Morgunblaðið - 25.04.1987, Qupperneq 17
greiðslu svo þeir geti flutt i viðráð-
anlegt húsnæði.
Varðandi þá tillögu sem fylgdi
með fyrirspuminni verð ég að segja
eins og er að mér lýst ekki a hana.
* Nýbúið er að samþykkja lög
frá Alþingi og breyta ákvæðum
varðandi skattaafslátt vegna hús-
næðiskaupa og húsnæðislána.
* Það er ljóst að þessi tillaga
myndi kosta ríkissjóð hundruð millj-
óna á næstu áram. Engin tillaga
er hins vegar um það hvemig ríkis-
sjóður á að mæta þeim kostnaði.
* Engin trygging er fyrir því að
tillagan feli í sér viðunandi lausn
fyrir þá sem eiga í erfiðleikum, en
hins vegar augljóst að hún myndi
koma mörgum til góða sem ekki
eiga í neinum fjárhagserfíðleikum.
* Að styrkja menn á grandvelli
uppsafnaðra verðbóta án tillits til
þess hvemig verðmæti eignarinnar
hefur breyst, sem lánið var fjárfest
í, og án tillits til tekna eða eignar-
stöðu lántakans almennt er óveij-
andi.
Mér þætti vænt um að fá frá
ykkur aðrar tillögur og heyra
álit ykkar á þeim leiðum sem ég
tei álitlega til hjálpar þeim hús-
næðiskaupendum sem enn eiga í
erfiðleikum. Að lokum vil ég
vekja athygli á þvi, að á Lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins 5.-8.
mars sl. var m.a. eftirfarandi
samþykkt:
„Enn eiga þeir hópar þó í vera-
legum vandræðum sem lent hafa í
greiðsluerfíðleikum vegna íbúðar-
kaupa á undanfömum áram þrátt
fyrir mikilsverða aðstoð. Gefa þarf
þessu fólki kost á að sameina öll
sín Byggingarsjóðslán og skuld-
breyta þeim til lengri tíma.“
Með bestu kveðjum,
Friðrik Sophusson."
Ég hlýt að harma, að samtökin
skuli misnota fyrirliggjandi upplýs-
ingar án nokkurs samráðs við þá,
sem lögðu á sig að svara bréfum
þeirra og ítreka enn að þessi mál
verða til skoðunar í tengslum við
ný skattalög.
V89I JM<IA ,SS flUOAaaAOUAJ .aia/vW’/UOflOW
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
Nokkur hvatmngarorð
eftír Þorstein Má
Aðalsteinsson
Við sem búum hér í Norðurlands-
kjördæmi eystra hljótum að vera
sammála um það að við viljum og
verðum að vera sterkt afl í þjóð-
félaginu og snúa bökum saman til
þess að halda okkar hlut.
Við viljum halda okkar hlut, auka
hann og ekki missa, vegna þess að
héma er okkar heimili, atvinna og
byggð og hér viljum við byggja upp
framtíð okkar.
í dag er okkur falið að velja
nýja gæslumenn til þess að veija
okkar kjördæmi og koma á fram-
færi og hrinda í framkvæmd því
sem okkur fínnst að betur mætti
fara hér í kjördæminu og í lands-
málum almennt.
Nú er úr mörgu að velja. Níu list-
ar era í framboði og hveijum fínnst
sinn fugl fagur. Auðvitað fara menn
ekki í framboð í baráttusæti nema
hafa þó nokkra trú á sjálfum sér
og þeir sem neðar á listunum standa
eða beijast fyrir þá hafa mikið til
síns máls.
í þessum stuttu hvatningarorð-
um til þeirra sem ganga að kjör-
borðinu í dag vil ég reyna að forðast
það að lítilsvirða góðar hugsanir
sem að sjálfsögðu fylgja öilum
framboðum. Þess í stað iangar mig
að draga fram í dagsljósið það sem
mér fínnst meginmáli skipta fyrir
okkur hér í Norðurlandskjördæmi
eystra.
Halldór Blöndal hefur verið okk-
ar kjördæmi til framdráttar á
undanfömum árum á mörgum svið-
um og er tvímælalaust sterkasti
stjómmálamaðurinn í kjördæminu.
Hann hefur verið óþreytandi bar-
áttumaður fyrir málefnum kjör-
Þorsteinn Már Aðalsteinsson
„Halldór Blöndal hefur
sýnt og sannað að bar-
áttumál D-listans o g
landsbyggðarinnar
fara saman. Hann hef-
ur sýnt og sannað ágæti
sitt sem mikilhæfur
stjórnmálamaður. I ein-
stökum málum sem upp
hafa komið í byggðum
norðanlands hefur
Halldór Blöndai verið
sverð og skjöldur okkar
kjördæmis og beitt sér
af alefli fyrir okkar
málefnum.“
dæmisins hveiju sinni.
Margar þær ffamfarir sem hafa
orðið hér á undanfömum áram era
ekki tilviljanir einar heidur að mikl-
um hlut markviss vinna manna sem
ber okkar hag fyrir bijósti, þar
hefur Halldór Blöndal verið í farar-
broddi. Halldór Blöndal á einnig
sinn stóra þátt í verkefnum sem enn
hafa ekki komið beint fyrir sjónir
almennings, en koma þó til með að
breyta miklu í lífí margs fólks í
framtíðinni, og nefni ég t.d. að
koma á öryggu vegasambandi til
Ólafsfjarðar með stórframkvæmd-
um í jarðgangagerð.
Halldór Blöndal hefur sýnt og
sannað að baráttumál D-listans og
landsbyggðarinnar fara saman.
Hann hefur sýnt og sannað ágæti
sitt sem mikilhæfur stjómmálamað-
ur. í einstökum málum sem upp
hafa komið í byggðum norðanlands
hefur Halldór Blöndal verið sverð
og skjöldur okkar kjördæmis og
beitt sér af alefli fyrir okkar málefn-
um.
Kjósendur líta margir hveijir
þannig á málið, að Halldór Blöndal
sé öraggur um þingsæti að loknum
kosningum burtséð frá þvi hvað
viðkomandi kýs. Það er stuðningur
okkar og styrkur að tefla fram
hæfasta og reyndasta stjómmála-
manni okkar hér og veita honum
brautargengi. í raun og vera er þó
hvert atkvæði við D-listann meira
en stuðningsyfírlýsing við Halldór
Blöndal sem góðan og gegnan út-
vörð. Það er jafnframt stuðningur
við þá stefnu og þau málefni sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur barist
fyrir þar sem áhersla hefur verið
lögð á frelsi einstaklingsins til at-
hafna og heilbrigt og stöðugt
þjóðfélag.
Listi sjálfstæðismanna í Norður-
landskjördæmi eystra er vel skipað-
ur með þá Bjöm Dagbjartsson og
Halldór Blöndal
Tómas Inga Orlrich í öðra og þriðja
sæti. Bjöm hefur víðtæka þekkingu
í sjávarútvegsmálum, undirstöðuat-
vinnuvegi þessarar þjóðar, og
Tómas hefur vakið athygli fyrir
skrif sín um landsbyggðarmál.
Fjórða sætið skipar svo Vigfús
Jónsson bóndi sem auk starfa við
hefðbundinn búskap hefur langa
reynslu af nýjum búgreinum, eink-
um fískeldi.
Fuliyrða má að enginn listi á
Norðurlandi eystra er skipaður fólki
með jafn víðtæka þekkingu úr hin-
um ýmsu atvinnugreinum. Þetta
kjördæmi á það skilið að fá að njóta
starfskrafta þeirra á Alþingi.
Tryggjum það með því að veita
D-listanum brautargengi á kjördag.
Kjósum D-listann.
Höfundur er framkvæmdastjóri
loðdýrabúsins á Böggvisstöðum,
DaJvik.