Morgunblaðið - 24.03.1987, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
1
Islensk ritvinnsla
Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun rit-
kerfisins ORÐSNILLD. Forritið er á íslensku
og með íslensku orðasafni.
Leiöbeinandi:
Dagskrá:
* Grundvallaratriði við notkun PC-tölva
* Ritvinnsla með tölvum
* Ritkerflð ORÐSNILLD
* íslenska orðasafnið og notkun þess
* Útprentun á laserprentara
* Umræða og fyrirspurnir
Elísabet Halldórsdóttir
starfsmaður hjá Rafreikni hf.
Tími: 30.-31. mars og 1.-2. apríl ki. 13-16.
Innritun daglega frá kl. 8-22 í símum 687590,
686790, 687434 og 39566.
Borgartúni 28
ÞÚSEM STRAUJAR
GERÐU KRÖFUR!
BELDRAYstrauborðin eru fyrirþá
sem strauja. Þau eru létt og
meðfærileg og standastkröfur um
góða aðstöðu fyrir þig, straujárnið
og þvottinn.
Þannig á gott strauborð að vera.
BELDRAYstrauborðin fást ibúsáhaldaverslunum og kaupfélögum um land allt.
EINKAUMBOÐ I.GUÐMUNDSSON & CO HF. SÍMI 24020
Ein frá hjartanu
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Peggy Sue giftist (Peggy Sue
Got Married). Sýnd í Stjörnubíói.
Stjörnugjöf: ****
Bandarísk. Leikstjóri: Francis
Coppola. Handrit: Jerry Leichtl-
ing og Arlene Sarner. Framleið-
andi: Paul R. Gurian.
Kvikmyndataka: Jordan Cronen-
weth. Klipping: Barry Malkin.
Tónlist: John Barry auk rokklaga
frá 1960. Helstu hlutverk: Kath-
leen Turner, Nicholas Cage,
Barry Miller, Chatherine Hicks,
Joan Allen og Kevin J. O’Connor.
Helsta afrek nýjustu Coppola-
myndarinnar, Peggy Sue giftist
(Peggy Sue Got Married), sem sýnd
er í Stjörnubíói, er að fjalla um það
sem margir mundu kalla ofurvenju-
legar krísur miðaldra fólks, örvænt-
ingu vegna hugsanlegs skilnaðar
til dæmis, á óvenjulegan og sér-
stakan en fyrst og fremst dúndur
skemmtilegan og líflegan máta.
„Peggy Sue“ er dæmalaust indæl
mynd yfirfull af ljúfsárum og
tregablöndnum söknuði og minn-
ingum, fyndnum kringumstæðum í
bland við sterka ástarsögu og gamla
rokkara sem setja hana í réttan
gír. Stundum langar mann til að
dansa við þessa mynd. Kathleen
Turner er algjört æði í hlutverki
Peggy Sue, sem lendir í tímaferða-
lagi og færist aftur í tilverunni um
25 ár, og Francis Coppola, sem sit-
ur við stjórnvölinn, hefur varla gert
aðra betri síðan hann var Guðfaðir-
inn í Hollywood í upphafi áttunda
áratugarins.
„Peggy Sue“ er tímaferðalags-
mynd um hina miðaldra Peggy
(Kathleen Turner) sem fær tæki-
færi til að byrja uppá nýtt eftir
misheppnað hjónaband þaðan sem
hún lagði upp fyrir 25 árum. Mynd-
in er um möguleikana sem hún
hafði og leiðina sem hún valdi og
í millitíðinni lærir hún að meta það
sem lífið hefur veitt henni.
Myndin hefst á 25 ára útskriftar-
afmæli menntaskólahópsins frá
1960. Leikfímisalur Buchanan-
menntaskólans er skrýddur flenni-
stórum myndum af goðunum ungu,
m.a. Charlie (Nicolas Cage) og
Peggy Sue, sem giftust strax eftir
menntaskólann en eru nú að skilja
eftir öll þessi ár. Á ballinu eru allir
gömlu vinirnir samankomnir. Sumir
breytast aldrei, sumir eru ríkir,
aðrir eru hamingjusamir. En ein-
hvern veginn varð aldrei neitt úr
draumunum sem þau áttu.
Nióur
með hita-
kostnaðinn
OFNHITASTILLAR
= HÉÐiNN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRRANTANIR-ÞJÓNUSTA
„Ef ég hefði tækifæri til að gera
þetta allt uppá nýtt mundi ég sann-
arlega gera hlutina öðruvísi," segir
Peggy Sue. Og það er rétt nýbúið
að kjósa hana balldrottningu
kvöldsins þegar hún líður útaf og
vaknar aftur árið 1960. Peggy hef-
ur lent á tímaflakki og fengið sitt
tækifæri til að breyta hlutunum.
„Eg ætla alla vega ekki að giftast
þér aftur," segir hún við Charlie.
Peggy Sue yngist ekki við tíma-
flakkið; hún er sama lífsreynda og
veraldarvana konan og hún var en
núna er hún í líkama 18 ára stúlku.
Hún býr að allri þeirri þekkingu sem
lífíð hefur veitt henni. Hún veit
hvernig hún hefði getað verið betri,
hún veit hvað varð um félagana og
hún veit hvemig á eftir að fara
fyrir henni og Charlie. Og hún veit
líka að þessi tími var sá besti í
hennar lífi. En hún er hvað sem
því líður ekkert annað en lifandi
tímaskekkja, á ekki heima þarna
og vill hverfa aftur til síns fyrra lífs.
I vel skrifuðu handritinu er nóg
pláss fyrir tímaferðalagsbrandara
um Bítlana og Edsel-bílana mis-
lukkuðu og tækniundur framtíðar-
innar en líka ofurskáldlega
rómantík með verðandi stórrithöf-
undi, sem Kevin J. O’Connor leikur.
Peggy Sue langaði alltaf til að sofa
hjá honum en uppreisnarhugur
hans brýst út í taumlausri andúð á
Hemingway. Og svo er það hinn
umkomulausi Charlie, sem langar
til að verða frægur rokksöngvari
og elskar Peggy Sue út af iífinu.
Hann á í mestum erfiðleikum með
að botna í þessari nýju og breyttu
Peggy en hún sér á honum nýja
hlið eða eiginleika sem hún var
búin að gleyma að hann hafði.
Kathleen Tumer fer á kostum.
Hún hefur svo gaman af þessu hlut-
verki og leikur það af svo miklum
krafti og innileik að maður efast
ekki um eitt andartak að hún sé
a.m.k. 25 ámm á undan öllum hin-
um. Nicolas Cage kemur svolítið
undarlega fyrir sjónir með stóran,
falskan efri góm og rödd sem er
eins og í sjö ára gömlum fylupúka.
Þetta gerir hann að vísu heldur
asnalegan en um leið strákalegri
og myndar sterka andstæðu við
hina ftillorðinslegu Tumer.
Menn hafa þurft að bíða lengi
eftir því að Coppola gerði mynd sem
höfðar til hins breiða áhorfenda-
hóps. Eftir vandræði og erfiðleika
með Zoetrope-fyrirtækið sitt og
myndir, sem hafa verið allt frá inni-
haldslitlum stílæfingum í unglinga-
myndageiranum til rándýrrar en um
margt mislukkaðrar gangsters-
myndar, kemur frá honum mynd
eins og skrattinn úr sauðarleggn-
um, sem setur hann aftur á réttar
brautir. Það má vera að hörðustu
stuðningsmönnum finnist hann
heldur sléttur og felldur í „Peggy
Sue“ en það era sjálfsagt miklu
fleiri sem njóta þess í botn sem
hann hefur fram að færa.
Ef bíómyndir vestur í Banda-
ríkjunum eiga eftir að leita í
auknum mæli til sjöunda áratugar-
ins eftir nostalgíu og trega verður
það „Peggy Sue“ mikið til að þakka.
En það verður erfítt fyrir hvem sem
er að feta í fótspor hennar.
Langar þig til
Ástralíu eða
Nýja Sjálands?
ASSE minnir á að umsóknarfrestur um námsdvöl
á árinu 1988 rennur út 1. apríl.
Ef þú ert 15-17 ára getur þú sótt um.
/J
American Scandinavian Student Exchange
Nóatúni 17, 105 Reykjavík, ísland. Sími 621455.
Kathleen Turner og Nicolas Cage í hlutverkum sínum í mynd Stjörnu-
bíós, Peggy Sue giftist.