Morgunblaðið - 12.03.1987, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
67
B.O.B klúbbnum finnst að senda eigi Björgvin Halldórsson sem full
trúa Islands i Eurovision-keppnina í Brussel.
Bjögga til
Brussel
Kæri Velvakandi,
Við viljum endilega koma á fram-
færi í blaðinu okkar skoðun á því
hver eigi að fara fyrir ísiands hönd
í Eurovision-keppnina í Brussel.
Við teljum að eini maðurinn sem
komi til greina sé Björgvin Hall-
dórsson sá frábæri söngvari.
Við teljum að við verðum að
vanda til að þessu sinni og passa
okkur á því klúðri sem viðhafðist í
fyrra.
Björgvin er eini söngvarinn á
Islandi í dag sem hefur að bera
bæði góða rödd, sviðsframkomu og
mikla reynslu í keppnum á erlendri
gnind. Við viljum Björgin í Euro-
vision.
B.O.B. Klúbburinn
1376-4762
Belja rauðar fossamóður
Kæri Þorsteinn.
Ég mátti vita það að óskiljanleg
ljóðlína í tilvitnun í ljóð Jónasar
Hallgrímssonar í Gárupistli mínum
færi ekki fram hjá ljóðavini sem
þér. Að tveir stafir „vö“ komu í
staíð „mó“ kom þó ekki til af því
að ljóðið brenglaðist í minninu —
enda lá ljóðabók Jónasar Hallgríms-
sonar á borðinu meðan skrifað var.
Þar kom tæknin til eða réttara sagt
óðagot við beitingu tækninnar, sem
nú er stór hluti af verki okkar við
að koma texta í blað. Fyrst ekki
virtust margir taka eftir þessu,
ætlaði ég satt að segja að nota
þetta tilefni til að skrifa sérstakar
gárur um blaðamanninn og tæknina
og því var ekki strax sett leiðrétting
í blaðið svo sem venja er.
Svona gerðist slysið: Gáruhöf-
undur var nýbúinn að læra nýja
aðferð við að draga inn línumar og
setja ljóð með ákveðnu letri í texta
sinn með boðum á tölvuna og var
önnum kafínn við að vitna í aðskilj-
anleg ljóð, þegar tvisvar sinnum
birtist skyndilega á skerminum í
miðjum klíðum aðvömnin: Loggið
út, loggið út, kerfíð er að fara út!
Og þá er eins gott að vera fljótur
að bjarga texta sínum í geymslu,
svo hann þurrkist ekki út. Byija svo
aftur þegar kerfíð er komið í lag.
í patinu höfðu puttar Gáruhöfundar
færst til, á tvo vitlausa stafí. Og
þar sem ekki er aðeins búið að
færa setningu textans á tölvu yfír
á blaðamennina sjálfa, heldur líka
prófarkalesturinn, sem fram fer á
skerminum, þá ber Gámhöfundur
sjálfur líka ábyrgð á því að villan
fór alla leið í blaðið. Einn gallinn
við að lesa sjálfur eigin texta er sá
að maður les kunnuglega vísu eins
og maður ætlaði að skrifa hana og
eins og hún á að vera. Sér ekki
orðið eins og það stendur á skermin-
um. Gámhöfundur hefur að auki
alltaf verið vondur prófarkalesari.
Lærði sem bam að gleypa í sig
textana og varð þess svo áþreifan-
lega var 15 ámm seinna, þegar
átti að fara að lesa prófarkir, að
orðin vom ekki lesin aðgreint held-
ur gleyptar heilu setningamar í
einu. Að sjá ekki einstök orð, þegar
lesinn er hratt yfír texti, hefur svo
fylgt mér ef ég ekki gæti að. Oft
hafa prófarkalesarar þessa blaðs
bjargað málum. En nú er engin
björgunarsveit lengur. Sá sem skrif-
ar þarf ekki aðeins að gæta þess
að koma efninu á blað á skiljanlegu
máli, heldur í sama mund að hafa
auga á tækninni — og að sjá svo
sínar eigin villur eins og ókunnugur
maður, sem ekki veit hvað átti þar
að standa.
Þetta em orðin lengri tilskrif en
efni stóðu til. Þau orð þín að þér
sé óskiljanlegt hvemig fossamóður
geta orðið fossavöður krafðist skýr-
ingar, jafnvel þótt hún sé ekki
afsökun.
Nú sendi ég kollega mínum, Vel-
vakanda, þetta vélritað og ber ekki
ábyrgð á framkvæmdinni við að
koma bréfínu á prent. Sé raunar að
í þínu bréfí hefur nafnið Þorsteinn
komið í stað nafns Jónasar (Hall-
grímssonar) í meðfömm og dettur
ekki í hug að þú hafir þar átt hlut
að máli. Einhveqar skýringar em
eflaust til á því sem öðra.
Elín Pálmadóttir
Þessir hringdu . .
Týndi svartri
leðurtösku
Kristín Pálsdóttir hringdi:
Ég týndi svartri ieðurtösku á
Hverfísgötunni fyrir framan
Risið eða á Snorrabrautinni fyr-
ir framan lögreglustöðina
föstudaginn 27. febrúar sl..
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 71354. Fundarlaunum
heitið.
Týndi happ-
drættismiðum
og peningum
Guðrún hringdi:
Sonur minn týndi tveimur
happdrættismiðum, sem við
vom festar með bréfaklemmu
1300 krónur, í Barmahlíð sl.
mánudag. Þetta em happdrætt-
ismiðar frá Blindrafélaginu
númer 19303 og 19304.
Finnandi vinsamlegast fari með
þá til Blindrafélagsins eða hafí
samband í síma 29878.
Frakki tapaðist
á Loftleiðum
Kona hringdi:
Það tapaðist frakki 21. febrú-
ar sl. í fatahengi Hótel Loftleiða.
Tvær lyklakippur vora í vösum.
Vinsamlegast skilið á sama stað.
Á heimilum leynast víða hættur sem fjölskyldan verður
að vera sér meðvitandi um.
Gæta verður þess að höldur o g sköft ílátanna á eldavél-
inni snúi til veggjar, þannig að stuttir handleggir geti
ekki teygt sig í þau og steypt yfir sig sjóðandi og brenn-
heitu innihaldinu.
Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim sem glöddu
mig meÖ heimsóknum, blómum, skeytum og
gjöfum á 90 ára afmœli mínu 1. mars.
Thyra Juul,
Droplaugarstöðum,
Reykjavík.
l '
Innilegt þakklæti til barna minna, tengda-
barna, barnabarna, barnabarnabarna, frænd-
fólks og vina nær og jjœr, sem heiÖruÖu mig
meÖ nœrveru sinni, blómum, gjöfum eÖa skeyt-
um á 90 ára afmæli mínu þann 22. febrúar
sl. og gerÖu mér daginn ógleymanlegan.
GuÖ blessi ykkur.
Margrét J. Hansen,
Víðihvammi 3, Kópavogi.
RAFMOTORAR
Flestar stærðir og gerðir fyrirliggjandi.
Fljót afgreiðsla.
JM' RÖNNING 1:»