Morgunblaðið - 24.03.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
39
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva 1987
Morgunblaðið/Einar Falur
Þátttakendur voru flestallir viðstaddir. Hljómsveitin Model (fremst)
varð í öðru sæti, með lagið „Lífið er lag“.
SIGURLAG í söngvakeppni
sjónvarpsstöðva varð lag
Valgeirs Guðjónssonar
„Hægft og hljótt“ sem Halla
Margrét Árnadóttir syngur
og verður það lag framlag
íslands í söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva sem
Morgunblaðið/Einar Falur
Valgeir Guðjónsson höfundur sigurlagsins „Hægt og hljótt“, ásamt konu sinni Ástu Raguarsdóttur og
Höllu Margréti Arnadóttur söngkonu fagna sigri.
fram fer í Belgpu 9. maí
næstkomandi. Höfundur
lagsins, Valgeir, er gamal-
reyndur lagasmiður og sem
einn af meðlimum Stuð-
manna löngu landskunnur.
Söngkonan Halla Margrét
hefur stundað söngnám við
Söngskólann undanfarin
þrjú ár og er þetta í fyrsta
sinn sem hún syngur opin-
berlega hér á landi.
Átta ellefu manna dómnefnd-
ir sátu í öllum kjördæmum
landsins í gærkvöldi og greiddu
10 lögum atkvæði í söngva-
keppni sjónvarpsstöðva.
Dómendur voru á aldrinum 16
til 60 ára, konur voru 47 en
karlar 41.
Keppninni var sjónvarpað í
ríkissjónvarpinu. Fyrst voru lög-
in 10 leikin en að því búnu voru
atkvæði greidd og úrslit tilkynnt
í hveiju kjördæmi fyrir sig. Þeg-
ar í upphafi tóku tvö laganna,
sigurlagið og lag Gunnlaugs
Briem og Friðriks Karlssonar,
„Lífið er lag“, forystuna. Það
lag flutti hljómsveitin Model, en
aðalsöngvari hennar er Eiríkur
Hauksson. Eftir að tölur höfðu
birst í þremur kjördæmum voru
bæði lögin jöfn með 30 stig
hvort, en síðan tók „Hægt og
hljótt" forystuna og hlaut 12
stig þrisvar í röð, einu sinni 10
og loks 12 stig í lokin. Þar með.
var sigurinn innsiglaður.
Að loknum árnaðaróskum
stjórnenda og áhorfenda í sjón-
varpssal afhenti Hrafn Gunn-
laugsson dagskrárstjóri
innlendrar dagskrárgerðar sig-
urvegaranum Valgeiri Guðjóns-
syni fyrstu verðlaun, 300.000
krónur. Einnig fékk Valgeir
peningaupphæð frá samtökum
tónskálda og textahöfunda.
Auðar götur
STÓR hluti þjóðarinnar sat
við sjónvarpstækin í gær-
kvöldi og horfði á úrslit
íslensku forkeppninnar fyrir
Söngvakeppni sjónvarps-
stöðva í Evrópu. Samkvæmt
upplýsingum lögreglumanna
í Reykjavík og á nokkrum
stöðum úti á landi voru óvenju
fáir á ferli á meðan keppnin
fór fram og settu lögreglu-
menn það í samband við
keppnina.
„Mjög rólegt", „auðar götur“,
„allt steindautt" og „þjóðin í
dvala“, var meðal svara sem
fengust hjá lögreglumönnum að
keppninni lokinni og eru þau
lýsandi fyrir ástandið um allt
landið.
Lítið álag var á símakerfi
landsins á meðan á útsendingu
söngvakeppninnar stóð, en mik-
ið álag strax að henni lokinni.
„Það er eins og hálf þjóðin hafi
farið í símann strax eftir keppn-
ina,“ sagði simastúlka á
langlínumiðstoðinni.
„Hægt og hljótt“ sigr-
aði með 14 stíga mim
Morgunblaðið/Þorkell
Sr. Hjálmar Jónsson prófastur á Sauðárkróki textahöfundur og
Geirmundur Valgeirsson höfundur lagsins „Lífsdansinn“, sem varð
í fjórða sæti.
Of hægt og hljótt?
_______Tónlist
Sveinn Guðjónsson
Þjóðin hefur nú kveðið upp dóm
sinn yfir lögunum 10 sem kepptu
til úrslita í söngvakeppni sjónvarps-
ins og sá dómur var afgerandi.
Valgeir Guðjónsson og söngkonan
unga, Halla Margrét Ámadóttir,
hrósuðu sigri og er fyllilega ástæða
til að óska þeim til hamingju. Úrslit-
in komu mér ekki á óvart því lagið
er gullfallegt og vel sungið.
Eg verð þó að viðurkenna að ég
hefði valið Lífsdans Geirmundar
Valtýssonar, hefði ég mátt ráða.
Með því er ég alls ekki að segja
að það lag sé betra út frá einhveij-
um tónfræðilegum, tæknilegum eða
faglegum sjónarmiðum. Eg er hins
vegar þeirrar skoðunar að Geiri sé
sá eini af þessum höfundum sem
hefur áttað sig til fulls á, um hvað
söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva snýst. Sannleikurinn er sá
að þessi keppni er alveg einstakt
fyrirbrigði í tónlistarsögunni og
menn verða að setja sig í sérstakar
stellingar til að átta sig á þeim lög-
málum sem þar gilda. Geirmundur
hefur að mínum dómi réttu formúl-
una, þessa laufléttu sveiflu sem til
þarf.
í ljósi þessara lögmála sem gilt
hafa í Evrópu-söngvakeppninni hef
ég því ákveðnar efasemdir um að
Hægt og hljótt eigi erindi í keppn-
ina í Briissel. Það læðist að mér sá
grunur að lagið sé einfaldlega of
hægt og hljótt til að eiga þar mögu-
leika. Vonandi skjátlast mér þar og
ég vil undirstrika að með þessu er
ég ekki að kasta rýrð á Valgeir
Guðjónsson sem tónsmið enda á
hann það alls ekki skilið. Því síður
vil ég draga kjarkinn úr hinni ungu
og bráðefnilegu söngkonu sem á
eftir að flytja lagið í Briissel í vor.
Vonandi hefur hún nægilega sterk
bein til að standast það álag sem
slíku fylgir.
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva — Úrslit
Borgar- nes ísa- fjörður Sauðár- krókur Akur- eyri Egils- staðir Sel- foss Hafnar- fjörður Reykja- vík Samtals Röð
Ég leyni minni ást eftir Jóhann G. Jóhannsson. Björgvin Halldórsson syngur. 4 6 2 6 3 1 5 3 30 8.
Hægt og hljótt eftir Valgeir Guðjónsson. Halla Margrét Árnadóttir syngur. 10 10 10 12 12 12 10 12 88 1.
Lífsdansinn eftir Geirmund Valtýsson og Hjálmar Jónsson. Björgvin Halldórsson og Erna Gunnars- dóttir syngja. 8 4 12 4 6 4 7 10 55 4.
í blíðu og- stríðu eftir Jóhann Hclgason Höfundursyngur 2 5 4 3 2 3 4 1 24 9.
Sumarást eftir Þorgeir D. Hjaltason og Iðunni Steinsdóttur. Jóhanna Linnet syngur. 3 3 3 5 5 2 3 8 32 7.
Norðurljós eftir Gunnar Þórðarson og Ólaf Hauk Símonarson. Eyjólfur Kristjánsson syngur 6 7 7 10 8 6 8 7 59 3.
Lífið er lag eftir Gunnlaug Bricm, Friðrik Karlsson og Birgi Bragason. Hljómsveitin Model flytur. 12 12 6 7 10 10 12 5 74 2.
Sofdu vært eftir ólaf Hauk Símonarson. Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur. 1 2 1 1 1 7 1 6 20 10.
Aldrei ég gleymi eftir Axel Einarsson og Jóhann G. Jóhannsson. Erna Gunnarsdóttir syngur. 7 1 5 8 4 5 2 4 36 6.
Mín þrá eftir Jóhann G. Jóhannson Björgvin Halldórsson syngur. 5 8 8 2 7 8 6 2 46 5.