Morgunblaðið - 12.03.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
Byggingarmenn og vinnuveitendur:
Lítið þokast til
samkomulags
SAMNINGAFUNDUR með bygg-
ingarmönnum og viðsemjendum
þeirra hjá ríkissáttasemjara stóð
enn um miðnættið og hafði lítið
miðað í samkomulagsátt.
Grétar Þorsteinsson, formaður
Trésmiðafélags Reykjavíkur, sagði
skömmu fyrir miðnættið að viðræður
gengju ekki hratt það augnablikið
og lítið væri af viðræðunum að frétta.
Hreyfing hefði komist á viðræðumar
í fyrrinótt, en síðan hefði ekki ýkja
mikið gerst. Hann sagði aðspurður
að ekki væri ennþá hægt að nefna
ákveðna lágmarkslaunatölu, sem tré-
smiðir gerðu kröfu um að komi út
úr þessum samningum.
Vinnuveitendur hafa boðið bygg-
ingarmönnum sömu lágmarkslaun
og samdist um við aðra iðnaðarmenn
í desembersamningunum. Þá hafa
þeir boðið 5% hækkun á uppmælingu
og að yfirvinna verði greidd með 1%
af mánaðarlaunum í stað eftir- og
næturvinnu.
Fjögur félög byggingarmanna eru
í verkfalli með samtals um 1600 fé-
lagsmenn. Verkfallið hófst á
miðnætti á þriðjudag.
Þá var í gær fundur hjá ríkissátta-
semjara með félögum pípulagningar-
manna, veggfóðrara, málara og
múrara. Vinnuveitendur lögðu þar
fram tilboð, sem félögin munu skoða
í dag áður en til nýs samningafundar
verður boðað. Þessi félög hafa ekki
boðað verkfall.
Kosningafundur stúdenta:
Vmstrimemi ófúsir
að ræða lánamálin
Á KOSNINGAFUNDI nemenda Háskóla íslands í gærkvöldi neit-
uðu Runólfur Ágústsson og Þóra Jónsdóttir efstu menn á
framboðslista Vinstrimanna til Stúdentaráðs að svara spumingu
um hvaða aðferðum þau hygðust beita til að ná árangri í lánamál-
um námsmanna, komist listinn í meirihluta. „Ég ætla ekki að
þjarka við andstæðinga mina um þetta mál,“ sagði Runólfur er
hann hafði ítrekað verið beðinn að svara spumingunni.
Sveinn Andri Sveinsson efsti
maður á framboðslista Vöku til
Stúdentaráðs sagði í svari sínu
við sömu spumingu að kæmist
félagið í meirihluta yrði haldið
áfram á sömu braut og í vetur.
„Við munum áfram fylgja þeirri
stefnu að beita réttum aðferðum
á réttum tíma. Stúdentar eiga að
ganga til samninga þegar stjóm-
völd bjóða þá, en móta samstöðu
sína til mótmæla ef stjómvöld
ganga á bak orða sinna," sagði
Sveinn.
Umbótasinnar sem hafa haft
oddastöðu við meirihlutamyndun
í Stúdentaráði undanfarin tvö ár
vildu ekki lýsa því yfir fyrir kosn-
ingar hvort þeir væru fúsari til
samstarfs við Vinstrimenn eða
Vöku. Ágúst Ómar Ágústsson
fyrsti maður á framboðslista um-
bótasinna sagði að afstaða þeirra
hlyti að ráðast af því hvaða menn
úr röðum andstæðinganna veldust
til starfa.
Formaður félagsins lét hinsveg-
ar svo ummælt að umbótasinnar
ætluðu ekki að vinna með öðmm
en sjálfum sér.
Fundurinn var heldur fámenn-
ur. Hófst hann með umræðum um
tillögu þess efnis að aflýsa honum.
Hún var felld með naumum meiri-
hluta.
Sjá frétt tun kosningar í
Háskólanum og ununæli Jóns
Baldvins Hannibalssonar á
bls. 39.
Morgunblaðið/Bjami
Fundurinn var haldinn i Odda Háskóla íslands.
íslenskt tölvu-
forrít selt á ItaKu
ÞRÓUN ARFÉLAGIÐ hef ur styrkt
fyrirtækið Hugvirki til að láta
þýða tölvuforrit á þýsku, ensku
og ítölsku með sölu þar í huga.
Hugvirki hefur gert samning við
ítalskt sölufyrirtæki fyrir hug-
búnað um að setja forritið þar á
markað.
Skipstjór-
ar boða
Forrit þetta heitir Húsval og er
aðallega ætlað fyrir fasteignasölur
til að auðvelda þeim sem leita að
húsnæði að finna eign við sitt hæfi.
Forritið er skrifað fyrir System 36
vélar sem eru nokkru stærri en
venjulegar PC tölvur.
Italska fyrirtækið, sem Hugvirki
hefur náð samningum við, er talið
mjög traust á sínu sviði. Kristján
Sigurgeirsson, eigandi Hugvirkis,
hefur einnig kannað möguleika á
sölu forritsins í Englandi og Þýska-
landi
Sjá frétt um aðalfund Þróunar-
félagsins bls. 31.
verkfall Kjartan Jóhannsson um þá sem vilja einhliða kjarnorkufriðlýsingu Norðurlanda:
Sömu aðilar og vilja vest-
rænt vamarsamstarf feigt
Páll Pétursson segir utanríkisráðherra „versta hauk“
Skipsljórafélag íslands hefur
boðað verkfall frá og með
fimmtudeginum 19. mars næst-
komandi, en það er eina félagið
sem enn er ósamið við á kaup-
skipaflotanum. Viðræður milli
þess og viðsemjenda þess hafa
staðið yfir að undanförnu, en
fyrsti sáttafundurinn hjá ríkis-
sáttasemjara verður í dag og
hefst klukkan 9.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði að skip-
stjórum hefðu verið boðnir svipaðir
samningar og tekist hefðu við aðra
hópa sjómanna á kaupskipunum,
en það hafi þó ennþá ekki leitt til
lausnar. Þá hafi lífeyrisréttindi
blandast inn í umræðumar, en end-
anleg lausn á því máli liggi ekki
fyrir.
KJARTAN Jóhannsson, þingmað-
ur Alþýðuflokksins, lýsti yfir
afdráttarlausri andstöðu við ein-
hliða yfirlýsingu um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndum
við umræður um skýrslu utanrík-
isráðherra á Alþingi f gær. Hann
sagði, að þeir sem ákafast berðust
fyrir þessari hugmynd væru í
flestum tilvikum sömu aðilamir
og vildu vestrænt varnarsamstarf
feigt.
Umræðumar um skýrslu utanrík-
isráðherra snemst að miklu leyti um
afyopnunarmál og einkum hugmynd-
ina um kjamorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum. Við umræðumar
sakaði Páll Pétursson, formaður
þingflokks framsóknarmanna, Matt-
hías Á. Mathiesen, utanríkisráð-
herra, um það, að hafa snúið út úr
ályktun Alþingis um afvopnunarmál
frá 1985. Hann sagði, að ráðherr-
ann, sem verið hefði friðarins maður
í öðm embætti, talaði nú og skrifaði
eins og „versti haukur.“
Páll Pétursson sagði ennfremur,
að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjómar-
innar um utanríkismál væri megin-
áhersla lögð á norrænt samstarf, en
svo væri ekki í skýrslu utanríkisráð-
herra. Hann lét jafnframt þá von í
ljós, að skýrsla utanríkisráðherra á
næsta ári yrði með meiri „þjóðlegri
reisn" en þessi.
Eyjólfur Konráð Jónsson, formað-
ur utanríkismálanefndar Alþingis,
sagði, að nefndin myndi ræða hug-
myndina um skipun embættismanna-
nefndar um kjamorkuvopnalaus
Norðurlönd á fundi sínum á mánu-
daginn. Hann sagðist hafa verið
andvígur skipun slíkrar nefndar, en
gaf til kynna að samkomulag kynni
að takast í málinu. Eyjólfur Konráð
lagði þunga áherslu á, að íslendingar
yrðu að teygja sig langt í umræðum
um þessi efni á væntanlegum fundi
utanríkisráðherra Norðurlanda í
Reykjavík. Hið versta, sem fyrir
gæti komið, væri að íslendingar ein-
angruðust frá öðrum Norðurlanda-
þjóðum og það yrði að fyrirbyggja.
Hjörleifur Guttormsson, þingmað-
ur Alþýðubandalagsins, krafðist
þess, að íslensk trúnaðarskjöl frá
upphafsárum vamarsamstarfsins við
Bandaríkin yrðu gerð opinber. Benti
hann á, að bandarísk skjöl frá þess-
um tíma hefðu þegar verið birt.
Þingmaðurinn talaði um bandarískt
mútufé og af því tilefni lýsti Eyjólfur
Konráð því yfir, að hann teldi að
vinstri stjómin 1956 hefði látið
Bandaríkjastjóm múta sér. Hún hefði
þegið fé úr öiyggismálasjóði, sem
sambærilegur væri við íranssjóðinn
nú á dögum. Svavar Gestsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, mót-
mælti þessum ummælum og kvað
þau ósmekkleg. Hann kvaðst geta
fullyrt, að enginn þeirra þingmanna,
er stóðu að vinstri stjóminni hefði
látið múta sér.
Sjá frásögn af umræðunum á
Alþingi á bls. 40.
Séra Ólafur Skúlason dómprófastur um Stöð 2:
Höfum ekki áhuga á dagskrá
á sama tíma og bamastarfið er
Stöð 2 býður kirkjunni að sjá um barnaþátt
„VIÐ höfum ekki áhuga á þvi
að vera með kristilega dagskrá
á sama tíma og barnastarfið er
hjá okkur á sunnudagsmorgn-
um,“ sagði séra Ólafur Skúlason
dómprófastur, er Morgunblaðið
spurði hann álits á tilboði Stöðv-
ar 2 um að bjóða þjóðkirkjunni
að sjá um hálfrar klukkustundar
dagskrá i lok útsendingar á
bamaefni stöðvarinnar á sunnu-
dagsmorgnum.
I frétt í Morgunblaðinu í gær
er haft eftir séra Ólafi Skúlasyni
dómprófasti, að verulega hafi
dregið úr kirkjusókn bama fyrst
eftir að útsendingar á bamaefni
hófust á sunnudagsmorgnum.
Hann sagði að hún hefði aukist
lítillega á ný en sé ekki jafii mikil
og áður en útsendingar bamaefnis-
ins hófust.
Að sögn Jóns Óttars Ragnars-
sonar stöðvarstjóra vill stöðin
halda uppi góðum samskiptum við
þjóðkirkjuna og var kirkjunnar
mönnum boðið að sjá um kristilegt
efni fyrir böm þegar eftir að út-
sendingar á bamaefni hófust. Boð
um hálfrar klukkustundar dagskrá
nú væri ítrekun á fyrra boði og
sagði hann að fundur yrði haldinn
um málið fljótlega.
„Við fögnum því náttúrlega, að
þeir vilja sjónvarpa kirkjulegu og
trúarlegu efiii," sagði séra Olafur,
„en við viljum alls ekki að þær
útsendingar verði á sama tíma og
bamastarfið fer fram hjá okkur í
kirkjunum. Þar strönduðu viðræð-
ur okkar Jóns Óttars á sínum tíma
og þetta boð breytir engu þar um.
Okkur er boðið upp á tímann kl.
11.30 á sunnudagsmorgnum, en
bamamessumar hefjast kl. 11. Við
viljum fá bömin í kirlq'una á þess-
um tíma.“
Morgunblaðið hafði samband við
. Jón Óttar í gærkveldi og bar und-
ir hann ummæli séra Ólafs Skúla-
sonar, en hann kvaðst ekkert
frekar vilja segja um málið að svo
stöddu.