Morgunblaðið - 12.03.1987, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
Á FYRRI landsleiknum við Júgóslava voru fyrstu vinningsbílarnir,
Fiat Uno, i bílahappdrætti Handknattleikssambands íslands afhent-
ir. Þegar hafa niu bílar gengið út. Meðfylgjandi mynd er af nokkrum
hinna heppnu vinningshafa ásamt Lárusi Halldórssyni frá Sveini
Egilssyni hf., Fiat-umboðinu, og Jóni Hjaltalín Magnússyni formanni
HSÍ. HSÍ þakkar hinum fjölmörgu sem tóku þátt í happdrættinu
fyrir stuðninginn.
beitarstöðva, sem haldinn var í félagsheimili Stangaveiðifélags
Reykjavíkur síðastliðinn laugardag.
Aðalfundur Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva:
Jónas Matthíasson
kosinn formaður
JÓNAS Matthíasson verkfræðing-
ur (Fiskeldi Grindavíkur) var
kosinn formaður Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva á
*• aðalfundi sambandsins sem hald-
inn var á laugardag. Jón Sveins-
son rafverktaki (Lárós) gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Á aðal-
fundinum var rætt um stefnu
Landssambandsins varðandi lög
um fiskeldi sem verið er að semja
á vegum forsætisráðherra. í
tengslum við aðalfundinn voru
haldnar ráðstefnur um rannsókn-
ir, markaðsmál og rekstur í
fiskeldi, og stóðu þær í þrjá daga.
Á aðalfundinum flutti Jón Sveins-
son, fráfarandi formaður, skýrslu um
störf stjómarinnar á liðnu starfsári.
Haldnir voru 23 stjómarfundir og var
meðal annars talsvert fjallað um laga-
setningu um flskeldi. Jón sagði að
lagabreytingar eða ný lög hefðu ekki
náð fram að ganga, og gæti það
ekki gengið lengur. Stjómin hefur
ráðið framkvæmdastjóra, sem tók til
starfa um síðustu áramót. Er það
Friðrik Sigurðsson sjávarlíffræðingur
og er skrifstofa hans hjá Hafrann-
sóknastofnun að Skúlagötu 4. Jón
vonaðist til að starf LFH yrði mark-
vissara og meiri festa í því við tilkomu
starfsmannsins.
Lögum LFH var breytt á fundinum
þannig að aðildarfyrirtækin greiða
mishátt félagsgjald og hafa atkvæðis-
rétt eftir því. Fyrir fundinn voru lögð
drög að stefnu Landssambands flsk-
eldis- og hafbeitarstöðva vegna laga
um fiskeldi sem nú er verið að und-
irbúa. Fundurinn ályktaði ekki um
þetta mál, en fyrirhugað er að gera
það síðar. í drögunum er lagt til að
sjávarútvegsráðuneytið fari með yflr-
stjóm fískeldismála í landinu, en
fiskirækt í ám og vötnum, til viðhalds
'ifríkis þeirra, heyri þó áfram undir
Jónas Matthíasson, nýkjörinn
formaður LFH.
landbúnaðarráðuneytið.
í drögunum segir að flskeldi skuli
vera fijáls atvinnugrein, sem ekki
lúti öðrum reglum en landslög kveða
á um. Tilkoma nýrra stöðva skuli
vera frjáls, svo fremi sem þær skerði
ekki afkomu þeirra stöðva sem fyrir
eru. Gerð er tillaga um Qarlægð á
milli stöðva. Einnig er fjallað um
rannsóknir, flsksjúkdóma og slátrun
og gæðaeftirlit. Þessi stefnumörkun
var ekki afgreidd á fúndinum eins
og að framan greinir.
Með Jónasi Matthíassyni f sljóm
LFH em: Jón Þórðarson (íslandslax),
Jón Stefánsson (Hólalax), Jón G.
Gunnlaugsson (Sjóeldi) og Páll Gúst-
afsson (ISNÓ). Ur stjóm gengu, auk
Jóns Sveinssonar, Róbert Pétursson
(Pólarlax), Gunnar Helgi Hálfdánar-
son (Vogalax) og Siguijón Davíðsson
(Lax). Jón Sveinsson og Róbert Pét-
ursson voru kosnir f varastjóm og
Svanur Guðmundsson (Snælax).
V estmannaeyjar:
Ráðheira boðar 3 mílna
landhelgi við Heimaey
Vestmannaeyjum.
HALLÐÓR Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra lýsti því yfir á
almennum stjórnmálafundi í
Vestmannaeyjum um helgina að
hann myndi fljótlega nota heim-
ild í lögum til að banna togveiðar
innan þriggja mUna marka við
Heimaey. Um timabundið bann
yrði að ræða meðan beðið væri
umsagnar Hafrannsóknastofn-
„Það er yfírgnæfandi meirihluti
Eyjamanna þessu meðmæltur og
þá einnig sjómenn sem myndu í
bili tapa á þessu. Það sjá það allir
að það er gífurlegt atriði fyrir
framtíð Eyjanna og atvinnuöryggi
hér að fískimiðin kringum Eyjar
verði skynsamlega nýtt.“ Magnús
sagði ennfremur að nú væri tíma-
bært að huga að því hvort ekki
væri mögulegt að rækta upp þessi
gömlu fískimið sem núna eru meira
og minna ónýt vegna rányrkju fyrri
ára. Hafði Magnús þá í huga að
sleppa á þessi fyrrum gjöfulu mið
fímm mánaða gömlum þorskseiðum
í stórum stíl en vísindamenn í Nor-
egi eru með áætlanir um slíkar
framkvæmdir á lokastigi.
— hkj.
unar, en að fengnu áliti hennar
væri unnt. að banna togveiðar
innan þriggja mflna markanna
Frá vinstri: Séra Sigurður H. Guðmundsson, stjórnarformaður Skjóls,
Erla Björnsdóttir, Sigurlin Gunnarsdóttir, Valborg Bentsdóttir, Elin
Sigurvinsdóttir, formaður Sóroptimistaklúbbs Reykjavikur, Björg
Gunnlaugsdóttir og dr. Sigrún Klara Hannesdóttir.
Soroptímistar gefa
Skjóli 2 miljónir
ótimabundið.
Með lögum frá 1976 var bátum
allt að 26 metrum að lengd heimil-
að að stunda togveiðar upp að
fjöruborði við Vestmannaeyjar, þótt
víðast hvar við landið séu togveiðar
með öllu bannaðar innan þriggja
míla marka.
Undanfarin ár hefur óánægja
með þetta fyrirkomulag farið ört
vaxandi í Eyjum og margir telja
að um mikla rányrkju sé að ræða.
Mörg gömul og fræg fiskimið við
Eyjar eru nú físklaus og er óhófleg-
um togveiðum að hluta til kennt
um. Ekki eru þó allir á einu máli
hvað þetta varðar.
Atvinnumálanefnd, undir forystu
Magnúsar H. Magnússonar, tók
þetta mál upp í sumar sem leið og
hélt marga fundi með hagsmunaað-
ilum til að ná sem mestri samstöðu
um málið. Lagði nefndin tillögur
fyrir bæjarstjóm sem meðal annars
fólu í sér að sett yrði reglugerð sem
bannaði allar veiðar með flotvörpu
og botnvörpu, aðrar en humartroll,
í þriggja sjómflna fjarlægð frá
fjöruborði Heimaeyjar. Þó fái
heimabátar með minni en 400 hest-
afla aðalvél undanþágu frá þessu
banni tfmabilið frá 1. febrúar til
31. ágúst ár hvert fram til ársloka
1988.
Þessar tillögur atvinnumála-
nefndar vom samþykktar einróma
í bæjarstjóm og sendar sjávarút-
vegsráðuneytinu. Var ekki annað á
ráðherra að heyra á fundinum um
helgina en hann hefði fullan skiln-
ing á þeim atriðum öllum sem fram
komu í tillögum Vestmanneyinga.
Magnús H. Magnússon var
spurður hvort samstaða væri hjá
Eyjamönnum með að taka upp
þriggja mflna landhelgi við Eyjar.
SKJÓLI, umönnunar- og hjúk-
runarheimili fyrir aldraða sem f
byggingu er í Laugarási, hefur
borist gjöf frá Soroptimistaklúbb
Rt'ykjavíkur að verðmæti 2 millj-
ónir króna. Gjöfinni er ætlað að
standa straum af hreinlætis- og
þvottakerfi í fyrsta áfanga heim-
ilisins ásamt þurrkurum.
Soroptimistaklúbbur Reykjavík-
ur er starfsgreinafélagsskapur 30
kvenna í Reykjavík. Klúbburinn er
fyrsti Soroptimistaklúbburinn sem
stofnaður var á íslandi, en þeir eru
nú 13 á öllu landinu. Félagskonur
safna fé með ýmsum hætti og selja
hluti í líknarskyni. Elín Sigurvins-
dóttir, formaður Sóroptimista-
klúbbs Reykjavíkur afhenti séra
Sigurði H. Guðmundssyni, stjómar-
formanni Skjóls, gjöfína 26. febrú-
ar.
í frétt frá samtökunum er haft
eftir séra Sigurði að áætlanir við
bygginguna hafí staðist og allar
líkur séu til að hefja megi starfsemi
heimilisins í Laugarási um næstu
áramót.
Hótel Örk ekki tíl
skattarannsóknar
- segir Helgi Þór Jónsson, eigandi hótelsins
„HÓTEL Örk er alls ekki til rannsóknar hjá skattrannsóknar-
stjóra, en hins vegar hefur vélaleigan sem ég á verið það, líkt
og fjölmörg önnur fyrirtæki," sagði Helgi Þór Jónsson, eigandi
Hótel Arkar í Hveragerði.
Á þriðjudag birtist frétt á forsí-
ðu Þjóðviljans um að hjá embætti
skattrannsóknarstjóra væri nú
verið að kanna bókhald og fjár-
reiður hótelsins vegna gruns um
söluskattsvik. Einnig væri talið
að tollar og innflutningsgjöld
hefðu ekki verið gerð upp á réttan
hátt. Þá var því einnig haldið fram
að Vélaleiga Helga Þórs Jónsson-
ar væri til rannsóknar þar sem
fylgiskjölum með innflutningi fyr-
irtækisins væri ábótavant og
reikninga vanti.
„Það er bara bull að Hótel Örk
sé undir smásjá, nema átt sé við
smásjá Þjóðviljans. Ekkert það
sem varðar Hótel Örk er hjá skatt-
rannsóknarstjóra, heldur er hér
um að ræða róg manna sem þola
ekki að sjá þegar öðrum gengur
vel í viðskiptum," sagði Helgi
Þór. „Hins vegar er fjöldinn allur
af fyrirtækjum tekinn til rann-
sóknar á ári hveiju og í september
hófst könnun á bókhaldi Vélaleig-
unnar. Ég hef svarað öllum
fyrirspumum embættisins varð-
andi það og ég fullyrði að ekkert
það hefur komið fram sem styður
frétt Þjóðviljans um að fylgislqol-
um sé ábótavant og fleira í þeim
dúr. Þó svo að ég eigi bæði hótel-
ið og vélaleiguna þá er ekki hægt
að setja bæði fyrirtækin undir
sama hatt og slá því fostu að
verið sé að rannsaka bókhald
beggja," sagði Helgi Þór Jónsson.
Guðmundur Guðbjamason,
skattrannsóknarstjóri, kvaðst
ekki geta gefíð neinar upplýsingar
um þau mál sem til rannsóknar
væm hjá embætti hans.
JNNLEINTT
GENGIS-
SKRÁNING
Nr. 48 - 11. mars 1987
Kr. Kr. ToU-
Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 39,270 39,390 39,290
St.pund 62,655 62,847 61,135
Knn.dollari 29,443 29,533 29,478
Dönsk kr. 5,6210 5,6382 5,7128
Norskkr. 5,6208 5,6380 5,6431
Sænskkr. 6,0710 6,0895 6,0929
Fi.mark 8,6393 8,6657 8,7021
Fr.franki 6,3490 6,3684 6,4675
Belg. franki 1,0205 1,0236 1,0400
Sv.franki 25,1304 25,2072 25,5911
HoU. gyUini 18,7013 18,7585 19,0617
V-þ. mark 21,1243 21,1888 21,5294
ít. líra 0,02974 0,02983 0,03028
Austurr. sch. 3,0057 3,0149 3,0612
Port. escudo 0,2765 0,2774 0,2783
Sp.peseti 0,3010 0,3020 0,3056
Jap.yen 0,25562 0,25640 0,25613
Irsktpund 56,584 56,757 57,422
SDR (Sérst.) 49,5113 49,6625 49,7206
ECU.Evrópum. 43,9510 44,0853 44,5313