Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 47 Eastwood sem Highway liðþjálfi. Grár og grautfúll en aldrei betri. Gustar af Grána Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson LIÐÞJÁLFINN - HEART- BREAK RIDGE ☆ ☆ ☆ Leikstjóri og framleiðandi: Clint Eastwood. Handrit: James Cara- batos. Myndatökustjóri: Jack H. Reen. Tónlist: Lennie Niehaus. Aðalleikendur: Clint Eastwood, Marsha Mason, Everett McGill, Melvin Van Peebles, Moses Gunn, Eileen Heckart, Bo Svenson. Bandarísk. Warner Bros 1986. í landgönguliði flotans, US Mari- nes, safnast harðjaxlar og hörkutól sem gangast undir einhverja ströngustu þjálfun sem um getur. Enda eins gott. Þetta er mannskap- ui'inn sem er í fylkingarbijósti á stríðstímum, gerir strandhögg og nær fótfestunni fyrir þá sem eftir koma — ef þeir hafa betur. Eitthvað þykir handritshöfundi Heartbreake Ridge þjálfunin hafa farið úrskeiðis á undangengnum friðartímum, því myndin er, fyrir utan mikið skemmtigildi og dulítinn áróður, gagnrýni á agaleysi og sof- andahátt á varðstöðu sóknar- broddsins. Eastwood leikur járnkarl af gamla skólanum. Sjóaðan stríðshest úr bardögunum í Kóreu og Viet- Nam. Með lengri feril að baki og fleiri medalíur á brjósti en flestir aðrir. Gallharður gagnvart sjálfum sér sem öðrum. Stríðsmaður í orðs- ins fyllstu merkingu. En síðari árin hefur karl engin tækifæri fengið til að fá útrás á vígstöðvunum svo hann hefur skapað sér þær sjálfur í drykkjuslugsi á öldurhúsum. En nú er komið að tímamótum í lífi þessa gallharða, grautfúla hörkukjafts, því þrátt fyrir að eng- inn fái bugað hann, kemur hann ekki Elli kerlingu undir og eftirlaun í sjónmáli. Hann kýs að ljúka hcr- skyldunni þar sem hann hóf feril sinn — í þjálfunarbúðum land- göngusveitanna í Suður-Karólínu. Þegar þangað kemur er margt breytt frá því sem áður var. Yfir- mennirnir annaðhvort reynslulausir kjaftaskar eða döngunarlitlir skóla- strákar. Hinir óbreyttu agalaus skrill. Hér er því nóg að starfa fyr- ir gamlan stríðsjálk. Eastwood fær það hlutverk að þjálfa njósnasveit og fylgir þeirri einu, sönnu grundvallarreglu að menn hans séu ætíð reiðubúnir að berjast í alvöru. Sú afstaða er hins vegar nokkuð tekin að rykfalla hjá hinum reynslulausu skólabókar- offísérum. Og síðan, þegar kallið kemur óvænt frá Grenada, dylst það heldur engum hver það er sem kann best til verka í bláköldum raunveruleikanum. Þar sannast mönnum að reynsla og þjálfun gamla atvinnujálksins var það sem réð úrslitum. Það gustar svo sannarlega af Eastwood að þessu sinni og ekkert spursmál að Heartbreak Ridge er hvort tveggja eitt hans besta leik- stjórnarverk og Highway liðþjálfi eftirminnilegasta persónan sem hann hefur skapað á tjaldinu — að Dirty Harry meðtöldum. Eastwood kemur til dyranna eins og hann er klæddur; farinn að grána, kominn bersýnilega yfir blómaskeiðið en sjálfsvirðingin óskert. Þá hefur karl tamið sér viskíráma rustarödd sem hæfir vel hlutverkinu. Það er engin tilviljun að manni hættir við að bera Eastwood saman við þá föllnu kempu John Wayne. Fyrir utan það að vera sífellt ódrepandi vinsælir báðir tveir standa þeir í myndum sínum fyrir mörgu því besta í bandarískum einstaklingum og þjóðlífi, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Krafturinn, skop- skynið og óýkt fasið, á hverju sem gengur, fléttast saman í það töfra- efni sem gerir leikarann að stjörnu. Og undir niðri slær náttúrlega gull- hjartað! Það er ánægjulegt til þess að vita að eiga karla eins og þá til að stytta okkur stundir. Leikstjóm- in er röggsamleg, einkar kraftmikil og í anda hinna gömlu, sönnu stríðsmynda, víðsfjarri öllum rambóórum. Handritið er einnig vellukkaður kapítuli. Með ólíkindum hvernig tekist hefur til að hnoða saman argasta klámi, bölvi og svívirðing- um linnulaust frá upphafi til enda, með þeim árangri að áhorfendur eru lengsc af tárfellandi af hlátri. I Liðþjálfanum em menn dæma- laust orðljótir. Þrátt fyrir ádeilinn undirtón og godblessamerica er myndin fýrst og fremst skemmti- efni og vellukkuð sem slík. Hins vegar hefði að ósekju mátt fara minna fyrir föðurlandsástarmóður- sýkinni, sem er leiðinlega áberandi undir lokin. Ekki má gleyma Melvin Van Pebbles, eldhressum í hlutverki pönkara frá New York, æjatolla rokksins, sem endar sem verðandi stríðsjálkur. Tæknivinnan er vönd- uð, sem við er að búast, og tónlistin og hljóðsetningin eins og best verð- ur á kosið. Og að hætti margra, kunnra forvera sinna í kvikmyndum frá vesturálfu, fylgir hinn einstaki Clint Eastwood elskunni sinni inn í sólsetrið í myndlok. Hann dvelur þar vonandi ekki lengi. BLAÐAFULLTRÚAR FORSVARSMENN FYRIRTÆKJA „Að koma skoðunum sínum á framfæri" Magnús Bjarnfreösson / Björn Vignir Sigurpálsson / Vilhelm G. Kristinsson / SAMSKIPTI VID FJÖLMIDLA f nútímaþjóðfélagi getur skipt sköpum fyrir fyrirtæki, stofnanir og félög að forsvarsmenn þeirra geti komið skoðunum sínum áframfæri í fjölmiðlum. Til þess þurfa þeir að þekkja fjöl- miðlun, uppbyggingu og starfshætti fjölmiðla og umfram allt að kunna að koma siónarmið- um sínum á framfæri á þann hátt að þau veki eftirtekt. Á þessu námskeiði verður farið yfir þessi atriði og leiðbeint um undirstöðuatriðin í að koma upplýsingum á framfæri bæði I rituðu og töluðu máli. Meðal annars gefst þátttakend- um kostur á að spreyta sig fyrir framan sjón- varpsvél. A Stjómunarfélag íslands Ánanaustum 15 • Simi. 6210 66 Markmið: Að þátttakendur verði betur í stakk búnirtil að hafa samskipti við fjölmiðla, að koma sjónarmiðum sínum á framfæri viö þá og meta hvar og hvernig það á að gera. Efni: — Starfsemi hljóðvarps og sjónvarps — Dagblöð og tímarit — Gerð fréttatilkynninga — Blaðamannafundir — Samskipti við blaða- og fréttamenn — Framkoma í sjónvarpi og útvarpi Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað öllum forsvars- mönnum fyrirtækja, stofnana og félaga og öðrum þeim sem bera ábyrgð á almenningstengslum. Leiðbeinendur: Magnús Bjarnfreðsson og Vilhelm G. Kristinsson — starfsmenn Kynningarþjónustunnar sf. og Björn Vignir Sigurpálsson, blm. Morgunblaðinu, allir með margra ára reynslu á flestum sviðum fjölmiðl- unar. Tími og staður: 2.-3. apríl kl. 9.00-17.00. Ananaustum 15. Námseininaar: 1,1. MÖGULEIKAR FYRIR UNGLINGA í Gráfeldi bjóðast nú ótal spennandi og líflegir möguleikar í unglingaherbergið. Samstæður f rá Lundia ; rúm.'hillur, skrifborð, stólar o.m.fl. - allt í stíl og ótal litum t.d. svart og hvítt eða rautt og hvítt, eða sá litur sem þú helst kýst. Verið tímanlega á ferðinni því stórhátíðar nálgast óðum. GRÁFELDUR HF. BORGARTÚNI 28 P^|A SÍMI 91-62 32 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.