Morgunblaðið - 24.03.1987, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
57
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Ágæti stjömuspekingur.
Viltu gjöra svo vel að lesa í
stjömukort mitt. Ég er fædd-
ur í Reykjavík ... 1951 kl.
4.55. Ég er skrifstofumaður
að atvinnu, en hef jafnvel í
hyggju að skipta um starf.
Hafír þú tíma fyrir þetta í
blaðinu, þá góðfúslega birtu
ekki fæðingardaginn. Með
kveðju.“
Svar:
Þú hefur Sól, Tungl, Merkúr
og Júpíter saman í Fiskum,
Venus og Mars í Hrút, Sat-
úmus í Meyju, Bogmann
Rísandi og Sporðdreka á Mið-
himni.
Nœmur
Allar þessar plánetur í Fiska-
merkinu tákna að þú ert
sérstaklega næmur og til-
finningaríkur persónuleiki.
Þú ert viðkvæmur, mjúkur
og að öllu jöfnu þægilegur í
umgengni. Næmleikinn gerir
að þú átt auðvelt með að
skilja og setja þig í spor fólks.
Þú ert því umburðarlyndur,
víðsýnn og skilningsríkur.
Draumlyndur
Annað einkenni fyrir þig er
sterkt ímyndunarafl og
draumlyndi. Þér getur t.d.
hætt til að lifa mikið í eigin
heimi og vera utan við þig.
Hið jákvæða er myndræn
hugsun, sterkt innsæi og
jafnframt þörf fyrir að sjá
heild mála.
Jafnvœgi
Skuggahlið þessara eigin-
leika em þær að þú þarft að
velja umhverfí þitt af kost-
gæfni til að koma í veg fyrir
að aðrir setji þig úr jafn-
vægi. Það getur verið erfitt
að vera næmur, því bókstaf-
lega allt getur farið í taug-
amar á þér og því þolir þú
ekki hvaða umhverfi sem er.
Þetta getur háð þér. Nauð-
synlegt er t.d. fyrir þig að
draga þig í hlé annað slagið
og útiloka umhverfið.
Ahrifagirni
Önnur hætta er sú að næm-
Ieika og skilningsríki fylgir
hætta á áhrifagimi. Þú þarft
því stöðugt að vera á varð-
bergi. Ert það þú sjálfur sem
vilt eða em aðrir að þrýsta
á þig, jafnvel án þess að þú
gerir þér grein fyrir því?
Hreyfanleiki
Venus og Mars í Hrút táknar
að í þér býr einnig töluvert
keppnisskap, ákveðni, ein-
lægni og þörf fyrir líkamlega
hreyfíngu og nýjungar. Það
er hugsanlega Hrúturinn sem
er farinn að krefjast síns.
Bogmaður Rísandi fer einnig
inn á svipaðar brautir.
Tveir höfuðþœttir
Kort þitt bendir til tveggja
höfuðþátta. Annars vegar er
það Fiskurinn. Hann er
ímyndunaraflið, draumlynd-
ið, hið listræna og andlega.
Þörf þín til að vaxa og þroska
sjálfan þig. Hins vegar er það
Hrútur og Bogmaður sem
kreQast hreyfíngar, lífs og
athafnasemi. Val þitt þarf
að taka mið af þessum tveim
þáttum.
Líf Og list
Ég myndi ráðleggja þér að
þroska listræna og andlega
hæfileika þína. Leggja stund
og heimspeki, tónlist, mynd-
list og skáldskap. Ef ekki í
sambandi við starf, þá sem
áhugamál sem fær góðan
tíma og reglulegan. Á hinn
bóginn er gott fyrir þig að
hreyfa þig og því ættir þú
að stunda íþróttir eða aðra
útiveru, ferðast og almennt
að gæta þess að lifa fjöl-
breytilegu lífi, og þá ekki
einungis í hugsun þinni.
GARPUR
rDCTTI D
UKt 1 1 IK
HEFURPU HEyRT/UÁLTÆKIP
GA/VILA ,,15/MU fínasta , J
PÓSSI, EN | EN6AN STA.Ð AD )
©1986 United Feature Syndicate.lnc.
DYRAGLENS
pAP GAU6A |?ÆR 6ÖGUR-/AE>
HANN HAFI ALIST UPP HJÁ SNÁKU/H
©1865 Tilbune Media Services, Inc.
LJOSKA
vsœi- »|i—_ -Ifli'
FERDINAND
SMAFOLK
VOU COULP BE A RAILROAP
CR055IN6 6UARPÍY0U COULP
5TANP BY THE TRACKS,
ANP WARN PEOPLE THAT
A TRAIN U)AS COMING...
. - - — -------------------^
Veistu hvað'þú gætir orðið?
i/o-S t~ __________
Þú gætir orðið vörður þar
sem farið er yfir járnbraut-
arspor. Þú gætir staðið við
teinana og aðvarað fólk þeg-
ar lestin er að koma ■ ■ ■
Hvað finnst þér um það?
Maður veit aldrei hvað þeir
eru að hugsa i raun og
veru ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Nokkuð er farið að bera á því
að menn noti opnun á tveimur
gröndum sem fárveika hindrun
í einhveijum lit. Opnanir á þrem-
ur lofa þá góðum lit og meiri
styrk. Þessu fylgir sá kostur að
makker opnarans á auðvelt með
að taka ákvörðun um framhald-
ið. Ókosturinn við tveggja
granda opnunina er hins vegar
sá að mikilvægum tíma er sóað
í það eitt að finna litinn og and-
stæðingarnir fá því meira
svigrúm. Eftirfarandi spil frá
aðaltvímenningskeppni Brids-
félags Reykjavíkur sýnir vel að
þetta atriði getur skipt sköpum:
Vestur gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ D10753
VÁ42
♦ D87
♦ DG
Vestur Austur
♦ 8 ♦ G2
VK llllll VDG8753
♦ KG109654 ♦ Á32
♦ 8643 ♦ 109
Suður
♦ ÁK964
¥1096
♦ -
♦ ÁK752
Á einu borði gengu sagnir
þannig:
Vestur Norður Austur Suður
2 grönd Pass 3 lauf Dobl
3 tíglar 4 spaðar 5 tíglar 6 spaðar
Pass Pass Pass
Þriggja laufa svarið við hindr-
uninni biður opnarann að segja
litinn eða passa með lauf. Hæg-
fara sögn, sem gaf suður færi
á að koma styrk sínum til skila
með dobli. Vestur meldaði litinn
sinn, en nú gat norður tekið við-
bragð. Og þar með var slemm-
unni í raun náð.
Kannski hefði suður meira að
segja getað reynt við alslemmu
með sex tíglum. Norður á fyrir
sex hjörtum og þá er alslemm-
unni náð. En hálfslemma var
nðgu góður árangur, því hún gaf
38 stig af 42 mögulegum. Flest-
ir spiluðu nefnilega einungis
geim eftir kröftugri hindrun í
AV. Eða hvað á suður að gera
ef vestur opnar á þremur tíglum
og austur lyftir í fjóra eða fimm?
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
í úrslitaskákinni á opna mótinu
í Lugano um daginn kom þessi
staða upp í skák stórmeistaranna
Seirawan Bandaríkjunum, sem
hafði hvítt og átti leik, og Simic,
Júgóslavíu.
22. Dxc6! - Bxc6, 23. Hxc6 -
Hxb2, 24. Hacl (Svarta staðan
er nú töpuð, vegna þess hve veik-
ur svartur er fyrir á 7. og 8.
reitaröðunum.) 24. — Bf8 25. Hc8
- De7, 26. Hlc7 - Hxd2+, 27.
Kg3! - Dxc7, 28. Hxc7 - Hxa2,
29. Rg5 og Seirawan vann enda- -
taflið auðveldlega.'Þar með varð
hann einn efstur með 7 'h v. af
9 mögulegum, en Simic deildi öðru
sætinu með 7 v. ásamt Ijórum
öðrum.