Morgunblaðið - 24.03.1987, Side 32

Morgunblaðið - 24.03.1987, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 Tilraun til valda- ráns í Sierra Leone Margaret Thatcher og Francois Mitterrand á fundinum i Benouville-kastala. Frakkland: ítreka afstöðuna til kj arnorkuheraflans Freetown, Reuter. Hersveitir hliðhollar Joseph Momoh, forseta Afríkuríkisins Sierra Leone, brutu í gær valda- ránstilraun á bak aftur, að því er haft var eftir heimildarmönn- um úr stjórn landsins. Heimildarmennimir sögðu að svo virtist sem háttsettir lögreglufor- ingjar hefðu staðið að baki valda- ránstilrauninni og komið hefði til skotbardaga í vesturhluta höfuð- borgarinnar, Freetown. Flugrallið París- Peking-París: Smáþota með forystu fyrir lokaáfangann Amman, Reuter. SMÁÞOTA af gerðinni Microjet vann kappflugið frá Bombay til Amman, sem er hluti af flugrall- inu frá París til Peking og til baka. Er smáþotan með forystu í keppninni ásamt gamalli og hægfleygri flugvél af gerðinni Wassmer-421. Smáþotan var tæpar 18 stundir frá Bombay til Amman en sá áfangi var 2.260 sjómílna, eða 4.185 kíló- metra, langur. Flugmenn þotunnar heita Raymond Michel og Remy Grasset. Vegna mótvinds flugu þeir þotunni í aðeins 10 metra hæð leið- ina yfir Indlandshafið. Sautján flugvélar eru enn í keppninni, en tvær voru ekki komn- ar til Amman á sunnudag vegna bilana. Lentu þær í Abu Dhabi. Síðasti áfangi flugsins er frá Amman til Parísar en millilent verð- ur í Rómaborg. Vegalengdin, sem flugvélarnar leggja að baki í rall- inu, er 35.000 kílómetrar. Lagt verður af stað frá Amman til París- ar í dag, þriðjudag, en áður munu flugmennirnir þiggja boð hjá Hus- sein konungi. Opinberir fjölmiðlar hafa ekki greint frá atburðinum. Sagði að gerð hefði verið mis- heppnuð árás á vopnabúr hersins í Freetown og bílstjóri lögreglufor- ingja eins hefði verið skotinn til bana í átökunum. Háttsettur lögregluþjónn var handtekinn, grunaður um að vera leiðtogi uppreisnarmanna, að því er hermt var innan lögrelugnnar. Sagði að nafn mannsins væri Jos- eph Kai Kai, lögreglustjóri í New-England-hverfí í Freetown. Hann og bróðir hans voru settir í handjárn í höfuðstöðvum lögregl- unnar í Freetown. Einnig er hafin leit að öðrum háttsettum lögreglu- foringjum, sem grunaðir eru um að hafa tekið þátt í valdaránstil- rauninni. Lögregla og hermenn fóru eftir- litsferðir í miðborg Freetown og mátti ekki greina frekari ummerki um ólgu. Momoh forseti kvaddi yfirmenn lögreglu og hers á sinn fund í gær- morgun, að sögn heimildarmanna innan stjórnarinnar. Momoh, sem var eitt sinn yfirmaður hersins, tók við völdum í þessari fyrrum nýlendu Breta árið 1985. Margir íbúar Sierra Leone von- uðu að honum tækist að blása lífi í efnahag þjóðarinnar og ræta upp spillingu, sem var landlæg í vald- atíð forvera hans Siaka Stevens. En þær vonir dvínuðu fljótt og hef- ur óánægja yfír áframhaldandi spillingu og bágum efnahag vaxið. Námsmannaóeirðir brutust út fyrr á þessu ári vegna matar- skömmtunar. Verðlag hefur rokið upp síðan ákveðið var í júní í fyrra að hafa gengi gjaldmiðils iandsins fljótandi og skortur er á erlendum gjaldeyri og eldsneyti. I síðustu viku lögðust ferðir almenningsvagna nánast niður vegna eldsneytis- skortsins. Eins flokks kerfi hefur verið í Sierra Leone síðan 1973. Stevens fór frá í nóvember 1985 eftir að hafa setið við stjómvölinn í 17 ár. Hann var þá 83 ára gamall. Benouville, Frakklandi. Reuter. LEIÐTOGAR Breta og Frakka hafa ákveðið að vísa á bug öllum tilraunum til að taka kjarnorku- vopn þeirra inn í afvopnunarvið- ræður Bandarikjamanna og Sovétmanna. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Breta, átti í gær viðræður við Francois Mitterrand, Frakk- landsforseta, í bænum Benouville í Normandy en að þeim loknum hélt hún til fundar við Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands, í Bonn. Sagði Thatcher, að viðræð- urnar hefðu eingöngu snúist um afvopnunarmál og síðustu tillögur Sovétmanna um meðaldrægu eld- flaugamar. „Kjarnorkuvopn Breta og Frakka eru ekki til umræðu í viðræðum stórveldanna. Þau em lífsnauðsyn- leg öryggi þessara tveggja landa,“ sagði Thatcher. Mitterrand veik að heimsókn Thatchers til Moskvu í næstu viku og sagði, að hann hefði ekki gefið henni umboð til að mæla fyrir munn Frakka en í þessu máli „getur Thatcher vel komið fram fyrir hönd beggja þjóðanna". í Moskvuheimsókninni munu við- ræður Thatchers og Gorbachevs að mestu snúast um afvopnunarmál en einnig ætlar hún að færa í tal Afganistanmálið og mannréttinda- mál. Getum smíð- að kjarnorku- sprengju þeg- ar við viljum - segir forseti Pakistan Ncw York, Reuter. HAFT var eftir Zia ul-Haq, for- seta Pakistan, í gær að Pakist- anar gætu smíðað kjarnorku- sprengju þegar þeim sýndist. „Pakistanar geta smíðað sprengj- una. Þið getið skrifað í dag að að Pakistanar geti smíðað sprengju hvenær sem þeim sýnist. Ef þú hefur náð valdi á tækninni, eins og Pakistanar hafa gert, get- ur þú gert hvað sem þú vilt,“ sagði Zia í viðtali við tímaritið Time. Hann sagði aftur á móti að Pakist- anar hefðu engar ráðagerðir um að smíða kajrnorkuvopn á prjón- unum. „Hvað er vandamálið við að smíða sprengjuna? Við höfum aldrei sagt að við gætum ekki gert þetta. Við höfum sagt að við hvorki ætlum né viljum [smíða kjarnorkusprengju]," sagði forset- inn. Að sögn Zia hafa Pakistanar ekki náð sér í úraníum umfram þarfir sínar í friðsamlegum til- gangi. „Ég get fullvissað ykkur um að Pakistanar eru ekki að gera kjarnorkutilraunir í hernað- arskyni. Ég ber ábyrgð á að sú skuldbinding verði virt.“ Zia sagði um samskipti Ind- vetja og Pakistana að hvorir tveggju vildu að þau væru betri: „Það er hvorki hagur. Indverja né Pakistana að heíja styrjöld. En það er ekki hægt að útiloka árekstra, hvort sem þeir verða af ásettu ráði eður ei.“ Brandt segir af sér formennsku í Jafnaðarmannaflokknum þýzka: Leiddi þjóðina inn á nýtt tíma- bil í sambúð austurs o g vesturs Bonn, Reuter. WILLY Brandt, fyrrum kanzl- ari Vestur-Þýzkalands, sagði af sér formennsku Jafnaðar- mannaflokksins (SPD) í gær. Hann hafði verið flokksform- aður frá árinu 1964 og leiddi þjóð sína inn á nýtt timabil í sambúð Austurs og Vesturs. Heimildir innan flokksins sögðu að Brandt, sem er 73 ára, mundi segja af sér formennsku vegna mikillar gagnrýni, sem hann hefur sætt fyrir að útnefna Margaritu Mathiopoulos, 31 árs óflokks- bundna gríska konu, sem tals- mann flokksins. Brandt varð kanzlarí árið 1969, hinn fyrsti, sem Jafnaðarmanna- flokksins eignast. Tveimur árum síðar hlaut hann friðarverðlaun Nóbels fyrir slökunarstefnu sína gagnvart Austur-Evrópu. Árið 1972 undirrituðu síðan stjómir þýzku ríkjanna tveggja sáttmála þar sem skipting ríkjanna var inn- sigluð og viðurkenndur tilveru- réttur þeirra beggja. Árið 1974 sagði Brandt af sér kanzlaraembætti þegar einn af helztu ráðgjöfum hans var af- hjúpaður sem austur-þýzkur njósnari. Hann hélt þó áfram stjómmálaþáttöku og helgaði sig baráttunni gegn fátækt í heimin- um og afvopnun. Gegndi hann m.a. formennsku í svonefndri Norður-Suður-nefnd Sameinuðu þjóðanna, sem jafnan var kölluð Brandt-nefndin. Henni var falið að gera tillögur um hvemig mætti minnka bilið milli ríkra þjóða og fátækra. í niðurstöðum nefndar- innar var sagt að þjóðir heims byggju við úrelt efnahagskerfi og efnahagsstefnu, sem gerði ráð fyrir gífurlegum útgjöldum til vopnakaupa á sama tíma og millj- ónir manna byggju við örbirgð. Brandt er óskilgetinn sonur búðarstúlku frá Lúbeck í Norður- Þýzkalandi. Hann fæddist 18. desember 1913 og er því á 74. aldursári. Hann kynntist aldrei föður sínum og ólst upp í sárri fátækt. Hann vakti fyrst á sér athygli meðan hann var borgar- stjóri Vestur-Berlínar. Var hann kjörinn borgarstjóri árið 1957 og gegndi því starfi þegar Austur- Þjóðverjar reistu Berlínarmúrinn árið 1961. Brandt hefur ætíð verið mót- fallinn hernaðarstefnu og beitti sér fyrir að skriður kæmist á stór- veldaviðræður um afvopnun. Sem utanríkisráðherra í samsteypu- stjóm Kurt-Georgs Kiesninger, kanzlara, árið 1966 hóf hann að mmm •••• Reuter Margarita Mathiopoulus móta slökunarstefnu sína gagn- vart Austur-Evrópu, hina svoköll- uðu „Ostpolitik". Á ámnum 1966-69 kom hann á stjómmála- sambandi við Rúmeníu og Jú- gólsavíu og gekk þar með gegn þeirri afstöðu, sem stjómvöld í Bonn höfðu haft, um að eiga ekki formleg samskipti við ríki, sem viðurkenndu austur-þýzka ríkið. Sem kanzlari gerði hann grund- vallarbreytingar á stefnu Vestur- Þjóðverja gagnvart Austur-Evr- ópu og var tilgangurinn að binda endi á aldarfjórðungslanga tor- tryggni og hatur. Leiddi það m.a. til undirritunar griðarsáttmála við Sovétmenn, þar sem ríkin tvö hétu því að ráðast ekki hvert á annað. í kjölfar kom hann síðan á sáttum og eðlilegu sambandi við Pólveija, sem þjáðst höfðu hvað mest undan oki Hitlers. Hver sigurinn af öðmm í utanrík- ismálum fylgdi í kjölfarið og árið 1970 varð hann fyrsti kanzlari Vestur-Þýzkalands, sem heim- sótti Austur-Þýzkaland. Átti hann m.a. viðræður við Willi Stoph, leið- toga A-Þýzkalands, í Erfurt. Hann breytti nafni sínu úr Herbert Karl Frahm í Willy Brandt á stríðsámnum til þess að villa um fyrir Gestapó til þess að sleppa frá pólitískum ofsóknum, sem Adolf Hitler hóf gegn and- stæðingum nasismans. Um síðir flýði Brandt til Noregs og fékk norskt ríkisfang þegar hann var sviptur þýzkum borgararétti. Hann hvarf afturtil Þýzkalands þegar hann var sendur til Núm- bergs til að senda fréttir frá réttarhöldum yfir stríðsglæpa- mönnum nasista. Var hann síðar gerður að norskum blaðafulltrúa í Berlín en öðlaðist síðan þýzkt ríkisfang á ný árið 1948.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.