Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 Jóhanna Sigurðardótt> ir fellur mn sjálfa sig Alþingi samþykkti einróma tillögn félagsmálanefndar eftir Gunnar G. Schram Daginn sem Alþingi var slitið samþykkti það merka tillögu í einu hljóði um lífeyrissjóðsréttindi þeirra, sem sinna heimilis- og umönnunarstörfum. Þetta var í fyrsta sinn sem þetta mál nær fram að ganga á Alþingi og því var hér um tímamótasam- þykkt að ræða sem allir flokkar þingsins stóðu að. Samstaða allra f lokka Tillagan var flutt af félagsmála- nefnd sameinaðs þings og voru fulltrúar allra flokka í nefndinni sammála um flutning hennar og texta tillögunnar. Efni hennar er það að Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa tillögur um lífeyrisrétt- indi þeirra sem eingöngu sinna heimilis- og umönnunarstörfum og leggja þær fyrir þing á næsta vetri. Með þessari tillögu, sem ég mælti fyrir sem formaður félags- málanefndar, hafði tekist eftir erfitt þóf að ná samkomulagi allra flokka um einn tillögutexta. Það hefur aldrei tekist áður á þingi í þessu máli. Þess vegna var einróma sam- þykkt tillögunnar í sameinuðu þingi sérstakt fagnaðarefni öllum þeim sem láta sig þessi mál einhvetju varða og vonandi upphafið að laga- setningu um lífeyrisréttindi heima- vinnandi fólks. Ein hjáróma rödd Ein hjáróma rödd skar sig þó úr við meðferð þessa máls. Það er þingkonan Jóhanna Sig- urðardóttir, sem veður með miklu offorsi fram á ritvöllinn hér í Morg- unblaðinu á laugardaginn og ásakar mig með fúkyrðum fyrir að hafa brugðist hlutverki mínu sem for- „Slíkt upphlaup og sá geðofsi, sem í grein Jóhönnu felst, hljóta að vekja sérstaka athygli einmitt vegna þeirrar staðreyndar að nú tókst í fyrsta sinn, svo sem að framan er rakið, að fá samþykkta tillögu á Alþingi um lífeyrisrétt- indi heimavinnandi fólks. Yfir þeirri miklu réttarbót hefði hún vit- anlega átt að gleðjast eins og allir aðrir sem að málinu stóðu.“ maður félagsmálanefndar við meðferð þessa máls. Slíkt upphlaup og sá geðofsi, sem í grein Jóhönnu felst, hljóta að vekja sérstaka athygli einmitt vegna þeirrar staðreyndar að nú tókst í fyrsta sinn, svo sem að framan er rakið, að fá samþykkta tillögu á Alþingi um lífeyrisréttindi heima- vinnandi fólks. Yfir þeirri miklu réttarbót hefði hún vitanlega átt að gleðjast eins og allir aðrir sem að málinu stóðu. En það er öðru nær. Þingkonan nær ekki upp í nefið á sér af reiði vegna þess að tillaga hennar í mál- inu var ekki samþykkt orðrétt á þingi. Hún hefur reynt að eigna sér þetta mál og fyrir hana skipti það greinilega meginmáli að fá heiður- inn af því að heita höfundur þess. Afdrif þess, samþykkt eða synj- un, voru henni algert aukaatriði. Það sýna hatrömm viðbrögð hennar við einróma samþykkt málamiðlun- artillögu félagsmálanefndar á Alþingi á fimmtudaginn. Þingmál margra flokka Þessi afstaða þingkonunnar verður ennþá broslegri í ljósi þess að hér er gamalt mál á ferðinni á þingi en ekkert einkamál Alþýðu- flokksins. A síðustu þingum hefur Páll Pét- ursson flutt þeta mál af hálfu Framsóknarflokksins. Og snemma á þessu þingi bar Kvennalistinn fram frumvarp um lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra. Það var ekki fyrr en eftir að það frumvarp var flutt, sem Jóhanna Sigurðar- dóttir át það upp eftir Kvennalistan- um og flutti tillögu um sama málið! Slík var þá virðing hennar fyrir höfundarrétti málsins sem hún þyk- ist nú ein eiga! í félagsmálanefnd þingsins kom fljótt í ljós að ekki var fylgi fyrir framgangi tillögu Jóhönnu Sigurð- ardóttur, sem fjallaði um að lífeyris- réttindin yrðu tryggð eftir tvo mánuði. Um tvennt var þá að ræða. Annaðhvort að láta málið daga uppi eða freista þess að fá það sam- þykkt í breyttri mynd. Við sjálf- stæðismenn ákváðum að fara síðari leiðina og bárum á síðustu dögum þingsins fram málamiðlunartillögu, sem í mikilvægu atriði var önnur en tillaga Jóhönnu. í félagsmálanefndinni var ný til- laga unnin upp úr þessum báðum, eins og alsiða er á þingi, og það var sú tillaga sem þingið sameinað- ist um án nokkurra mótatkvæða. Stuðningnr stjórnar- liða réði úrslitum Það er dagljóst að ef við sjálf- stæðismenn og fulltrúar Framsókn- arflokksins í nefndinni hefðum ekki ávkeðið að standa þannig að málum N Ý J U N G A R Tilbúnar í pottinn - eða á grillið. Verðið hefur aldrei verið betra og bragðið ... mmmm ... svíkur engan! Gunnar G. Schram hefði engin tillaga verið samþykkt um lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks á þessu þingi. Tillaga Jóhönnu var sjálfdauð og hennar hefðu beð-. ið þau örlög ein að rykfalla í skjalageymslu Alþingis. Að okkar dómi var því valið auðvelt og með góðu fulltingi stjómarþingmanna er þetta mál nú komið í heila höfn. Ég veit að því munu menn fagna um land allt. Urslit málsins aukaatariði! Það er stundum um það rætt að virðing þjóðarinnar fyrir Alþingi fari þverrandi. Það er kannski ekki að undra þegar einstakir þingmenn meta það meira að flétta sér geisla- baug til eigin upphafningar úr vinsælum málum, eins og Jóhanna Sigurðardóttir, í stað þess að sam- einast um að þau nái fram að ganga. Þegar allt kemur til alls er það ekki þetta sem er hlutverk alþingis- manna, heldur hitt að ná samstöðu um framgang þeirra mála, sem til heilla horfa. Sem betur fer tekst það að þessu sinni. Höfundur skipar 5. sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokks í Reykjaneskjördæmi. Borgarnes: Fundur um lífskjör á landsbyggðinni Borgarnesi. VERKALÝÐSFÉLAG Borgar- ness og Neytendafélag Borgar- fjarðar efna til seinni fundar um „Lífskjör á landsbyggð- inni“ miðvikudaginn 25. mars á Hótel Borgarnesi kl. 20.30. Á fyrri fundinn mættu um 100 manns og urðu þar fjörugar umræður. Á fundinn er boðið tveimur fulltrúum frá hverjum stjórn- málaflokki og fær hver flokkur 15 mínútur í upphafi fundar til~- að kynna stefnu sína varðandi fundarefnið. Eftirfarandi fulltrú- ar mæta á fundinn: Ríkharð Brynjúlfsson, sem skipar 4. sæti G-listans á Vesturlandi og Helgi Seljan alþingismaður frá Alþýðu- bandalaginu. Frá Bandalagi jafnaðarmanna mæta Anna Kristjánsdóttir sem skipar 1. sæti Bandalagsins í Reykjavík og Þorgils Axelsson sem skipar 2. sæti Bandalagsins í Reykjanes- kjördæmi. Frá Framsóknar- flokknum mæta Steinunn Sigurðardóttir sem skipar 3. sæti B-listans á Vesturlandi og Guðni Ágústsson sem skipar 2. sæti B-listans á Suðurlandi. Frá Þjóð- arflokknum koma þeir Ámi Steinar Jóhannsson sem skipar 1. sæti flokksins á Norðurlandi vestra og Gunnar Páll Ingólfsson, bryti Hvanneyri. Að sögn Jóns Agnars Eggerts- sonar formanns Verkalýðsfélags Borgamess er fundurinn öllum opinn og kvaðst hann vona að fólk fjölmennti á staðinn. - TKÞ. Námsgagnastofnun: Nýtt námsefni í eðlis- og efnafræði NÝLEGA kom út hjá Náms- gagnastofnun ný kennslubók í efnafræði fyrir efstu bekki grunnskóla. Námsefninu fylgja sérstakar kennsluleiðbeiningar með ýmsum upplýsingum um efnið, ítarefni ofl. Höfundur námsefnisins er Þórir Ólafsson. Kennslubókin er 96 bls., prýdd skýringarteikningum og ljós- myndum, ásamt verkefnum og leiðbeiningum um tilraunir. Lotukerfið fylgir hverri bók, lit- prentað innan á kápusíðu. Þá hefur Námsgagnastofnun gefið út endurskoðað hefti, Orka og orkunotkun, sem upphaflega var gefið út af orkuspamaðarnefnd iðn- aðarráðuneytisins. Að endurskoð- uninni unnu tveir höfundar, þeir Jón Ingimarsson og Sigurður G. Tómas- son. Heftið sem er 31 bls. með fjölda verkefna er ætlað til kennslu í 7.-9. bekk grunnskóla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.