Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 14

Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 rr NORRÆN BIRTA ÍPARÍS Aldamótamálarinn Þórarinn B. Þorláksson sómir sér þar vel í Petit Palais í París, annarri af stóru g-læsilegn sýningar- höllunum frá heimssýning- unni um aldamótin, stendur yfir mikil sýning á verkum aldamótamálara Norðurlanda undir nafninu Lumieres du Nord eða Birtan á norðurslóð- um. Þarna verða til sýnis fram i maí um 170 málverk eftir norræna málara, allar málað- ar á tímabilinu 1885-1905. Á þeim tíma voru á Norðurlönd- um margir þekktir málarar sem sátu við listabfunna í París, Róm og þýsku borgun- um Berlin og Miinchen. Þar á meðal eru Norðmaðurinn Ed- vard Munch og Daninn Vi- helm Hammershoi, sem í hugum Parísarblaðanna virð- ast bera hæst, enda frægð Munchs gamal gróin en sá síðarnefndi sýnist nú síga á og kominn í tísku. OII stóru dagblöðin í París skrifuðu um sýninguna þegar hún opnaði og hið virta blað Le Monde á forsíðunni, sagði hana fallega og einstakt ævitýri. Libérati- on gerði henni lika góð skil og getur m.a. Islendingsins Þórarins B. Þorlákssonar og mynda hans sem spretti eins Sólarlag við Tjömina nefndi Þórarinn B. Þorláksson þessa mynd, sem hann málaði 1905. Stóri Dímon, olíumálverk eftir Þórarinn B. Þorláksson, málað 1902. og áreynslulaust úr íslensku landslagi, hestanna hans, sól- arlagsins og bláu fjallanna sem speglist í heiðarvötnum í víðáttunni sem líði svo út í bláma nætur og svarta sanda. Sýningin í París, sem áður hafði verið í Diisseldorf og Lon- don, var nú aukin og heilmikið veður af henni gert. Hún var opnuð með viðhöfn af Margréti Danadrottningu 23. febrúar , raunar í tvennu lagi. Fyrst heim- sótti Mitterand forseti sýning- una og skoðaði hana með drottningu og hinum fransk- ættaða eiginmanni hennar og innan við 100 gestum, en síðan var hátíðleg opnun með kampa- vínsveislu fyrir þúsund manns, þar sem Jaques Chirac forsætis- ráðherra og borgarstjóri og menntamálaráðherrann Franco- is Leotard voru gestgjafar. En sýningin í París er haldin að til- Útvegsbanki íslands: Sala hlutabréfa hafin - lágfmarkshlutur lOþúsund LÖG UM stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka íslands tóku gildi 18. mars sl. en samkvæmt lögunum skal viðskiptaráðherra annst fyrir hönd ríkisstjómarinnar undirbúning að stofnun hlutafélagsbanka og fara með eignarhlut ríkisins í honum. í samræmi við ákvæði laganna Frestur til að skrifa sig fyrir hluta- hefur fjárhæð hluta verið ákveðin fé í hinum nýja banka, sem lagt hefur verið til að heiti Útvegsbanki íslands hf., rennur út þann 30. mars nk. Vegna ákvæða laga um viðskipta- banka og hlutafélög hefur verið ákveðið að hlutafé hins nýja banka skuli greitt eigi síðar en 30. apríl. Stofnfundur bankans verður hald- inn 7. apríl 1987 og fer þá m.a. fram kjör bankaráðs hins nýja banka. Hinn nýi banki yfirtekur Útvegs- banka ísiands hinn 1. maí nk. með það í huga að einstaklingar og lögaðilar geti keypt hlut í hinum nýja hlutafélagsbanka og er lágmarks- hlutur kr. 10.000.-. Að öðru leyti skiptist hlutafé í hluti að nafnverði kr. 100.000.-, 1.000.000.-, 10.000. 000,- og 100.000.000.-. Frá og með mánudeginum 23. mars mun áskriftarskrá liggja frammi í viðskiptaráðuneytinu, Am- arhvoli, í Útvegsbanka íslands, aðalbanka, og í útibúm hans. Þá er loksins komin á markaðinn sann- kölluð draumableia. Bleia sem situr vel og er þægileg, og um leið svo auðveld í meðförum að afi gamli fer létt með bleiu- skiptin. Minsten bleian er þannig úr gerð að hún dregur í sig mjög mikinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.