Morgunblaðið - 12.03.1987, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
21
Guðjón Armann Eyjólfsson
ingsmaður þess, að grunnnámið,
30 rúmlesta réttindanám til at-
vinnuréttinda, og skipstjómarprófi
1. stigs, verði komið upp a.m.k. í
hveijum landsflórðungi, ef tryggt
er að hæfír kennslukraftar fáist og
staðið verði við öll skilyrði fyrir
atvinnuréttindi 1. stigs, sem veitir
réttindi á 200 rúmlesta skip og
minni hér við landið, en það eru
rúmlega 600 skip af samtals 822
skipum í öllum íslenska skipastóln-
um eða u.þ.b. 73% skipa (560 skip
eru í skipaskrá 1987 skráð 100
rúmlestir eða minni) og er með
þessu námi — skipstjómarprófi 1.
stigs, komið á móts við réttindanám
fyrir stærstan hluta skipaflotans.
Ef tryggt er að grunnnámið er í
traustum höndum er það allt af
hinu góða og eflir mjög efri stig
skipstjómamámsins.
Hvar er nú allt tal um öryggi
sjómanna? Um eða yfir 60% allra
slysa til sjós verða vegna mann-
legra mistaka eftir því sem
skýrslur og rannsóknir leiða í ljós.
Finnst mönnum virkilega ástæða
til í skugga hörmulegra sjóslysa í
desember sl. að draga úr sjómanna-
fræðslunni og þá sérstaklega námi
farmanna, þar sem við höfum t.d.
ekki getað framfylgt ennþá öllum
alþjóðlegum samþykktum, t.d. um
leit og björgun o.fl., vegna þess að
námstími er of stuttur?
Á Alþingi er nú komið_ fram
stjomarfrumvarp um aðild íslands
að Alþjóðasamþykkt um þjálfun,
skírteini og varðstöðu sjómanna á
kaupskipum, sem öll nágrannaríki
eru aðilar að (STCW-1978). Þegar
íslendingar eru orðnir aðilar verður
skylt að fylgja ákvæðum þessarar
samþykktar í námi farmanna.
Þegar sjóslysin verða spyijum við
sem störfum hér við Stýrimanna-
skólann okkun Hvað getum við
gert með aukinni fræðslu og þekk-
ingu til að koma í veg fyrir slíkt?
Hefur eitthvað bmgðist í okkar
kennslu?
Þrátt fyrir þessar staðreyndir er
ekkert samráð haft við Stýrimanna-
skólann, þegar heimild er veitt fyrir
umfangsmikilli breytingu á skipu-
lagi skipstjómarfræðslunnar. Skól-
inn hefur í nær 100 ár verið
höfuðstofnun sjómannafræðslu í
landinu.
Ég tel ákvörðun menntamála-
ráðuneytisins og nefndar á Dalvík
um að á staðnum sé ekkert því til
fyrirstöðu að kenna undir skip-
stjómarpróf 2. stigs, af því að þar
sé góð aðstaða til að taka á móti
nemendum, „fjölbreytt útgerð og
vinnsla á staðnum", lýsa vanmati á
ábyrgð og þeim störfíim sem stigið
veitir réttindi til og ennfremur van-
þekkingu á námskröfum til skip-
stjómarprófs 2. stigs, sem m.a.
veitir farmannaréttindi.
Ég álít aftur á móti að Dalvík
sé staður sem er mjög vel til þess
fallinn vegna aðstöðu og útgerðar
frá bænum til að hafa á hendi
kennslu í fyrstu stigum skipstjóm-
amámsins á Norðurlandi og í
grunnnámi sjómanna og físk-
vinnslufræðslu.
Hið háa Alþingi hlýtur að verða
að samþykkja lög eða hafa um það
að segja, hvort eigi að koma á fót
2. stigs skipstjómamámi annars
staðar en við þá tvo stýrimanna-
skóla sem fyrir em i landinu. Ég
álít að það myndi veikja þá skóla,
hugsanlega útþynna námið og
draga úr öryggi skipa og allra sæ-
farenda. Minna má á alþjóðasam-
þykktir, sem heimila nágrannaþjóð-
um að stöðva skip í höfnum sínum,
ef þau uppfylla ekki skilyrði um
menntun yfír- og undirmanna eða
annað það sem varðar öryggi skips-
ins.
Höfundur er skólastjóri Stýri-
mannaskólans iReykjavík.
Ennþá nokkur ár
í steríósjónvarp
STEFNT er að sjónvarpi í steríó á næstu árum þótt ekki sé hægt
að segja nákvæmlega til um hvenær af því getur orðið. Sjónvarps-
merkið, eins og það nú er, flytur aðeins eina talrás, en til þess að
hægt sé að senda út í steríó, þarf tvær talrásir.
Að sögn Eyjólfs Valdemarssonar
yfírverkfræðings hjá Ríkisútvarp-
inu hefur ekki ennþá verið hannað
kerfí til steríósendinga, sem sam-
þykkt hefur verið alþjóðlega. Til-
raunir standa yfír í Englandi og í
Svíþjóð viðvíkjandi stöðluðu sjón-
varpskerfi í steríó sem byggir á
stafrænni tækni og binda Evrópu-
löndin vonir sínar við það. Það hefði
þó í för með sér að fólk þyrfti að
fá sér ný sjónvarpstæki svo það
geti náð steríóútsendingum.
Þjóðveijar hafa um nokkurra ára
skeið sent út sjónvarpsefni í steríó,
en þetta þýska kerfí hefur ekki
fengið alþjóðlega vinurkenningu
þar sem hljóðrásimar hafa ekki
þótt sýna nógu mikla einangrun á
milli sín, en hugmyndin er að með
steríósjónvarpi verði jafnvel hægt
að senda út sitthvort tungumálið á
hljóðrásunum.
„Málið er í biðstöðu núna og við
gerum ekkert í því fyrr en þessi
alþjóðlega stöðlun liggur fyrir. Við
notum nú örbylgjusambandið til að
flytja báðar hljóðvarpsrásir, Rásir
1 og 2, um landið í steríó, en höfum
yfír fímm hljóðrásum að ráða, sú
fimmta er fyrir sjónvarpið," sagði
Eyjólfur Valdemarsson.
FALLEGIR FATASKÁPAR Á
SÉRSTAKLEGA GÓÐU VERÐI
Viðja býður nú nýja gerð af fataskápum sem settir eru
saman úr einingum eftir óskum viðskiptavinanna sjálfra
Dæmi um verö pr. einingu:
197 cm háir skápar með sléttum hurðum
breidd 40cm-frákr. 6.400.-
breidd 80cm-frákr. 9.850.-
breidd 100 cm - frá kr. 10.760.-
197 cm háir skápar með fræstum hurðum
(sjá mynd)
breidd 40cm-frákr. 8.850.-
breidd 80 cm - frá kr. 14.750,-
breidd 100 cm - frá kr. 16.060,-
Trésmiðjan Viðja hóf nýlega framleiðslu á
vönduðum og sterkum fataskápum sem eru
afrakstur áralangrar þróunar og reynslu
starfsmanna fyrirtækisins. Þeir byggjast á
einingakerfi sem gerir kaupendunum kleift að
ráða stærð, innréttingum og útliti, innan
ákveðinna marka.
Hægt er að fá skápana í beyki, eik eða hvítu,
með sléttum hurðum. Auk þess eru hvítu
skáparnir fáanlegir með fræstum hurðum
(sjá mynd). Einingaskáparnir frá Viðju eru
auðveldir í uppsetningu og hafa nánastóend-
anlega uppröðunar- og innréttingamöguleika.
Þeir einkennast af góðri nútímalegri hönnun
og sígildu útliti sem stenst tímans tönn.
Stærðir:
hæð: 197 cm eða 247 cm
breidd: 40 cm - 50 cm - 60 cm o.s.frv.
dýpt: 60 cm.
20% útborgun
12 mánaða
greiðslukjör.
þar sem
góðu kaupin
gerast.
ísraels — í sólina
Jerúsalem - Betlehem - Hebron - Dauðahafið - Massada - Jeríkó - Nazaret
- Kapernaum - Golanhæðir - Akkó - Haifa - Netanya - Tel Aviv - Jaffa.
Láttu drauminn rætast. Þægileg þriggja vikna ferð til Landsins helga þar sem leitast verður við
að sameina skoðunarferð á fræga sögustaði og hvíldarferð á yndislega strönd Miðjarðarhafs-
ins. Dvalið verður 7 daga í Jerúsalem, 3 daga í Tíberías á strönd Genesaretvatns og 8 daga á
einni bestu baðströnd landsins, Netanya. 2 dagar í London á heimleið. Góð 3ja til 4ra stjörnu
hótel með morgunverði. Skoðunarferðir innifaldar í verði.
verSf59.18oo,ai' Notið þetta einstaka tækifæri
MeAalfjöldi sóiardaga I mal 30 dagar.
Meöalhiti 26-32 stlg.
Fararstjórar: Hrefna Pétursdóttir og Práinn Þorleifsson,
formaóur félagsins fsland—fsrael.
Ferðaskrifstofa Snorrabraut 27-29, sími 26100
augljós