Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
Séð yfir hluta af nýju saumastofu Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi
Morgunblaðið/Þorkell
Leikfélag Reykjavíkur:
Saumastofan flutt
í Borgarleikhús
Una Collins, sem hannar búninga fyrir Óánægjukórinn, leitar að
viðeigandi hatti fyrir Guðrúnu Asmundsdóttur
ÓÐUM styttist í það að Leik-
félag Reykjavíkur taki við
Borgarleikhsinu. Nú þegar er
byijað að flytja starfsemi fé-
lagsins i húsið og hefur sauma-
og búningadeildin hreiðrað um
sig í því plássi sem fyrir hana
var hugsað. Saumastofan er á
neðstu hæð hússins og leit blaða-
jjiiaður Morgunblaðsins við þar
einn morguninn og spjallaði við
Kristínu Guðjónsdóttur, sauma-
konu um þær breytingar sem
flutningurinn hefur í för með
sér.
„Við fluttum hingað um síðustu
mánaðarmót" sagði Kristín. „Þá
höfðum við um tíma verið í litlu
herbergi á efstu hæð með sauma-
vélarnar, vegna þess að þegar Iðnó
brann í fyrra, misstum við aðstöð-
una þar. Þetta er um það bil fjórum
sinnum meira pláss heldur en við
höfðum niðurfrá. Þá miða ég bara
SIEMENS i
*
z
Fjölhæf hrærivél frá SÍGfflGflS
Blandari, grænmetiskvörn og hakkavél fylgja með!
•Allt á einum armi.
• Hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar,
rífur, hakkar og sker — bæði fljótt og vel.
• ítarlegur leiðarvísir á íslensku.
xr
Smith & IMorland
Nóatúni 4 — s. 28300
Öll aðstaða til mátunar hefur stórbatnað. Hér er Kristín, sauma-
kona, að máta búning á Guðrúnu Ásmundsdóttur fyrir næsta verkefni
Leikfélags Reykjavíkur, Óánægjukórinn.
Frumvarpi um líf-
eyrissjóði mótmælt
ÞING Landssambands lögreglu-
manna var haldið fimmtudaginn
12. mars sl. á þinginu var sam-
þykkt einróma eftirfarandi
ályktun varðandi lífeyrismál
opinberra starfsmanna:
„Þing Landssambands lögreglu-
manna, haldið 12. mars 1987,
mótmælir mjög eindregið þeirri
aðför að kjörum og réttindum opin-
berra starfsmanna, sem felst í
frumvarpi til laga um starfsemi
lífeyrissjóða, sem lífeyrisnefnd Al-
þýðusambandsins, Vinnuveitenda-
sambandsins og fleiri hafa lagt
fram í endurskoðunamefnd lífeyr-
ismála.
Frumvarp þetta gerir ráð fyrir
verulegri skerðingu á þeim réttind-
um, sem opinberir starfsmenn hafa
áunnið sér með áratuga baráttu
og þurft að greiða fyrir með lak-
ari launakjörum.
Þingið skorar á alla launamenn
landsins og samtök þeirra að hefla
sókn til framfara í lífeyrismálum
landsmanna og samræma lífeyris-
kjör alls launafólks því sem betra
er.
Þingið skorar á stjóm BSRB og
öll aðildarfélög bandalagsins að
standa fast á rétti opinberra starfs-
manna í lífeyrismálum."
Eitt af því sem bætir aðstöðu
sauma— og búningadeildar til
muna, er stórt og rúmgott
þvottahús
við saumastofuna sjáifa, fyrir utan
þvottahúsið og annað sem fylgir
hér, eins og aðstaða til mátunar
búninga.
Hér er mjög góð aðstaða til mát-
unar. Hana höfum við ekki haft
áður. En þótt við séum búin að
flytja saumastofuna sjálfa hingað,
erum við ekki alveg búin að koma
okkur fyrir. Til dæmis verður bún-
ingageymslan hér uppi á 4. hæð.
Reykjavíkurborg er með það her-
bergi í notkun núna, en við fáum
það fljótlega. Það er mjög gott her-
bergi, með góðum gluggum, en það
er nauðsynlegt á búningageysmlu,
því fötin safna miklu ryki. Síðan
verður lyfta hér í húsinu, svo mað-
ur getur bara rennt fatarekkum inn
í hana og komið með búningana
hingað niður.
Síðan við fluttum höfum við ve-
rið alveg á kafi að sauma búninga
fyrir „Oánægjukórinn," en það er
næsta verkefni Leikfélagsins. Við
höfum því ekki haft tíma til að
skipuleggja starfsemina hér neitt
að ráði. En við búumst við að bún-
ingamir verði allir tilbúnir eftir tíu
daga og þá ætla ég að snúa mér
alfarið að því að taka upp búninga
og koma þeim fyrir og ákveða hvar
og hvernig ég vil hafa hlutina hér.“
Hvað vinna margir á saumastof-
unni?
„Ég er nú ein fastráðin hér, en
við erum venjulega tvær, því ég hef
leyfi til að ráða manneskju með
mér þegar mikið er að gera. Sýning-
ar eru það margar á leikárinu, að
það er full þörf á tveimur sauma-
konum allan veturinn og Hulda
Guðmundsdóttir hefur starfað hér
með mér. Nú hefur verið aiveg sérs-
taklega mikið álag, það eru miklir
búningar í Óánægjukómum og við
höfum fengið Ingibjörgu Ástvalds-
dóttur okkur til aðstoðar. Annars
held ég að gert sé ráð fyrir því að
hér verði níu saumakonur þegar
Borgarleikhúsið tekur til starfa.
Það er reiknað með að starfsemi
Leikfélagsins verði öll komin hingað
eftir tvö ár og þá ætti saumastofan
og búningaaðstaðan að vera komin
í fastar skorður." sagði Kristín að
lokum.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans!____________x