Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 Nígería heitir hraðari greiðslu skreiðarskulda Skuldirnar nema hundruðum millióna króna ÁHRIFAMENN í nígerskum bönkum og viðskiptaráðuneytinu hafa iieitið þvi, að leggja sig fram við að flýta greiðslum á skuldum þeirra vegna skreiðar- kaupa héðan af Islandi. Það byggist þó á því, að gjaldeyris- staða landsins batni og efnabag- ur lagist. Nigeríumenn skulda okkur nú hundruðir milljóna vegna skreiðarsölu þangað. Þess- ar upplýsingar komu fram í för íslenzkrar sendinefndar undir forystu Olafs Egilssonar sendi- herra til Nigeriu í síðustu viku. „Við ræddum við háttsetta embætt- ismenn í viðskiptaráðuneytinu og viðskiptadeild utanríkisráðuneytis- ins,“ sagði Ólafur Egilsson í samt.ali við Morgunblaðið. „Ennfremur átt- um við við varaforstjóra Seðlabanka Nígéríu og stjórnendur viðskipta- banka þeirra, sem fara með skreið- arviðskipti okkar og Nígeríumanna. Málin skýrðust varðandi útistand- andi skuldir okkar í Nígeríu og ljóst er að greiðsla á sumum þeirra bíður aðeins þess, að gjaldeyrisstaða landsins batni. Þá má gera ráð fyr- ir útgáfu skuldabréfa vegna annarra skulda, strax og útgáfa slíkra skuldbréfa hefst að nýju. Eitthvað af skuldunum á þó lengra í land og þurfa sérstaka meðferð. Því var heitið við okkur, að menn myndu leggja sig fram um að greiða götu þessara mála eftir því, sem erfiðar efnahagsástæður leyfðu. Reiknað var með úr rættist í kjölfar núverandi efnahagsráðstafana, sem eru um sumt svipaðar þeim ráðstöf- unum, sem gerðar voru hér á landi um 1960. Hvað varðar sölu á skreið nú, kynnti nefndin sér stöðu þeirra mála, sem nú er unnið að. Þau eru flókin vegna viðvarandi viðskipta- hátta og ýmisa ágreiningsefna, sem stafa af vanefndum á sölusamning- um. Þó virtist horfa betur með lausn sumra þeirra mála en á tímabili og álitið er að skreiðarverkendur heima geti fengið fullt eða sæmilegt verð fyrir skreiðina, ef ekki koma upp nýjar og óvæntar hindranir. Annars er ekki hægt að gera nán- ari grein fyrir málum að svo stöddu, þar sem ráðuneytum og hagsmuna- aðiljum á íslandi hefur ekki verið skýrt fyllilega frá gangi mála,“ sagði Ólafur Egilsson, sendiherra. I/EÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi í gœr: Á sunnanverðu Grænlandshafi er 982 millibara djúp lægð sem þokast austur. Skammt norður af Færeyj- um er önnur lægð, 995 millibara djúp, sem hreyfist hægt norður og grynnist. SPÁ: Austanátt verður ríkjandi, víða allhvasst (7 vindstig) um vest- anvert landið en kaldi (5 vindstig) um landið austanvert. Slydduél við norðausturströndina en skúrir eða slydduél við suðurströndina og vestur um Vestfirði. Hiti á bilinu 0 til 4 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Austan- og norðaustanátt og víðast frost á bilinu 1 til 5 stig. Él um austan- og vestanvert landið en bjart veður suðvestanlands. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y. Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir El Þoka Þokumóða Súld Mistur Skafrenningur Þrumuveður V y ? 5 5 oo 4 K VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri hiti 1 veður úrkoma í gr. Reykjavik 2 léttskýjað Bergen 4 hálfskýjað Helsinki 1 skýjað Jan Mayen 1 snjóél Kaupmannah. 4 léttskýjað Narssarssuaq -13 skýjað Nuuk -16 léttskýjað Osló 2 úrkomaígr. Stokkhólmur 1 snjókoma Þórshöfn 4 skýjað Algarve 17 léttskýjað Amsterdam 8 rigning Aþena 16 alskýjað Barcelona 14 mlstur Berlín 8 skýjað Chicago 6 skýjað Glasgow Feneyjar 13 vantar heiðskírt Frankfurt 6 rigning Hamborg 4 rigning Las Palmas London 10 vantar rigning Los Angeles 9 léttskýjað Lúxemborg 6 rigning Madríd 13 hálfskýjað Malaga 17 léttskýjað Mallorca 16 iéttskýjað Miami 18 alskýjað Montreal 2 láttskýjað New York 8 léttskýjað París 9 rigning Róm 17 léttskýjað Vin 8 léttskýjað Washington 5 heiðskírt Winnipeg 0 skýjað Ásdís Pétursdóttir við verðlaunamynd sína. Margrét Tryggvadóttir við verðlaunamynd sina. Gullverðlaun til Myndlista- skólans í Reykja vík MYNDLISTASKÓLINN í Reykjavík tók í vetur þátt í svokölluðum alþjóðlegum grafikbiennal barna í Torun í Póllandi. Þetta var 5. grafík- tvíæringurinn í Torun, en er þekktur fyrir gæði og góða skipulagningu. Þrettán íslensk börn í Myndlistarskólanum í Reykjavík sendu inn til sýning- ar dúkskurðarmyndir unnar undir handleiðslu Margrétar Friðbergsdóttur myndmennta- kennara. Alls bárust til sýningar á níunda þúsund myndir frá 534 listaskólum og stofnunum í 32 löndum, allt frá Afganistan til Argentínu. Af öllum þeim fjölda barna sem sendu inn myndir hlutu níu börn gullverðlaun (grand price) þar af tvær íslenskar stúlk- ur þær Ásdís Pétursdóttir 14 ára og Margrét Tryggvadóttir 13 ára. Af áðurnefndum rúmlega 500 listaskólum og stofnunum var Myndlistaskólinn einn af þremur útvöldum til gullverðlauna. Unnið að lausn hval- kjötsins í Hamborg LÖGFRÆÐINGUR Eimskips í Hamborg og starfsmenn félags- ins vinna nú að því að leysa íslenska hvalkjötið úr farbanni hafnaryfirvalda í Hamborg. Hafnaryfirvöld fengn í gær afrit af farmskrá og farmbréfi, þar sem skýrt kemur fram að í gám- unum er frosið hvalkjöt. Þá hefur verið óskað eftir að Hvalur hf. útvegi útflutningsleyfi og sendi út. Eimskipsmenn segja að hafnar- yfirvöld hafi ekki sýnt fram á að óheimilt sé að umskipa hvalkjöti í fríhöfninni, án þess að hafa sérstök skjöl. Þá hafi Eimskipsmenn ekki heldur fengið úr því skorið ná- kvæmlega hvaða skjöl þurfi að leggja fram ef sérstakar reglur eru taldar gilda um þessa vöru. Ekki er komið að því að hvalkjötsgám- arnir sjö fari í skip á leið til Japans, og er talið líklegt að málið leysist áður en til þess kemur, þannig að áætlun standist. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., sagði að frá árinu 1975 hefði Hvalur hf. flutt rúm 20 þúsund tonn af hvalkjöti um Hamborgar- höfn og væri sama orðalag búið að vera á farmskjölum allan þennan tíma. Þar kæmi skýrt fram að í gámunum væri frosið hvalkjöt. N or ður landsvegur í Reykjadal: Tilboð Sniðils 67% af áætlun SNIÐILL hf. í Mývatnssveit átti lægsta tilboðið í lagningu 2,9 km af Norðurlandsvegi í Reykjadal, sem Vegagerðin bauð út fyrir skömmu. Tilboð Sniðils var 6.919 þúsund krónur, sem er 67% af kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar. Vegagerðin hefur einnig opnað tilboð í landgræðslu 1987—88. Út- boðinu er skipt eftir kjördæmum. Allmörg tilboð bárust og voru lægstu tilboð í öllum tilvikum tölu- vert undir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar, þau lægstu vel innan við helming áætlunarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.