Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 67

Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987 67 "DFIR SFGJR m I ÓPRGOTINU HfíFl íÓKMRRNFFWPUM VERIP PF?LI9 RÐ KOÓSfl 0M~ FERÐRieRRe OG PRESTOM VFR|£ GERT R£> I/ERR MEÐ LJÖS RLLflN SÓLRRHRlNGINN" Þessir hringdu . . Hver vegna engin húsa- smíðameistari? Hulda Guðmundsdóttir hringdi: Nú er búið að skipa dómnefnd til þess að yfírfara og dæma 38 tillögur um ráðhús. Þetta verður mikið og vandasamt verk og til þess þarf hæft fólk sem kann að lesa teikningar og veit hvemig unnið er við byggingar. I nefnd- inni eru þrír arkitektar, en eru þeir iðnlærðir líka? Sigrún Magn- úsdóttir, borgarfulltrúi, og Davíð Oddson, borgarstjóri, sem bæði eiga sæti í nefndinni, hafa þau unnið við húsbyggingar? Væntan- legt ráðhús á að gegna mikilvægu hlutverki og því nauðsynlegt að val á byggingu undir það verði ekki slys líkt og Þjóðarbókhlaðan, Seðlabankinn, Kringlan og Borg- arleikhúsið. Því spyr ég, og vona að ég fái svar við: Hvers vegna er enginn húsasmíðameistari í dómnefndinni? Hænsnafætur, g'ular rætur Rannveig hringdi: Síðastliðinn föstudag birtist vísa um hálsinn á honum Svana. Konan sem sagði frá henni hafði lært vísuna þegar hún var lítil. Þetta er mjög gömul vísa sem ég lærði þegar ég var 6-7 ára göm- ul, þó í svolítið annarri útgáfu en þessi kona: Hænsnafætur, gular rætur, hálsinn á honum Svana Sá sem kyssir dömumar, honum verður það að vana. Tapaði kuldaskó Daníel hringdi: Ég tapaði svörtum karlmanns kuldaskó nr. 44 einhverntímann fyrir jól. Þetta var í Reykjavík. Ef einhver hefur rekist á hann er hann vinsamlegast beðinn um að hringja í síma 37096 eða 19011. Spilið Reykjavíkur- lagið Sólveig hringdi: Væri ekki hægt að fá Reykjavíkurlagið, sem fékk verð- laun á afmælinu í fyira, sungið í útvarpi eða sjónvarpi? Vísan á dönsku Gunnar hringdi: Ég heyrði þessa vísu sem stráklingur frá mömmu minni og þá á dönsku: Honsefoder, gule roder, halsen af en svane. Han som kysser pigerne, har en dárlig vane. Hún skýrði hana svo fyrir mér að eldabuskan væri í eldhúsinu að týna til í matinn, hænsnafæt- ur, gulrætur og háls af svani, en þá hefði vinnumaðurinn stolist til að kyssa hana á hálsinn. Fór þá eldabuskan með þessa vísu. Svar frá Póst- og sí mamálastofnuninni Jóhann Guðmundsson, New Jersey í Bandaríkjunum, kvartar yfir því í Velvakanda (15. mars sl.) að snældur, sem hann sendir að stað- aldri í pósti frá Bandaríkjunum til íslands, séu tvo mánuði á leiðinni. Bréfritari tekur ekki fram hvort um flug- eða skipspóst sé að ræða. Flugpóstur frá Bandaríkjunum berst hingað daglega, en skipspóst- ur er háður ferðum skipa. Nýafstað- ið farmannaverkfall hefur valdið töfum á flutningi skipspósts eins og nærri má geta. Éinnig hefur þess orðið vart að flugpóstur frá Bandaríkjunum berist með skips- pósti. Um má kenna mistökum póststarfsmanna vestra, en einnig því að sendendur hirði ekki alltaf um að ganga nógu vel frá póstin- uin, gleymi til dæmis að líma flugmerkimiða á sendingar sínar. Nauðsynlegt er að fara að settum reglum í þessu efni og gildir það að sjálfsögðu um fleiri lönd en Bandaríkin. Töluvert hefur verið um kvartan- ir vegna seinagangs pósts frá Bandaríkjunum og hafa póstmála- yfirvöld hér komið þeim áleiðis til réttra aðila. Fyrir kemur til dæmis að póstur til Islands er sendur til Irlands eða jafnvel einhverra fjar- lægra eyja. Dæmi eru líka um að skipspóstur sé sendur fyrst til Evr- ópulanda (Englands, Þýskalands, Hollands, Danmerkur) áður en hann berst til íslands. Þetta veldur að sjálfsögðu allt töfum og óþægind- um. Bréfritara verður tíðrætt um hunda sem hann virðist telja að póstmeistarinn í Reykjavík hafí í þjónustu sinni í því skyni að láta þá þefa af pósti og seinki þar af leiðandi útburði. Þessir hundar eru aðeins til í hugskoti bréfritara. Hundar, sem notaðir eru til fíkni- efnaleitar, eru ekki á vegum póststofunnar í Reykjavík, heldur lögreglu og seinka alls ekki al- mennri póstdreifingu. Póstur er borinn út eða sendur áfram ekki siðar en daginn eftir að hann berst, enda er nú sem fyrr lögð áhersla á hraða og góða þjónustu. Jóhann Hjálmarsson, blaðafulltrúi Póst- og símamálastofnunar. húsgagn»höllin REYKJAVlK Við bjóðum k það besta sem þú geturfengið í rúmum og dýn- um — allt með 2ja ára ábyrgð. — Ekki nóg með það — við bjóðum þér líka besta verðið — lægsta verðið og góða greiðsluskilmála. Rúm: Tegund: 539 er 160 cm á breidd og 200 cm á lengd. Litir: Bronz (messing). Dýna: Heil svampdýna (eða tvær) mjög vönduð með mjúkri og stífri hlið. Verð kr. 42.990 með dýnu og tveimur náttborðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.