Morgunblaðið - 24.03.1987, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
GREINING á fylgi stjómmála-
flokkanna í síðustu þjóðmála-
könnun _ Félagsvísindastofunar
Háskóla íslands leiðir í ljós, að
rúmlega 40% verka- og iðnaðar-
fólks í alþýðusambandinu styðja
Sjálfstæðisflokkinn, um 22%
styðja Alþýðuflokkinn og um
16% styðja Alþýðubandalagið.
Um 41% launþega i heild styðja
Sjálfstæðisflokkinn og um 55%
atvinnurekenda. Alþýðubanda-
lagið og Kvennalistinn njóta
meira fylgis meðal opinberra
starfsmanna en þeirra sem vinna
hjá einka- eða samvinnufyrir-
tækjum.
í maí á síðasta ári birti Félags-
vísindastofnun greiningu á fylgi
flokka í helstu starfsstéttum. Þar
kom meðal annars fram, að fylgi
Alþýðuflokks var nokkuð jafnt í
flestum stéttum, á bilinu 15—20%,
en þó var það minna meðal bænda
og skrifstofufólks og meira meðal
sjómanna. Nærri 60% bænda sögð-
ust mundu kjósa Framsóknarflokk-
inn, ríflega 20% sjómanna
sömuleiðis, en fylgi flokksins meðal
kennslu- og heilbrigðisstétta og
skrifstofufólks var minna en al-
mennt var meðal annarra stétta.
Sjálfstæðisflokkur naut fylgis um
40% úr stéttum verkalýðs, iðnaðar-
manna og skrifstofufólks, mun
minna meðal kennslu- og heilbrigð-
isstétta og bænda, en meira meðal
sérfræðinga, stjómenda og atvinnu-
rekenda. Alþýðubandalag hafði
stuðning um 30% kennslu- og heil-
brigðisstétta, 15—18% verkafólks,
iðnaðarmanna og sjómanna, og um
10% stuðning meðal annarra stétta.
Kvennalisti hafði loks mest fylgi
meðal kennslu- og heilbrigðisstétta
og skrifstofufólks.
Starfsmenn Félagsvísindastofn-
unar hafa nú unnið frekar úr
könnun á fylgi flokkanna, sem gerð
var fyrir Morgunblaðið dagana 7.
til 12. mars. í meðfylgjandi töflum
og línuritum er fylgið greint sér-
staklega fyrir meðlimi helstu stétt-
arsamtaka, eftir þjóðfélagsstöðu og
eftir því hvort kjósendur starfa í
einkageiranum eða hjá hinu opin-
bera. Hér er um nýtt sjónarhom á
fylgi flokkanna að ræða því byggt
er á annars konar flokkun en í ofan-
nefndri greiningu á fylgi meðal
starfsstétta. Þó er rökrétt samhengi
milli niðurstaðna úr báðum grein-
ingum. Hafa ber í huga að minni
hópamir í töflunum em full fá-
mennir til að draga megi af þeim
nákvæmar ályktanir um skiptingu
þeirra á flokka, en þeir gefa þó
vísbendingar.
í töflu 1 er fylgi stjórnmálaflokk-
anna sýnt meðal meðlima helstu
stéttarsamtaka launþega, meðal
launþega í heild og meðal atvinnu-
rekenda og einyrkja. Meðlimir ASÍ
eru greindir í tvennt, verka- og iðn-
aðarfólk annars vegar og verslunar-
og skrifstofufólks hins vegar. Þá
er fylgi flokka meðal meðlima
BSRB sýnt. Rétt er að benda á að
þeir sem þar koma fram endur-
spegla ekki alla opinbera starfs-
menn. Sú flokkun sem fram kemur
í töflu 2 sýnir þá betur í heildina.
Fjórði dálkurinn sýnir fylgið í öðrum
launþegafélögum, en flestir í þess-
um hópi eru úr Sambandi banka-
manna, BHMR og Bandalagi
kennara. I fímmta dálki er fylgi
flokkanna meðal kjósenda í hópi
launþega í heild sýnt, bæði meðal
þeirra sem eru í launþegasamtökum
og annarra. Loks eru atvinnurek-
endur og einyrkjar í heild sýndir til
samanburðar við hina ýmsu hópa
launþega.
Rúmlega 40% verka- og iðnaðar-
fólks í ASÍ styður Sjálfstæðisflokk,
um 22% styðja Alþýðuflokk og um
16% segjast munu kjósa Alþýðu-
bandalag. Meðal verslunarfólks í
ASÍ hefur Sjálfstæðisflokkur meiri
stuðning, eða um 50%, en Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag hafa
minni stuðning. Framsóknarflokkur
og Kvennalisti hafa hins vegar held-
ur meiri stuðning meðal verslunar-
fólks en meðal verkalýðshópanna í
ASÍ. Meðal meðlima BSRB hefur
Sjálfstæðisflokkur um 39% og Al-
þýðuflokkur um 23%, en Alþýðu-
bandalag fær stuðning um 16%.
Kvennalisti fær heldur meiri stuðn-
ing meðal meðlima BSRB og
annarra launþegasamtaka en ASI.
Ef litið er á launþega í heild, í
dálki 5, má sjá að um 41% þeirra
styðja Sjálfstæðisflokk, 18% styðja
Alþýðuflokk og um 16% Alþýðu-
bandalag. Fylgi Framsóknarflokks
og Kvennalista meðal launþega er
minna. Atvinnurekendur styðja
Sjálfstæðisflokk hins vegar í ríkari
mæli, eða um 55%. Alþýðuflokkur
og Framsóknarflokkur hafa svipað-
an stuðning í þessum hópi
(17—18%), en aðrir flokkar hafa
minna. I hópi einyrkja er allstór
hópur bænda ásamt iðnaðarmönn-
um og öðrum. Þetta kemur fram í
því að Framsóknarflokkur fær
nærri þriðjungs stuðning hjá ein-
yrlq'um, en rétt er að hafa í huga
að fylgi flokkins meðal bænda einna
er hærra.
í töflu 2 er sýnt fylgi flokkanna
meðal kjósenda sem starfa í einka-
geira og í opinberum geira atvinnu-
lífsins.
Tafla 2.
Fylgi flokka meðal kjósenda sem
starfa í einkageira og í opinberum
geira.
Einka- Opinber
geiri geiri
Alþýðuflokkur 18 18
Framsókn 15 11
Sjálfstæðis- 44 35
flokkur
Alþýðubandalag 12 22
Kvennalisti 5 11
Flokkur 2 2
mannsins
Sérframb. 1 1
Stefáns Valg.
Þjóðarflokkur 3 2
Alls 100 100
Fjöldi 479 176
Þeir sem vinna við samvinnu-
rekstur teljast með einkageira.
Meginniðurstaðan í töflu 2 er sú,
að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur hafa minna fylgi meðal
%
þeirra sem starfa í opinbera geiran-
um en hinna sem starfa í einka-
geira. Á móti kemur að Alþýðu-
bandalag og Kvennalisti hafa meira
fylgi meðal opinberra starfsmanna.
í töflu 3 er sýnt fylgi flokkanna
meðal helstu menntahópa.
Taflan sýnir að Sjálfstæðisflokk-
ur hefur mikið fylgi í öllum
menntahópum, en mest þó meðal
háskólamanna og minnst meðal
þeirra sem hafa lokið skyldunámi.
Alþýðuflokkur hefur mest fylgi
meðal þeirra sem einungis hafa lok-
ið verklegu framhaldsnámi, en
svipað meðal annarra menntahópa.
Framsóknarflokkur hefur mest
fylgi í hópi þeirra sem hafa lokið
skyldunámi, en minnst meðal þeirra
sem hafa lokið bóklegu framhalds-
námi. Alþýðubandalag hefur hins
vegar mestan stuðning meðal þeirra
sem hafa lokið bóklegu framhalds-
námi (í þessum hópi er hluti
kennara), en minnst í hópi verk-
menntafólks.
Fylgi stjórnmálaflokkanna eftir þjóðfélagshópum:
Um 40% verkafólks í ASÍ
styðja Sjálfstæðisflokkiim
— Alþýðubandalagið og Kvennalistinn sækja fylgi til opinberra starfsmanna
ASÍ: ASÍ: Verkaf-, Versl. Iðn.menn fólk. BSRB Önnur launþ. félög Launþ.Atvinnu- Ein- alls rekenduryrkjar
% % % % % % %
Alþýðu- 22 14 23 15 18 18 11
flokkur Framsókn 10 13 12 10 12 17 31
Sjálfstæðis- 41 50 39 38 41 55 37
flokkur Alþýðu- 16 12 16 15 16 8 8
bandalag Kvennalisti 4 9 10 13 8 0 0
Flokkur 2 1 — 4 2 2 2
mannsins Sérframb. 3 1 1 0 0
Stefáns Valgeirs. Þjóðar- 3 1 4 2 0 0
flokkur Alls 100 100 100 100 100 100 100
Fjöldi 183 77 74 79 529 60 65
Tafla 1. Fylgi flokka meðal meðlima ólíkra stéttarsamtaka launþega, og
meðal atvinnurekenda og einyrkja. Einungis þeir sem gefa upp flokk.
Skyldu- Stysta Verkl. Bókl. Hásk,-
nám framh. framh. framh. nám
% % % % %
Alþýðuflokkur 14.6 18.2 24.8 13.4 15.2
Framsókn 17.1 13.6 13.4 8.2 12.1
Sjálfstæðis- flokkur 36.6 43.2 43.6 39.2 47.0
Alþýðubandalag 17.6 12.9 9.4 23.7 12.1
Kvennalisti 5.9 9.1 2.0 12.4 12.1
Flokkur mannsins 1.5 1.5 2.7 1.0 —
Sérframb. Stefáns Valg. 1.0 0.8 1.3 1.0 —
Þjóðarflokkur 5.9 0.8 2.7 1.0 1.5
Alls 100 100 100 100 100
Fjöldi 205 132 149 97 66
Tafla 3.
Fylgi flokka eftir menntun. Einungis þeir sem gefa upp flokk.
j ■ ASÍ: Verkafólk
|
; 53 ASÍ: Verslunarf.
Alþýðufl. Framsókn Sjálfst.fl. Alþýðubl. Kvennalisti
Fylgi flokkanna meðal meðlima í ASÍ, BSRB og atvinnurekenda.
Alþýðufl. Framsókn Sjálfst.fl. Alþýðubl. Kvennalisti
Fylgi flokka í einkageira og opinbera geiranum.