Morgunblaðið - 12.03.1987, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
Portisch í söngfstellingunum.
Morgunblaðið/Bára Kristinsdóttir
COSPER
Sem sjá má eru leiðtogarnir ekki frýnilegir.
Þessi tískusýningarstúlka er í kvöldklæðnaði
hönnuðum af Gianfranco Ferre. Hann brýtur
hefðir sem fyrr og hér notar hann æpandi Iit
öfugt við flesta starfsbræður sýna. Jakkinn er
úr skærbleiku og svörtu silki, en við hann hefur
hún kasmír-sjal í sömu litum. Um hálsinn og í
hárinu er hún með slaufur, „vörumerki“ Ferres.
Stúlkan á myndinni er í kápu úr þunnu brúnu
leðri, en undir er hún í mini-dragt úr enn þynnra
leðri. Um hálsinn hefur hún svo stóran kakóbrún-
an trefil við, en fötin eru hönnuð af Mario
Valentino í Mílanó.
Mini-
tískaná
uppleið
Iblaðinu í gær birtust myndir af haust- vetrartísk-
unni eins og ítalskir tískuhönnuðir telja að hún
eigi eftir að verða seinna á árinu. Greinilegt er að
mini-tískan, sem hæst reis fyrir meira en 15 árum,
er aftur á uppleið. Ekki eru menn þó jafnviljugir
og þá, á að sýna bera fótleggi, heldur er þeim skýlt
með þröngum buxum eða ógagnsæjum sokkabuxum.
Helstu litir eru yfirleitt frekar dökkir eða mildir
miðað við það sem verið hefur undanfarin ár og
jafnvægis gætt. Myndimar skýra sig þó best sjálfar.
Hrifnir áheyrendur: Short, Ljubojevic, Timman, Polugaevsky og
Kristín Þorvaldsdóttir.
Hér er stutt hvít kápa með
stórum hringlaga kraga,
sem nær langt. út á axlir.
Versni veður er hægt að
bretta hann upp, þannig að
hann skýli höfðinu nær al-
veg að aftan, en einnig er
hægt að taka hann saman i
hálsinn dugi trefillinn ekki.
Við þetta er stúlkan i háum
svörtum leðurstígvélum og
svörtum ullarsokkabuxum.
Þessi flík er frá Fendi-systr-
um 5 Róm.
Hengdir foringjar?
Margrét Thatcher, Neil
Kinnock og David Owen eiga
sér vafalaust marga óvildarmenn,
en þó er hægt að ganga of langt í
óvildinni — jafnvel þótt ýtrasta jafn-
vægis sé gætt í því að sverta
flokksformennina.
Fyrir skömmu fordæmdi Siða-
nefnd breska auglýsingaiðnaðarins
auglýsingaveggspjald dagblaðsins
Today, sem sýndi fjóra helstu
stjómmálaleiðtoga Bretlands. Þetta
var í fyrsta skipti, sem nefndin greip
til slíkrar ákvörðunar án rækilegrar
umQÓllunar, en hún þótti óþörf i
þessu tilviki. Haft var eftir McGreg-
or lávarði af Durris, formanni
nefndarinnar, að auglýsingin hefði
þótt brjóta í bága við almenna vel-
sæmiskennd, þó svo að þeir teldu
hana hvorki ólöglega, óheiðarlega,
né psanna.
Astæðan fyrir því að auglýsingin
var tekin úr umferð var sú stað-
reynd að hún sýndi þau Margréti
Thatcher, forsætisráðherra, Neil
Kinnock, formann Verkamanna-
flokksins, David Owen, formann
Bandalags jafnaðarmanna, og
David Steel, formann Ftjálslynda