Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 ■V 34 Noregur: Mikilvægur tækni- búnaður seldur til Sovétríkjanna? Ósló. AP. TALSMAÐUR norska utanríkisráðuneytisins hefur staðfest, að yfirvöldin séu að rannsaka hvort norsk vopnaverksmiðja, Kongs- berg Vaapenfabrikk, hafi selt mikilvægan hertæknibúnað til Sovétríkjanna. „Norska lögreglan og fulltrúar nokkurra ráðuneyta hafa unnið að þessari rannsókn í nokkrar vik- ur,“ sagði Per Paust, talsmaður utanríkisráðuneytisins. í yfirlýs- ingu frá bandaríska hermálaráðu- neytinu á föstudag sagði, að bandaríska vamarmálaráðuneytið ynni að þessari rannsókn í .sam- vinnu við Norðmenn og við Japani einnig á japanska fyrirtækinu Tos- hiba. Helstu framleiðsluvörur KF eru til almennra nota, gashverflar, siglingakerfi alls konar, tölvukerfi og búnaður fyrir olíuborpallana, en hertæknibúnaður verksmiðj- anna er m.a. hlutar í flugvélar, flugskeyti, byssur og ýmis vopna- kerfi. Haft er eftir heimildum í Banda- ríkjunum, að búnaðurinn, sem seldur var til Sovétríkjanna, hefði gert Sovétmönnum kleift að fram- leiða hljóðlausa kafbáta, búa þannig um hnútana, að skrúfu- hljóðið hyrfi að mestu. Norska sjónvarpið flutti líka þá frétt, að áður hefðu sérfræðingar Atlants- hafsbandalagsins getað fylgst með sovéskum kafbátum í 100 mílna fjarlægð en nú væri sú vegalengd komin niður í fimm mílur. Jens-Christian With, markaðs- stjóri fyrirtækisins, sem opnaði söluskrifstofu í Moskvu í október sl., sagði, að fyrirtækið hefði feng- ið útflutningsleyfi fyrir allri sölu til Sovétríkjanna. Johan Jörgen Holst, varnarmálaráðherra Nor- egs, sepr, að þetta mál sé „mjög alvarlegt" og að athugað verði sérstaklega hvort þörf sé á að herða reglur um veitingu útflutn- ingsleyfa. 25 ára afmæli Helsinki-samningsins Þess var minnst alls staðar á Norðurlöndunum í gær, að 25 ár voru liðin frá því að Helsinki-samning- urinn svonefndi var undirritaður. Með samningnum var lagður formlegur grundvöllur að samstarfí þjóð- þinga og ríkisstjóma Norðurlandanna. Eins og nafnið gefur til kynna fór undirritunin fram í Helsinki, höfuðborg Finnalnds. Myndin sýnir, þegar Bjarni Benediktsson, ritaði undir samninginn fyrir Islands hönd. Viðskiptastríði Banda- ríkjanna og Japans spáð Taupo, Nýja-Sjálandi, Reuter. CLAYTON Yeutter, aðstoðarvið- skiptaráðherra Bandaríkjanna, sagði i gær, að Bandaríkin og Japan stæðu nú andspænis mikilli deilu sín i milli i viðskiptamálum. Sagði Yeutter þetta við frétta- Kína: 15.400 manns fengu eitrun vegna mengun- ar í drykkj- arvatni Peking. Reuter. YFIR 15.400 ibúar Shanxi-héraðs í Norður-Kína fengu eitrun, eftir að efni frá áburðarverksmiðju komst í á, sem drykkjarvatn er sótt í. Að því er dagblað stjórnarinnar sagði lést enginn af völdum eitrun- arinnar, en þúsundir manna hefðu kvartað um höfuðverk, magakvalir og niðurgang. Atvik þetta átti sér stað í Zhangzi-sýslu í janúarmán- uði. Blaðið sagði, að embættismenn, sem borið hefðu ábyrgð á óhappinu, yrðu ákærðir og dregnir fyrir rétt. Ekki gat blaðið, hvaða embættis- menn ættu þarna í hlut. menn í Nýja-Sjálandi, en þar stendur nú yfir tveggja daga fundur viðskiptaráðherra margra helztu iðnríkja heims. Markmiðið með þessum fundi er að undirbúa umfangsmikla ráð- stefnu um tolla og viðskipti á vegum GATT. Verður hún haldin í Feneyj- um í júní nk. og á að verða framhald af ráðstefnu samtakanna í Úruguay í september í fyrra. Yeutter gekk svo langt að segja að „viðskiptastríð" við Japan væri yfirvofandi, en dró svo í land með það orð. Hann sagði, að legið hefði við viðskiptastríði milli Banda- ríkjanna og Evrópubandalagsins fyrir skömmu út af kornsölu til Spánar. „Við erum mjög nálægt því að vera í svipaðri aðstöðu nú gagn- vart Japan,“ bætti hann við. Yeutter nefndi þrjú atriði, sem Bandaríkjamenn væru einkum óán- ægðir með nú. í fyrsta lagi væru það hömlur Japana á verzlun með hálfleiðara. í öðru lagi væri það neikvæð afstaða japanskra stjórn- valda gagnvart því, að opinberar stofnanir í Japan keyptu til sinna nota samtengdar tölvur og annan dýran tölvuútbúnað í Bandaríkjun- um. í þriðja lagi þá væru bandarísk fyrirtæki útilokuð frá þátttöku í smíði Kansai-flugallarins í grennd við Osaka. Á fundinum í gær skoraði Mike Moore, viðskiptaráðherra Nýja-Sjá- lands, á starfsbræður sína frá yfir 20 löndum, sem þama eru mættir, að gera allt til_ þess að leysa ágrein- ingsmál sín. Útilokað væri að gera sér fulla grein fyrir því tjóni, sem af því hlytist, ef enginn árangur næðist á fyrirhugaðri ráðstefna í Feneyjum. Hún kynni að verða sú síðasta sinnar tegundar á þesari öld. Reuter Corazon Aquino, forseti Filippseyja, veitir Fidel Ramos, yfirmanni hersins, æðstu viðurkenningu, sem veitt er hermanni þar í landi. Myndin var tekin í herskólanum í Baguio á sunnudag. Aukin spenna færist í stjórnmál í Bretlandi St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. EFTIR að fjárlög voru lögð fram fyrir viku, hefur spenna aukist í breskum stjórnmálum. Margaret Thatcher forsætisráðherra og Nor- man Tebbit, formaður íhaldsflokksins, hafa ráðist harkalega að stjómarandstöðunni. Skoðanakannanir gefa íhaldsflokknum ömggt forskot, en em mótsagnakenndar. Sprengjutilræðið í herskólanum: Yfirmaður úr filippíska hernum tekinn höndum Manila, Reuter, AP. FORINGI úr filippiska hernum var handtekinn i gær og sakaður um að hafa verið viðriðinn sprengjutilræði í herskólanum í Bagu- io. Corazon Aquino, forseti Filippseyja, hefur sagt að tilræðið hafi beinst gegn sér. Fidel Ramos, yfirmaður hersins, kvaðst hafa fyrirskipað að maður- inn yrði handtekinn eftir að handsprengjur og skotfæri fundust á heimili hans. Rannsóknarlögregl- an sagði að yfirmaðurinn væri kennari við herskólann og vanur að umgangast sprengiefni og skot- vopn. Ramos sagði að yfirmaðurinn hefði verið undir eftirliti síðan hann var yfirheyrður eftir sprenginguna. Ramos sagði að aðrar kenningar um sprenginguna hefðu ekki verið afskrifaðar. Grunur hefur beinst að skæruliðum kommúnista, en Nýi þjóðarherinn kveðst alsaklaus af verknaðinum. Fjórir létust og ljörutíu særðust í sprengingu í herskólanum á mið- vikudag. Stórt svið, þar sem Aquino átti að koma fram á sunnu- dag, eyðilagðist. Forsetinn hélt engu að síður til herskólans um helgina til að vera viðstödd út- skrift herrnanna og veitti hún Ramosi við það tækifæri heiðurs- viðurkenningu. Á Qölmennum miðstjórnarfundi Íhaldsflokksins í Torquay um helgina sagði Thatcher, að markmið vamar- málastefnu flokksins væri sterkt Bretland, sem gæti samið við Gorbachev. „Við metum hagsmuni okkar í ljósi gerða, en ekki orða, ekki í ljósi ásetnings eða loforða, heldur athafna og árangurs." Það gæti Verkamannaflokkurinn ekki gert. Hún réðst harkalega á öfgatil- hneigingar innan Verkamanna- flokksins, sem hún sagði vera andstæðan vonum og draumum venjulegs fólks. Bandalagið væri í rauninni ekki annað en nýr sósíal- istaflokkur, sem hefði einungis hálfvelgjuna umfram þann gamla. Norman Tebbit réðst harkalega á Bandalagið í ræðu, sem hann flutti á fundinum daginn áður. Hann kall- aði Bandalagið „Litlu gulu hættuna", en það hefur eignað sér gula litinn í kosningabaráttunni. Þrjár skoðanakannanir um fylgi flokkanna birtust um helgina. Kann- anir í Sunday Times og Observer gáfu sömu niðurstöðu: íhaldsflokkur- inn fékk 39%, Verkamannaflokkur- inn 33% og Bandalagið 26%. Skoðanakönnun í Sunday Telegraph sagði fylgið vera nú: Ihaldsflokkur- inn 38,5%, Bandalagið 30,5% og Verkamannaflokkurinn 30%. Þessi skoðanakönnun var gerð áður en fjárlög voru lögð fram og rétt eftir sigur Bandalagsins í aukakosningun- um í Trurq. Niðurstöðurnar í Sunday Times og Observer gæfu íhaldsflokknum aðeins 10 sæta meirihluta í neðri deild breska þingsins. Þær valda ráð- herrum þungum áhyggjum vegna styrks Bandalagsins. Verkamanna- flokkurinn er samkvæmt þessum könnunum í verulegum vandræðum, vegna þess að ýmis stefnumál hans njóta ekki fylgis kjósenda og traust á Neil Kinnock, leiðtoga hans, fer dvínandi. Viðbrögð við fjárlögunum virðast engu breyta um fylgi flokkanna og hafa ekki enn að minnsta kosti kom- ið íhaldsflokknum til góða. i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.