Morgunblaðið - 12.03.1987, Page 36

Morgunblaðið - 12.03.1987, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987 Plnrgiw Útgefandi onliljifeife I Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö Óleyfileg efni 1 matvælum Frá því var greint hér í blaðinu á sunnudaginn, að Hollustuvemd ríkisins hefði kært tvö fyrirtæki vegna ólöglegra efna í matvælum, sem þau framleiða. Annað fyrirtækið hafði notað ofnæm- isvaldandi efni við gerð hamborgara og hitt hafði sett rotvamarefnið hexa í kavíar. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem skýrt er frá notkun óæski- legra aukaefna í íslensk matvæli. Rifja má upp deil- umar um notkun fúkkalyfla í kjúklingafóður fyrir nokkmm árum. Öm Bjamason, forstjóri Hollustuvemdar ríkisins, seg- ir í samtali við Morgunblaðið á þriðjudaginn, að það heyri þó til undantekninga að íslensk fyrirtæki séu kærð fyrir að nota óleyfileg efni í matvæli. Matvæiaiðnaður hér á landi uppfylli að jafnaði sett skilyrði. Þetta eru að sjálf- sögðu ánægjulegar fréttir. Hitt má ekki gleymast, að hver mistök, sem gerð eru, geta verið óhemju dýrkeypt innanlands og utan. Fyrir- tæki, sem notar óleyfileg efni í matvæli, veldur ekki aðeins sjálfu sér og kaupendum vör- unnar skaða, heldur veldur það öðrum fyrirtækjum og matvælamarkaðnum í heild tjóni. Mikilvægt er að hafa í huga, að neytendur em nán- ast vamarlausir gagnvart þeim vömm, sem þeir kaupa. Þeir verða að treysta því, að upplýsingar, sem þeir fá um gæði vöm, séu á rökum reist- ar og almennum og opin- bemm hollustureglum sé fylgt í hvívetna við framleiðsluna. Þetta leggur mikla ábyrgð á herðar framleiðenda, ábyrgð sem þeir verða að gera sér afar skýra grein fyrir. Mat- vælaframleiðendur, sem sýna kæmleysi eða em berir að vanþekkingu um þessi efni, misbjóða neytendum og þar með starfsgrundvelli sínum. Reglur um þessi efni þurfa að vera skýrar, afdráttar- lausar og óvægnar. Jafnframt verður vitaskuld að gæta fyllstu sanngimi, enda getur margt orkað tvímælis á þessu sviði og einhlítar, fræðilegar niðurstöður ekki alltaf fyrir hendi. Á síðari ámm má heita að orðið hafi vakning á Vestur- löndum um heilbrigði og hollustuvemd. Þekking á efnasamsetningu matvæla hefur líka aukist og matvæla- rannsóknir em orðnar að virðulegri háskólagrein víða um lönd, þ. á m. við Háskóla íslands. Þessari framvindu ber að fagna. Neysla hollrar fæðu ræður úrslitum um líkamlega velferð fólks, og oftar en ekki hina andlegu velferð einnig. Þekking á efnasamsetningu matvæla þarf að aukast meðal almenn- ings og fyrirtæki, sem fram- leiða matvæli, eiga að gera sér það að metnaðarmáli, að veita neytendum sem ýtarleg- astar upplýsingar um innihald þeirra og notkunarmöguleika. I þessu efni hafa einnig orðið miklar framfarir á síðustu ámm, en mikið verk er samt óunnið. Fáar þjóðir ættu í rauninni að gera sér jafn vel grein fyr- ir því og við íslendingar, hve mikilvægt er, að matvæli, sem boðin em til sölu, séu úr bestu fáanlegu hráefnum og í þeim séu ekki aukaefni, sem geta valdið neytendum heilsutjóni. Við eigum allt okkar undir því, að fískurinn, sem við veið- um, og fiskafurðimar, sem við vinnum, seljist á erlendum mörkuðum. Orðstír okkar sem matvælaframleiðenda er góð- ur og fyrir vikið höfum við fengið hærra verð fyrir vömr okkur en margir keppinaut- anna. Það þarf enginn að velkjast í vafa um það, hvaða afleiðingar það hefði, ef í Ijós kæmi, að við væmm orðnir kæmlausir um gæði þessa vamings. Á stuttum tíma myndi það leiða til verðhmns á erlendum mörkuðum og í kjölfarið lífskjarahmns á Is- landi. Til allrar hamingju em þess fá dæmi að íslenskir út- flytjendur hafí bmgðist því trausti, sem þeim er sýnt, og enginn ástæða er til að ætla, að á því verði breyting. Af því megum við að sönnu vera hreykin. En þegar matvæli em annars vegar má ekki tefla í neina óvissu og nauð- synlegt er að vera sífellt vakandi á verðinum, enda er matur mannsins megin. • • Oryggismá Evrópu í deigli eftir Matthías Á. Mathiesen Fundur þeirra Ronalds Reagan, for- seta Bandaríkjanna, og Mikhails S. Gorbachevs, aðalritara sovéska kommúnistaflokksins, í Reykjavík sl. haust, var tvímælalaust einn merkasti atburður á sviði alþjóðamála á síðast- liðnu ári. Það hefur komið í ljós, að á fundinum var lagður grunnur að samkomulagi um tvö meginsvið við- ræðna risaveldanna í Genf um takmörkun vígbúnaðar, en í þeim við- ræðum er rætt um meðaldrægar kjamaflaugar, langdræg kjamavopn og geimvamir. Niðurstaða fundarins var í sem stystu máli eftirfarandi: 1) Leiðtogamir voru sammála um, að á næstu fimm árum ætti að fækka langdrægum kjamavopnum um helming. Þeir urðu ásáttir um há- mark 6.000 kjarnaodda í lang- drægum skotkerfum, sem ekki mættu vera fleiri en 1.600 talsins. 2) Þá urðu þeir ásáttir um geysimikla fækkun meðaldrægra kjama- flauga. Þannig skyldu leyfðir 100 kjamaoddar í slíkum sovéskum flaugum í Asíu (af gerðinni SS-20) og 100 í Bandaríkjunum, en engar í Evrópu. 3) Leiðtogamir ræddu einnig bann við kjamavopnatilraunum þótt ekki næðist samkomulag. 4) Þeir virtust vera á sama máli um, að virða samninginn frá 1972 um takmörkun gagneldflauga (ABM- samninginn) næstu 10 árin, þótt þeir túlki hann á mismunandi hátt og Bandaríkjamenn hafí ítrekað ásetning sinn að halda áfram rann- sóknum og þróun geimvama, sem þeir segjast geta stundað án þess að bijóta í bága við þann samning. Ágreiningur leiðtoganna tveggja var fyrst og fremst um geimvamir. Reagan samþykkti, að geimvarnakerfí skyldi ekki tekið í notkun í 10 ár, en á sama tíma yrði langdrægum kjama- eldflaugúm útrýmt. Gorbachev gat fallist á 10 ára takmörkunina, en gerði jafnframt þá kröfu, að rannsóknir á og tilraunir með geimvamakerfi færu eingöngu fram í rannsóknastofum. Samkomulag þar að lútandi var einnig gert að skilyrði fyrir samningum á öðmm sviðum afvopnunarmála. Útrýming- meðal- drægra kjarnaflauga? Undanfama daga hafa borist fregn- ir af tilslökunum Sovétmanna í viðræðum risaveldanna. Hafa þeir lýst sig reiðubúna að gera samkomulag um útrýmingu meðaldrægra kjama- flauga úr Evrópu (svokallaðar Evrópu- flaugar) óháð því hvort Bandaríkja- menn halda áfram tilraunum sínum með geimvamir. Þá hafa Sovétmenn einnig lýst sig reiðubúna að koma til móts við kröfur Bandaríkjamanna varðandi gagnkvæmt og raunhæft eftirlit með framkvæmd samninga um þetta efni. Ef þessar yfírlýsingar ganga fram við samningaborðið í Genf má búast við að skriður komist á viðræður risa- veldanna og að samkomulag um útrýmingu meðaldrægra kjamaflauga geti litið dagsins ljós á næstu mánuð- um. Samkomulag um þetta efni myndi tvímælalaust verða til góðs og draga úr spennu milli Austurs og Vesturs. Á meðan gengið er úr skugga um friðarvilja Sovétmanna er óráðlegt að hafast nokkuð það að er spillt getur fyrir árangri á sviði afvopnunar. Það er þannig mikilvægt að tilraunir með geimvamakerfi fari fram innan marka hinnar þröngu túlkunar ABM-samn- ingsins frá 1972, en sá samningur setur kjamorkuvömum þröngar skorður. En hver yrðu áhrif samkomulagsins um útrýmingu meðaldrægra kjama- flauga? Það er t.d. ljóst, að slíkt samkomulag hefði áhrif á hugmyndina um kjamavopnalaust svæði á Norður- löndum. Mun ég víkja nánar að því hér á eftir. Áður hyggst ég fara nokkr- um orðum um deilumar varðandi meðaldræg kjamavopn í Evrópu. Sovétmenn rösk- uöujafnvæginu Ágreiningurinn um Evrópuflaug- amar hefur staðið nær óslitið síðan árið 1977, en það ár hófu Sovétmenn að endumýja eldri og ófullkomnari kjamaflaugar með hinum hámá- kvæmu og ógnvekjandi SS-20-flaug- um. Á örfáum ámm komu þeir fyrir hundmðum slíkra flauga í nágrenni Evrópu. í þeim em þrír kjamaoddar og hefur hver um sig u.þ.b. sjöfaldan sprengikraft Hiroshima-sprengjunnar. Þær geta farið allt að 5.000 km vega- lengd og því hæft skotmörk í öllum ríkjum Vestur-Evrópu. Mönnum á Vesturlöndum hraus vitaskuld hugur við þessari ógn, þar sem hún bættist við yfírburði Rauða hersins á sviði hefðbundins vígbúnað- ar í álfunni. Með uppsetningu SS-20- flauganna röskuðu Sovétmenn því jafnvægi, sem eigi að síður hafði náðst í samskiptum Austurs og Vesturs um miðjan síðasta áratug. Þjóðir Vestur- Evrópu gátu ekki látið slíkt óátalið. Að frumkvæði Vestur-Þjóðverja samþykktu ríki Atlantshafsbandalags- ins í desember 1979 að koma fyrir bandarískum Pershing Il-flaugum og stýriflaugum í fímm ríkjum Vestur- Evrópu. Tilgangurinn var að koma á jafnvægi í þessum efnum. Á sama tíma var ákveðið að Bandaríkjamenn byðu Sovétmönnum til viðræðna um takmörkun meðaldrægra kjama- flauga. Ríki Atlantshafsbandalagsins hétu að hefja ekki uppsetningu slíkra flauga næstu fjögur ár svo svigrúm fengist til viðræðna og við það var staðið. Hinar svonefndu INF-viðræður hó- fust síðan í Genf árið 1981. Þá kom fyrst fram hugmyndin um „núll- lausn", en hún fólst í því að Banda- ríkjamenn buðust til þess að falla frá uppsetningu Pershing II og stýriflaug- anna ef Sovétmenn eyðilegðu SS-20- flaugamar. Sovétmenn höfnuðu þessu tilboði. Þegar svo ljóst varð að til uppsetningar kæmi gengu Sovétmenn frá samningaborðinu í Genf. Þeir von- uðust til þess að áróður „friðarhreyf- inga“ í vestrænum fíölmiðlum myndi hefta framgang áætlunar Atlants- hafsbandalagsins. Þeim varð ekki að ósk sinni og eftir að uppsetning hófst afréðu þeir að ganga til samninga á ný- Ef samkomulag næst um útrým- ingu meðaldrægra flauga úr Evrópu hefur það þannig tekið ein sex ár að sannfæra Sovétmenn um gildi þess að draga úr vígbúnaði á þessu sviði. Sá árangur yrði þá til kominn einung- is vegna samstöðu ríkja Atlantshafs- bandalagsins um að vega upp yfírburði Sovétmanna. Þetta ætti að vera íhug- unarefni fyrir þá sem á sínum tíma börðust gegn þeirri ákvörðun. Kjarnavopna- laust svæöi Ég gat þess hér að framan að hugs- anlegt samkomulag um útrýmingu meðaldrægra kjamaflauga úr Evrópu hefði áhrif á hugmyndina um kjama- vopnalaust svæði á Norðurlöndum. Sú hugmynd hefur verið á dagskrá funda norrænna utanríkisráðherra síðan árið 1981 þrátt fyrir að um það hafí verið óformlegt samkomulag allt frá árinu 1951, að öryggis- og vamarmál væm utan norræns samstarfs. Norðurlöndin höfðu líka valið sér ólíkar leiðir í þeim málaflokkum. Það mun hafa verið Uhro Kekk- onen, fyrmm forseti Finnlands, sem fyrstur hreyfði þessu máli fyrir um aldarfjórðungi, en hugmyndin fékk Matthías Á. Mathiesen „Á þeim fundum nor- rænna utanríkisráð- herra sem ég- hef setið hef égtalið óraunhæft að hefja undirbúning að stofnun kjarnavopna- lauss svæðis nema tekið sé tillit til þeirra svæða þar sem kjarnavopn eru til staðar. Ekki hafa allir ráðherrarnir verið á sama máli og hafa sumir þeirrat.d. viljað undan- skilja hafsvæðin um- __ hverfis Norðurlönd. Ég get varla ímyndað mér að nokkur Islendingur geti fallist á slíkt.“ byr undir báða vængi vegna uppsetn- ingar Evrópuflauganna. I stuttu máli felur hún það í sér að löndin fímm lýsi því yfír að þau muni aldrei grípa til kjamavopna hvorki til árásar né til vamar og leyfí ekki staðsetningu slíkra vopna á landsvæðum sínum. Trygging risaveldanna yrði fengin fyrir því að þau muni virða svæðið og gerður um það sérstakur milliríkja- samningur. Ólafur Jóhannesson var utanríkis- ráðherra þegar hugmyndin kom fram á fundum norrænna utanríkisráðherra í upphafí þessa áratugs. Hann lýsti skoðun sinni í skýrslu til Alþingis árið 1982: Hugmyndina um kjamavopna- laust svæði í Evrópu má vissulega ræða nánar. Að því er norðurhluta Evrópú varðar hlýtur þó að vera alveg ljóst að ekki er unnt að líta framhjá þeirri staðreynd að kjama- vopn em til staðar í stómm stíl í næsta nágrenni við Norðurlönd. Á það ekki síst við um víghreiður Sovétríkjanna á Kolaskaga og svo Eystrasaltið, eins og kjamavopna- kafbátur Sovétmanna, sem rak á fjörur Svía, færði okkur áþreifan- lega heim sanninn um. Það á við um ísland eins og önn- ur Norðurlönd að þar em engin kjamavopn og steftia stjómvalda er að slík vopn verði þar ekki. Form- legur milliríkjasamningur varðandi þau málefni hlýtur því eingöngu að koma til greina í víðara samhengi þar sem fjallað er um raunvemlega tryggingu þjóða Evrópu fyrir auknu öryggi- Ólafur Jóhannesson taldi að kjama- vopnalaust svæði væri því aðeins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.