Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
t Ástkær dóttir okkar og systir MÁLFRÍÐUR HULD GÍSLADÓTTIR, Háteigsvegi 20, lést í Landspítalanum fimmtudaginn 19. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Gísli Jensson, Elfsabet Stefánsdóttir, Anna Marfa Gfsladóttir.
t Móðir okkar, BERGÞÓRA BRYNJÚLFSDÓTTIR, Sóleyjargötu 33, er látin. Útförin hefur farið fram. Anna Kristjánsdóttir, Grétar Br. Kristjánsson.
t Eiginmaður minn, HJALTI KRISTJÁNSSON, Gyðufelli 4, Reykjavfk, áður bóndl Stóru-Brekku, Fljótum, varð bráðkvaddur föstudaginn 20. mars. Fyrir hönd aðstandenda, Þorbjörg Pálsdóttir.
t Eiginmaður minn og föðurafi, SALÓMON G. HAFLIÐASON, Hagamel 43, lést föstudaginn 20. mars. Sigurbjörg H. Slgurvinsdóttir, Sigurbjörg K. Karlsdóttir.
t Sonur okkar og bróðir, TÓMAS KOLBEINN HAUKSSON, varð bráðkvaddur á heimili okkar, Birtingarkvísl 15, þann 22. mars. Haukur Tómasson, Karitas Jónsdóttir, Sigrún Hauksdóttir, Georg Guðni Hauksson.
t Maðurinn minn og faðir okkar, MAGNÚS ÁGÚSTSSON, fyrrv. héraðslæknir, er látinn. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Magnea Jóhannesdóttlr og börn.
t Systir okkar, KRISTÍN JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 24. mars kl. 15.00. Baldvin Þ. Krlstjánsson, Ásgeir Þorvaldsson, Finnbjörn Þorvaldsson.
t Útför EINARS B. GÍSLASONAR, Hvassaleiti 20, fyrrum bónda á Fffustöðum f Arnarfirði, verður gerð frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 25. mars kl. 10.30. Sigurjón Einarsson, Stefán Thoroddsen.
t Eiginmaður minn, faðir okkkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR JÓNSSON, Mávahlfð 43, er lést 17. mars, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudag- inn 25. mars kl. 13.30. \ V Guðrún Valdimarsdóttir, Björn Gunnarsson, Arndfs Ármann, Ásta Gunnarsdóttir, og barnabörn.
Kristín J. Krístjáns-
dóttir — Minningarorð
Fædd 11. mai 1912
Dáin 16. marz 1987
Að kvöldi 16. þ.m. andaðist mág-
kona mín, Kristín Jóna Kristjáns-
dóttir á öldrunarlækningadeild
Landspítalans eftir iangt og erfítt
sjúkdómsstríð.
Kristín var fædd í Hnífsdal 11.
maí 1912. Foreldrar hennar voru
hjónin Halldóra Finnbjömsdóttir og
Kristján Egilsson. Þegar Kristín var
um sjö ára aldur missir hún föður
sinn. Það var mikill áfall á þeim
dögum og er raunar alltaf þegar
heimilisfaðirinn fellur frá. Þá voru
engar ekkjubætur og bamabætur
til; ekkert lá fyrir bamaflölskyldum
annað en að leysa upp heimilið og
koma bömunum fyrir, oftast hjá
vandalausum. Móðir Kristínar stóð
uppi með fímm ung böm en hún
var svo lánsöm að þrjú elztu bömin
vom tekin á góð heimili af vina-
fólki þeirra hjónanna. Kristín fór
til móðurafa síns, Finnbjamar
Elíassonar, og konu hans, Halldóru
Halldórsdóttur, og var þar fram að
fermingaraldri í góðu yfírlæti, en
flutti aftur til móður sinnar þegar
Halldóra giftist seinni manni sínum,
Þorvaldi Magnússyni, og fluttist
með þeim til IsaQarðar og átti heim-
ili hjá þeim þar til hún fór að hafa
fyrir sé sjálf.
Ung að ámm kom Kristín til
Reykjavíkur og hóf vinnu við alls
konar störf, en bezt og skemmtileg-
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa,
SKÚLA ÞÓRÐARSONAR,
Engihjalla 1,
Kópavogi,
ferfram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miövikudaginn 25. mars kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á líknarstofnanir.
Erla Valdimarsdóttir,
Hendrik Skúlason, fris Sigurjónsdóttir,
Þóröur Skúlason, Elín Agnarsdóttir,
Hansfna G. Skúladóttir, Kristján Kristjánsson,
Hrafnhildur Skúladóttir,
Skúli H. Skúlason, Guörún H. Kristjánsdóttir,
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendi ég öllum er styrktu mig og studdu við and-
lát og bálför konu minnar,
INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
Hlfðarhvammi 7, Kópavogi.
Jón Vllhjálmsson.
t
Innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför móöur okkar, tengdamóður og
ömmu,
GUÐRÚNAR HALLSTEINSDÓTTUR.
Guðný Tómasdóttir,
Steinunn Tómasdóttir, Ármann Guðnason,
Hallsteinn Tómasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúö, ómetanlega hjálp og vinarhug við
fráfall mannsins míns
HARÐAR MARKAN,
pfpulagningameistara.
Málfrföur Jörgensen
og fjölskylda.
Sörlaskjóli 66.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúö
og vináttu við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, son-
ar, tengdasonar og bróður,
HALLDÓRS NÍELSAR VALDEMARSSONAR,
Flötusfðu 6.
Guö blessi ykkur öll.
Bryndfs Magnúsdóttir,
Magnús Halldórsson,
Guörún Valdfs Halldórsdóttir,
Helga Kristfn Halldórsdóttir,
Helga Baldvinsdóttir, Valdemar Halldórsson,
Guðrún Georgsdóttir, Magnús Lárusson,
systkini og aðrir aðstandendur.
Legsteinar
ýmsar gerdir
Marmorex
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
ast þótti henni að starfa á sjúkra-
húsum og vann hún m.a. mörg ár
á Vífilsstaðahæli sem aðstoðar-
manneskja við hjúkrun; sem
nokkurs konar sjúkraliði þeirra
tíma. Þetta starf var hennar yndi.
Árin komu og fóru með ótal
ævintýrum. Kristín var falleg stúlka
og elskaði að dansa og skemmta
sér en aldrei lenti hún þó í neinni
óreglu, reykti aldrei né ánetjaðist
áfengi.
Þann 24. júlí 1947 var brotið í
blað í lífí Kristínar. Þá giftist hún
Pétri Ó. Guðmundssyni hafnar-
verkamanni, ágætum manni. Þau
eignuðust ekki böm en ólu upp son
Péturs, Guðmund blaðamann.
Kristín var mjög bamgóð og fóru
böm bræðra hennar ekki varhluta
af því. Veit ég að þau munu lengi
geyma í þakklátum huga minning-
una um „Stínu frænku". Já, við öll
í fjölskyldunni eigum margs góðs
og skemmtilegs að minnast frá
þeim liðnu dögum.
Stína og Pétur vora svo að segja
alltaf nefnd í sömu andránni, enda
var sambúð þeirra með ágætum.
Þannig leið tíminn — góð ár á litlu,
hlýlegu heimili.
„En sorgin gleymir engum." Fyr-
ir tæpum tuttugu áram fór Kristín
að fínna fyrir þungbæram og erfíð-
um sjúkdómi, sem ágerðist stöðugt,
svo að hún hefur aldrei síðan á
heilli sér tekið og árin og dagamir
hafa verið eftir það á hælum og í
sjúkrahúsum. Að því kom svo að
allt var horfíð; hjónabandið, heimil-
ið, allt orðið minningin ein og
kannski ekki einu sinni það.
Mörg undanfarin ár hefur Kristín
nú dvalið á öldranarlækningadeild-
inni í Hátúni 1, algerlega lömuð og
ófær um að tjá sig. Hvað fram fer
í huga slíks sjúklings veit guð einn.
Það hlýtur að vera þung raun.
Maður þorir varla að trúa að það
sé rétt sem Starkaður segir; „Bölið,
sem aldrei fékk uppreisn á jörð, var
auðlegð á vöxtum í guðanna ríki."
En það væri vissulega gott ef það
væri satt.
Nú er löngu og erfíðu sjúk-
dómsstríði Kristínar lokið. Við
kveðjum hana, ekki með sorg í
hjarta heldur þakklæti og gleði því
„hjá guði þar er engin, engin nótt,
en oft er hér svo skammt á milli
élja.“
Gróa Ásmundsdóttir
Blómmtofa
Friófmm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öllkvöld
til kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.