Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
0
B.B.BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
Bronco XLT sjálfskiptur með vökvastýri og ýmsum
öðrum aukahlutum, árg. 84. Flestir litir. Verð með
ryðvörn og skráningu 650 þús.
Pontiac Trans AM 1984 V8 top með öllum öðrum
aukahlutum. Flestir litir. Með ryðvörn og skrán-
ingu 850 þús.
Cherokee Pioner m/lntercooler Turbo dieselvél
árg. 1986. Verð 980 þús. með ryðvörn og skrán-
ingu.
Bílar þessir eru af lager okkar í Kanada.
Metsölublad á hverjum degi!
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651000.
ÚRVALS
PRENTARA
— HLJÓÐDEYFAR
Vönduð vara
Frábær hönnun
QSÚékfJu/mSoéré /í^.
Sími 621738
Eigum fyrirliggjandi
Cherokee Lorcelo m. öllu
ss. 6 cyl., vökvastýri, litað gler, álfelgur, rafdrifnar
rúður, rafdrifin sæti, 3 dyra, 6 Jensen- hátalarar,
útvarp og segulband, fjarstýrður hurðaopnari,
veltistýri, sjálfvirkur hraðastillir, sentrallæsingar,
leðurkiædd sæti, loftkæling, toppgrind. Selec Trac
þróaðasta fjórhjóladrifið. Verð 1180 þús.
oSééaéuatéo-éré éf.
Sími 621738
Ford Fiesta 1100 C 1986.
Verð 310 þús. með ryðvörn og skráningu.
Flestir litir.
BMW 316 4ra dyra, sportfelgur, útvarp, segul-
band, árg. ’85, með ryðvörn og skráningu 520 þús.
'86 árg. með ryðvörn og skráningu 580 þús.
Hafnarfjörður:
Hús stór-
skemmt
af eldi
SLÖKKVILIÐIÐ í Hafnarfirði
var kallað að húsi við Sævang
35 þar í bæ á sunnudag, en mik-
ill eldur logaði í húsinu.
Eldurinn var í stofu á neðri hæð
hússins, sem er járnvarið timbur-
hús. Slökkviliðsmenn komu á
vettvang um kl. 16.20, en komust
ekki inn í húsið til að byija með
vegna mikils hita. Vatni var spraut-
að inn um glugga og þekja hússins
rofin. Reykkafarar fóru síðan inn í
húsið til að aðgæta hvort einhver
væri þar inni, en svo reyndist ekki
vera. Greiðlega gekk að ráða niður-
lögum eldsins, en húsið er mjög illa
farið eftir.
Félag íslenskra fræða:
Samning-
arnir sam-
þykktir á
félagsfundi
FÉLAGAR í kjaradeild Félags
íslenskra fræða samþykktu á
fundi í gær kjarasamning þann
sem undirritaður var á sunnu-
dagskvöldið rétt áður en verkfall
félagsins átti að taka gildi.
Kjaradeild Félags íslenskra
fræða hefur samningsumboð fyrir
33 háskólamenntaða starfsmenn á
Landsbókasafni, Þjóðskjalasafni og
Þjóðminjasafni. Samningurinn sem
gerður var er til tveggja ára og að
sögn Gísla Ragnarssonar formanns
samninganefndar félagsins er aðal-
breytingin frá fyrri samningum sú
að grunnröðun starfsheita breytist
og þeim er fækkað. Gísli sagði er-
fitt að reikna út hvaða meðallauna-
hækkun samningurinn gæfi því það
væri nokkuð mismunandi eftir
hverjum og einum. Að öðru leyti
væri samningurinn á svipuðum nót-
um og önnur aðilarfélög BHMR
hefðu samið við ríkið á fyrir utan
að á samningstímanum fengju allir
hækkun um einn launaflokk.
Gísli sagði að samninganefndin
hefði ekki verið ánægð með þennan
samning en tekið þá ákvörðun að
láta félagið skera úr um hvort fara
ætti út í frekari aðgerðir. A félags-
fundi í Þjóðminjasafninu í gær var
samningurinn samþykktur með 16
atkvæðum gegn 9.
Bretland:
92 millj-
ónir fyrir
gámafisk
GÁMAFISKUR að verðmæti 92,1
milljón króna var í síðustu vikur
seldur í Bretlandi. Alls voru það
1.532 lestir og meðalverð var
60,11 krónur.
Eitt skip seldi afla sinn í Bretlandi
í siðustu viku, samtals 93,4 lestir
að verðmæti 5,7 milljónir króna.
Tvö skip seldu afla sinn í Þýzka-
landi, samtals 364 lestir að verð-
mæti 19,9 milljónir. Ekki liggja
fyrir endanlegar tölur um sölu úr
gámum í Þýzkalandi eða öðrum
löndum en Bretlandi.