Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
Starfsemi Amarfiugs til
hagsbóta fyrir þjóðina
eftir Hörð Einarsson
Það dylst engum, sem les grein
Gísla Maack um Amarflug í
Morgunblaðinu 19. marz sl., að
persónuleg heift stýrir hendi
hans og huga. Heift sinni beinir
hann aðallega að tveimur mönn-
um, Agnari Friðrikssyni, fyrr-
verandi framkvæmdastjóra
Arnarflugs, sem neyddist til að
taka á honum þegar hann setti
félaginu afarkosti, og undirrit-
uðum, sem aldrei hefur átt
nokkurn skapaðan hlut saman
við hann að sælda, ekki einu séð
hann, svo að ég viti til. Og fómar-
lamb hans á að verða Araarflug,
sem hann telur ekki eiga tilvem-
rétt eftir að hann getur ekki
lengur haft gott af félaginu sjálf-
ur.
Blekkingartalið
Að sjálfsögðu mun ég láta liggja
á milli hluta þau skrif Gísla er snúa
að einstökum þáttum í rekstri Arn-
arflugs fyrr á árum, enda þekki ég
ekki til þeirra. Þótt ætíð orki
tvímælis, hvort yfirleitt á að virða
svars skrif á borð við skrif Gísla
tel ég rétt og óhjákvæmilegt að
víkja að því, sem hann kallar
„blekkingarstarfsemi Harðar Ein-
arssonar og félaga hans“, svo erfítt
sem það þó er að festa á því hendur
í grein hans í hvetju þessi „blekk-
ingarstarfsemi" á að vera fólgin.
Til þess að létta sér að koma
óorði á okkur, sem nú sitjum í stjóm
Arnarflugs, byijar Gísli á að gefa
sér, að Agnar Friðriksson hafi
blekkt okkur. Þetta höfum við hins
vegar aldrei sagt. Þvert á móti er
það staðföst skoðun mín, að þótt
þær upplýsingar, sem Agnar Frið-
riksson og aðrir stjómendur
Amarflugs gáfu á grundvelli áætl-
ana sinna um afkomu Amarflugs
hafi ekki staðizt, þegar til uppgjörs
kom, hafí þessar upplýsingar verið
gefnar eftir beztu vitund á þeim
tíma.
Gísla Maack er greinilega sárt
um það, að hætt hefur verið leigu-
flugsverkefnum erlendis á vegum
Amarflugs og að tap Amarflugs á
árinu 1986 er rakið að mestu eða
öllu leyti til leiguflugsverkefnanna,
enda vann hann að þessum verkefn-
um og átti eigi lítinn þátt í áætlana-
gerð um þau. Óskhyggja fær þó
engu breytt hér um, blákaldar stað-
reyndimar tala sínu máli. Ég fæ
heldur ekki betur séð en Gísli kom-
ist á endanum að sömu niðurstöðu
og við í stjórn félagsins, að félagið
hafi ekki haft fjárhagslegt bolmagn
eða stjómunarlega getu til þess að
standa að þessum rekstri. Hvers
vegna þá að halda honum áfram?
Afskiptin, sem
engin voru
Allt tal Gísla Maack um afskipti
mín og minna félaga af rekstri
Arnarflugs í átta mánuði áður en
við gengum til liðs við félagið er
staðlausir stafir. í fyrsta lagi var
það ekki fyrr en í lok janúar 1986,
að þáverandi stjómarformaður fé-
lagsins, Haukur Bjömsson, hafði
samband við mig um málefni Amar-
flugs og ekki fyrr en í marz, að ég
og ýmsir aðrir menn förum að fjalla
alvarlega okkar í milli um málefni
félagsins. í öðra lagi hvarflaði það
ekki að okkur félögunum að hafa
afskipti af rekstri félagsins fyrr en
niðurstaða lægi fyrir í því, hvort
við tækjum þátt í hlutafjáraukning-
unni í félaginu eða ekki og ákvörðun
um það var ekki tekin fyrr en í
júní. Á þessu var fullur skilningur
milli fyrri stjómenda félagsins og
okkar, sem síðar gengum inn í
stjóm þess. Á athugunartímabilinu
greindu stjómendur félagsins okkur
frá ýmsu er varðaði rekstur félags-
ins, en við hvorki hvöttum né löttum
til einstakra ákvarðana, þ. á m.
samnings um pílagrímaflug fyrir
Alsírsmenn. Það var því ekki fyrr
en á lokastigi, að ég og mínir félag-
ar hófum bein afskipti af leigu
flugvéla til verkefnisins, en þá þeg-
ar var t.d. það atriði umsamið, sem
mestu máli skipti, þ.e. leigugjaldið
til eiganda vélanna.
Leignflugið erlendis
Af einhveijum ástæðum er sú
endurskipulagning, sem fram hefur
farið á Amarflugi og enn er unnið
að, mikill þymir í augum Gísla
Maack. Verður ekki betur séð en
hann hefði talið það betri kost að
hætta áætlunarflugi milli íslands
og Evrópu, en halda áfram leigu-
flugsverkefnum erlendis.
Hvort sem mönnum líkar betur
eða verr er það staðreynd, að hin
hörmulega afkomu leiguflugsverk-
efnanna var að sliga félagið. Því
er það ótvírætt þýðingarmesta ráð-
stöfunin í endurskipulagningunni á
rekstri Amarflugs að draga félagið
út úr þessum rekstri. Auðvitað verð-
ur þó ekki skorið á svo umfangsmik-
inn rekstur eins og hér var um að
ræða í einu vetfangi. Fjöldi mála,
sem tengist þessum rekstri, er enn
í gangi og verður öragglega í tals-
verðan tíma. Á meðal þessara mála
era ýmis uppgjörsmál og deilumál,
sem verða að hafa sinn gang. Það
kostar bæð starfskrafta og fé að
Ijúka slíkum málum, en að því er
unnið að leysa þau með sem hag-
kvæmustum hætti fyrir Amarflug.
Heilaspuni um
innanlandsflug-
Einn sérkennilegasti heilaspuni
Gísla Maack varðar innanlandsflug
Amarflugs, sem ákveðið hefur ver-
ið að reka í sérstöku fyrirtæki. Gísli
fullyrðir, að ábyrgðinni á rekstri
þessa fyrirtækis hafi verið komið á
sveitarfélög þeirra staða, sem flogið
er til. Hið rétta er hins vegar, að
sveitarfélögin koma hér hvergi
nærri og hefur ekki einu sinni verið
rætt við forsvarsmenn þeirra um
þátttöku í þessum rekstri. Amar-
flug innanlands hf. er stofnað sem
hreint dótturfyrirtæki Amarflugs
hf. Þá getur Gísli Maack alveg spar-
að sér áhyggjur af væntanlegri sölu
flugvéla og fasteigna Amarflugs til
innanlandsflugfélagsins eða að
samgönguráðherra sér að aðstoða
Amarflug við að skjóta undan eign-
um. Sala á flugvélum og fasteignum
til innanlandsflugfélagsins er ekk-
ert á döfinni hvað sem einhvem
tíma síðar kann að verða.
Osæmilegar dylgjur
Eitthvert ósmekklegasta atriðið
í öllum skrifum Gísla Maack er
dylgjur hans í þá átt, að stjómend-
ur Ámarflugs beiti flugmenn og
flugvirkja „þrýstingi í viðhaldsmál-
um“, sem hlýtur að eiga að skilja
þannig, að hvatt sé til vanrækslu í
viðhaldi. Hér fer Gísli enn einu sinni
með staðlausa stafi. Viðhald á flug-
vélum Amarflugs er í höndum
hinna ágætustu fagmanna, sem
stjómendur félagsins treysta full-
komlega fyrir því, að öryggissjónar-
miða sé í hvívetna gætt. Og
flugvélar félagsins era með reglu-
legu millibili sendar í skoðun í
samræmi við fyrirmæli þar að lút-
andi.
I samanburði við síðastgreinda
atriðið er það svo meinlítið, þótt
Gísli Maack haldi því fram, að ég
stjómi „markvissri áróðurs- og aug-
lýsingaherferð í Qölmiðlum" og sé
á fjölmiðla„trippi“ vegna þeirra
upplýsinga, sem eftir mér hafa ver-
ið hafðar að undanfomu um málefni
Amarflugs. Við, sem vinnum að
málum Amarflugs, kysum ekkert
frekar en geta unnið að þeim í full-
kominni kyrrþey — geram það eftir
því sem við verður komið. Fýrirtæki
verða ekki rekin eða endurskipulögð
í blöðum eða öðram íjölmiðlum.
Hitt er okkur þó Ijóst, að vegna
erfiðleikanna í rekstri Amarflugs
er félagið undir smásjá. Af þeim
Hörður Einarsson
„Ekkert er óedlilegt við
það, að menn hafi mis-
munandi álit á mögu-
leikum Arnarflugs eins
og annarra fyrirtækja
og auðvitað gengur
enginn þess dulinn, að
hér er um áhættusaman
atvinnurekstur að
ræða. Þótt allt gengi
að óskum í rekstri Arn-
arf lugs næstu árin er
ljóst að endurreisn fé-
lagsins mun taka mörg
sökum höfum við talið rétt að gefa
sem allra ítarlegastar upplýsingar
um rekstur og önnur málefni fyrir-
tækisins, þegar eftir því hefur verið
leitað. Það er og hefur verið stefna
okkar í því efni að draga ekkert
undan og skýra frá rekstri fyrirtæk-
isins alveg opinskátt. Þessari stefnu
verður áfram fylgt, bæði gagnvart
íjölmiðlum, hluthöfum og væntan-
legum hluthöfum. Gísli Maack þarf
því ekki að hafa áhyggjur af þvi,
að þeir, sem vilja kaupa hlutafé í
félaginu, muni ekki fá allar upplýs-
ingar, sem unnt er að gefa, þ. á m.
um þau efni, sem hann tiltekur í
grein sinni.
Samstarf ríkisvalds
og einkaaðila um endur
reisn Arnarflugs
Þó að endurskipulagning Amar-
flugs hafi vissulega notið stuðnings
af hálfu ríkisvaldsins fer því fjarri,
að Amarflug sé „ríkisstyrktur
ómagi á þegnum þessa lands", eins
og Gísli Maack fullyrðir í grein
sinni. Starfsemi Amarflugs er þvert
á móti til ómetanlegs gagns fyrir
íslenzku þjóðina. Sú þjónusta, sem
félagið heldur uppi í flutningum
með farþega og vörar milli íslands
og áætlunarstaða á meginlandi
Evrópu er ómissandi fyrir íslenzkt
viðskiptalíf og ferðamannaþjónustu
hér á landi. Sú samkeppni, sem
Amarflug tryggir í flugsamgöngum
milli Islands og Evrópu, hefur ótrú-
leg áhrif til hagsbóta fyrir íslenzkan
almenning, þótt markaðshlutdeild
Amarflugs sé tiltölulega lftil. Það
var því tvímælalaust rétt stefnu-
mörkun hjá ríkisstjóminni, þegar
erfiðleikar Amarflugs komu á dag-
skrá fyrir u.þ.b. 1 lh ári, að stuðla
að því, að hér á landi yrðu rekin
tvö millilandaflugfélög og beita sér
fyrir stuðningi við Arnarflug í fram-
haldi af þeirri stefnumörkun. I ljósi
hennar gengu fjölmargir einkaaðil-
ar til liðs við félagið með hlutafjár-
framlögum. Þó að vandi Arnarflugs
hafi reynzt stærri heldur en bæði
nýir hluthafar og forsvarsmenn
ríkisvaldsins töldu í upphafi réttlæt-
ir það engan veginn, að hlaupið sé
frá vandanum. Einkaaðilar og ríkis-
vald hafa sagt a í ákvörðun sinni.
að endurreisa Amarflug og hljóta
því einnig að segja b.
Trú á lífvæn-
legan rekstur
Sú hlutafjáraukning, sem nú
stendur yfir hjá Amarflugi, er þýð-
ingarmikill liður í endurreisn
Amarflugs. Stjórnarmenn í félag-
inu og þeir hluthafar, sem standa
þeim nærri, hafa lýst yfir vilja
sínum til þess að taka myndarlegan
þátt í hlutafjáraukningunni, jafnvel
með mun hærri hlutafjárframlögum
en í hlutafjáraukningunni á sl. ári.
En veralega meira verður þó til að
koma. Þess vegna hefur m.a. verið
auglýst til sölu hlutafé á almennum
markaði. Ekkert er óeðlilegt við
það, að menn hafi mismunandi álit
á möguleikum Amarflugs eins og
annarra fyrirtækja og auðvitað
gengur enginn þess dulinn, að hér
er um áhættusaman atvinnurekstur
að ræða. Þótt allt gengi að óskum
í rekstri Amarflugs næstu árin er
ljóst að endurreisn félagsins mun
taka mörg ár. Ekki verður betur
séð en rekstur millilandaflugsins
hafi gengið samkvæmt áætlun það
sem af er þessu ári. Fyrstu tvo
mánuði ársins jukust flutningar í
millilandafluginu um 45% miðað við
sama tíma á sl. ári. Þeir, sem standa
rekstri félagsins næst, hafa því fulla
trú á því, að hér sé um ágætlega
lífvænlegan rekstur að ræða, svo
framarlega sem náist að saxa á
gamla skuldahalann eins og að er
stefnt með hlutafjáraukningunni.
Þessa trú sína ætla þeir að stað-
festa í verki með hlutafjárframlög-
um — og það er bezta tryggingin,
sem aðrir aðilar geta fengið fyrir
því, að af fullri sannfæringu sé að
hlutafjáraukningunni staðið.
Höfundur er stjómarformaður
Amarflugs hf.
Ríkisútvarp/Sjónvarp:
Selma Guðmundsdóttir
Óskar Ingólfsson
Guðrún S. Birgisdóttir
Háskólatónleikar á morgnn
HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða á
morgun, 25. mars, í Norræna
húsinu. Tónleikarnir hefjast kl.
12.30 og standa í u.þ.b. hálftíma.
Guðrún S. Birgisdóttir leikur á
þverflautu, Óskar Ingólfsson á
klarinett og Selma Guðmundsdóttir
á píanó verk eftir Lewin, Villa Lo-
bos og Saint-Saéns.
Endanleg mynd komin á
kosningasj ónvarpið
ENDANLEGA var gengið frá
fyrirkomulagi kosningasjón-
varpsins á fundi útvarpsráðs sl.
föstudag. Jafnframt var felld
tillaga framkvæmdastjórnar
sjónvarpsins um að sjónvarpa
beint framboðsfundum flokk-
anna frá Sauðárkróki og Sel-
fossi.
„Við gerðum tillögu um að sjón-
varpa tveimur fundum til að gera
kosningabaráttuna líflegri og
skemmtilegri en verið hefur undan-
farið," sagði Pétur Guðfinnsson,
framkvæmdastjóri sjónvarps, í
samtali við Morgunblaðið. Ut-
varpsráð taldi hinsvegar að þar
sem ekki væri hægt að gera öllum
kjördæmum jafnhátt undir höfði
væri óeðlilegt að taka tvö kjördæmi
út úr og sjónvarpa þaðan. Einnig
taldi ráðið að þeir átta framboðs-
' -w f’%/* .$*• * > itx . j
fundir, sem fyrirhugaðir eru í
sjónvarpi, dygðu af hálfu sjón-
varpsins.
Ánnars vegar verða framboðs-
kynningar í sjónvarpssal í lok
dagskrár þann 6. og 7. apríl, fjórir
flokkar á hvora kvöldi. Hins vegar
verða haldnir átta framboðsfundir
fyrir hvert kjördæmi og verða þeir
í formi umræðuþátta. Fundarstjór-
ar verða fréttamenn sjónvarpsins.
Sex fundanna verða í beinni út-
sendingu úr sjónvarpssal, en fundir
tveggja kjördæma, Norðurlands
vestra og Norðurlands eystra,
verða sendir út frá Akureyri
fimmtudaginn 23. apríl á sumar-
daginn fyrsta.
Kvöldið fyrir kosningar, föstu-
daginn 24. apríl, verður síðan
hringborð í beinni útsendingu með
þátttöku formanna flokkanna.