Morgunblaðið - 24.03.1987, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 24.03.1987, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 25 Húsaleigukönnun Hagvangs: Staðsetning og stærð skiptir mestu um verðlag AÐALÞÆTTIR við verðlagningu á húsaleigu atvinnuhúsnæðis eru staðsetning og stærð leiguhús- næðisins, samkvæmt niðurstöð- um húsaleigukönnunnar Hag^vangs sem nú er nýlokið. Þannig getur vel staðsett lítil verslunaraðstaða á jarðhæð kostað rúmlega tvöfalt meðalverð verslun- arhúsnæðis og allt að þrefalt meðalverð skrifstofuhúsnæðis á sama svæði, að sögn Reynis Krist- inssonar, stjórnarformanns Hag- vangs. Þá er verðlagsþróun innan svæða og milli svæða nokkuð breytileg frá ári til árs. Fylgir þessi þróun nokk- uð þeim breytingum sem verða þegar svæðin þróast úr að vera iðn- aðarsvæði í útjaðri byggðar, yfir í að verða verslunar- og skrifstofu- húsnæði í tengslum við samfellda byggð. Þetta er í fimmta sinn sem Hag- vangur safnar upplýsingum um húsaleigukostnað á atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Könnunin nær yfir átta svæði: vesturbæ; mið- bæ; Laugaveg og Þingholt; Múla, Skeifu og Kringlua; Voga og Sund; Artúnshöfða, Kópavog og Hafnar- fjörð. Atvinnuhúsnæði er skipt niður í verslunarhúsnæði, skrifstofuhús- næði og iðnaðarhúsnæði. Niður- stöður könnunarinnar byggja á upplýsingum frá um á þriðja hundr- að leigumála frá leigjendum og leigusölum, bæði einkaaðilum og opinberum fyrirtækjum. Ríkismat sjávarafurða: Starf smönnum hefur fækkað um tæplega 60 Útgjöld minnka um 25 milljónir á ári Víða reynt að koma fiski framhjá mati FERSKFISKMAT Ríkismats sjávarafurða var lagt niður um síðustu áramót og hefur mat á ferskum fiski færzt til fisk- vinnslu og útgerðar. Við þessa breytingu var 58 starfsmönnum í 43 stöðugildum sagt upp störf- um og eru þær uppsagnir ýmist orðnar að veruleika eða verða það um mánaðamótin. Miðað við heilt ár er gert ráð fyrir því, að útgjöld Ríkismatsins minnki um 25 milljónir króna, en sá sparnað- ur næst ekki allur á þessu ári. Halldór Árnason, fiskmatsstjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið, að uppsagnarfrestur hjá viðkom- andi starfsmönnum hefði verið mislangur, en uppsagnir væru allar að komast til framkvæmda. Hann sagði að mat á ferskum fiski, eftir þetta, hefði verið unnið með ýmsum hætti. Algengt hefði verið, sérstak- lega á suðvesturhorni landsins, að menn hefðu viljað fara framhjá mati, þrátt fyrir skyldu til hins gagnstæða. Það hefði meðal annars stafað af því, að útgerðir og físk- verkendur hefðu í talsverðum mæli samið um fast verð á aflanum mið- að við fyrirfram ákveðna skiptingu eftir gæðaflokkum. Þeir hefðu því ekki haft beina þörf fyrir matið til að reikna út verð á fiskinum. Á þessum hluta landsins hefðu mál þróazt í þessa átt, en víða hefðu fiskvinnslufyrirtæki ráðið fyrrum matsmenn Ríkismatsins til starfa hjá sér og væri það algengast á svæðinu frá Austfjörðum og norður um til Vestfjarða. Halldór sagði einnig, að starf- semi Ríkismatsins á þessari vertíð Leiðrétting ÞAU mistök urðu í viðtali við Sigurð Hafliðason sl. sunnudag að kona hans var sögð Óskars- dóttir en heitir réttu nafni Klara Tómasdóttir. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. hefði aðallega beinzt að því, að fylgjast með meðferð afla og reyna að hafa áhrif á úrbætur með reglu- legri útgáfu fréttabréfs. Vafasamt væri að binda of marga þætti með- ferðar á fiski í reglugerð og því væri farin sú leið að reyna að hafa áhrif á viðkomandi með dreifingu upplýsinga og frétta af gangi mála. Starfsmenn stofnunarinnar yrðu því miður varir við mikla sóun verð- mæta, sem stafaði af slæmri meðferð á fiski. Það ætti við um alla þætti, frá veiðum og þar til fiskur væri tekinn úr hráefnis- geymslum. Meðferð um borð, við flutninga á landi og í móttökum væri oft ábótavant. Með því að bæta meðferð fisksins á öllum þess- um stigum mætti auka verðmæti aflans verulega. Prestkosningalögin: ' *IÍ Rækjutogarinn Gissur ÁR 6 í heimahöfn. Þorlákshöfn: Morgunblaðið/.IHS Rækjutogarinn Gissur ÁR 6 kemur til heimahafnar Þorlákshöfn. FJÖLDI manns var samankom- inn á Svartaskersbryggjunni í Þorlákshöfn til að fagna því er rækjutogarinn Gissur ÁR 6 kom til heimahafnar í fyrsta sinn á fimmtudag. öllum var boðið um borð til að skoða þetta glæsilega skip og þiggja veit- ingar í boði eigenda. Það er hlutafélagið Ljósavík í Þorláks- höfn sem á þessa glæsilegu 315 tonna fljótandi rækjuverk- smiðju. Eigendur Ljósavíkur eru þau hjónin Unnþór Halldórsson og Kristín Þórarinsdóttir og Guð- mundur Baldursson og Kim Soring. Þau áttu áður 135 tonna bát með sama nafni. Sá bátur var seldur í júní 1985. En það var ekki fyrr en í apríl 1986 sem skrif- að var undir samninga við skip- asmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi um nýja skipið. Búið er að fara reynslusiglingu vestur í Kolluál og reyndist skipið í alla staði mjög vel. Aðalskipstjóri á skipinu verður Guðmundur Guðfinnsson en ann- ar eiganda Guðmundur Baldurs- son verður afleysingaskipstjóri. Alls eru ráðnir um 20 menn á skipið en 13 manna áhöfn verður í hverri veiðiferð. Auk þessara 13 verða með í fyrstu veiðiferð raf- virki frá skipasmíðastöðinni og japani sem sjá mun um að gæði framleiðslunnar verði í lagi. Sa- mið hefur verið við japani um Guðmundur Guðfinnsson skipstjóri. kaup á öllum aflanum fyrirfram og skuldbinda þeir sig til að greiða markaðsverð. Að sögn vélstjórans, Jóns Inga Gunnsteinssonar, eru allar vélar og tæki af nýjustu og bestu gerð. Siglingatækin eru flest frá Fur- ino, keypt hjá ísmar og Skip- aradíói. Aðalvélin er norsk 165 hestafla dieselvél sem heitir Berg- en og er hún þannig stillt að hægt er að brenna svartolíu þó ekki sé reiknað með því á næs- tunni. Ljósavélarnar eru tvær 390 hestafla Catterpiller og. 230 Cummings. Þær geta framleitt nálægt einu megawatti af raf- magni. Frystikerfið sem er danskt heitir Henry Södy getur afkastað 22 tonnum á sólarhring. Lestin tekur um 110 tonn af frystri rækju. Margar nýjungar eru í skipinu t.d. er kælisjórinn af vél- inni sem er um 32 gráðu heitur notaður til að hita upp allt rekk- verk og minnka þannig ísingar- hættu. Einnig er eimari í skipinu sem getur framleitt 7 tonn af fersku vatni úr sjó á sólarhring. Ibúðir áhafnar sem allar eru hinar vistlegustu eru hitaðar upp með katli sem nýtir afgasið frá vélinni. JHS Nýju lögin breyta í raun litlu -segir Geir Waage, formaður Prestaf élagsins „Það er búið að berjast mjög lengi fyrir breytingu á gömlu lögunum sem eru frá 1915, en nýju lögin breyta í raun litlu. I stað þess að sóknarbörn velji grest mun kjörnefnd gera það. Eg sé ekki ástæðu til að taka undir þann mikla fögnuð sem komið hefur fram hjá mörgum því kosningar hafa ekki verið lagðar af,“ sagði Geir Waage, formaður Prestafélags íslands þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á hinum nýju prestkosn- ingalögum sem samþykkt voru á Alþingi skömmu fyrir þinglausn- ir. „Breytingin _er þó ótvírætt til nokkurra bóta.I fyrsta lagi er búið að fá í gegn að sniðnir voru verstu vankantarnir af gömlu lögunum og því má gera ráð fyrir að auðveldara verði að fá fram enn frekari breyt- ingar þegar reynsla er komin á þetta nýja fyrirkomulag. í öðru lagi er það ljóst að gamla fyrirkomulag- ið var algerlega búið að ganga sér til húðar, það hentaði engan veginn í stóru, fjölmennu prestaköllunum. Kosningabaráttan var orðin svo viðamikil þar og þar með kostnaðar- söm að stór hætta var á því að peningarnir skæru úr um hver hlyti embætti. Segja má að vankantarnir hafi verið þeir sömu og eru á próf- kjörsfyrirkomulaginu. I þriðja lagi, og það ætti í raun alltaf að nefna fyrst, þá er prestkosning, hvort- heldur litið er á gamla fyrirkomu- lagið eða nýju lögin, algerlega fráleit aðferð til að kalla prest. Hún er ósamrýmanleg allri kirkjulegri hefð, enda ósamrýmanleg eðli þess postullega embættis sem presturinn gegnir. Geir sagði að mjög mikið hefði verið hringt í sig á meðan umræða stóð yfir um frumvarpið á Alþingi, aðallega prestar en einnig leik- menn. „Þeir vildu að stjórn Presta- félagsins beitti þrýstingi til að frumvarpið færi í gegn, en það gerðum við ekki því við töldum eðlilegt að þingmenn fenju frið til að fjalla um mál sem mikla um- Qöllun fékk innan kirkjunnar. Þetta þýðir þó ekki að ekki hafi verið talað við þingmenn af hálfu presta. Almennt virðast menn mótfallnir prestkosningum, en helst virðist að fyrirkomulagið eigi sér formælend- ur hjá eldri kynslóðinni. Mér fínnst með ólíkindum hvað þetta mál virð- ist mikið tilfinninga- og hitamál hjá fólki almennt. Persónulega tel ég það galla að biskup skuli ekki vera tryggð bein áhrif á val prests í hveiju tilviki og er dálítið hræddur við að þetta nýja fyrirkomulag geti leitt til þess að ákveðin togstreita geti myndast milli sveitasókna, ann- ars vegar, og sóknarnefnda { þéttbýlisstöðunum innan sama pre- stakalls, hinsvegar.Ég tel einnig að ákveðin hætta sé á því að pólitík komist inn í prestkosningar með eindregnari hætti en verið hefur. Það eru mörg fleiri atriði í lögunum sem ég er dálítið hræddur við , en þegar á heildina er litið eru nýju prestkosningalögin þakkarverð úr- bót, miðað við það sem áður var.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.