Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1987
69
kvæmdirnar sagði Guðrún að mörg
væri matarholan og t.d. væri árlega
varið úr ríkissjóði 400 milljónum
kr. í risnu og að sú íjárhæð væri
betur komin annars staðar.
Friðrik Sophusson, Sjálfsstæðis-
flokki, sagði að skerðinguna í
Framkvæmdasjóð fatlaðra væri
ekki hægt að skrifa á reikning neins
eins stjórnmálaflokks eða ríkis-
stjórnar, því síðasta ríkisstjórn sem
sett hefði þessi lög hefði sjálf byrj-
að á skerðingu þeirra. Hann benti
á Lottóið sem þá tekjulind sem
bundnar væru vonir við varðandi
úrbætur í málefnum fatlaðra og
sagði það stefnu stjórnvalda að
ekki yrði skert frekar framlög til
Framkvæmdasjóðsins.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sem kom beint af
miðstjórnarfundi Framsóknar-
flokksins á Selfossi, sagði, að þar
hefði verið rædd sú stefna flokksins
að stuðla að jafnræði og jafnrétti
meðal allra landsmanna. Styrkja
þyrfti fatlaða til sjálfsbjargar, þeir
væru mikilvægur starfskraftur fyrir
þjóðfélagið í heild. Hann sagði að
auka þyrfti tekjur ríkissjóðs með
endurskoðun á skattalögunum, ná
til skattsvikara, og ef það ekki
tækist þá yrði að auka skatta á þá
sem meiri efnin hefðu.
Svavar Gestsson, Alþýðubanda-
lagi, sagði að standa ætti við lögin
um Framkvæmdasjóð fatlaðra, sem
væri auðveldara nú en fyrii' nokkr-
um árum vegna góðærisins. Fatlað-
ir ættu að fá sinn skerf af því. Átak
í húsnæðismálum fatlaðra væri
næsta skrefið, sagði Svavar, og
brýnt væri að gera áætlanir um
aðgengismál fatlaðra.
()11 voru þau sammála um að
lífeyrisgreiðslur fatlaðra ættu ekki
að vera lægri en lágmarkslaun, svo
væri ekki nú og úr því yrði að bæta.
Magnús Bjarnfreðsson stjórnaði
umræðum og fyrirspurnum.
Aðgengi fatlaðra
Að loknum framsögum voru fyr-
irspurnir úr sal og spunnust þá
nokkrar umræður um aðgengismál
fatlaðra. Fram kom m.a. að þrátt
fyrir lög um að fatlaðir skulu hafa
aðgengi að öllum opinberum stofn-
unum, er í bígerð að embætti
skipulagsstjóra ríkisins, sem heyrir
undir Félagsmálaráðuneytið, verði
flutt á þriðju hæð í nýju húsi sem
engin lyfta er í. Ef svo fer munu
margir fatlaðir því ekki kost að
reka erindi sín á skrifstofu skipu-
lagsstjóra ríkisins eða starfa þar.
Málefni fatlaðra heyra einnig undir
Félagsmálaráðuneytið.
Fullt var út úr dyrum á Kosningavöku fatlaðra Morgunbiaðið/oi.K.M.
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna sem sæti eiga á Alþingi sátu fyrir
svörum. Lengst til hægri við pallborðið eru Arnþór Helgason, formað-
ur Oryrkjabandalagsins, og Eggert Jóhannesson, formaður Þroska-
hjálpar.
Einnig var gagnrýnt það virðing-
arleysi sem fréttaágripi á táknmáli
er sýnt hjá sjónvarpinu. Auk þess
að byrja aldrei á tilsettum tíma,
kl. 19.25, væri útsendingin iðulega
rofin í miðju kafi vegna annarra
dagskrárliða. Þá var bent á að Fé-
lag heyrnarlausra greiðir laun túlka
í fréttum á táknmáli, þar sem
fréttastofan neitar að greiða þau
laun. Greinilegt var að þessar upp-
lýsingar komu mörgum á óvart og
sagði Friðrik Sophusson þetta vera
stofnuninni til skammar. I sama
streng tóku Steingrímur Her-
mannsson og Jón Baldvin Hannib-
alsson. Guðrún Agnarsdóttir sagði
að fréttir á táknmáli væri sjálfsögð
þjónusta og táknmálskennslu ætti
að koma inn í alla skóla. Svavar
Gestsson sagði að álíka vitlaust
væri að Félag heyrnarlausra greiddi
þessi laun og ef íþróttahreyfingin
ætti að borga laun Bjarna Felix-
sonar.
ELSKA
Lokaatriði vökunnar var flutn-
ingur á Ijóði eftir 17 ára gamla
stúlku, Ásdísi Jennu Ástráðsdóttur.
Ásdís Jenna er alvarlega hreyfi-
hömluð og tjáir sig nær eingöngu
með hjálp tölvu. Ljóðið hennar heit-
ir Elska.
Ég elska fuglana
fuglarnir geta flogið
ég get ekki flogið
ég get sungið
fuglarnir syngja með mér
Ég elska mennina
mennirnir geta gengið
ég get ekki gengið
mennirnir geta sungið
ég get sungið
mennirnir syngja ekki með
mér
Til sölu
nokkrir 9.0 tonna stálbátar
til afgreiðslu strax
Uppl. í símum 12879 og 25988
TÓNLISMRSKOU
KOPRJOGS
Frá
Tónlistarskóla
Kópavogs
Aðrir vortónleikar skólans verða haldn-
ir í salnum í Hamraborg 11,3. hæð,
miðvikudaginn 25. mars kl. 20.30.
Skólastjóri.
OKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsf rama og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjá þér á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og
sjáöu Öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréf askólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þinum og getu. Prófskír-
teini i lok námskeiöa. Sendu miðann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í f lugpósti. (Setjiö kross í aðeins
einn reit). Námskeiöin eru öll áensku.
□ Tölvuforritun □ Almenntnám
□ Ratvirkjun □ Bifvélavirkjun
□ Ritstörf □ Nytjalist
□ Bókhald □ Stjórnun
□ Vélvirkjun fyrirtækja
□ Garðyrkja
□ Kjólasaumur
□ Innanhús-
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaða
□ Blaðamennska
□ Kælitækni og
loftræsting
Nafn:
Heimilisfang:................................................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
OPIÐ: Mán.-föst. 9-18 laugard. 14-17
BENCO hf.
LÁGMÚLA 7, SÍMI 84077.
LETTASTUR!
(3,1 kg)
VINNUÞJARKUR!
SPARNEYTINN!
(1,6 A)
HRAÐVIRKT
RÁSAVAL
gefur strax
SÁ EINI VATNSÞÉTTI!
SÁ EINI RYKÞÉTTI!
2 ÁRA ÁBYRGÐ!
KAUPLEIGUSAMNINGAR!
5IMDNSEN
BÍLASÍMINN
4F