenninger, forseta þingsins. Ýmis vandamál bíða stjómar Kohls, sem samanstendur af flokki fijálslyndra (FDP) og kristi- legu flokkunum (CDU/CSU). Bændur heimta auknar niðurgreiðslur, stéttarfélög krefjast styttri vinnuviku og kosningar verða í fímm ríkjum sambandslýðveldis- ins. Hans-Dietrich Genscher (FDP) heldur sæti utanríkisráðherra enda óx flokki hans fiskur um hrygg í kosningunum í janúar. Vonir Franz Josef Strauss (CSU) um það embætti urðu að engu í kosn- ingunum og verður hann því áfram forsætisráðherra í Bæjaralandi. CDU lét FDP eftir menntamálaráðu- neytið og kemur flokkur kanslarans því verst út úr stjómarmynduninni. Stokkhólmi, AP, Reuter ROINE Carlsson, vamarmálaráð- herra Svíþjóðar, hefur lagt frumvarp um útgjöld til varnar- mála fyrir sænska þingið. í þvi er gert ráð fyrir að framlögin verði aukin í fyrsta skipti í 20 ár. Fmmvarpið felur í sér stefnu- breytingu þar sem framlög til vamarmála voru „fryst" á sjöunda áratugnum og hafa síðan minnkað að raungildi vegna verðbólgu. Á miðjum sjöunda áratugnum runnu 17 prósent af heildarfjárlögum ríkis- ins til vamarmála en á síðasta ári var 7,7 prósentum þeirra varið í þessu skyni. Samkvæmt frumvarpi varnar- málaráðherrans verða framlögin aukin um átta prósent á næstu fimm árum. Að sögn talsmanns vamar- málaráðuneytisins er gert ráð fyrir að hluta upphæðarinnar verði varið til smiði JÁS-39 orrustuþotunnar og til að bæta kafbátavamir við strend- ur landsins. Aukin umsvif herafla Atlantshafsbandalagsins og Sov- étrílqanna á norðurslóðum munu hafa ráðið mestu um að frumvarpið var lagt fram. Almennt er búist við að það hljóti samþykki þingsins. Forráðamenn sænska fyrirtækis- ins Bofors, sem sakað hefur verið um að hafa selt vopn óleyfílega til írans og fleiri ríkja, kváðust í gær ætla að breyta reglum fyrirtækisins varðandi útflutning á vopnum og yrði einkum hert eftirlit með vopna- sölu dótturfyrirtækja þess. Sam- kvæmt sænskum lögum mega fyrirtæki ekki selja vopn til ríkja sem eiga í átökum. Bofors hefur verið sakað um að hafa brotið gegn þess- um lagaákvæðum og vinna þing- nefndir og lögregla að rannsókn málsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.