Morgunblaðið - 25.04.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
Athugasemd Stöðvar 2:
„Auglýsingin
barst of seint“
ÓLAFUR H. Jónsson, fjármála-
ojBf framkvæmdastjóri Stöðvar 2,
hafði samband við Morgunblaðið
og greindi frá því að frásögn
Alberts Guðmundssonar í sjón-
varpsþætti ríkissjónvarpsins í
gærkvöldi, þess efnis að Stöð 2
hefði neitað að taka auglýsingu
frá Borgaraflokknum á kjördag,
vegna þess að stjórnarflokkarnir
Yfirlýsing frá
starfsmönnum
B.M. Vallár
MORGUNBLAÐIÐ hefur verið
beðið að birta eftirfarandi yfir-
lýsingu:
Starfsmenn B.M. Vallár hf. vilja
gjarnan koma á framfæri vanþókn-
un sinni á grein sem birtist í 2.
tbl. kosningablaðs Borgaraflokks-
ins, sem borið var í hús föstudaginn
24. apríl. Grein þessi, sem greinir
frá skoðanakönnun meðal starfs-
manna B.M. Vallár hf. um fylgi
flokkanna í komandi kosningum er
alröng og á við engin rök að styðj-
ast.
Eina skoðanakönnunin sem
starfsmenn kannast við að hafi
verið framkvæmd var um fylgi
tveggja einstaklinga innan sama
flokks og tók aðeins 21 maður þátt
í henni og þar af voru nokkrir ein-
staklingar innan fyrirtækisins.
Það er hart ef stjórnmálaflokk-
amir taka upp á því að birta
falsaðar skoðanakannanir f nafni
starfsmanna fyrirtækja, daginn fyr-
ir kosningar þegar lítill sem enginn
tími er fyrir viðkomandi að ná fram
leiðréttingu.
Starfsmenn B.M. Vallár hf.
hefðu keypt upp allan auglýsin-
gatímann, væri tilhæfulaus með
öllu.
„Það átti að skila þessari auglýs-
ingfu sem Albert var að tala um inn
síðastliðinn miðvikudag, en hún
barst hingað kl. 3 á föstudag," sagði
Ólafur, „og því miður var ekki
hægt að taka við henni þetta seint.
Þetta snertir enga stjómmála-
flokka, heldur einungis það að það
er svo mikið að gera rétt fyrir kosn-
ingar, að ekki er hægt að hafa
skilafrest á auglýsingum styttri en
þetta."
Ólafur sagði að honum þætti
mjög illa að Stöð 2 vegið með þess-
ari ásökun Alberts Guðmundssonar.
„Mér finnst til háborinnar skammar
að koma með svona ásökun á Stöð
2 í beinni útsendingu - ásökun á
sjónvarpsstöð sem hefur hleypt öll-
um að, án tillits til þess hvað þeir
heita, eða hvar í flokki þeir standa,"
sagði Ólafur.
H ® H [Sl (ul tm Sl B [á| @ [g QJ H Hl
Lesbók fylgir ekki Morgunblað-
inu í dag. Hún kemur næst út
9. maí.
Morgunblaðið/Einar Falur
María Hjaltadóttir, fulltrúi á Kaupstefnunni hf., tekur á móti forseta íslands, frú Vigdísi Finn-
bogadóttur, þegar hún heimsótti sýninguna „Sumarið ’87“ í gær.
Kaupstefnan hf
*
A sjötta þúsund manns hafa komið
UM 4000 manns sóttu sýning-
una „Sumarið ’87“ í Laugar-
dalshöll fyrsta sýningardaginn,
sumardaginn fyrsta, sam-
kvæmt upplýsingum Guðmund-
ar Jónssonar, framkvæmda-
stjóra Kaupstefnunnar hf.
Guðmundur sagði að um kvöld-
matarleytið í gær hefðu gestir
dagsins verið orðnir um 1500 tals-
ins, og kvaðst hann mjög ánægður
með aðsóknina. „Hún er framar
björtustu vonum," sagði Guð-
mundur.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti íslands, skoðaði sýninguna
síðdegis í gær.
Sýningin verður opin um helg-
ina frá kl. 13 til kl. 22 og næstu
viku frá kl 16 til 22 virka daga,
en á laugardag og sunnudag eftir
viku verður opnunartíminn hinn
sami og nú um helgina.
Norðmenn víkja frá banni
við innflutningi á seiðum
NORSKA landbúnaðarráðuneyt-
ið mun veita undanþágur frá
Slökkviliðsmenn fyrir utan Ljónið.
Morgunblaðið/GIsli Úlfarsson
banni við innflutningi á seiðum
til Noregs í ár. Landsamband
fiskeldis- og hafbeitarstöðva hef-
ur unnið i þessu máli að undan-
fömu og hefur nú fengið það
staðfest að islensku stöðvaraar
geti selt seiði til Norður-Noregs,
með venjulegum fyrirvara vegna
hættu á sjúkdómum og fleira.
Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landsambandsins,
sagði, að í byijun mars hefði legið
ljóst fyrir að töluvert væri til af
óseldum seiðum í landinu, en útlit
fyrir að Noregsmarkaðurinn myndi
lokast. Talið hefði verið að allt að
helmingur framleiðslunnar hefði þá
verið óseldur og ekki útlit fyrir að
hægt yrði að selja hann til haf-
beitar eða sjókvfaeldis, miðað við
stöðuna í uppbyggingu framhalds-
eldis hér innanlands.
Sagði Friðrik að í þessari stöðu
hefði Landsambandið farið að setja
þrýsting á að fá innflutning til
Noregs leyfðan, með aðstoð sjávar-
útvegsráðuneytisins, enda væru
seiðastöðvamar og kaupendur úti
áhugasamar um þessi viðskipti.
Hann sagði að það væri mikill létt-
ir fyrir forráðamenn stöðvanna að
Norðmenn ætluðu að víkja frá inn-
flutningsbanninu og væru þeir nú
famir að ræða við kaupendur
Noregi. Ekki væri nein trygginj
fyrir að af samningum yrði, en þess
þröskuldurinn væri þó úr veginum
Friðrik sagðist hafa heyrt að í Nor
egi vantaði um 2 milljónir seiða oj
gerði hann sér vonir um að íslenski
stöðvunum tækist að selja upp und
ir 1 milljón seiða, en nú væri ósel<
1 til 1 V* milljón seiða hér.
Grunur um íkveikju
í verzlunarmiðstöð
tnfirfti
VIÐ stórtjóni lá þegar eldur kom
upp i vörumarkaðnum Ljóninu
að morgni sumardagsins fyrsta.
Talið er að kveikt hafi verið i
rusli í kyndiklefa sem er sér-
byggður i suðausturhorni húss-
ins.
Klefinn á að vera eldheldur, en
þegar mjög fullkomnu eldvamar-
kerfi var komið fyrir í húsinu voru
bomð göt úr klefanum fyrir vatns-
pípur, með þeim komst eldurinn inn
í verzlunarmiðstöðina. Boðunar-
kerfi fór strax í gang, þegar reykur
fór að leika um húsið, en þó hringdi
aldrei á lögreglustöðinni, eins og á
að gera. Við athugun kom í ljós að
tæknimenn Pósts og síma höfðu
aftengt símalínuna af vangá þegar
tengdir vom nýir símar í húsið
vegna eigendaskipta í verzluninni
Vömvali nýlega. Vatnskerfið kom
þó í veg fyrir að eldurinn breiddist
um husið, en talið er að um tveir
Stuðkompaníið vann
HUÓMSVEITIN Stuðkomp-
aníið frá Akureyri sigraði í
Músiktilraunum Tónabæjar og
Bylgjunnar, en úrslit voru til-
kynnt klukkan hálfeitt i nótt.
Hljómsveitina skipa fimm ungir
piltar.
Stuðkompaníið hlaut hámark
stiga, 40 stig. í öðra sæti varð
Metan frá Sauðárkróki með 32
stig og í þriðja sæti Hvass frá
Stykkishólmi með 31 stig.
tímar hafi liðið frá því eldurinn
kviknaði þar til slökkviliðið var
kvatt á vettvang af vegfaranda,
sem sá reyk leggja frá húsinu.
Slökkviliðið var kallað út kl. 4.40
að morgni, en klukkutíma síðar var
öllu slökkvistarfi lokið. Lítilsháttar
skemmdir urðu af reyk og vatni í
matvöramarkaðnum Vöravali, sem
er á neðri hæðinni.
Að sögn Heiðars Sigurðssonar,
eiganda vöruhússins er tjónið um 5
til 6 milljónir króna. Að hans sögn
verður það að teljast mikill hönnun-
argalli að vatnsslökkvikerfið skuli
ekki vera í kyndiklefanum, þar sem
mest hættan er af eldi.
Að sögn Öskars Sigurðssonar
rannsóknarlögreglumanns leikur
rökstuddur granur á því að um
íkveikju hafi verið að ræða og er
málið í rannsókn. Úlfar
Stj órnar hugmy nd
Jóns Baldvins Hannibalssonar:
Ríkisstjóm Alþýðu-
flokks, Kvennalista
og Sjálfstæðisflokks
Kjósendur vísa veginn um stjórnar-
myndun, sagði Þorsteinn Pálsson
JÓN Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins,
sagði í framboðskynningu
Stöðvar 2 í Háskólabíói sl. mið-
vikudagskvöld: „Úr þvi sem
komið er tel ég bezta kostinn
vera ríkisstjóra Alþýðuflokks,
Kvennalista og Sjálfstæðis-
flokks.” Formaður Alþýðu-
flokksins áréttaði þessa
stjómarhugmynd sína í útsend-
ingu Stöðvar 2 á fimmtudags-
kvöld.
Fréttamaður Stöðvar 2 spurði
Þorstein Pálsson, formann Sjálf-
stæðisflokks, hvað hann hefði að
segja um framangreint stjómar-
tilboð formanns Alþýðuflokksins.
Þorsteinn svaraði því til að bæði
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, og
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, hafí í
framboðsræðum biðlað til Sjálf-
stæðisflokks um stjómarmyndun
að kosningum loknum. „í þessu
felst rétt pólitískt mat,“ sagði
Þorsteinn. „Það verður ekki unnt
að mynda hér sterka, starfhæfa
ríkisstjóm nema að Sjálfstæðis-
flokkurinn verði þátttakandi í
henni." Þorsteinn sagði að fram-
komin hugmynd Jóns Baldvins um
stjómarmynstur að kosningum
loknum byggði einnig á þessum
veraleika.
„Það er hinsvegar ekki hægt
að treysta því“, sagði Þorsteinn,
„að mynduð verði ríkisstjóm með
þátttöku Sjálfstæðisflokksins
nema hann komi sterkur út. Það
er um þetta sem kosningamar
snúast. Ef kjósendur vilja sterka
ríkisstjóm og taka ákvörðun í
samræmi við það í kjörklefanum
á laugardaginn verður hægt að
mynda ferska og sterka ríkis-
stjóm. Um þetta snýst kosninga-
baráttan núna.“