Morgunblaðið - 24.03.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJÚDÁGUR 24. MARZ 1987
Nemendur þeyta bíl-
flautur í mótmælaskyni
Nemendur í framhaldsskól-
um hafa ákveðið að þeyta
bílflautur í tvær mínútur í
dag frá klukkan 15 í mót-
mælaskyni við það ástand,
sem skapast hefur vegna
verkfalls kennara.
Það er Félag framhaldsskóla
sem stendur að þessari aðgerð
í því skyni að þrýsta á stjóm-
völd um að koma til móts við
kröfur kennara og leysa deiluna.
Ætla nemendur að þeyta flautur
bifreiða sinna kl. 15, hvar sem
þeir eru staddir.
Heimsókn Stoltenbergs hefst í dag:
Færir Þjóðminjasafn-
inu gamalt íslenzkt
drykkjarhorn að gjöf
THORVALD Stoltenberg, ut-
anríkisráðherra Noregs, hyggst
færa Þjóðminjasafni Islands að
gjöf gamalt, íslenzkt drykkjar-
horn, er hann kemur í opinbera
Grískur
stórpíanisti
GRÍSKI pianóleikarinn Dimitri
Sgouros heldur tónleika á vegum
Tónlistarfélagsins í Austurbæj-
arbíó í kvöld kl. 20.30.
Á efnisskránni eru fjögur verk,
ítalski konsertinn eftir Bach, Sónata
í f-moll, op. 57, Appassionata eftri
Beethoven, Harmonies du Soir eftir
Liszt og Sinfónískar etýður eftir
Schumann. Sgouros, sem er aðeins
17 ára gamall, lék hér á tónleikum
fyrra við mikla hrifningu áheyrenda.
Er hann talinn einn efnilegasti píanó-
leikari heimsins í dag.
heimsókn til íslands i dag. Talið
er, að hornið sé frá því einhvern
tímann á tímabilinu 1450-1600,
en það er silfurslegið og er álit-
ið, að silfurskrautið sé ekki eins
gamalt og hornið sjálft.
Litið er vitað um sögu hornsins
annað en það, að í upphafi síðasta
áratugar komst það í einkaeigu í
Minnesota í Bandaríkjunum. Þang-
að var það selt af vopnasafnara
einum í New York, eftir að hann
uppgötvaði, að þarna var ekki um
púðurhom að ræða.
Drykkjarhomið er 48 sm langt
og fagurlega útskorið með myndum
af frásögnum Gamla testamentis-
ins. Árið 1985 keypti þáverandi
ríkisstjóm borgaraflokkanna í Nor-
egi hornið fyrir 80.000 n. kr. (um
450.000 ísl. kr.) af hinum banda-
ríska eiganda þess með það í huga
að gefa Islendingum það við viðeig-
andi tækifæri.
Morgunblaðið/Júlíus
Isknattleikur
á Tjörninni
VORJAFNDÆGUR voru síðastliðinn laugardag og er
dagnrinn því orðinn lengri en nóttin. Dagurinn heldur
áfram að vinna tíma af nóttunni og fagna börnin því.
Þessir strákar voru í ísknattleik á Reykjavíkurtjörn I
gær og virðast bara bera sig nokkuð fagmannlega að.
Drukknaði í
Isafjarðarhöfn
ísafirði.
SKIPVERJI af rækjutogaranum
Hersi frá Hafnarfirði drukknaði
í höfninni á Isafirði aðfaranótt
laugardags.
Að sögn Jónasar Eyjólfssonar,
yfirlögregluþjóns á Ísafírði, leitaði
skipstjóri togarans til lögreglunnar
að kvöldi laugardags, en þá höfðu
skipverjar grennslast fyrir um fé-
laga sinn þegar hann var ekki
kominn um borð á fótaferðartíma
um morguninn. Vitað var að hann
hafði farið frá borði milli kl. 4 og
5 um morguninn og ætlaði þá að
heimsækja kunningja sinn á togar-
anum Runólfí, sem lá á öðrum stað
í höfninni. Hann kom aldrei þangað
og er það álit lögreglunnar að hann
hafi fallið milli skips og bryggju
þegar hann ætlaði í land.
Skömmu eftir að skipstjórinn
leitaði til lögreglunnar hafði hún
samband við forráðamenn björgun-
arsveitanna á ísafirði og var
skipulögð leit hafin upp úr mið-
nætti aðfaranótt sunnudags og
leitað fram eftir nóttu. Með birtingu
voru fullmannaðar sveitir slysa-
vamafélagsins og hjálparsveita
skáta ásamt froskköfurum teknar
til starfa og um kl. 10.30 um morg-
uninn fannst lík mannsins á reki í
höfninni, ekki langt frá Hersi.
Maðurinn sem lést hét Sölvi Ing-
ólfsson, tæplega 29 ára að aldri,
búsettur í Hafnarfirði. Hann var
ókvæntur.
Snjókoma, mikil hálka og leið-
indaveður var þegar slysið átti sér
stað. v
Úlfar
Sölvi Ingólfsson
Slitnað upp úr samningaviðræðum kennara og ríkisins:
Yerkfall út vikuna þýðir að
önnin er nemendum ónýt
- segir Kristján Thorlacius formaður HIK
Samningaviðræðum Hins íslenska kennarafélags og ríkisins var
frestað um óákveðinn tíma í gær eftir stuttan samningafund, og
eru báðir aðilar mjög vondaufir um að samningar náist á næst-
unni. Hið sama er að segja um viðræður ríkisins og háskólamennt-
aðra hjúkrunarfræðinga en í þeirri deilu var haldinn stuttur
fundur sem lauk án þess að annar væri boðaður. Verkfall kennara
í framhaldsskólum hefur nú staðið á aðra viku og að sögn Kristj-
áns Thorlacius formanns HÍK er líklegt að standi verkfallið út
þessa viku verði þessi önn nemendum í framhaldsskólum ónýt.
Hið íslenska kennarafélag hélt
blaðamannafund í gær eftir að
slitnað hafði upp úr samningavið-
ræðum. Þar skýrðu forustumenn
félagsins sjónarmið samninga-
nefndarinnar. Kristján Thorlacius
formaður HIK rakti fyrst sögu
samningaviðræðnanna og benti á
að í úrskurði kjaradóms árið 1986
hefði verið talað um að samnings-
aðilar yrðu sjálfir að leiðrétta
þann mismun sem væri á kjörum
háskólamenntaðra manna á al-
mennum vinnumarkaði og hjá
ríkinu en miðað var við að sá
munur væri 30%. Það væri krafa
félagsins að í þessum samningum
verði stigið stórt skref til að jafna
þennan kjaramun.
Á fundinum kom fram að HÍK
hefði gert kröfu um að lágmarks-
laun byijenda með full réttindi
hækkuðu um 48% á tveimur árum
og sú krafa hefði verið lækkuð í
36%. Kristján sagði að frá því
samningaviðræður hófust við ríkið
í bytjun mars hefðu samninga-
fundirnir gengið þannig fyrir sig
að tilboð samninganefndar ríkis-
ins hefði sífellt verið það sama í
mismunandi útfærslum. Aðeins
hefði verið breytt dagsetningum
á þessum tveggja ára tíma og
tekið úr einum vasanum og fært
í hinn.
Heimir Pálsson varaformaður
HÍK sagði að í síðasta tilboði ríkis-
ins hefði verið talað um að hækka
lágmarkslaun mest, eða upp í
38.835 krónur, en taka þær
hækkanir af öðrum greiðslum sem
kennarar fá utan við taxtann. Það
hefði til dæmis verið talað um
greiðslur fyrir yfirferð verkefna,
tækjavörslu og fleira í þeim dúr.
í tilboðinu hefði jafnvel falist
lækkun heildarlauna hjá sumum.
Heimir sagði að um síðustu
helgi hefði komið upp hugmynd
um endurskoðun alls launakerfis
kennara á öllu tveggja ára tíma-
bilinu. Þessari hugmynd hefði
verið tekið með jákvæðum huga
og kennarar talið að þarna væri
opnuð leið út úr þessum samning-
um í raunverulega kennarasamn-
inga. Stðan hefði strandað á
sjálfum launaliðnum. Heimir
sagði að kennarar hefðu farið á
fund bæði fjármála- og mennta-
málaráðherra og svo hefði virst
að þar ríkti einlægur vilji til að
leysa deiluna og sérstaklega hefðu
þeir mætt skilnin.gi hjá mennta-
málaráðherra. „Hinsvegar sjáum
við ekki á samninganefnd ríkisins
að sá skilningur nái lengra. Þar
gerist nákvæmlega ekki neitt.
Samninganefnd ríkisins kemur til
leiks með ákveðinn gefinn ramma
og utan hans er ekki hægt að
ræða. Til þess að leysa þessa
kjaradeilu þarf pólitískan vilja og
við bíðum eftir að sá vilji sýni sig
í verki,“ sagði Heimir Pálsson.
Indriði H. Þorláksson formaður
samninganefndar ríkisins sagði í
samtali við Morgunblaðið að þeg-
ar verkfall var boðað og viðræð-
urnar hófust hefði samninga-
nefndin ekki talið vera tíma til
mikils reiptogs í viðræðunum. Því
hefðu þeir möguleikar, sem voru
til samninga að mati nefndarinn-
ar, verið lagðir mjög opið á borðið.
Síðan hefði verið rætt á þeim
grundvelli um samning á sömu
nótum, og þó aðeins hærri, og við
aðra ríkisstarfsmenn.
Þegar Indriði var spurður um
niðurstöðu kjaradóms og áhrif
hans á samningaviðræðurnar
sagði.hann að meðallaun á síðasta
ári til framhaldsskólakennara
hefðu verið 70-75 þúsund krónur.
I kjaradómi hefði verið tekið fram
að nauðsynlegt væri að færa
aukagreiðslur inn í föstu mánað-
arlaunin. Tillögur ríkisins hefðu
lotið að því en kennarar hefðu
sett sig á móti breytingunum.
Indriði sagði að í upphafi hefðu
kennarar lagt fram kröfu sem
þýddi 50-60% launahækkun. Þeg-
ar hreyfing komst á viðræðurnar
um síðustu helgi og komist hafði
verið niður á umræðugrundvöll
um hvernig staðið skyldi að úttekt
á vinnutíma hefðu kennarar kom-
ið með 47-48% hækkunarkröfu á
launin. „Þeir meta þennan árang-
ur sem náðist í öðrum málum um
helgina nákvæmlega einskis. Það
verður því að draga þá ályktun
að þarna ráði ferðinni menn sem
ekki vilja semja,“ sagði Indriði
H. Þorláksson.