Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
Aðalfundiir miðstjórnar Framséknarflokksins
AF INNLENDUM
VETTVANGI
eftir AGNESI BRAGADÓTTUR
Ahyggjur vegna lélegrar
útkomu í skoðanakönnunum
ÞAÐ KANN að hljóma einkennilega, en er eigi að síður stað-
reynd, að umræðan um Albertsmál og innri átök í Sjálfstæðis-
flokknum setti hvað mestan svip á aðaifund miðstjórnar
Framsóknarflokksins sem haldinn var um helgina á Selfossi.
Ekki svo að skilja að um skipulagðan dagskrárlið hafi verið að
ræða, heldur ræddu menn málin í hálfum hljóðum og reyndu að
gera sér grein fyrir því hvaða áhrif það hefði fyrir Framsóknar-
flokkinn, ef Albert Guðmundsson færi fram í sérframboð í
Reykjavík. Greinilegt er af máli miðstjórnarmanna, að þetta er
þeim mikið áhyggjuefni, og hallast margir þeirra meira að segja
að því að slíkt sérframboð geti gert það að verkum að Framsókn-
arflokkurinn í Reykjavík fengi engan mann kjörinn á Alþingi.
Steingrímur Hermannsson
formaður Framsóknarflokks-
ins flutti miðstjóminni skýrslu
sína á laugardagsmorgun. Hann
sagði að þessi miðstjórnarfundur
væri haldinn í skugga skoðana-
kannanna, sem ekki væni
Framsóknarflokknum hagstæðar.
Umræðan um ástæður þess að
Framsóknarflokkurinn hefur
komið illa út úr skoðanakönnun-
um var mjög mikil á fundinum.
Steingrímur sagði að það væri
staðreynd að Framsóknarflokkur-
inn kæmi ávallt verr út úr
skoðanakönnunum en kosningum.
Iðulega væri fylgi flokksins tveim-
ur til §órum prósentustigum
meira í kosningum en skoðana-
kannanir segðu til um. Þetta sagði
Steingrímur þó ekki vera nægi-
lega skýringu. Málflutningur og
verk Framsóknarflokksins næðu
ekki til unga fólksins í landinu,
og því þyrfti flokkurinn að breyta.
Þá sagði Steingrímur að það væri
staðreynd að sá klofningur og sú
sundrung sem ríkti á vinstri væng
stjómmálanna hefði haft skaðleg
áhrif á fylgi Framsóknarflokksins.
„Það er ekki heldúr nokkur vafi
á því að framboð Stefáns Val-
geirssonar í Norðurlandi eystra
hefur haft áhrif á fylgi flokksins,
ekki bara þar, heldur víða um
land,“ sagði Steingrímur.
Það var ljóst af máli miðstjóm-
armanna að það er þeim mikið
áhyggjuefni að flokkurinn skuli
ekki standa betur en raun ber
vitni, nú, þegar einungis mánuður
er til kosninga. Voru þeir sam-
mála um að flokksmenn þyrftu
að breyta um baráttuaðferðir og
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins flytur miðstjóm flokksins skýrslu sína.
mannsson fyrir þau orð sem hann
lét falla í viðtali við Vikuna í
síðustu viku. Steingrímur sagði
þar m.a. að það yrði að viðurkenn-
ast að þeir Aiexander Stefánsson
og Jón Helgason næðu ekki til
fóiksins á sama hátt og hann og
Halldór Ásgrímsson. Enginn
fundarmanna gerði þetta viðtal
þó að umræðuefni úr (>ontu, en
menn skröfuðu sín á milli um að
hér hafi gáleysislegt tal form-
annsins komið sér illa og skaðað
flokkinn. Einn fundarmanna upp-
lýsti mig um að á þingflokksfundi
Framsóknarflokksins sl. miðviku-
dag hefði viðtal þetta verið rætt.
Jón Helgason hafi þá látið þau
orð falla að þessi orð Steingríms
yrðu ekki tekin aftur. Skaðinn
væri skeður, en Alexander mun
hins vegar hafa verið ómyrkari í
máli og gagnrýnt Steingrím harð-
lega fyrir þessi orð. Sagði Alex-
ander að hér væri um mjög
ómaklega og óverðskuldaða aðför
að þeim Jóni að ræða. Steingrím-
ur mun þá hafa svarað því til að
hann stæði við hvert orð í Vikuvið-
talinu. Það væri betra fyrir
Alexander og raunar allan þing-
flokk Framsóknarflokksins að
gera sér grein fyrir því að mál-
flutningur þeirra Alexanders og
Jóns næði ekki eyrum fólksins.
Þetta yrði hann var við á hverjum
einasta fundi sem hann kæmi á.
Það má segja að málflutningur
Steingríms á miðstjórnarfundin-
um, hafí verið í svipuðum og dúr
og það sem hann sagði á þing-
flokksfundinum, nema hvað hann
gagnrýndi ekki einstaka menn,
heldur lýsti þungum áhyggjum
sínum, yfir því að það sem Fram-
sóknarflokkurinn væri að gera og
hefði gert undanfarin fjögur ár,
næði ekki eyrum fólksins.
reyna með nýjum og breyttum
aferðum að ná eyrum unga fólks-
ins.
Jafnvel hafði verið búist við að
einhveijir miðstjómarmanna
myndu gagnrýna Steingrím Her-
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra og aðstoðarmaður
hans, Finnur Ingólfsson bera saman bækur sínar.
Framkvæmdastj órn
Framsóknarflokksins:
Valur Am-
þórsson
hlaut flest
atkvæði
VALUR Arnþórsson, kaupfélags-
stjóri KEA hlaut flest atkvæði í
kjöri til framkvæmdastjórnar
Framsóknarflokksins, á aðal-
fundi miðstjórnar Framsóknar-
flokksins, sem haldinn var á
Selfossi um helgina. Valur hlaut
60 atkvæði.
Haraldur Olafsson varð í öðru
sæti með 58 atkvæði, Sigrún Magn-
úsdóttir í þriðja sæti með 53
atkvæði og Sverrir Sveinsson frá
Siglufirði í 4. sæti með 47 at-
kvæði. 27 nöfn voru á framboðslist-
anum, en 9 átti að kjósa. Röð 5. til
9. sætis er eftirfarandi: 5. Jónas
Jónsson, Reykjavík, 6. Ragnheiðui-
Sveinbjörnsdóttir, Hafnarfirði, 7.
Níels Árni Lund, Hafnarfirði, 8.
Ásta R. Jóhannesdóttir, Reykjavík
og 9. Drífa Sigfúsdóttir. Dagbjiiit
Höskuldsdóttir frá Grundarfirði
varð í 10. sæti og féll því úr fram-
kvæmdastjórninnni. Sömuleiðis
Hákon Hákonarson frá Akureyri.
Nýjir í framvkæmdastjórnina kom
inn þeir Haraldur Olafsson. og
Sverrir Sveinsson.
Halldór Asgrímsson:
Menn eru þannig
í framan að þeir
eru vísir til átaka
Selfossi.
ÞAÐ kom í lilut Halldórs Ás-
grímssonar að slíta miðstjórnar-
fundi Framsóknarflokksins þar
sem Steingrímur Hermannsson
þurfti að hverfa af fundinum á
annan fund í Reykjavík. Halldór
brýndi menn til átaka. Hann
hvatti þá til að nota tækifærið
og atburði undanfarinna daga til
að beija á Sjálfstæðisflokknum
hvenær sem færi gæfist.
„Við þurfum að ganga bjartsýn
til kosninga,“ sagði Halldór og enn-
fremur: „Menn eru þannig í framan
að þeir eru vísir til átaka í komandi
kosningum.“
— Sig. Jóns.
Selfoss:
Allt gisti-
rými fullt
um helgina
Ágreiningur er um kjam-
orkuvopnalaus Norðurlönd
Steingrímur Hermannsson í varnarstöðu
Selfossi.
ÁGREININGUR kom í Ijós milli
manna á aðalfundi miðstjórnar
Framsóknarflokksins varðandi
afstöðuna til þess að lýsa Norð-
urlöndin kjarnorkuvopnalaust
svæði.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
bar fram tillögu um að eitt af bar-
áttumálum næsta kjörtímabil yrði
að ísland verði aðili að samkomu-
lagi um kjamorkuvopnalaus
Norðurlönd. Steingrímur Her-
mannsson lýsti sig andvígan svo
afdráttarlausri afstöðu og vísaði til
samþykktar Alþingis. Páll Péturs-
son mótmælti túlkun Steingríms á
samþykktinni en vildi jafnframt
draga úr orðalagi Ástu Ragnheiðar
og láta fylgjast með málinu. Har-
aldur Ólafsson lýsti sig fylgjandi
áliti Ástu og aðiid að samkomulagi
um kjamorkuvopnalaus Norðurlönd
og sagði hann slíkt geta orðið upp-
haf að öðrum kjarnorkuvopnalaus-
um svæðum annars staðar á
hnettinum. Már Péturson lagði
áherslu á það að ályktun um þessi
mál væri í takt við það sem skoð-
anakannanir sýndu um vilja fólks
og hún yrði afdráttarlaus. Ráð-
herrar og þingmenn flokksins hefðu
nóg ráð með að útvatna tillögur
miðstjórnarfundarins í þessu efni
sem öðrum.
Af undirtektum sem fylgismenn
aðildar að samkomulagi um kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd fengu,
en þeim var klappað lof í lófa, er
Ijóst að sjónarmið formanns flokks-
ins biðu lægri hlut. Sú var og túlkun
nokkurra sem rætt var við.
Tími til umræðna um áherslur í
kosningabaráttunni og baráttumál
næsta kjörtímabil var mjiig skamm-
ur. Úm þær var fyrst fjallað í
umræðuhópum en í lokin var stjórn
flokksins falið að færa tillögurnar
í endanlegt horf.
— Sig. Jóns.
Selfossi.
ALLT gistirými á Selfossi var
fullt um helgina þegar aðalfund-
ur miðstjórnar Framsóknar-
flokksins fór fram í Hótel
Selfossi. Björn Lárusson hótel-
sljóri sagði að þetta sannaði
nauðsyn þess að' auka við gisti-
rými á staðnum.
Hópurinn, sem gisti um helgina,
er sá stærsti sem komið hefur á
starfstíma hótelsins. Gestir gistu
einnig á hótel Þóristúni sem er í
næsta nágrenni.
Við lok fundar framsóknarmanna
vakti Halldór Ásgn'msson sjávarút-
vegsráðherra athygli fundarmanna
á hótelinu og sagði það glæsilegt
merki um uppbyggingu í ferðamál-
um. Það ætti að geta orðið mönnum
hvatning til átaka í þessum mála-
flokki úti á landi.
Nýlega var gefinn út litprentaður
bæklingur um hótelið og aðra þjón-
ustu við ferðamenn á Selfossi.
— Sig. Jóns.