Morgunblaðið - 24.03.1987, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓN SDÓTTUR
Líbanon:
Hver er hvað?
NÝLEGAR athuganir um málefni Líbanons benda til, að þar
stríði innbyrðis allt að 40 fylkingar, smáar og stórar, Þessar
fylkingar eru að sjálfsögðu misjafnlega áhrifamiklar. Sumar eru
þrautskipulagðar, aðrar vinna meira og minna eftir því hvernig
vindurinn blæs hveiju sinni. Erfitt er að henda reiður á, hvaða
fylking stendur að baki hveiju, hver er hvað og hvað aðilar vilja.
í eftirfarandi samantekt er reynt að gera grein fyrir helztu hópun-
Shitamúslímahóparnir
Allir shitahópar eiga rætur að
rekja til hreyfingar, sem
Musa Sadr stofnaði í kringum
1970. Hann var fæddur í Iran,
en hann átti líbanska fjölskyldu.
Fyrir honum vakti að sameina „
hina athvarfslausu." í samtökin
gengu ekki sízt fátækir shitar í
S-Líbanon sem töldu á rétt sinn
gengið og herskáir shitar í norðri.
Hópurinn gengur almennt undir
nafninu Amal, og þá átt við liðs-
menn samtakanna, sem bera
vopn. Ekki er vafamál að þau
hafa styrkt þjóðarvitund shita,
sem með rétti geta haldið fram,
að þeir hafi verið undirmálsmenn
og áhrif þeirra og völd ekki í sam-
ræmi við fjölda þeirra. Amal hefur
verið helzta aflið, sem hefur barizt
gegn líbönsku stjóminni og ítök-
um Palestínumanna í suðrinu.
Árið 1978 hvarf Musa Sadr,
þegar hann var í heimsókn í
Líbýu. Aldrei hefur orðið uppvíst
um afdrif hans. Hann hefur orðið
píslarvottur í augum Amalsveit-
anna, sem dýrka minningu hans
eins og guðs.
Amalhreyfingin er undir stjóm
Nabih Berri. Sumir segja, að það
sé meira í orði en á borði. Náin
samvinna er við Sýrlendinga.
Amalsamtökin beijast fyrir að fá
ítök í stjómkerfi landsins, sem
væri í hlutfalli við §ölda shita.
Hreyfmgin berst hatrammlega
gegn því að Palestínumenn komist
á ný til áhrifa í Suður Líbanon
og hún heyr einnig vopnaða bar-
áttu gegn SLA sem ísraelar
styðja. En meðal shita er þó ijarri
að vera einhugur. Nokkur bók-
stafstrúarsamtök hafa látið að sér
kveða einkum Hizbollah, flokkur
guðs. Hizbollah hefur tengsl við
Irans og var stofnaður af islömsk-
um byltingarmönnum frá Teheran
og keppir leynt og ljóst við Amal
um forystuhlutverk shita í
landinu. Hizbollah hefur nokkrum
sinnum verið tengiliður og sátta-
semjari milli Amal og Palestínu-
manna. Hizbollah getur haldið því
fram með nokkmm sanni, að hann
er samstæðari og þegar á heildina
er litið en Amal. Hizbollah hefur
enda styrkt sig í sessi meðal shita
undanfama mánuði. Andlegur
leiðtogi er Mohammed Hussein
Fadallah.
Annar shita-hópur, sem hefur
verið að færa sig upp á skaptið
er „Amal-islamisku samtökin,"
klofningslið úr fyrstu samtökun-
um og varð til í kjölfar innrásar
Israela 1982. Islamski Amal hóp-
urinn hefur ásakað Berri, fyrir
að styðja ísraela á laun. Aðalb-
ækistöðvar samtakanna eru í
Baalbek í Bekadal og stjómandi
er Hussein Mousavi. Þessi hópur
er sagður bera ábyrgð á hinni
alræmdu árás á bandaríska sendi-
ráðið í Beirut 1983 og sprengjuár-
ásir á herflutningabíla hermanna
frá Bandaríkjunum þá og síðar á
hendur frönskum hermönnum.
Nokkra aðra smáhópa má
nefna, en um suma þeirra er lítið
vitað annað en nafnið: Heilagt
stríð fyrir frelsun Palestínu. Meg-
inmarkmið er að frelsa shita í
ísraelskum fangelsum. Heilagt
stríð fyrir frelsun Palestínu hefur
haft samvinnu við Hizbollah.
Vissa er fyrir því, að þessi hópur
rændi ijórum kennurum við
Bandaríska háskólann í Beimt.
Þetta em framar öðm hryðju-
verkasamtök og með tengsl við
Líbýu, Sýrland og Iran.
Ad-Dawa em trúarlegur öfga-
hópur, sem hallar sér að Iraks-
stjóm. Ad-Dawa hefur staðið að
hryðjuverkum í Kuwait og í írak.
Vegna þeirra hryðjuverka var
líbanskur shiti úr Mugniyahfjöl-
drúsa af föður sínum. Hann virð-
ist óumdeilanlegur leiðtogi þeirra,
en það varð álitshnekkir fyrir
hann, þegar Terry Waite var rænt,
en drúsar höfðu tekið að sér að
gæta hans. Um drúsa er að öðm
leyti lítið vitað, og mikil leynd
hvílir yfír drúsísku samfélagi. Þó
er álitið að Jumblatt hafí nokkra
samvinnu við Palestínumenn.
Marónítar- þeir sem öllu
réðu áður
Þar em Falangistar enn áhrifa-
mestir. Falangistaflokkurinn var
stofnaður um 1930 af Pierre
Gemaeyel. Falangistar em skipu-
lögðustu stjómmálasamtök lands-
ins. Bashir Gemaeyel kom á stofn
hersveitum falangista, sem létu
mjög að sér kveða. Eftir morðið
á Bashir tók síðan Amin Gemaeyl
við. Falangistar eiga nú undir
högg að sækja, eins og fram hef-
ur komið í öllum fréttum og
Gemaeyel varla forseti nema að
Erfitt er að henda reiður á hver
við hvem.
skyldunni fangelsaður. Mál
manna er að Mugniyah fjölskyld-
an hafi a.m.k. tvo gísla í haldi,
Bandaríkjamennina Terry Ander-
son og Thomas Sutherland.
Sunni-múslímahópar
Sunni-múslímar em meirihluta-
hópur, en þeir telja að valdskipt-
ingin í Líbanon sé mjög
ósanngjöm. Undanfarna mánuði
hefur greinilega dregið mátt úr
sunni-múslímumá eftir því sem
shitum hefur vaxið ásmegin. Tveir
hópar eru sagðir atkvæðamestir.
Það eru Murabitoun-múslímar.
Þeir eru sterkastir í Sidon í suður-
hlutanum. Aður höfðu þeir
aðalbækistöðvar í Beimt, og
stjómandi þeirra heitir Ibrahim
Koleilat. Þessi hópur hefur farið
mjög halloka fyrir Amalsveitun-
um, eins og áður sagði og þar af
leiðandi að mestu dregið sig frá
Beirut.
Þá er það Tawhid-samtökin
sem em bókstafstrúarmenn og
hafa aðalaðsetur í Tripoli í norðri
Sýrlendingar hröktu þá frá Beirut
með fulltingi PLO-skæmliða.
Sagt er að þrátt fyrir ólíka af-
stöðu til trúarinnar hafi verið
samvinna milli Tawhid og Hiz-
bollah upp á síðkastið.
Drúsarnir
Walid Jumblatt tók við forystu
K ÍÉ;
er hvað í Líbanon og hver berst
nafninu til. Kristnir menn hafa
löngum setið að mestu áhrifastöð-
um, þótt þeir séu fámennari en
sunni og shitar. Líbanski herinn,
sem að stofni til em gömlu falang-
istamir neita að lúta stjóm
forsetans og er nú klofínn í all-
marga hluta, og þeirra öflugastur
er hópur Samir Geagea, sem er
andvígur tilraunum forsetans til
að ná pólitískri lausn með aðstoð
Sýrlendinga. Einn falangistahóp-
ur styður Eli Hobeika, en hann
fyrirskipaði fjöldamorðin í flótta-
mannabúðunum Shabra og
Shatilla 1982.
Tveir hópar falangista, sem
stjómað er af fyrverandi forsetum
Franjieh og Chamoun em nú varla
nema nafnið. Þá ber að nefna
hinn svokallaða suður líbanska
her, sem lengi var undir stjóm
Haddads majórs, en forsvarsmað-
ur nú er Lahad. Þessi hópur er
studdur og honum er í reynd
stjórnað frá ísrael.
Palestímimennirnir í
Líbanon
Fatah er fjölmennasti PLO hóp-
urinn, og hefúr átt í höggi við
Frelsisfylkingu Palestínu, sem
Sýrlendingar styðja. Frelsisfylk-
ingin byggir hugmyndafræði sína
á sameiningu Sýrland, Jórdaníu,
Palestínu sem var og Jórdaníu
heimild: The Middle East 3.tbl
1987
• Morgunblaðið/Amór
Finnbogi Björnsson oddviti Gerðahrepps skýrir fyrir áheyrendum
einstaka liði fjárhagsáætlunar Gerðahrepps 1987. Honum til beggja
handa sitja hreppsnefndarfulltrúar og sveitarstjóri. Talið frá vinstri:
Ingimundur Guðnason, Sigurður Ingvarsson, Ellert Eiríksson, Viggó
Benediktsson og Soffía Olafsdóttir. í bakgrunni myndarinnar er
leikmynd af Blessuðu barnaláni sem Litla leikfélagið sýnir um þess-
ar mundir.
Borgarafundur í Garðinum:
Góð staða hreppsins
en úr litlu að moða
Garði.
ALMENNUR borgarafundur um
fjárhagsáætlun hreppsins var
haldinn að tilhutan hreppsnefnd-
ar í samkomuhúsinu fyrir
nokkru. Þátttaka var heldur
dræm eða tæplega 30 manns.
Niðurstöðutölur tekna fyrir árið
1987 eru tæpar 46 milljónir og
sem fyrr er langstærsti tekjulið-
urinn útsvör eða rúmar 27
milljónir. Aðstöðugjöld eru rúm-
ar 6 milljónir og fasteignaskattar
3.7 milljónir.
Af stærstu gjaldaliðum má nefna
stjórn hreppsins, 4,7 milljónir, til
skólamála tæpar 6 milljónir, í sýslu-
samlag 3,5 milljónir og til leikskóla
1.8 milljónir.
Til gamans má nefna tvo af minni
liðunum. I fjallskil fara 15 þúsund
krónur og í minkaeyðingu 10 þús-
und kr. Þá má og nefna liðinn risna
og ráðstefnur, 15 þúsund kr. og
verður ekki annað sagt en að sparn-
aður og ráðdeild séu í heiðri höfð
við gerð íjárhagsáætlunar og veitir
ekki af.
Það kom nokkuð á óvart þegar
opnað var fyrir almennar umræður
að áhugi fundarmanna beindist ekki
að stærstu liðum áætlunarinnar eða
væntanlegum framkvæmdum við
sundlaug og viðgerð gatna. Helzta
umræðuefnið var um leikskólann
Gefnarborg, sem hreppurinn hefír
nýlega yfirtekið rekstur á, og
hyggst leita eftir tilboðum í rekstur-
inn í framtíðinni. Hitt málið sem
nokkuð var rætt var styrkur til Litla
leikfélagsins sem félagsmenn
spurðust fyrir um.
Þá skýrði Ellert Eiríksson sveit-
arstjóri frá því í fundarlok að staða
hreppsins væri góð og færi batn-
andi með ári hvetju.
Lokaumræða um fjárhagsáætlun
fer fram 25. mars nk. og er fundur-
inn öllum opinn eins og reyndar
allir hreppsnefndarfundir eru í dag.
— Arnór
Þorlákshöfn:
Góðar gæftir
Þorlákshöfn.
HEILDARAFLI vikunnar var
1.582.330 kíló af 42 bátum sem
skiptist þannig: 35 netabátar
1.290.070 kíló, 2 dragnótabátar
137.320 kíló, 5 trollbátar 154.940
kíló. Þetta er mesti afli sem kom-
ið hefur á land í einni viku frá
vertíðarbyijun. Ástæðan er sú
að stöðugt fjölgar bátunum og
enginn landlegudagur var alla
vikuna.
Fyrri hluta vikunnar var mjög
gott hjá smærri bátunum sem eru
með netin hér undir bjarginu og
vestur í Keflavík og Selvogi en
seinni hluta vikunnar tók allt undan
og ætla menn að þorskurinn sé
búinn að éta yfir sig af loðnu og
liggi niður við botn því hver einasti
fískur sem á land kemur er úttroð-
inn af loðnu. Jafn afli hefur verið
hjá hinum bátunum.
Dragnótabátamir Njörður ÁR 38
og Dalaröst ÁR 63 hafa gert það
mjög gott það sem af er vertíð.
Dalaröst er með 337.280 kíló,
Njörður með 312.300 kíló. Uppi-
staðan í afla þeirra er langlúra sem
mjög gott verð hefur fengist fyrir.
Mestan aflann í vikunni höfðu
Haförn ÁR 115, 123.000 kíló í 7
róðrum og er hann á netum. Njörð-
ur ÁR 38 með 76.530 kíló sem
hann fékk í 2 róðrum og er á drag-
nót og Friðrik Sigurðsson ÁR 17
með 73.860 kíló í 6 róðrum en hann
er á netum.
Aflahæstu bátar frá vertíðarbyij-
un eru Höfrungur III ÁR 250 með
544.500 kíló, Friðrik Sigurðsson
ÁR 17 með 524.050 kíló, Þorleifur
Guðjónsson ÁR 350 með 480.330
kíló, þeir eru allir á netum. Togar-
inn Jón Vídalín landaði þann 17.
mars eftir 11 daga veiðiferð 95.882
kílóum, aðallega löngu og karfa.
- JHS
Félagsfundur
E1 Salvador-
nefndarinnar
EL SALVADOR nefndin heldur
félagsfund þriðjudaginn 24.
mars kl. 20.30 að Mjölnisholti 14,
3. hæð.
Helstu mál á dagskrá fundarins
verða:
1. Uppgjör jólasöfnunar vegna
jarðskjálftanna í San Salvador,
2. Nafnbreyting á nefndinni. Mið-
Ameríkunefndin?, 3. Stuðnings-
starfiið við Nicaragua — fjallað um
ráðstefnuhugmynd og 4. Næstu
verkefni nefndarinnar, fjármál ofl.