Morgunblaðið - 24.03.1987, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
13
leikmannastefnunnar og voru þau
Bima Friðriksdóttir Kópavogi,
Helgi Hjálmsson Garðabæ og Oli
Þ. Guðbjartsson Selfossi kjörin til
að skipuleggja næstu leikmanna-
stefnu og móta starfsgrundvöll
hennar.
Mikil ánægja kom fram á meðal
fulltrúa með þennan nýja þátt í
starfi kirkjunnar sem leikmanna-
stefnan er. Töldu þeir hana mikil-
vægt skref til aukinna áhrifa
leikmanna í kirkjulegu starfí.
Leikmannastefna Þjóðkirkjunnar:
Miklar umræður
um framtíðarform
- segir Pétur Sigurgeirsson, biskup íslands
FYRSTA leikmannastefna Þjóð-
kirkjunnar var haldin um síðustu
helgi í Reykjavík. Biskup kallaði
fulltrúa prófastdæmanna fimmt-
án tU stefnunnar og fylgdi þar
hvatningu prófastafundar árið
1986, en samkvæmt starfs-
mannafrumvarpi Þjóðkirkjunn-
ar, sem nú liggur fyrir Alþingi
er gert ráð fyrir leikmanna-
stefnu árlega.
Að sögn herra Péturs Sigurgeirs-
sonar, biskups íslands, kom
hugmyndin um slíka stefnu fyrst
fram hjá starfsháttanefnd kirkjunn-
ar árið 1977 þannig að tíu ár liðu
þar til að hugmyndin varð að veru-
leika. Biskup hefur ítrekað lagt
áherslu á aukin þátt leikmanna í
starfí kirkjunnar og kemur það
meðal annars glöggt fram í Hirðis-
bréfí hans „Kirkjan öllum opin“.
Fyrri dag stefnunnar var Guðrún
Ásmundsdóttir leikari framsögu-
maður um kirkjuna og starf hennar
og voru þar miklar umræður um
hvemig leikmenn mættu hafa sem
mest og best áhrif á innra líf kirkj-
unnar. Dr. Ármann Snævarr flutti
síðan fyrirlestur um lög og reglur
er varða kirkjuna og forstöðumenn
hinna ýmsu stofnanna kirkjunnar
kynntu starfsemi þeirra. Fulltrúar
voru gestir kirkjumálaráðuneytis í
ráðherrabústaðnum til hádegisverð-
ar þennan dag.
Seinni daginn fór stefnan fram
í Hallgrímskirkju. Kirkjan var skoð-
uð og kynnt það starf, sem þar fer
fram og sóttu meðal annars flestir
leiksýninguna sem þar fer fram um
Kaj Munk.
Pétur sagði að miklar umræður
hefðu farið fram um framtíðarform
Fulltrúar á leikmannastefnu Þjóðkirkjunnar ásamt biskupi íslands. Fremri röð frá vinstri: Óli Þ. Guð-
bjartsson Selfossi, Helgi Hjálmsson Garðabæ, herra Pétur Sigúrgeirsson, Margrét Lárusdóttir Skútustöð-
um, Kristján Þorgeirsson Mosfellssveit og Halldór Finnsson Grundarfirði. Aftari röð frá vinstri: Magnús
B. Jónsson Hvanneyri, Jón ísberg Blönduósi, Gísli Árnason Reykjavík, Haraldur Júlíusson Rangárvalla-
sýslu, Magnús Einarsson Egilsstöðum, Guðný Guðnadóttir Vík í Mýrdal, Þórir Sigurbjömsson Neskaups-
stað, Baldur Jónsson Reykjavík og Jón Oddgeir Guðmundsson Akureyri
Stjörnubíó:
Peggy Sue
giftist
KATHLEEN TURNER, Nicolas
Cage og Barry Miller leika aðal-
hlutverkin í nýjustu mynd
Stjörnubíós, Peggy Sue giftist.
Leikstjóri mvndarinnar er hinn
margfaldi Oskarsverðlaunahafi
Francis Coppola. í myndinni er
leikin tónlist sjötta og sjöunda
áratugarins.
Peggy Sue er fráskilin tveggja
bama móðir. Það er haldið ball í
tilefni 25 ára skólaafmælis og
Peggy Sue fer. Þegar hún er kosin
„drottning kvöldsins“ líður yfir
hana, öllum viðstöddum til mikillar
skelfingar. En Peggy Sue vaknar
og þá 25 árum áður, hún er komin
til ársins 1960. Giftist hún Charlie,
fyrrverandi eiginmanni sínum, Ric-
hard eða Michael? Breytir hún lífi
sínu þegar tækifærið býðst?
Lífsreynd, fertug, tveggja bama
móðir sem skyndilega er orðin 18
ára ráðvillt skólastúlka tekur
kannski aðrar ákvarðanir nú, segir
í frétt frá kvikmyndahúsinu.
, „3 ár jr
ífararbroddi
Gísli J. Johnsen sf. hóf sölu á IBM einkatölvum í mars 1984. Á þeim
þremur árum sem síðan eru liðin, hefur fyrirtækið selt fleiri tölvur en
nokkur annar einstakur aðili hér á landi.
Þarf fleiri meðmnpíi?^
BOKHALDSPAKKI
ífi IBM-XT tölva 640K,
20Mbseguldiskur . kr: 99.700.-
FACIT 4514 prentari .. kr: 44.900,-
Fjérhagsbókhald . kr; 43.200,
Tölvuboró ..... kr: 20.000,
PAKKAVEWÐ staðgr. kn 97.786.-
Greiðslukjör:
Jafnar greiðslur i 12 ménuöi kr: 8.900.- é mánuöi.
RITVINNSLUPAKKI
Námskeið3c
Samtals
agar ... kr: 10.500,
kr. 230.800,
PAKKAVERÐ staðgr. kr 198.270-
Greiöslukjör:
Jafnar grelðslur í 12 mánuðl kr: 18.100 á mánuöi.
Jafnar greiðslur i 24 mánuöi kn 9.800 á mánuði.
Bjóðum einnig mikið úrval af fylgihlutum fyrir tölvur, svo sem
20-30-40-70Mb seguldiska, segulbandsstöðvar fyrir öryggisafrit, ijölþættan
hugbúnað, tölvuborð, kennslu í eigin skóla; sem sagt allt sem þarf.
— Okkar þekkmg í þína þágu
GÍSLI J. JOHNSEN SF. T1
NÝBÝLAVEGI 16 • P.O. BOX 397 • 202 KÓPAVOGUR • SÍMI 641222